Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1996, Blaðsíða 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
íþróttir
Draumalið DV
03952 Fallinn
03953 Gárunarnir ellefu
03954 Nój Ranra
03955 Labbakútar
03956 Méreralvegsama
03957 Rulluf
03958 Sparkás
03959 Mansteftirjúnætid
03960 Góðkunningjar lög-
reglunnar
03962 Gladiatorar
03963 Vamarjaxlar
03964 Lífsýkin
03965 Krútti
03966 Larsen
03967 Inter 1/4 Milan
03968 Ballur beli
03969 Ballur bellvísi
03970 Ballur baxari
03972 B.B. 10
03973 B. 10
03974 R.B. 10
03975 TV
03976 B. 5
03977 Boltabanar BS
03978 Jón feiti
03979 BB United
03980 Þruma Bjarkar
03982 Kormákur snigill
03983 Robbie Fowler BÞM
03984 Bergholt
03985 Heiöi
03986 Highbury
03987 Samtaka
03988 RE-Kóngamir
03989 Þóra 3
03990 Stan Collymore 8
03992 Jarvin Abflex
03993 Ingi Albert #4
03994 Porter
03995 Fontur
03996 Langanes
03997 Fontur3
03998 GHÞ
03999 Magic Tipp
04000 Nec Romancy
04002 Gutti Weah
04003 Maggot
04004 Petit
04005 Fluga
04006 Iveco
04007 Hrókur
04008 Pocket
04009 Scur
04020 Gullmolar
04022 Bergkamp GÞS
04023 Klettar
04024 Sammy Lee
04025 Stöngin inn GKS
04026 Zippó-liðið
04027 Ódýra vörnin
04028 Hlunkarnir
04029 Nimbus United
04030 Fótungar
04032 Ye Olde AFC
04033 FC Merson
04034 Arsenal FC HM
04035 Varaliðið
04036 Drekinn FC
04037 Rex
04038 Lind FC
04039 Dagmundur heljar-
skinn
04040 SHG
04042 Helgi G.
04043 Vinny Jones #4
04044 Knattspyrnufélag
Kópavogs
04045 Himmós Utd
04046 Spretthörðu spé-
koppamir
04047 Hinir sókndjörfu
04048 LiverMilan
04049 Hinir 11 fræknu
04050 Hnerpubakur
04052 Bognir í baki
04053 Sæbjörgin
04054 Takmarkið
04055 Takmarkið 2
04056. Svörtu hosurnar
04057 Jói útherji
04058 Alice in Leeds
04059 Lucic FC
04060 Space Utd
04062 Fiðrildin
04063 Getur valið
04064 Pálslegur
04065 Xenopus
04066 Tjaldur
04067 Stan the Man KIM
04068 Ingi Keegan
04069 Selvogur
04070 69ers
04072 Bláa ostran
04073 Ali Baha og hans
menn
04074 Moli
04075 Kaldbakur
04076 Warhammer
04077 Liverpool FC ÓKJ
04078 Þrumurnar ÓIG
04079 Bjórglasið
04080 AC þruman
04082 No Name
04083 River Plate
04084 Auswitz
04085 FC Shankley
04086 Gróði
04087 Wu-Tang Clan RGJ
04088 Sumarlína
04089 Snöggur FC
04090 Liverpool Rúnars
04092 Rassmuss Klumpuss
04093 Out of Space 1996
04094 Satellite TV.25
04095 Steinunn LFC
04096 Þóra 4
04097 Doddarnir
04098 Cyberia
04099 Mási
04200 Sundlaugarveröir
04202 SÁ-liðið
04203 B-Bruni
04204 Sóun
04205 Strandaglópar
04206 Bláa þruman
04207 Takmark 3
04208 P.S. Gosarnir
04209 Þóra 2
04220 Hvolpur Guðjónsson
04222 Miglangarífisk
04223 Ingal
04224 Tvöfaldir meistarar
04225 Hreðjar formaður
MU FC
04226 Hreðjar formaður
04227 Giannini YM
04228 Varnarliðið
04229 Hamburger SV
04230 Elínan
04232 FC MU
04233 M & M ÞG
04234 Vinterriket
04235 Ægir RAfn
04236 GUMMB
04237 Gribban niðri í búð
04238 Hraðlestin
04239 Lukkudós
04240 Aeis
04242 Player Utd
04243 Júland
04244 Sixers AG
04245 Duran Duran
04246 Ási I.
04247 Speciálist
04248 Geisli
04249 Títuprjónarnir
04250 Meat Loafs
04252 Radíusbræður
04253 Ellarnir
04254 Harðir naglar
04255 Eiðaprump
04256 The Prodigy Dancers
04257 Þrestirnir
04258 Rúdolf meö rauða
nefið
04259 Perry Barr
04260 Tuskudúkkurnar
04262 Ned Flanders
04263 Besta liðið
04264 BI 1950
04265 Burgess AK 10
04266 BMB 96
04267 Börkur Ingi J.
04268 Prjns Cristian
04269 Nosferatu DB
04270 GuðspjáHamennimir
04272 Down
04273 Svensson Heron
04274 Big Country #13
04275 Bjarni 8
04276 Thunder
04277 26. maí
04278 Lóurnar
04279 Free Willy .
04280 Patty and Selma
04282 Anna Nicole Smith
EAB
04283 3-0 York City
04284 Everton GJ
04285 FC Málun
04286 AC Málun
04287 Göllen
04288 Sprúttararnir
04289 Brjálaða Bína
04290 Gilli geislaprump
04292 Diggimó
04293 Svikamyllan
04294 Rugludallastur
04295 Lukkuliðið
04296 Collymúrari
04297 Bakarabræður FC
04298 Djók
04299 Góöa gengið
04300 Haffi bestur
04302 Leiðrétting H (44
1/4 af upp 1)
04303 Bagedo (Sagsedo
Manudo Ballo)
04304 Tom Byron
04305 Hafrún AK
04306 Arsenal the Best
04307 Klíklópar
04308 Skítseiöi 1
04309 HA 2
04320 Björg Jónsdóttir
04322 4. apríl
04323 Hillý
04324 Blálanga
04325 Framlínuliðið
04326 Ruddock 25
04327 The Pepper Club
04328 Brio
04329 Héðinn svarti
04330 Skotið í skeytin
04332 Golli P. de Foot
04333 Huginn Fellum
04334 LA Spurs
04335 FC Hammer Inc.
04336 Corky United
04337 Goalgetters
04338 Skítseiði 2
04339 Hoffgunn 1
04340 Hoffgunn 2
04342 LU FC Leeds Utd
04343 Kalfibrúsakarlamir
04344 Mölby
04345 Herskip AK 10
04346 Stóri lurkur
04347 Gráhærða krullufax
04348 Tarfarnir JÞR
04349 Bjöm breiði
04350 Grænar karamell-
ur með baunum
04352 Þreifitólið
04353 Rednex
04354 Trítilóðir
04355 FC Bomban KÖA
04356 Funi
04357 Cantona Utd KBÞ
04358 Létt popp og video
um helgar
04359 Maggi mús
04360 Þór Magnússon óð-
alsbóndi
04362 Menn mótsins
04363 Maggi FC
04364 Hallgrímur hf.
04365 Palace
04366 Ástarpungarnir
04367 Stéraholtarnir
04368 Perlan RMJ
04369 Krissý FC
04370 Rúnar Þór J.
04372 GMRG
04373 Frosti FF
04374 Funi FF
04375 Leður
04376 Sjö og áttan
04377-Jarpur
04378 SFS Dream Team
04379 Newton Heath
04380 The King (Cantona
7#)
04382 Stevo
04383 Guðirnir
04384 Draumur AK 10
04385 Emmill Hvalborg
Goggason
04386 Æðstistrumpur
04387 Dúddisen jr.
04388 Liverpool SJ
04389 Unnar Örn V.
04390 Grín Dey
04392 Þruman ÞHÞ
04393 Súper Utd
04394 LB-liðið
04395 Bismark AK 10
04396 Einherji United
04397 Háamúli
04398 Ultra Utd
04399 Grænagata
04400 The Rulers
04402 The Rulers II
04403 The Rulers III
04404 Gullsmáraliðið
04405 Áliðið
04406 Reynir-Njarövík
04407 Tuskurnar
04408 Draumalið Ölla
04409 Raggi rokkari
04420 Krabbadýrin
04422 Garparnir ÁFG
04423 Keiftur
04424 Neglur og lyzt FC
04425 Leikmaður #13
04426 Jón miðskipsmaður
04427 Winný bræður
04428 S.Lee
04429 Sláin inn
04430 Capri
04432 TAHAA
04433 Bjarni Már Ó.
04434 íslenskt já takk
04435 Aðalliðið BGB
04436 Leynilið Gauta
04437 Burnley FC BJ
04438 Sigurbraut
04439 BOL
04440 Táfýla
04442 Le Cantona
04443 Port Vale FC
04444 Lúffan
04445 Knöttur
04446 Davíð G.
04447 Gunners FC DG
04448 Byltingin
04449 Gull 1996
04450 Amma gamla
04452 Sláttuvélin
04453 Stuöararnir
04454 14U2
04455 Feðgarnir EA
04456 Moorea
04457 Hvín
04458 FC Tildra
04459 Boston United
04460 Tipp-ex
04462 West Ham Juventus
04463 Vikivaki 3
04464 Englarnir
04465 Assa
04466 Gold leaf
04467 Bjailan
04468 Egham Town
04469 Náglarnir
04470 United liðin
04472 GAS
04473 GÞ United
04474 ískaldir GBD
04475 George Best
04476 Guðrún M.
04477 Forman AK 10 .
04478 Gunnar Þór H.
04479 Stúkan
04480 The Dubliners
04482 InterPool
04483 Köventry
04484 Hörður skalli
04485 Dissa
04486 Adolf Hitler
04487 Sioux City
04488 DP Pena Carlos 76
04489 Aromat FC
04490 Hnjúkar
04492 Fenjarottur
Sjá nánar um
draumaliðið á
bls. 22
Villuálmur
tábrotinn
Vilhjálmur Haraldsson, varn-
armaður úr 1. deildar liði
Breiðabliks í knattspyrnu, tá-
brotnaði á dögunum. Hann
missir af fyrstu leikjum Kópa-
vogsliðsins á íslandsmótinu.
-VS
Þorsteínn
til Þórsara
Þorsteinn Sveinsson, sem
gekk til liðs viö Breiðablik frá
HK í vetur, er hættur hjá Blik-
unum og mun spila með Þórsur-
um á Akureyri í 2. deildinni í
sumar.
-VS
Kristinn
meö ÍBV
Eyjamönnum hefur bæst góður
liðsauki fyrir sumarið því
Kristinn Hafliðason hefur
ákveðið að spila með Eyja-
mönnum í 1. deildinni í sumar.
Kristinn er 21 árs gamall
miðjumaður sem leikið hefur
með Fram undanfarin 2 ár en
lék þar áður með Víkingum.
Kristifin missti nær alveg af
tímabilinu í fyrra vegna
meiðsla en árið áður vann
hann sér sæti í A-iandsliðinu
og lék landsleik gegn Kúveit.
-GH
Fjórir leikir
í 2. deild
í kvöld
Fjórir leikir fara fram í 2.
deildinni í knattspyrnu í kvöld
og hefjast þeir allir klukkan 20.
FH tekur á móti Þór, KA og
Víkingur leika á Akureyri,
Skallagrímur og ÍR í Borgarnesi
og Leiknir leikur sinn fyrsta
leik í 2. deild gegn Víkingum í
Breiðholti.
Kylfingar á
St. Andrews
Fjórir íslenskir kylfmgar
taka þátt á St. Andrews Trophy
golfmótinu sem fram fer í St.
Andrews 25. og 26. maí. Þeir
sem keppa á mótinu eru
Björgvin Sigurbergsson, GK,
Birgir L. Hafþórsson, GL,
Sigurpáll Á. Aðalsteinsson, GA,
og Kristinn G. Bjamason, GL.
Það er Golfsamband íslands
sem sendir kylfingana til þessa
móts sem er talið eitt sterkasta
áhugamannamótið sem haldið
er í heiminum á hverju ári.
-GH
Jón Arnar
meiddist
á æfingu
Jón Arnar Magr.ússon tug-
þrautarmaður meiddist á æf-
ingu í Athens, skammt frá Atl-
anta, í síðustu viku. Jón Amar
var að æfa stangarstökk en lenti
í fallinu í stokknum og marðist
á hæl.
Jón Arnar kemur til íslands
í dag og kemur þá væntanlega í
ijós hvort hann verður meðal
keppenda á tugþrautarmóti í
Götziz í Austurríki um næstu
helgi.
Að sögn Knúts Óskarssonar,
framkvæmdastjóra FRÍ, keppti
Jón Arnar í kringlukasti á móti
í Bandaríkjunum um helgina
sem sýnir að hann sé minnsta
kosti á góðum batavegi.
-JKS
Framarinn Anton Björn Markússon kominn einn inn fyrir vörn Þróttara en sem oftar er Fjalar Þorgeirsson, markvörður
Þróttar, á réttum stað og ver á meistaralegan hátt. Liðin skildu jöfn, 3-3. DV-mynd Brynjar Gauti
Fjörugur byrjunarleikur
- þegar Þróttur og Fram gerðu jafntefli, 3-3, í Laugardal
0-1 Þorbjörn Atli Sveinsson (4.)
1-1 Gunnar Gunnarsson (27.)
1- 2 Heiðar Sigurjónsson (52.)
2- 2 Kristinn R. Jónsson (75.)
2- 3 Kristinn R. Jónsson (88.)
3- 3 Einar Örn Birgisson (90.)
Það er óhætt að segja að 2. deild
karla á íslandsmótinu í knattspyrnu
hafi byrjað með fjörugum hætti í gær-
kvöld. í opnunarleik deildarinnar átt-
ust við Þróttur og Fram á Valbjarnar-
velli í Laugardal og urðu leikar jafnir,
3-3. Hinir fjölmörgu áhorfendur fengu
á köflum að sjá ágæta knattspyrnu og
ekki létu mörkin á sér standa. Það
verður ekkert gefið eftir í 2. deildinni,
leikurinn í gærkvöld sýndi það og
sannaði. Harkan var stundum all-
nokkur.
Framarar byrjuðu betur en Þróttar-
ar komust meira inn í leikinn. Þor-
björn Atli kom Fram yfir úr víta-
spyrnu. Gunnar Gunnarsson jafnaði
fyrir Þrótt, 1-1, með fallegri bakfalls-
spyrnu. Heiðar Sigurjónsson kom
Þrótti yfir í byrjun síðari hálfleiks en
Kristinn R. Jónsson jafnaði fyrir Fram,
2-2. Hann var aftur á ferðinni með
glæsilegt mark af 20 metra færi en
Einar Örn Birgisson jafnaði á elleftu
stundu fyrir Þrótt. Á heildina litið
voru þetta sanngjörn úrslit.
Bæðin liðin verða eflaust við topp-
inn í sumar en 2. deildin er sýnd veiði
en ekki gefin. Fjalar Þorgeirsson mark-
vörður var bestur hjá Þrótti og varði
oft meistaralega. Hjá Fram var Krist-
inn R. Jónsson bestur.
Maður leiksins: Fjalar Þorgeirs-
son, Þrótti.
-JKS
Glæsilegt íslandsmet hjá
Guðrúnu í 100 m grind
Guðrún Arnardóttir, hlaupakona
úr Ármanni, stórbætti eigið íslands-
met í 100 metra grindahlaupi á há-
skólamóti í Bandaríkjunum um helg-
ina. Hún hljóp vegalengdina á 13,18
sekúndum en gamla metið sem hún
setti 21. maí í fyrra var 13,32 sekúnd-
ur.
Þessi árangur Guðrúnar sýnir að
hún er í feiknagóðu formi um þessar
mundir. Hún hefur æft vel í vetur en
samhliða hlaupunum stundar hún
nám vestra.
Frábærir tímar náðust í hlaupinu,
sigurvegarinn kom í mark á 12,71 sek-
úndu, annar besti tíminn var 12,83 og
í þriðja sæti kom Guðrún.
Guðrún mun keppa í 100 og 400
metra grindahlaupum á ólympíuleik-
unum í Atlanta í sumar og er ljóst að
hún mætir þangað sterk til leiks.
Sigurður Einarsson kastaði
lengst spjóti í Atlanta
Sigurður Einarsson kastaði lengst
allra spjóti á móti í Atlanta. Sigurður
kastaði 76,40 metra. Spjótið fór fram
samhliða Grand Prix um helgina en
var aukagrein á mótinu.
Jón Arnar sterkur í kringlu-
kasti
Jón Arnar Magnússon, íslandsmet-
hafi í tugþraut, kastaði kringlu 47,34
metra á móti í Bandaríkjunum um
helgina og er þetta góður árangur af
tugtrautarmanni að vera. Ólafur Guð-
mundsson keppti á sama móti og
kastaði 42,58 metra.
Fríða Rún Þórðardóttir keppti
einnig á sama móti, hljóp þar 1500
metra á 4:34,40 mínútum. -JKS
Jordan valinn bestur
Michael Jordan var í gær útnefndur
besti leikmaður NBA-deildarinnar í
körfuknattleik fyrir þetta ár.
Þessi tíðindi koma fáum á óvart og
fékk Jordan rúmlega 95% greiddra at-
kvæða í kjörinu. Jordan hlaut 1114 stig
og er þetta í fjórða skipti sem þessi
frábæri leikmaður hlýtur þennan titil
en hann hefur borið höfuð og herðar
yfir aðra leikmenn i deildinni undan-
farin ár.
í öðru sæti varð David Robinson hjá
SA Spurs, sem hlaut þennan titil í
fyrra, með 574 stig og í þriðja sæti var
Arnfernee Hardaway hjá Orlando með
360 stig.
Vill fá 2,8 milljarða fyrir tvö ár
til viðbótar með Chicago
í viðtali við bandaríska blaðið
Chicago Tribune í gær segist Jordan
vera tilbúinn að leika tvö ár til viðbót-
ar með Chicago og hann fer ekki fram
á lítið í peningum fyrir þessi tvö ár,
eða 2,6 milljarða króna.
„Ég vil spila áfram með Chicago og
ég tel líkurnar 70 á móti 30 að svo
verði. Ég yrði samt alveg sáttur við að
láta staðið numið, svo og fjölskylda
mín,“ segir Joran í viðtali við blaðið
en samningur hans við Chicago renn-
ur út eftir tímabilið. Frammistaða Jor-
dans á tímabilinu hefur verið frábær.
Meðalskor hans í 82 leikjum á leiktíð-
inni er 30,4 stig og' með hann í farar-
broddi er Chicago líklegt til að endur-
heimta NBA-titilinn í ár. -GH
23
íþróttir
Bjarka boðinn
nýr samningur
Þýska liðið Waldhof Mannheim,
sem Bjarki Gunnlaugsson hefur
leikið með í vetur, hefur boðið
honum nýjan samning til þriggja
ára. Bjarki hefur staðið sig vel hjá
félaginu og vilja forráðamenn
þess ólmir halda honum áfram.
„Ég settist niður með stjórnar-
mönnum í gær og eftir það bíður
nýr þriggja ára samningur tilbú-
inn til undirskriftar. Það er búið
að ganga frá öllum málum. Ég
mun ræða við umboðsmann minn
síðar vikunni og eftir það get ég
vonandi skrifað undir. Ég vildi
helst af öllum drifa í þessu, sér-
staklega að því að Sochaux hefur
einnig verið inn í myndinni. Þessi
mál verða komin á hreint þegar
ég kem heim í landsleikinn gegn
Makedóníu," sagði Bjarki Gunn-
laugsson í samtali við DV í gær.
Valinn í lið vikunnar hjá
Kicker
Bjarki var í sviðsljósinu með
Mannheim um helgina þegar liðið
sigraði Hertha Berlín og var val-
inn í lið vikunnar hjá Kicker.
-JKS/DÓ
Hlynur Stefánsson, fyrirliöi ÍBV:
„Ætlum að standa
undir væntingunum"
Margir spá því að Eyjamenn
verði það lið sem geti veitt
Skagamönnum og KR-ingum hvað
mesta keppni í 1. deildinni í sumar.
ÍBV var spútniklið ársins í fyrra og
spurningin er sú hvort Eyjaliðið nái
að fylgja því eftir í sumar.
„Það er okkar markmið á vera á
þessum svipuðum slóðum og í fyrra.
Væntingarnar eru miklar til okkar
og við ætlum að reyna að standa
undir þeim,“ sagði Hlynur
Stefánsson, fyrirliði ÍBV, en með
tilkomu hans teíla Eyjamenn fram
öflugu liði.
„Ég myndi telja að 3.-4. sætið
væri raunhæft markmið. Mér sýnist
að Skaginn verði í toppbaráttunni
af gömlum vana og KR-ingar virka
feikilega sterkir um þessar mundir.
Ég hef þá tilfinningu að deildin
verði nokkuð jöfn. Liðið virðast
flest i góðu formi og ég held að liðin
eigi eftir að reyta stig af hvert öðru.
Merkir þú miklar framfarir á
íslenskri knattspyrnu?
„Það er kannski alveg að marka
þetta þar sem veðrið hefur verið svo
gott í vetur en mér sýnist að
framfarir hafi átt sér stað. Það er
lögð áhersla á að menn séu í góðu
líkamlegu formi og stoppið er stutt
eftir tímabilið. Það skilar sér í betri
knattspyrnu og meiri leikgleði
vonandi," sagði Hlynur. -GH
Djorkaeff til Inter
Inter Milan gekk i gær frá
kaupum á franska landsliðs-
manninum Juri Djorkaeff sem
leikið hefur með Paris SG. Djor-
kefif er 28 ára gamall miðjumað-
ur sem leikið hefur 15 landsleiki
fyrir Frakkland. Kaupverð Inter
á leikmanninum var tæpar 400
milljónir króna.
Rush fór til Leeds
Ian Rush fékk í gær frjálsa
sölu frá Liverpool og gerði hann
tveggja ára samning við Leeds
United. „Ég bíð spenntur eftir
því að fá aö leika með Leeds. Það
eru margir snjallir leikmenn í
liðinu og margir ungir og efni-
legir strákar,” sagði Rush eftir
að hafa skrifað undir hjá Leeds.
Rush mun væntanlega leika við
hlið Ghanabúans Antony Ye-
boah í framlínunni og verður
fróðlegt að sjá hvernig samvinna
þeira á eftir að verða.
Romario í ham
Brasilíski snUlingurinn Rom-
ario var heldur betur í sviðsljós-
inu með liöi sínu Flamenco um
helgina. Romario skoraði tvíveg-
is, misnotaði vítaspyrnu og fékk
að líta rauða spjaldið þegar Fla-
menco vann öruggan sigur á Ita-
peruna, 3-0.
Blanc til Börsunga
Barcelona gekk í gær frá
kaupum á franska knattspyrnu-
manninum Laurent Blanc frá
Auxerre. Blanc, sem er fyrrum
landsliðsmaður, er 31 árs gamaU
varnarmaður.
Hlynur skoraði
DV, Svíþjóö:
Örebro vann sinn fyrsta sigur í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi þegar liðið lagði
AIK á útivelli, 0-2. Fyrra mark
Örebro kom eftir aukaspyrnu Arn-
órs Guðjohnsens og síðara markið
skoraði Hlynir Birgisson og var það
jafnframt fyrsta mark hans í úrvals-
deildinni. Hlynur skoraði með góðu
skoti eftir að hafa einleikið frá miðj-
um vellinum.
Hitt íslendingaliðið, Örgryte, tap-
aði fyrir Gautaborg á útivelli, 1-0, í
tilþrifalitlum leik sem leikinn var
við slæmar aðstæður. Örgryte
missti mann út af á 30. mínútu og
átti á brattann að sæka eftir það.
Rúnar hafði frekar hægt um sig og
var tekinn út af á 80. mínútu.
Þá gerðu Helsingborg og
Norrköping 2-2 jafntefli. Helsing-
borg er efst með 16 stig, Gautaborg
14 og Norrköping og Halmstad 11.
Örgryte er í 8. sæti með 7 stig og
Örebrö næstneðst með 4 stig. -EH
KR spáð
titlinum
4. árið í röð
Fjórða árið í röð spá forráða-
menn 1. deildar liðanna í knatt-
spyrnu KR íslandsmeistaratitlin-
um. Undanfarin þrjú ár hefur
spáin ekki géngið eftir hvað
toppsætið varðar og fróðlegt
verður nú að sjá hvort vestur-
bæjarstórveldinu tekst að fylgja
eftir spádómunum. Samkvæmt
spánni kemur það í hlut suður-
nesjaliðanna Grindavíkur og
Keflavíkur að falla í 2. deild. Spá-
in lítur annars þannig út:
1. KR......................... 286
2. ÍA .........................262
3. ÍBV ........................251
4. Leiftur.....................192
5. Breiðablik .................180
6. Stjarnan....................126
7. Fylkir .....................119
8. Valur.......................109
9. Keflavík.....................74
10. Grindavík .................51
Óskar Ingimundarson, Leifri:
Nokkuð raunhæf spá
„Mér sýnist þetta vera nokkuð raunhæf spá, alla-
vega hvað varðar toppinn. KR, ÍA og ÍBV munu bít-
ast um titilinn en liðin sem á eftir koma eiga eftir að
taka stig af hvert öðru og ég á von á jöfnu móti,“
sagði Óskar Ingimundarson, þjálfari Leifturs.
„Ég er með sterkan hóp I höndunum en við höfum
átt í vandræðum með meiðsli og erum ennþá að tapa
mönnum. Þá hefur verið erfitt um vik að æfa vegna
aðstöðuleysis og ég myndi telja okkur vera nokkuð
á eftir hinum hvað undirbúning varðar. Það kemur
örugglega til með að hafa áhrif á byrjunina hjá okk-
ur. 4. sætið í deildinni er eitthvað sem við lítum til
og viö ætlum að standa okkur betur en í fyrra.
Miðað við þann mannskap sem KR er með i dag er
þetta nokkuð raunsæ spá en menn skildu fara var-
lega með að afskrifa ÍA. Þá er spurningin hvort ÍBV
ná upp sömu stemningu í sínum herbúðum og í
fyrra. Það er erfítt að spá fyrir um botninn. Suður-
nesjaliðunum er spáð falli og ég veit það að þessi spá
á eftir að kveikja upp baráttuhug hjá báðum þessum
liðum. Suðurnesjaliöin eru þekkt baráttulið og ég á
eftir að sjá þetta rætast," sagði Óskar.
-GH
Magnús Pálsson, Fylki:
Ekki í fallhugleiðingum
„Ég væri svo sem ekkert vonsvikinn ef þessi spá
gengi eftir. Við Fylkismenn erum ekki i neinum fall-
hugleiðinum og ætlum okkur að ná öruggu sæti í
deildinni. Það kemur alltaf eitthvert lið á óvart og
eitthvert þessara góðu liða á ekki eftir að standa und-
ir væntingum," sagði Magnús Pálsson, þjálfari nýliða
Fylkis.
Okkar markmið er að tryggja Fylki öruggt sæti í
deildinni og það er fullur hugur hjá mannskapnum að
ná því. Þessi góða tíð í vor hefur hjálpað liðunum
mikið og ég hef trú að knattspyrnan geti orðið góð í
sumar. Flest liðin hafa æft og spilað á grasi á undan-
förnum vikum og ég held að engin vorbragur verði á
leikjunum í fyrstu umferðunum.
Þessir lykilmenn sem ég er með í dag hafa tvívegis
fallið með Fylki í 2. deild. Nú eru þeir reynslunni rík-
ari og þeir ætla sér stóra hluti í sumar. Ég held að
það sé ekkert ólíklegt að KR-ingum takist loks að
hreppa titilinn., Þeir hafa verið sterkastir í vor. ÍA og
ÍBV munu áreiðanlega gera harða atlögu að KR-ing-
um. Hvað fallbaráttuna varðar þá held ég að hún
komi til með að verða geysihörð og ómögulegt að spá
fyrir hverjir falla“. -GH
Úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt:
Seattle hefur tekið
stefnuna á úrslitin
Seattle Supersonics sigr-
aði Utah Jazz öðru sinni
í úrslitaviðureign lið-
anna á vesturströndinni í
nótt. Lokatölur urðu
91-87.
Það var Shawn Kemp
sem tryggði Seattle sigur-
inn undir lokin með
tveimur körfum á
lokakaflanum: „Þetta
gengur mjög vel og við
höfum mikla trú á okkur.
Ég tel að við getum náð
mjög langt að þessu
sinni,“ sagði Kemp eftir
leikinn og víst er að
hafin er ekki einn um þá
skoðun að Seattle fari
lang leiðina að titlinum
að þessu sinni. Liðið er
geysilega öflugt og til alls
líklegt.
Karl Malone átti stór-
leik hjá Utah og skoraði
32 stig: „Það var erfitt að
tapa þessum leik. Við
gerðum það sem fyrir
okkur var lagt en það
dugði ekki að þessu
sinni,“ sagði Malone eftir
leikinn. Staðan er nú 2-0
fyrir Seattle og fóru báð-
ir leikirnir fram á heima-
velli Seattle. Utah Jazz
hefur aldrei í sögunni
unnið útileik í úrslitum
vesturstrandarinnar og á
því varð ekki breyting í
nótt.
„Varnarlega séð vor-
um við mjög grimmir og
þá erum við íjandi góð-
ir,“ sagði George Karl,
þjálfari Seattle.
Stig Seattle: Payton 18,
Schrempf 17, Perkins 15,
Kemp 15, McMillan 9,
Johnson 6, Hawkins 6,
Askew 5.
Stig Utah: Malone 32,
Hornacek 22, Stockton 11,
Carr 10, Morris 8, Benoit
4.
Næstu tveir leikir fara
fram í Utah. -SK