Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Side 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996
Afmæli
Edda Sigrún Ólafsdóttir
Edda Sigrún Ólafsdóttir lögmaö-
ur, Skólavörðustíg 3, Reykjavík,
verður sextug á morgun.
Starfsmaður
Edda fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk prófum frá
Kvennaskólanum í Reykjavík
1953, lauk stúdentsprófi frá öld-
ungadeild MH 1974 og embættis-
prófi í lögfræði frá HÍ 1979. Hún
öðlaðist hdllögmannsréttindi 1981.
Edda var fulltrúi á málflutn-
ingsstofu Hjartar Torfasonar hrl.
og Eyjólfs Konráðs Jónssonar hrl.
1979-81 en hefur starfrækt eigin
lögmannsstofu í Reykjavík, nú að
Skólavörðustig 3, frá 1981.
Edda var varaformaður Nem-
endasambands Kvennaskólans í
Reykjavík 1964-66, sat í stjóm
Kvenstúdentafélags íslands
1975-82, var varaformaður Nem-
enda- og kennarafélags Hvassaleit-
isskóla 1978-84, varaformaður i
Reykjavíkurklúbbi nr. 1 innan
Soroptimistasambands íslands
1983-84 og hefur sinnt ýmsum
nefnda- og trúnaðarstörfum á veg-
um Kvenfélagsins Hringsins í
Reykjavík.
Fjölskylda
Edda giftist 25.9. 1955 Helga
Hreiðari Sigurðssyni, f. 5.2. 1934,
úrsmíðameistara. Hann er sonur
Sigurðar Jónassonar, f. 24.12.1901,
d. 19.2. 1975, ritsímavarðstjóra, og
Júlíu Óskar Guðnadóttur, f. 30.7.
1907, d. 3.2. 1996, húsmóður.
Böm Eddu og Helga, sem öll
eru búsett í Reykjavík, eru Sig-
urður, f. 27.4. 1955, heilsugæslu-
læknir, kvæntur Rannveigu Hall-
dórsdóttur, sálfræðingi og snyrti-
fræðingi, og eru synir þeirra Hall-
dór Haukur, Helgi og Matthías
Þór; Grétar, f. 14.1. 1958, úrsmið-
ur, en kona hans er Erla Jónsdótt-
ir, BA í frönsku og dönsku og
starfsmaður við Morgunblaðið, en
böm þeirra eru Linda Rún, Hild-
ur Edda, Helga Lára og Daníel;
Helgi Hafsteinn, f. 10.1.1969,
læknanemi, en kona hans er Fjóla
Grétarsdóttir íþróttakennari og
eru börn þeirra Ásta Karin og tví-
buramir Haukur Steinn og Lilja
Dögg; Edda Júlía, f. 28.1. 1970,
kennari frá KHÍ, en maður henn-
ar er Bjarni Jóhann Árnason
húsasmiður og er sonur þeirra
Andri Már; Sigrún Gréta, f. 8.9.
1971, íþróttakennari, en maður
hennar er Albert Magni Ríkarðs-
son, nemi og bifreiðarstjóri.
Systkini Eddu, sem öll eru bú-
sett í Reykjavík, era Elín G.
Ólafsdóttir, f. 28.11. 1933, aðstoðar-
skólastýra við Langholtsskóla í
Reykjavík, var gift Matthíasi Har-
aldssyni, yfirkennara við Lang-
holtsskóla, sem er látinn; Katrín
Margrét, f. 21.2. 1942, bankastarfs-
maður, gift Matthíasi Matthí-
assyni, skipstjóra hjá Eimskipafé-
lagi íslands; og Guðjón Eiríkur
Ólafsson, f. 10.4. 1945, sérkennari
og starfsmaður Fræðsluskrifstofu
Suðurlands, kvæntur Hildi Stef-
ánsdóttur hjúkrunarfræðingi.
Foreldrar Eddu vom Ólafur
Hafsteinn Einarson, f. 1.8. 1908, d.
16.10. 1988, kennari við Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar, og Gréta
Sigurborg Guðjónsdóttir, f. 4.11.
Edda Sigrún Ólafsdóttir.
1910, d. 23.5. 1993, verslunarmaður
og húsmóðir í Reykjavík.
Þau Edda, Helgi og börn þeirra
vonast til þess að sjá sem flesta
vini og vandamenn í Akogessaln-
um að Sigtúni 3, Reykjavík, á
morgun, 17.4., kl. 18.00-20.00.
Málfríður Stefánsdóttir
í afmælisgrein sem birtist í
páskablaðinu um Málfríði Stefáns-
dóttur húsmóður brengluðust
heimildir um börn hennar og
barnabörn. Greinin er því birt
hér leiðrétt.
Málfriður Stefánsdóttir húsmóð-
ir, Hrafnistu í Hafnarfirði, varð
níræð þann 6.4. sl.
Starfsferill
Málfríður fæddist í Æðey í ísa-
fjarðardjúpi en ólst upp í Súðavík
í Álftafirði.
Hún hefur auk húsmóðurstarfa
verið í flskvinnu, aðallega í Hafn-
arfirði, og starfað hjá Félagsmála-
stofnun Hafnarfjarðar. Hún veitti
heimilishjálp Hafnaifjarðarbæjar
forstöðu um nokkurt skeið og var
í tuttugu ár formaður Mæðra-
styrksnefndar þar í bæ.
Málfríður hefur alla tíð verið
virk í félagsmálum, m.a. verið fé-
lagi i Slysavarnafélaginu, Verka-
kvennafélaginu Framtíðinni og í
Soroptimistaklúbbi Hafnarfjarðar
og Garðabæjar en hún er heiðurs-
félagi hjá Soroptimistum og
Verkakvennafélaginu Framtíð-
inni.
Fjölskylda
Málfríður giftist 4.8. 1928 Axel
Schiöth Gíslasyni, f. 16.10. 1896, d.
28.1. 1976. Axel var sonur Gísla
Gíslasonar sjómanns og Kristínar
Þórðardóttur húsmóður.
Málfríður og Axel eignuðust sjö
böm. Þau eru Sigríður Oddný Ax-
elsdóttir, f. 21.1. 1925, d. 14.7. 1990,
var gift Baldri Jónssyni, lækni á
Akureyri, og átti með honum sex
börn en barnaböm hennar eru
flórtán og langömmubörnin sex;
Stanley Ágúst Axelsson, f. 17.1.
1927, ógiftur og barnlaus; Magnús
Axel Axelsson, f. 28.10. 1929, d.
1930; Kristjana Stefanía Axelsdótt-
ir, f. 22.7. 1930, d. 1931; Garðar Þór
Axelsson, f. 23.12. 1933, hafnsögu-
maður í Stokkhólmi, kvæntur
Evu Maríu og eiga þau fiögur
börn en barnabörnin eru þrjú;
Kristín Björk Axelsdóttir, f. 11.6.
1944, gift Matthíasi Einarssyni
kaupmanni og eiga þau fiögur
börn og sex barnabörn; Brynja
Axelsdóttir, f. 3.7. 1946, gift Birni
Halldórssyni kaupsýslumanni og
eiga þau þrjú börn og eitt barna-
barn.
Málfríður átti tvö hálfsystkini.
Þau voru Petrína Stefánsdóttir,
fluttist til Ameríku 1907, nú látin,
og Haraldur Stefánsson, var bú-
settur í Bolungarvík, nú látinn.
Foreldrar Málfríðar voru þau
Stefán Pétursson sjómaður og
Kristjana Pálína Kristjánsdóttir,
húsmóðir og verkakona. Þau voru
búsett á ísafirði.
Fósturforeldrar Málfríðar voru
Magnús Guðbrandsson sjómaður
Málfríður Stefánsdóttir.
og Sigriður Oddný Hagalínsdóttir
húsmóðir. Þau bjuggu í Súðavík.
Til hamingju
með afmælið
16. apríl
90ára_____ 50 ára
Haraldur Guðnason,
Kríunesi við Vatnsenda, Kópa-
vogi.
75 áxa
Bjarni Sigurðsson,
Hvanneyrarbraut 78, Siglufirði.
70 ára
Sigurjón Jóhannesson,
Ketilsbraut 19, Húsavík.
Ríkharður Kristjánsson,
Hjallabraut 33, Hafnarfirði.
Sigrún Þorleifsdóttir (Dúdú),
Álftamýri 8, Reykjavík.
Hún er að heiman.
60 ára
Þorbjörg Bjömsdóttir,
Túngötu 6, Eskifirði.
Valdís Samúelsdóttir,
Skerjabraut 9, Seltjarnarnesi.
Ármann Ármannsson,
Gmndartúni 14, Akranesi.
Sjöfh Gunnarsdóttir,
Breiðuvíkurstekk, Eskifirði.
öm Reynir Pétursson,
Neðstaleiti 4, Reykjavík.
40 ára
Kristján Gíslason,
Sæviðarsundi 96, Reykjavík.
Auður Jónsdóttir,
Hróaldsstöðum,
Vopnafiarðarhreppi.
Erla Sveinsdóttir,
Hraunási 13, Hellissandi.
Kjartan Páll Einarsson,
Sjávarflöt 1, Stykkishólmi.
Þórdís Guðmundsdóttir,
Sörlaskjóli 60, Reykjavík.
Þorsteinn H. Þorsteinsson,
Fögrukinn 19, Hafnarfirði.
Borghildur Magnúsdóttir,
Þingvallastræti 2, Akureyri.
Fréttir
S
ER
SMÁAUGL ÝSINGA-
BLAÐIÐ
Olafur G. Einarsson, forseti Alþingis, og Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra tóku í gær á móti undirskriftarlistum
framhaldsskólanema um hert viðurlög gegn brotum á fíkniefnalöggjöfinni. Nær 29 þúsund manns skrifuðu undir.
DV-mynd GS
Leoncie telur að pósturinn sinn misfarist:
Samgönguráðuneytið
kannar málið
Leoncie Martin, söngkona og
skemmtikraftur, hefur kvartað við
samgönguráðuneytið undan þjón-
ustu Pósts og síma sem hún telur að
hafi glatað póstsendingum til sín.
Hún krefst þess af ráðuneytinu að
það rannsaki málið og gefi sér skýr-
ingar á hvað valdi þessu.
Talsmaður samgönguráðuneytis-
ins staðfestir að ráðuneytinu hafi
borist erindi frá Leoncie. Málið sé í
rannsókn og verði Leoncie tilkynnt
um niðurstöðuna þegar hún liggi
fyrir.
-SÁ