Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
'tilveran,,
færi undir 50 þúsund. Hér kemur
svo útreikningurinn en inn í hann
vantar skó og e.t.v. nærfót á brúð-
gumann. Einnig gefur Dóra 10%
afslátt af vörunum ef kjóllinn er
leigður hjá viðkomandi og
dragast þá tæpar 1.400 krónur
frá heildarverðinu.
Dæmi
um útgjöld
Brúðarkjóll: 20.000
Kjólföt: 4.200
Brúðarmeyjarkjóll:
4.000
Föt á
brúðarsvein: 2.900
Korselett: 5.900
Blúndunærhuxur
á brúði: 1.900
Sokkar við
korselett: 1.600
Eyrnalokkar: 1.600
Hálsfesti: 2.900
Samtals: 45.000 kr.
-ingo
Textílhönnuður og Ijósmyndari sem giftu sig um páskana:
Sá sjálf bæði
um kjólinn og
veisluna
„Ég hef alltaf haft óljósar hug-
myndir um hvernig kjól ég vildi
gifta mig í, þ.e.a.s. hvað varðar snið
og útlit þó að endanleg útfærsla hafi
ekki orðið til fyrr en rétt fyrir brúð-
kaupið. Ég vildi t.d. ekki gifta mig í
hefðbundnum brúðarkjól heldur
frekar látlausum," sagði Unnur
Hilmarsdóttir textílhönnuður sem
giftist Arnaldi Halldórssyni Ijós-
myndara laugardaginn fyrir páska.
Unnur íklæddist ísbláum brúðar-
kjól úr silkiefni sem hún sá sjálf um
að lita. Hún sá einnig um að hanna
sniðið en föðuramma hennar, Unn-
ur Malmquist saumakona, sá um
saumaskapinn.
Veislan skipulögð
„Ég var alltaf ákveðin í að sjá um
veisluna sjálf því ég hef alltaf haft
gaman af því að elda og undirbúa
veislur. Við erum þrjár mæðgurnar
og við höfum alltaf hjálpast að við
slíkan undirbúning. Það má segja
að við höfum verið u.þ.b. tvo mán-
uði að undirbúa brúðkaupið, þann
fyrri að skipuleggja og þann seinni
að framkvæma," sagði Unnur.
Þau buðu upp á „heimilislegt“
hlaðborð með girnilegum smárétt-
um sem m.a. samanstóð af paté,
pitsubitum, sveppahálfmánum, mis-
munandi brauðbollum, smjördeigs-
höttum með laxamús, reyktu
kalkúnabrjósti með aspas, gráð-
ostarönd með brauðstöngum, osta-
bitum, grænmeti, ávöxtum og að-
keyptum snittum. I eftirrétt var
frönsk súkkulaðiterta, kransakaka
sem tengdamóðir Unnar sá um,
kransakökubitar og marengstoppar,
allt heimagert.
„Það sem hægt var að frysta út-
bjuggum við með einhverjum fyrir-
vara en svo þurfti að kalla út vinnu-
flokk morguninn sem brúðkaupið
fór fram til að skera niður, smyrja
og skreyta," sagði Unnur sem sjálf
mætti um morguninn til að skreyta
salinn með birkigreinum úr garðin-
um og ferskum ávöxtum.
Aðspurð sagðist hún ekkert hafa
verið þreytt eftir alla þessa vinnu
en vissulega væri það léttir að veisl-
an væri yfirstaðin. „Ég gerði ekki
kröfur um að veislan væri mjög
formleg heldur hugsaði frekar um
hana eins og hvert annað fjölskyldu-
boð. Sem slík tókst hún mjög vel.“
-ingo
Unnur og Arnaldur tóku sig vel út á brúðkaupsdaginn.
20 sí5na
aukabla5 um SÆNSKA DAGA
Aukalilað þetta verður helgað Svíþjóð og sænsku atvinnu-
og mannlífi. Auk þess verður fjallað um það sem í lioði verð-
,Sænskum döguma í Kringlunni og víðar 17.-21. apríl.
ur a
fylgir DV á morgun