Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.1996, Síða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1996
Alfreð stefnir í úrslit á næsta ári.
Framtíð KA í
handbolta
„Ég geri ráð fyrir að vera
áfram með liðið og ég ætla að
lýsa því yfir að við verðum i úr-
slitum á nýjan leik á næsta ári.“
Alfreð Gíslason, í DV.
Forsetaslagur Clint-
ons og Doles
„Kosningarnar ættu að varða
okkur, bömin okkar og framtíð-
ina. En hún er líklegri til að
flalla um fortíðina eða að fanga
hjörtu kynslóðar Bobs Doles sem
eru krónískir kjósendur.“
Rlchard Thau, í Newsweek.
Ummæli
Fólksflóttinn úr
þjóðkirkjunni
Ég er bara afskaplega feginn
að sjá hvernig þetta skiptist, en
miðað við skiptinguna er aug-
ljóst að þetta er ekki af mínum
orsökum." •
Flóki Kristinsson, í Tfmanum.
Sigurlið MR
í spurninga-
keppninni
„Hrokinn er bara gríma sem
við setjum upp til að pirra aðra
framhaldsskólanemendur."
Guðmundur R. BJörnsson, í Tímanum.
Forsetaframbj óð-
endurnir
„Þar við bætist að engin þess-
ara persóna virðist hafa alúðleg-
an heildarpersónuleika heldur
koma þær fyrir sem tækifæris-
sinnaðar persónur að eðlisfari
en með misþykka sykurhúð þó.“
Tryggvi V. Lfndal, í DV.
Munaðarleysingjar
Fjölmargar af þekktustu per-
sónum sögunnar voru munaðar-
leysingjar. Einna þekktastur var
Múhameð spámaður sem uppi
var á árunum 570-632 e. Krist.
Faðir hans dó áður en hann
fæddist og móðir Múhameðs dó
þegar hann var 6 ára. Frændi
hans, Abu Talib, sá um uppeldi
spámannsins. Meðal annarra
frægra munaðarleysingja má
telja Leo Tolstoj, sem missti
móður sína tveggja ára og föður
sinn á áttunda aldursári, og Edg-
ar Allan Poe, sem missti móður
sína þegar hann var tveggja ára,
en faöir hans, sem var alkó-
hólisti, stakk af frá konu og
börnum stuttu eftir fæðingu
drengsins.
Blessuð veröldin
Ingrid Bergman
Ingrid
Bergman
(1915-82) var
ein af þekkt-
ustu munað-
arleysingjum
sögunnar.
Móðir henn-
ar dó þegar
hún var þriggja ára og þegar fað-
ir hennar dó, 10 árum síðar, fór
hún í fóstur hjá frændfólki sínu.
Sú staðreynd er örugglega ein
ástæða þess að þessi fræga leik-
kona þótti alla tíð vera hlédræg
og feimin og virtist oft lifa í eig-
in hugarheimi.
Suðaustankaldi
í dag er gert ráð fyrir suðaustan
stinningskalda eða allhvössu veðri
fram eftir degi á landinu en síðan
hægari suðlægri átt. Rigning eða
skúrir verða víða um land, einkum
austan- og suðaustanlands en þurrt
Veðrið í dag
að mestu á Norðurlandi og Vest-
fjörðum síðar i dag. Hiti verður á
bilinu 4-12 stig, hlýjast norðan-
lands.
Sólarlag í Reykjavík: 20.47.
Sólarupprás á morgun: 06.09.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.40.
Árdegisflóð á morgun: 12.18.
Veóriö kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 8
Akurnes rigning 9
Bergsstaðir skýjaö 5
Bolungarvík rigning 5
Egilsstaðir úkoma í grennd 10
Keflavíkurflugv. súld 8
Kirkjubkl. rigning 7
Raufarhöfn skýjað 5
Reykjavík úrkoma í grennd 8
Stórhöfði þoka 7
Helsinki slydda 0
Kaupmannah. þoka 3
Ósló skýjað -0
Stokkhóhnur skýjað 2
Þórshöfn þokumóða 7
Amsterdam þokumóða 9
Chicago heiðskírt 0
Frankfurt þokumóða 4
Glasgow skýjað 10
Hamborg mistur 8
London mistur 9
Los Angeles léttskýjað 14
Lúxemborg þokumóóa 5
Paris þokumóóa 5
Róm þokumóða 8
Mallorca þoka 9
New York snjókoma 2
Nice léttskýjað 12
Nuuk heiðskírt -5
Orlando léttskýjað 14
Vín léttskýjað 5
Washington rign. á síð.kls. 3
Winnipeg heiðskírt 3
Karl Ölvisson, bóndi í Þjórsártúni:
Sauðburður og vor-
verk fram undan
„Ég var að reyna að losa tvo
rúllubagga á vörubílspalli og ann-
ar þeirra var bundinn. Ég var ekki
fyrir neðan vörubílspallinn, held-
ur til hliðar við hann, þannig að
það átti ekki að vera nein hætta.
Einhvern veginn atvikuðust þó
hlutir þannig að rúllubagginn valt
út af pallinum á hliðinni og ofan á
mig,“ sagði Karl Ölvisson, bóndi í
Maður dagsins
Þjórsártúni, sem varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að lær-
brotna og hljóta fleiri meiðsl þegar
hann fékk 600 kg þungan rúllu-
bagga ofan á sig. Karli tókst að
bjfflga lífi sínu með því að taka á
öllu sínu og velta bagganum af efri
hluta líkamans en lærbrotnaði
þegar rúllan kom á fótlegginn.
„Ég hef ekki illan bifur á rúllu-
böggunum þó að þetta hafi komið
fyrir. Rúllubaggarnir eru mikil
bót frá þeim böggum sem áður
voru notaðir. Menn verða bara að
gæta sín í návist þeirra. Maður
hefúr heyrt um slys sem tengjast
rúlluböggunum en þó ekkert í lík-
ingu viö þetta atvik.
Það gæti orðið erfitt með bú-
störfin hjá mér á næstu mánuðum.
Ég er auðsjáanlega ekki til stór-
ræðanna á næstunni og eiginkona
mín, Jóhanna Hilmarsdóttir, vinn-
ur á kjúklingabúinu á Ásmundar-
stöðum. Börnin okkar tvö eru enn
í bamaskóla og geta því ekki sinnt
bústörfunum. Það er sauðburður
fram undan og mörg vorverk sem
bíða en óljóst hvenær ég rís á legg
á ný. Ætli ég verði ekki einhvern
veginn að verða mér úti um
vinnukraft til að koma í minn
stað,“ sagði Karl.
-ÍS
Erfðavísar Myndgátan hér að ofan lýsir málshætti
DV
KR og Fram eigast við á Reykja-
víkurmótinu.
Stórleikur
á Reykja-
víkur-
mótinu
í kvöld verður slagur Reykja-
víkurrisanna í knattspymu, KR
og Fram, á gervigrasinu í Laug-
ardal. Leikurinn er liður í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu og hefst klukkan 20.30.
Það verður fróðlegt að sjá hvern-
ig þeirri viðureign lyktar en báð-
um liðum hefúr vegnað vel á
mótinu fram að þessu.
Iþróttir
í dag fer einnig fram A-lands-
leikur í handbolta í Japan á
milli Bandaríkjanna og íslend-
inga.
Bridge
Hinn kornungi spilari Magnús
Magnússon i sveit Antons Haralds-
sonar vakti mikla athygli í úrslitum
íslandsmótsins í sveitakeppni fyrir
hugmyndaauðgi og góða tækni.
Spilafélagi hans er Sigurður Vil-
hjálmsson, en þeir eru báðir búsett-
ir í Súðavík. Magnús hefur senni-
lega haft aðferðir Zia Mahmoods í
huga þegar hann doblaði lokasamn-
inginn í þessu spOi í síðustu umferð
mótsins. Spilið kom fyrir í leik
sveita Antons og BangSímonar, suð-
ur gjafari og AV á hættu:
4 KD10 V Á432
4 D65 4 A72 ♦ 43
♦ C38b5 N
* -- * KD108
-F ÁK3 ♦ 10972
* G98643 S * D105
4 Á972
* G9765
♦ G84 * K
Suður Vestur Norður Austur
Stefán Magnús Kristján Sig.V.
pass pass lg pass
2* pass 2* pass
4» Dobl p/h
Magnús sat með eyðu í hjartanu,
vissi að hendi suðurs var takmörk-
uð í punktastyrk (suður passaði í
upphafi) og var með nokkra vörn
sjálfur. Hann ákvað því að dobla tii
refsingar í trausti þess að slæm
tromplega myndi hnekkja spilinu og
einnig í þeirri von að doblið myndi
afvegaleiða sagnhafa. Sigurður
ákvað að spila út tígultíu í upphafi,
Magnús tók tvo hæstu í litnum og
spilaði þriðja tíglinum. Stefán
Guðjohnsen fékk slaginn á drottn-
inguna og ákvað að reyna að spila
upp á endaspilun með því að
hreinsa upp hliðarlitina. Hann tók á
laufkónginn, inn á spaða, tók laufás-
inn og trompaði lauf. Hann spilaði
síðan spöðum í þeirri von að litur-
inn lægi 3-3, en Sigurður trompaði
og fékk síöan tvo slagi til viðbótar á
tromp. Sveit Antons græddi 10 impa
á spilinu, þvi á hinu borðinu voru
spiluð 3 hjörtu slétt staðin.
ísak Örn Sigurðsson