Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
Útlönd
DV
Ekkert lát á sprengjuárásum Israela á Líbanon í nótt og í morgun:
Gerðu eldflaugaárás á
búðir Palestínumanna
Þrír særðust alvarlega þegar Isra-
elskar herþyrlur gerðu eldflauga-
árás á búðir Palestínumanna í Suð-
ur-Líbanon í nótt, þar af kona og
þriggja ára sonur foringja í róttæk-
um armi PLO. Er þetta í fyrsta sinn
sem ísraelar ráðast á búðir Palest-
ínumanna frá því árásir þeirra á Lí-
banon hófust á fimmtudag.
Ekkert lát var annars á árásum
Israelsmanna á þorp og bæi í Líban-
on í gærkvöldi, í nótt og í morgun,
utan hvað árásum var hætt um stund
í nágrenni hafnarborgarinnar Tyros
svo fólk hefði tækifæri til að flýja.
Um miðnætti fórst kristinn maður í
árás á Bekaa-dalinn og fjölskylda
hans særðist. Snemma í morgun
voru síðan gerðar endurteknar el-
flaugaárásir á þorp og bæi i Bekaa-
dalnum, á svæði þar sem talið er að
Hisbollah-skæruliðar haldi til. Að
minnsta kosti 24 hafa farist í árásum
ísraelsmanna á Líbanon undanfarna
VIGTARMENN
Námskeið til löggildingar vigtarmanna
verður haldið á Akureyri dagana 22., 23.
og 24. apríl 1996 og í Reykjavík dagana
6., 7. og 8. maí 1996.
ef næg þátttaka fæst!!!
Námskeiðinu lýkur með prófi.
Skráning þátttakenda og allar nánari upplýsingar
á Löggi I d i nga rstofu n n i.
Sími 568 1122
Löggildingarstofan
UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 52, Eskifirði, föstudaginn 19. apríl 1996 kl. 10.00, á eftirfarandi eignum: Hlíð 13, Djúpavogi, þingl. eig. Reynir Amórsson, gerðarbeiðandi Bygging- arsjóður verkamanna.
Hlíðarendavegur 6b, e.h., Eskifirði, þingl. eig. Kristrún H. Amarsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóður Austur- lands.
M/b Guðmundur Kristinn SU-404, þingl. eig. Sjávardýr hf., gerðarbeið- andi Grandi hf.
Austurvegur 21, (3. áfangi), Reyð- arfirði, þingl. eig. Melkom hf., gerð- arbeiðendur Gjaldheimta Austur- lands, Iðnþróunarsjóður og Sýslu- maðurinn á Eskifirði.
Stekkjarbrekka 8, Reyðarfirði, þingl. eig. Friðjón ÓIi Vigfússon, gerðar- beiðendur Byggingarsjóður ríkisins, Gjaldheimta Austurlands, Lífeyris- sjóður Austurlands og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Búland 14, Djúpavogi, þingl. eig. Regína Margrét Friðfinnsdóttir, gerð- arbeiðendur Byggingarsjóður verka- manna, Djúpavogshreppur og Vá- tryggingafélag íslands. Búðareyri 15, Reyðarfirði, þingl. eig. Óskar Alfreð Beck og Sveinsína E. Jakobsdóttir, gerðarbeiðandi Gjald- heimta Austurlands.
Strandgata 10, Eskifirði, þingl. eig. Eskfirðingur hf., gerðarbeiðendur Vátryggingafélag íslands og íslands- banki hf. , Sæberg 15, Breiðdalsvík, þingl. eig. Fjóla Ákadóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Sýslu- maðurinn á Eskifirði.
Búðareyri 33, eignarhl. 2, Reyðarfirði, þingl. eig. B-33 sf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun og Gjaldheimta Aust- urlands.
Tollvömgeymsla, Reyðarfirði, þingl. eig. Tollvörugeymsla Austurlands hf., gerðarbeiðandi Gjaldheimta Austurlands.
Búðavegur 24, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Ingólfur Sveinsson, gerðarbeið- andi Lífeyrissjóður Austurlands. Geymsla, Reyðarfirði, þingl. eig. Markús Guðbrandsson, gerðarbeið- andi Gjaldheimta Austurlands. Grjótárgata 6, Eskifirði, þingl. eig. Jó- hanna Sölvadóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lands- banki íslands.
Tungufell, Breiðdal, þingl. eig. Björg- ólfur Jónsson, gerðarbeiðandi Ólíu- verslun íslands hf.
Árgata 7, Reyðarfirði, þingl. eig. Agn- ar Bóasson, gerðarbeiðandi Gjald- heimta Austurlands.
SÝSLUMAÐURINN Á ESKIFIRÐI
Simon Peres, forsætisráðherra ísra-
els, vonast til að hernaðaraðgerð-
irnar styrki stöðu hans fyrir kom-
andi þingkosningar.
Símamynd Reuter
daga og um 130 hafa særst, aðallega
óbreyttir borgarar.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði um átökin yfir landamæri
Líbanons og ísraels í gærkvöldi en
komst ekki að neinni niðurstöðu.
Sendiherra Libanons krafðist þess
að árásum ísraela yrði hætt, þær
fordæmdar og ísraelar neyddir til
að draga herlið sitt frá hernumdu
svæðunum syðst í Líbanon. En full-
trúi ísraela sagði þá vera að verjast
eldflaugaárásum Hisbollah-skæru-
liða á norðurhéruð ísraels.
Óttast er að átökin stofni friðar-
umleitunum í Mið-Austurlöndum í
hættu. Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti sagði, þar sem hann var stadd-
ur í Suður-Kóreu, að mikil vinna
væri lögð í að reyna að stöðva átök-
in. Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, var í síma-
sambandi við utanríkisráðherra
Sýrlands og forsætisráðherra Lí-
banons, Rafik al-hariri. Þá hélt ut-
anríkisráðherra Frakka til átaka-
svæðanna í gær, í tilraun til að
stöðva átökin.
Al-Hariri sagði að árásir ísraela
gerðu það eitt að styrkja stöðu His-
bollah-skæruliða og endurtók kröfur
sendiherra síns hjá Öryggisráði SÞ.
Mubarak Egyptalandsforseti
hvatti Öryggisráðið til að aðstoða
Líbana og lina þjáningar óbreyttra
borgara. Sagði hann ísraela hafa
komið átökunum viljandi af stað en
ríkisstjórnin hugsaði fyrst og fremst
um að ná auknu fyklgi fyrir þing-
kosningarnar 29. maí.
Möguleikar á að átökin hætti
þykja ekki miklir þar sem öflugt
orðaskak og harðorðar yfirlýsingar
komu úr herbúðum beggja vegna
landamæranna. Þannig hótuðu
Hisbollah- skæruliðar að halda eld-
flaugaárásum sínum á norðurhéruð
ísraels áfram og hóta að ráðast á
ísraela hvar sem þeir eru í heimin-
um.
Reuter
Franski byltingarsinninn Regis Debray, t.v., ræðir hér við Marcos, yfirmann
mexíkósku skæruliðahreyfingarinnar Zapatista. Debray er í heimsókn í her-
búðum Zapatista til að kynna sér baráttu skæruiiða og verður þar í viku. De-
bray er gamalreyndur byltingarmaður en hann slóst í lið með Che Guevara í
frumskógum Bólivíu 1967. Símamynd Reuter
Rán og gripdeildir á götum Monróvíu:
Vopnaðir unglingar
hafa tekið völdin
Vopnaðir unglingar í stolnum bif-
reiðum hjálparstofnana hafa tekið
öll völd á götum Monróvíu, höfuð-
borgar Afríkuríkisins Líberíu, án
þess að foringjar stríðandi fylkinga
eða friðargæsluliðar Vestur- Afríku-
ríkja skipti sér af þeim.
„Þeir koma og hefja skothríð við
byggingar en skjóta aðallega upp i
loftið til að hræða fólk svo byssu-
mennirnir geti rænt og ruplað,“
sagði einn af síðustu erlendu ríkis-
borgurunum sem enn eru í Monróv-
íu.
Friðargæslumennirnir eru aftur
komnir út á götur Monróvíu en ekk-
ert lát er á gripdeildunum sem hafa
sett svip sinn á borgina að undan-
förnu. Vígamenn og ræningjar
þurftu þó að leita skjóls í gærkvöldi
þegar hitabeltisúrhelli gerði mönn-
um lífið leitt.
Vígamenn á bandi herstjórans
Roosevelts Johnsons, sem er á flótta
undan réttvísinni, eiga í höggi við
stuðniugsmenn Charles Taylors og
Alhajis Kromahs.
Taylor og Kromah hafa oft eldað
grátt silfur en þeir sitja báðir í rík-
isráðinu sem fer með völd i landinu
og hafa sameinað krafta sína í bar-
áttunni gegn Johnson og hans
mönnum. Foringjarnir tveir fóru í
eftirlitsferð um Monróvíu síðdegis í
gær til að fullvissa íbúana um að
þeir hefðu tögl og hagldir.
Þegar Kromah reyndi að sann-
færa áheyrendur sína um að rán og
gripdeildir yrðu ekki liðin þustu hjá
unglingar í stolnum hjálparstofn-
anabilum fullum af stolnum varn-
ingi. Reuter
Madonna á von
á barni með
þjálfaranum
Bandáríska
söng- og leik-
konan Madonna
er kona ekki
einsömul, að
því er blaðafull-
trúi hennar
sagði í gær, og
hún er yfir sig
hoppandi ham-
ingjusöm. Hún á ekki böm fyrir.
Bamsfaðir stjörnunnar er leik-
fimikennarinn hennar, Carlos
Leon, sem hún hitti í New York
fyrir hálfu öðru ári. Þau voru búin
að reyna barneignir um alllangt
skeið og tilraunirnar báru greini-
lega árangur. Madonna er nú í
Ungverjalandi við upptökur á
kvikmyndinni Evitu.
Ebólaveiran í
öpum í Texas
Heilbrigðisyfirvöld hafa lokað
apræktunarstöð í suðurhluta Tex-
as eftir að tvö dýr þar drápust af
völdum afbrigðis hinnar banvænu
ebólaveiru. Starfsmenn stöðvar-
innar em undir eftirliti. Reuter
Stuttar fréttir
Hjálp og refsing
Háttsettur bandarískur emb-
ættismaður sagði að auðveldara
væri að viðhalda refsiaðgerðum
gegn stjórn íraks ef landinu yrði
jafnframt veitt mannúðaraðstoð.
Til í eftirlit
Muammar
Gaddafi Lí-
býuleiðtogi
sagði að hann
mundi fallast
á, með skilyrð-
um þó, að hóp-
ur alþjóðlegra
eftirlitsmanna
fengi að skoða
verksmiðju þar sem grunur leik-
ur á að efnavopn séu framleidd.
Ráðist á löggustöð
Vinstrisinnaðir uppreisnar-
menn eru taldir bera ábyrgð á
árás á mikilvæga lögreglustöð í
Bogota, höfuðborg Kólumbíu,
þar sem miklar skemmdir urðu.
Öryggi aukið
Lögregla í Oklahomaborg hef-
ur aukið öryggisviðbúnað sinn
vegna ársafmælis sprengjutil-
ræðisins sem varð 168 að bana.
Dóp og fátækt
Eiturlyf og fátækt voru helstu
umræðuefnin á fundi embættis-
manna frá Rómönsku Ameríku
og Evrópusambandsins um leið-
ir til að auka efnahagsleg og póli-
tísk samskipti.
Finnar áhyggjufuiiir
Finnsk stjórnvöld hafa áhyggj-
ur af því að Rússar muni telja
Eystrasaltslöndin innan áhrifa-
svæðis síns verði þau ekki með í
stækkun NATO til austurs.
Flatara skattakerfi
Bob Dole,
væntanlegur
forsetafram-
bjóðandi
repúblikana,
gagnrýndi
skattastefnu
Clintons
Bandaríkja-
forseta í gær
og hvatti til að komið yröi á flat-
ara kerfi til að létta undir með
millistéttinnni.
700 munir teknir
Alríkislögreglan FBI hefur
lagt hald á rúmlega 700 muni í
kofaræksni mannsins sem grun-
aður er um að vera sprengju-
vargurinn „Unabomber“.Reuter