Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
9
Utlönd
Elísabet drottning fagnar sjötugsafmæli meö matarboði:
Díönu og Fergie
ekki boðið með
Díana prinsessa og Sarah Fergu-
son, Fergie, hafa veriö útilokaðar
frá afmælisveislu Elísabetar drottn-
ingar. Hún fagnar sjötugsafmæli
sínu með kvöldverðarboði fyrir fjöl-
skylduna í Windsor-kastala á
sunnudag. í bresku dagblaði er haft
eftir ónefndum meðlimi konungs-
fjölskyldunnar að það væri gersam-
lega útlokað og út í hött að fyrrum
eiginkonum Karls og Andrésar,
elstu sona Elísabetar, yrði boðið
með.
Sagði blaðið að Elísabet hefði
ákveðið að halda ekki upp á afmæli
sitt með neinum hátíðahöldum
vegna deilna og mikillar umfjöllun-
ar sem skilnaðir sona hennar hefðu
fengið. Óttaðist drottningin að það
mundi ekki falla í góðan jarðveg
meðal þjóðarinnar ef ijármunum og
tíma yrði eytt í hátíðahöld meðan
skilnaðarmálin væru enn óleyst.
Heimildir innan hirðarinnar
segja Elísabetu afar svekkta yfir
þeim töfum sem orðið hafa á skiln-
aði Díönu og Karls. Hafa fróðir
menn tjáð henni að hún megi teljast
heppin ef skilnaðurinn nær í gegn
fyrir jól. Enn sem fyrr er tekist á
um nafnbót heimilisfang, peninga-
greiðslur og aðgang Díönu að son-
um sínum.
En Elísabet getur þó huggað sig
við orð Johns Majors forsætisráð-
herra sem hann lét falla í gær. Hann
taldi konungdæmið stöðugt eins og
klett og að flestir Bretar styddu það
þrátt fyrir alla þá neikvæðu umfjöll-
un sem konungsfjölskyldan hefði
fengið.
Reuter
Jessica Dubroff, sjö ára stúlka sem fórst þegar hún reyndi að verða yngst til að fljúga þvert yfir Bandaríkin og til
baka, var borin til grafar í gær. Var hún jörðuð í Pescadero um 50 km suður af San Francisco. A myndinni bera ætt-
ingjar og vinir kistu Jessicu. Móðir hennar, Lisa Hathaway, er önnur frá hægri. Símamynd Reuter
Clinton Bandaríkjaforseti í Japan í dag:
Ræðir öryggismál við
japanska
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
kom til Japans í dag til viðræðna
við þarlenda ráðamenn um öryggis-
mál í Asíu og á Kyrrahafssvæðinu á
komandi árum. Bandaríkjamenn
hafa sagt að fundur leiðtoga ríkj-
anna tveggja sé hinn mikUvægasti
frá lokum heimsstyrjaldarinnar síð-
ari.
Clinton kom tU Japans frá Suður-
Kóreu þar sem hann skoraði á
stjórnvöld í Kína og Norður- Kóreu
að taka þátt í viðræðum um varan-
legan frið á Kóreuskaga. Japönsk
stjómvöld hafa mikinn áhuga á frið-
samlegum samskiptum kóresku
ríkjanna þar sem Japan er í skot-
færi flugskeyta Norður-Kóreu-
manna.
Miklar öryggisráðstafanir eru í
Tokyo vegna komu Clintons en lög-
reglan á ekki von á miklum mót-
mælaaðgerðum. Bæði er að efna-
hagsmál, sem hafa lengi verið
þrætuepli Bandaríkjanna og Jap-
ans, verða ekki í brennidepli í við-
ræðum leiðtoganna og tUkynnt hef-
ur verið um fækkun í herafla
Bandaríkjamanna á japönsku landi.
raoamenn
Bill Clinton og Hillary fá sér göngu-
ferð í Suður-Kóreu.
Símamynd Reuter
Þá var úrheUisrigning í Tokyo í
morgun, skömmu áður en Clinton
kom þangað.
WiUiam Perry, landvarnaráð-
herra Bandaríkjanna, tilkynnti um
niðurskurö bandarísks herafla í
Japan í gær og þar kom m.a. fram
að 20 prósent þess lands, sem
Bandaríkjamenn hafa hersetið á
eyjunni Okinawa, verða látin aftur í
hendur þarlendra landeigenda.
Reuter
Suður-Afríka:
Tárin runnu við
vitnaleiðslur
Fyrstu fórnarlömb kúgunar og
ofbeldis á timum aðskilnaðar-
stefnunnar sögðu sögu sína við
svoköUuð sannleiksréttarhöld í
Jóhannesarborg í Suður-Afríku I
gær. Er tUgangur vitnaleiðsln-
anna að græða þau sár sem aðs-
Unaðarstefnan olli og draga fram
í dagsljósið þau ofbeldisverk sem
kunna að hafa verið framin en
ekki hefur verið sagt frá. Voru
vitnaleiðslurnar stöðvaðar í hálf-
tíma vegna sprengjuhótana en
gengu annars ótruflaðar. Var
mikið af pappírsklútum til stað-
ar enda féUu mörg tár við frá-
sagnir vitnanna.
Ekkja manns sem lést i varð-
haldi 1976 sagði frá raunum sín-
um en hún var margsinnis yfir-
heyrð og pyntuð vegna aðUdar
manns hennar að samtökum
blakkra. Tjáði hún viðstöddum
hvemig hún hafði verið barin og
brennd og pínd með rafstuðum
og látin játa að hún væri hryðju-
verkamaður. Sagðist hún ekki
trúa því að maður hennar hefði
notað gallabuxur tU að hengja
sig I klefa sínum og sannleikur-
inn yrði að koma í ljós. Reuter
Svíar skera niöur
í velferðarkerfinu
Sænsk stjórnvöld ætla að skera
niður framlög til heilsugæslu og
atvinnuleysisbóta á næsta fjár-
hagsári, samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu sem Erik Asbrink fjár-
málaráðherra kynnti í gær. Þá
verður aðstoð við erlend ríki skor-
in verulega niður.
Svíar ætla að skera niður ríkis-
útgjöld um nálægt tvö hundruð
milljarða íslenskia króna á næstu
þremur árum til að koma böndum
á gífurlegar skuldir ríkisins, sem
áætlaðar eru um þrettán þúsund
milljarðar íslenskra króna á
þessu ári.
Niðurskurðinum er ætlað að
koma jafhvægi á ríkisfjármálin
árið 1998. Stjórnvöld gera ráð fyr-
ir því í spám sínum að lánsþörf
ríkisins verði þá komin niður í
um tuttugu milljarða íslenskra
króna, samkvæmt nýja fjárlaga-
frumvarpinu.
Göran Persson forsætisráð-
herra, sem gegndi embætti fjár-
málaráðherra í ríkisstjórn Ingv-
ars Carlssonar, hefur látið að því
liggja frá því hann tók við völdum
í fyrra mánuði að frekari niður-
skurður á útgjöldum ríkisins væri
nauðsynlegur.
Erik Asbrink, fjármáiaráðherra
Svíþjóðar.
Jafnaðarmannaflokkurinn lof-
aði fjárlagasparnaði upp á nærri
1200 milljarða íslenskra króna
þegar hann sigraði í kosningun-
um 1994 en áhrifa þessa er ekki
enn að fullu farið að gæta hjá al-
menningi.
Atvinnurekendur munu þurfa
að taka á sig verulegan hluta nið-
urskurðarins á sumum sviðum.
Atvinnurekendur munu t.d. verða
ábyrgir fyrir öllum kostnaði
vegna veikra starfsmanna fyrstu
fjórar vikurnar frá árinu 1997, í
stað tveggja eins og nú er. Reuter
^„Det N0dvendige Seminarium” í Danmörku^
Á síðastliðnum þremur árum höfum við tekið á móti íslenskum námsmönnum á öllum svið-
um. Við viljum sömuleiðis á þessu ári bjóða íslenskum námsmönnum að hefja nám hjá okk-
ur 1. september.
4 ára alþjóðlegt kennaranám:
Alþjóðlegt nám, 4 mánaða námsferð til Asíu, 6 mánaða starfskennsla við danska skóla, 8
mánaða starfskennsla í Afríku þar sem þú munt taka þátt í að þjálfa nýja kennara til starfa
við grunnskóla í Mósambík eða Angóla.
Að auki er kennsla í öllum undirstöðufögum kennaramenntunarinnar:
Samfélagsfræði. náttúrufræði, danska, evrópsk tungumál, listir, tónlist, íþróttir, leiklist,
kennslufræði, sálfræði.
Námsmenn frá átján mismunandi löndum. - Allir námsmenn búa í skólanum.
Upplýsingafundur í Reykjavík: sunnudaginn 21. apríl kl. 141 Norrcena liúsinu.
Hringið eða sendið okkur fax til að nálgast bæklinga: Sími 00 45 43995544. Fax: 00 45
43995982.
Det Npdvendige Seminarium, 6990 Ulfborg, Danmörku.
ARMORCOAT-ÖRYGGISFILMAN
breytir venjulegu gleri í öryggisgler
og gerir það 300% sterkara.
Filman fæst bæði glær
og lituð og virkar þá
jafnframt sem sólar-
vörn. Báðar gerðir úti-
loka nánast alla UV-
geisla og því verður
engin upplitun.
í fyrsta sinn er boðin
SÓLAR- & ÖRYGGIS-
FILMA FYRIR BÍLA
sett á með hita af fag-
mönnum. Filman
dregur úr hita og birtu
inni í bílnum. Jafnframt
því sem öryggi eykst
og upplitun hverfur.
Filman setur glæstan svip á bifreiðina auk
þess sem minni hætta er á innbrotum.
Armorcoat-umboðið
hjá Skemmtilegt hf.
BHdshöfða 8, sími 567 4727