Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
5
I>V
Fréttir
Deilur stjórnar og stjómarandstöðu um vorþingið:
Þetta eru átök um alger
grundvallarmál
- segir Svavar Gestsson, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins
„Ríkisstjórnarflokkarnir hafa
mikinn meirihluta á Alþingi og auð-
vitað ræður meirihlutinn. Setjum
svo að ríkisstjórnin setti allt á fullt
hér í þinginu til að keyra þessi um-
deildu frumvörp í gegn þá getur
hún það. Stjórnarandstaðan getur
ekki ekki ein og sér stöðvað það.
Hins vegaf er það svo að átök um
grundvallarmál smita út frá sér hér
í þingstörfunum. Þingmenn verða
mjög varir við að það er mikil
hreyfíng úti í þjóðfélaginu vegna
þeirra. Viö erum hluti af þeirri
hreyfingu. Og við lítum á það sem
skyldu okkar að sýna það með ein-
hverjum hætti að Alþingi sé ekki
bara tilfinningalausir múrar og að
við séum heyrnarlaus og blind,“
sagði Svavar Gestsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins, um
þann óróa og þau átök sem virðast
vera í uppsiglingu á Alþingi.
Hann sagði að það væri gríðar-
lega mikill þrýstingur á þingmenn
og ríkisstjórn vegna frumvarpanna,
enda væru þau hættuleg.
„Það hættulegasta við þau er að
það er verið að gera tilraun til að
skipa félagsstarfsemi með lögum -
innri málum félaga. Þetta er svona
eins og ef blaðamenn stæðu frammi
fyrir því að allt í einu væru komin
lög sem gerðu ráð fyrir því að kjósa
ætti formann félagsins með tiltekn-
um hætti sem ríkisvaldið skipaði
fyrir en ekki ákvörðun Blaða-
mannafélagsins. Þetta er ekkert
annað en íhlutun um frelsi fólks til
að vera í félögum og að skipa sínum
málum sjálft. Þess vegna gengur
þetta ekki upp og þess vegna ætlar
stjórnarandstaðan að beita sér af al-
efli gegn frumvörpunum," sagði
Svavar Gestsson. -S.dór
Skólahljóm-
sveit í tón-
leikaferð
DV, Hvammstanga:
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
heimsótti Grunnskóla Hvamms-
tanga um helgina og lék þar undir
stjórn Birgis D. Sveinssonar á ferð
sinni um Norðurland. Einnig var
leikið á Blönduósi og Akureyri.
Hljómsveitin er skipuð 40 ungmenn-
um á aldrinum 13-18 ára og lék
vandaða tónlist við allra hæfi.
Hljómsveitin var stofnuð 1963 og
hefur Birgir stjórnað henni frá upp-
hafi. Hátt á annað hundrað ung-
menni starfa innan hennar, allt frá
átta ára aldri til tvítugs. -ST
.. . ' /a^-.
Hljómsveitin og stjórnandi í félagsheimilinu á Hvammstanga.
DV-mynd ST
> HYUIlDni 1LADA
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án átborgunar
RENAULT
GOÐIR NOTAÐIM BILAR
Mazda 626 2000 ‘93,
ssk., 4 d., ek. 47 þús. km.
Verð 1.580.000
Nissan Patrol dísil ‘91,
beinsk., d-grár, ek. 152 þús. km.
Verð 2.550.000
Daihatsu Feroza 1000 ‘90,
beinsk., 3 d., vínr., ek. 77 þús. km.
Verð 890.000
Daihatsu Applause 4x4 1600 ‘91,
beinsk., 4 d., grár, ek. 68 þús. km.
Verð 860.000
Daihatsu Applause 1600 ‘93,
5 g., 5 d., rauður, ek. 59 þús. km.
Verð 890.000
Isuzu Trooper 2600 ‘91,
beinsk., 5 d., rauður, ek. 118 þús.
km. Verð 1.740.000
Honda Civic 1400 ‘91,
beinsk. 4 d., grár, ek. 98 þús. km.
Verð 740.000
Lada Lux ‘92,
beinsk., 4 d., blár, ek. 30 þús. km.
Verð 340.000
Hyundai Sonata 2000 ‘93,
ssk., 4 d., blár, ek. 92 þús. km.
Verð 1.090.000
Renault Clio RT1400 ‘93,
ssk., 5 d., rauður, ek. 46 þús. km.
Verð 890.000
Renault 19 RT 1800 ‘93,
ssk., 4 d., vínr., ek. 40 þús. km.
Verð 1.110.000
Daihatsu Charade ‘92,
beinsk., 3 d., hvítur, ek. 73 þús. km.
Verð 550.000
MMC Colt GLi ‘94,
beinsk., 3 d., hvítur, ek. 55 þús. km.
Verð 860.000
Renault19RN, 1400 ‘94,
beinsk., grár, ek. 53 þús. km.
Verð 910.000
MMC Galant 2000 ‘89,
ssk., 4 d., hvítur, ek. 87 þús. km.
Verð 850.000
Opid virka dnga frá kl. 9 - 1 fi,
laugarda$a 10 - 14
i
9
<íiíí)íö'íi?N
VISA
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SÍMI: 568 1200, BEINN SiMI: 581 4060