Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1996, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1996
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ 1996
^ 17 -
íþróttir
íþróttir
Guðmundur til
Selfyssinga
Guðmundur Karlsson verður
næsti þjálfari 1. deildaf liðs Selfyss-
inga í handknattleik og tekur við af
Valdimar Grímssyni sem er kominn
til Stjörnunnar. Guðmundur hefur
þegar skrifað undir eins árs samn-
ing.
Guðmundur hefur þjálfað FH-
inga undanfarin tvö ár og var áður
aðstoðarþjálfari hjá Hafnarfjarðar-
liðinu þannig að þetta verður fyrsta
starf hans utan heimabæjarins.
Selfyssingar voru sem kunnugt er
búnir að gera munnlegt samkomu-
lag við Michael Akbashev um þjálf-
un liðsins en hann hætti síðan
óvænt við.
„Við sem störfum við handbolt-
ann hér á Selfossi erum mjög
ánægðir með að hafa fengið Guð-
mund í þetta starf. Það ríkir almenn
ánægja með þessa lendingu í mál-
inu. Við höfum misst frá okkur
reynda og sterka leikmenn og það
verður því verk þeirra yngri að
taka við og byggja upp handboltann.
Enn þá eru hjá okkur reyndir menn
á borð við Hallgrím Jónasson í
markinu og Einar Guðmundsson
auk Rússans. Við ætlum að keyra á
þeim mannskap sem við eigum en í
dag eigum við tvo leikmenn í flestar
stöður. Það verður um fram allt
stefnt að því að halda sætinu í 1.
deild,“ sagði Hallur Halldórsson,
formaður handknattleiksdeildar
Selfoss, í samtali við DV í
gærkvöldi. -JKS-VS
Knattspyrna í kvöld:
Fjórir í 1. deild
Fjórir af fimm leikjum í 4. umferð
1. deildarinnar í knattspyrnu fara
fram í kvöld. ÍA og Valur mætast á
Akranesi, ÍBV og Fylkir í Eyjum,
Keflavík og Leiftur í Keflavík og KR
mætir Breiðabliki í vesturbænum.
Allir leikirnir heijast klukkan 20.
Síðasti leikurinn, milli Stjörnunnar
og Grindavíkur, fer fram í Garða-
bænum annað kvöld á sama tíma.
í 2. deild er einn leikur á dagskrá.
Völsungur og Víkingur mætast á
Húsavík klukkan 20. í 3. deild mæt-
ast HK-Höttur, Þróttur N.-Ægir,
Fjölnir-Grótta og Selfoss-Víðir og í
mjólkurbikarkeppni kvenna leika
Reynir S. og FH.
VESTMANNAEYJAR
Nýr umboðsmaöur DV
SVANBJÖRG GÍSLADÓTTIR
Búhamri 9 - Sími 481 2395
lýsa Evrópukeppninni í Fjölvarpi Stöðvar 2
Fimmtudagur 13. júní
Föstudagur 14. júní
Laugardagur 15. júní
Sunnudagur 16. júní
Þriðjudagur 18. júní
kl. 18:00
kl. 15:15
kl. 13:45
kl. 16:30
kl. 15:15
Miðvikudagur 19. júní kl. 18:00
Laugardagur 22. júní
Sunnudagur 23. júní
Miðvikudagur 26. júní
Sunnudagur 30. júní
kl. 13:45 eða 17:00
kl. 13:45 eða
kl. 14:30
kl. 17:30
Sviss - Holland
Portúgal - Tyrkland
England - Skotland
Króatía - Danmörk
Frakkland - Búlgaría
Rúmenía - Spánn
Rússland - Tékkland
Ítalía - Þýskaland
Leikur í átta liða úrslitum
17:00 Leikur í átta liða úrslitum
Undanúrslit
Úrslitaleikurinn
BIW096
Entflitnd
aaa
PRIME™
Áskrift í síma: 515 61001
, Grænt númer: 800 6161
FJÖLVARP
Við lánum þér loftnet
ss ss ss ss ss ss ijr«g jHffff
§ |^ypg§fj|§f
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtal
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó t
> LOTTOsIati
9 0 4 - 5 0 0 0
„ Tennis:
Iris og Davíð
voru sterkust
íris Staub og Davíð Halldórs-
son úr TFK urðu tvöfaldir sigur-
vegarar í meistaraflokki á stór-
móti Þróttar í tennis sem fram
fór um síöustu helgi. íris sigraði
í einliðaleik kvenna og í tvíliða-
leik með Evu Hlín Dereksdóttur,
TFK. Davíö sigraði í einliðaleik
karla og í tvíliðaleik ásamt Jóni
Axel Jónssyni, UMFB. Davíð lét
þó ekki þar við sitja því hann
sigraði einnig í drengjaflokki á
mótinu.
í öðlingaflokki urðu Guðný Ei-
ríksdóttir, Christian Staub, Atli
Arason, Þorleifur Magnússon og
Sverrir Brynjólfsson, öll úr
Þrótti, sigurvegarar. í barna- og
unglingaflokkum sigruðu, auk
Davíðs, þau Rebekka Pétursdótt-
ir, Fjölni, Þórir Hannesson,
Fjölni, Hafsteinn Kristjánsson,
TFK, Freyr Pálsson, Víkingi,
Þórunn Hannesdóttir, Fjölni, og
Stefanía Stefánsdóttir, Þrótti.
Golf:
Kvennamót í
Grafarholti
Fyrsta opna mót sumarsins í
Grafarholti fór fram á sunnudag-
inn, opna Diletto-mótið, sem er
kvennamót í þremur forgjcifar-
flokkum. Þyrí Þorvaldsdóttir,
GR, sigraði í A-flokki á 68 högg-
um, Rut M. Héðinsdóttir, GKJ, í
B-flokki á 63 höggum og Viktoría
Kristjánsdóttir, GR, í C-flokki á
68 höggum. Besta skor mótsins
átti Ólöf María Jónsdóttir, GK,
76 högg.
Knattspyrna:
Romario aftur
til Spánar
Romario, brasiliski knatt-
spyrnusnillingurinn, er á leið til
Spánar á ný eftir dvöl hjá Fla-
mengo í heimalandi sínu. Rom-
ario er búinn að handsala
tveggja ára samning við Val-
encia en hann lék með
Barcelona þar til heimþráin
varð of sterk.
3. deild:
Jafntí
toppslag
Reynir úr Sandgerði og Dalvík
gerðu jafntefli, 3-3, f leik tveggja
efstu liðanna í 3. deild í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Jónas Gest-
ur Jónasson skoraði tvö mörk
fyrir Reyni og Amar Óskarsson
eitt. Jón Örvar Eiríksson skor-
aði tvö af mörkum Dalvíkinga og
Grétar Steinþórsson eitt.
Reynir er I efsta sætinu með
10 stig að loknum fjórum leikj-
um og Dalvík hefur 8 stig einnig
eftir fjóra leiki. -JKS
Pierluigi Casiraghi fagnar innilega fyrra
gær. Casiraghi skoraði síðan sigurmark
marki sínu gegn Rússum á Anfield Road í
ítala í síðari hálfleik. Reuter-mynd
U t F A
BIW096 m
EinkunnaÉiöf Reuters
8
Zola, Italíu, Casiraghi, ftalíu,
Mostovoi, Rússlandi, Tsymbalar,
Rússlandi
Bushmanov, Rússlandi, Mario Stanic,
Króatíu
Einungis einn leikmaður hefur
fengið hæstu einkunn frá Reuter,
eða 10, og var það enginn annar en
Peter Schmeichel, markvörður
Dana og leikmaður með Manchest-
er Utd, sem þótti sýna stórleik
gegn Portúgölum þrátt fyrir að
hafa fengið mark á sig og á hann
eflaust eftir að fá þær fleiri áður
en mótinu lýkur.
Sindri mætir
Stjörnunni
4. deildar lið
Sindra frá Homa-
firði mætir 1. deild-
ar liði Stjömunnar á
heimavelli í 32 liða
úrslitum Mjólkur-
bikarkeppni KSÍ.
Sindri lék á Fá-
skrúðsfirði gegn
Leikni í gærkvöld í
1. umferð keppninn-
ar og bar sigur úr
býtum, 1-3.
-JKS
Italir sýndu
mikinn styrk
gegn Rússum
- Casiraghi skoraði bæði mörk ítala
ítalir hófu keppni á Evrópumót-
inu í gær með því að leggja erfiða
andstæðinga að velli, sjálfa Rússa, á
Anfield Road í Liverpool. Það mátti
glöggt sjá í upphafi að þarna fóru
mjög sterk lið og eftir fyrstu um-
ferðina í C-riðli er ómögulegt að
spá fyrir um hvaða þjóðir komast
upp úr riðlinum. Þjóðverjar, sem
leika í þessum sama riðli, geta bók-
að mun meiri mótspyrnu en þeir
fengu gegn Tékklendingum á
sunnudaginn var.
Rússar sýndu það í fyrri hálfleik
að þeir hafa lið sem hefur alla burði
til að ná langt í keppninni. Rússar
léku þá mjög skemmtilega, samspil
þeirra var fallegt og þeir sýndu
flinkum ítölum enga miskunn.
Rússar virtust ekki halda þennan
leik út því í síðari hálíleik snerist
dæmið við og ítalir fóru þá virki-
lega að sýna mátt sinn og megin.
Vörn ítalska liðsins var firna-
sterk og komust Rússar ekkert
áleiðis gegn henni. ítalir voru mun
beittari í sóknaraðgerðum sínum og
hefðu með smáheppni getað bætt
við mörkum.
Pierluigi Casiraghi skoraði bæði
mörk ítaiska liðsins og tyllti sér
þannig í efsta sætið yfir markaskor-
ara á mótinu til þessa. Mjög vel var
staðið að bæði mörkum ítala sem og
einnig hjá Rússum sem Ilya
Tsymbalar skoraði.
Gianfranco Zola átti góðan leik
hjá ítölum og einnig markaskorar-
inn, Casiraghi. Fabrizio Ravanelli
leysti Casiraghi af hólmi tíu mínút-
um fyrir leikslok og fór mjög illa
með tvö tækifæri á þeim stutta tíma
sem hann var inn á.
Rússa er óhætt að taka
alvarlega
Ef Rússar hefðu náð að leika af
sama krafti allan leikinn er ekki
víst að þeir hefðu tapað leiknum.
Rússar eru með öflugt lið og hafa
mannskap til að veita Þjóðverjum
harða keppni. Rússneska liðið var
óskrifað blað fyrir keppnina, fáir
vissu hvar liðið stæði, en eftir þenn-
an leik er óhætt að taka það alvar-
lega.
Sacchi hrósaði
sínum mönnum
Arrigo Sacchi hrósaði sínum
mönnum í hástert á
blaðamannafundi fyrir leikinn sem
þeir sýndu í síðari hálfleiknum
gegn Rússum. Sacci taldi þetta besta
hálfleikinn sem ítalska liðið hefði
sýnt undir hans stjórn. Sagði sagði
sína þjóð mjög kröfuharða þegar
knattspyrnan væri annars vegar.
„Samvinna Casirraghi og
Zola var frábær"
„Það er tveir möguleikar í stöð-
unni. Annars vegar að verða kysst-
ur á skallann eða grýttur tómötum.
Ég á fyrri kostinn í þetta sinn og
tómatarnir bíða um sinn í ísskápn-
um. Fyrri hálfleikinn lékum við illa
og við hefðum sennilegast tapað
leiknum ef við hefðum ekki breytt
leik okkar í síðari hálfleik. Sam-
vinna þeirra Zola og Casiraghi var
frábær í leiknum," sagði Sacchi.
Casiraghi var ánægður með úrslitin
og sinn hlut í leiknum og sagði að
samkeppnin um stöður í liðinu væri
mjög hörð.
Oleg Romantsev, þjálfari Rússa,
sagði að ekkert lið gæti leyft sér það
að sofa á verðinum gegn ítölum.
„Baráttan og athyglin verður að
vera fyrir hendi frá byrjun til enda.
Á þessum þáttum brugðumst við í
síðari hálfleik," sagði Roman eftir
leikinn.
-JKS
»li
Ítalía (1) 2
Rússland (1) 1
1- 0 Pierluigi Cashiragi (5.) með
góðu skoti rétt utan vítateigs eftir
misheppnað útspark markvarðar
Rússa.
1-1 Ilia Tsymbalar (21.) komst i
gegnum vörn ítala eftir þunga sókn
og skoraði með hörkuskoti.
2- 1 Casiraghi skoraði aftur eftir
glæsilega sókn Itala.
Lið Ítalíu: Peruzzi - Mussi,
Costacurta, Apolloni, Maldini - Di
Livio (Fuser 62.), Albertini, Di
Matteo, Dei Piero (Donadoni 46.) -
Zola, Casiraghi (Ravanelli 80.).
Lið Rússlands: Tsjertsjesov -
Tetradze, Bushmanov (Kolyvanov
46.), Onopko, Kovtun - Kantsjelskis,
Karpin (Kiryakov 63.), Mostovoi,
Tsymhalar (Dobrovolsky 70.) -
Kolyvanov, Radimov.
Þýskaland 1 1 0 0 2-0 3
Ítalía 1 1 0 0 2-1 3
Rússland 10 0 11-2 0
Tékkland 10 0 10-2 0
Leikir sem eftir eru:
14.6. Tékkland-ltalía.......18.30
16.6. Rússland-Þýskaland....14.00
19.6. Rússland-Tékkland.....18.30
19.6. Ítalía-Þýskaland......18.30
„Framtíð mín
er hjá Bayern"
- segir Þjóöverjinn Jurgen Klinsmann
Hinn geysisterki fyrirliði og framherji
þýska landsliðsins, Jurgen Klinsmann,
sagði blöðum í Englandi að hann myndi
ekki spila i Englandi á næstu leiktíð en
þær sögusagnir hafa gengið í Englandi
undanfarnar vikur.
„Framtíð mín er hjá Bayern Munchen.
Ég vill vinna þýska meistaratitilinn og
Evrópukeppni meistaraliða," sagði þessi
fyrrum leikmaður Tottenham en þar
blómstraði hann. Klinsmann hafði verið
orðaður við Chelsea og einnig hafði Alex
Ferguson hjá Manchester Utd. lýst yfir
áhuga sínum á þessum markaskorara.
„Ég verð að brosa út af þessum vanga-
veltum," bætti hann við. '
Þó að hann hafi átt í útistöðum við
Lothar Matthaeus, leikmann Bayern
Munchen og fyrrum landsliðsfyrirliða,
þá trúa fáir því að hann yfirgefi þennan
Spánverjar undirbjuggu sig vel á æfingu í gær fyrir leikinn gegn Frökkum á
laugardaginn kemur. Eftir æfinguna slöppuðu leikmenn vel af og ekki vék
kvenlögreglukona sér frá leikmönnum þó fáklæddir væru. Öryggis liðanna í
keppninni er gætt í hvívetna. Reuter-mynd
Króatar björguðu
sér fýrir horn
- ollu miklum vonbrigðum
ríkasta klúbb Þýskalands.
Klinsmann var í banni í fyrsta leik
Þjóðverja gegn Tékklandi þar sem lið
hans sigraöi, 2-0. „Ég var miklu stress-
aðri á áhorfendapöllunum heldur en ef
ég væri á vellinum sjálfum því ég gat
ekki haft nein áhrif á leikinn," sagði fyr-
irliðinn. Hann er til í slaginn gegn liði
Rússa á sunnudaginn kemur.
Þjóðverjar eru í riðli með Rússum,
ítölum og Tékkum og eru líkurnar á að
þeir vinni keppnina enn þá 4-1 og er
greinilegt að Þjóðverjar verða með eitt af
efstu liðunum eins og endranær í
stórmótum. Þegar Klinsmann var spurð-
ur að því hvað gerðist ef Þjóðverjar
kæmust ekki úr þessum „dauðariöli"
sagði hann. „Það væri langbest ef við
færum ekkert heim aftur.“
-JGG
Það má með sanni segja að leikur
Króata og Tyrkja hafi verið jafnleið-
inlegur og leilcur ítala og Rússa var
skemmtilegur. Leikmenn Króata
voru á hælunum allan leikinn og
áttu í mesta basli með baráttuglaða
Tyrki sem voru hvattir áfram af
15.000 áhangendum þeirra sem
hvöttu sína menn til dáða.
Jafntefli hefði verið sanngjarnt í
þessum leik en það' voru Króatar
sem náðu að stela sigrinum á 86.
mínútu með marki frá varamannin-
um Goran Vlaovic sem stakk vörn
Tyrkja af og skoraði laglega fram
hjá markverðinum.
Tyrkir voru meira með boltann i
leiknum og sýndu oft á tíðum ágæt-
an bolta en sóknir þeirra náðu ekki
að klárast sem skyldi. Það er greini-
legt að þetta lið er töluvert sterkara
en liðið sem Islendingar töpuðu svo
eftirminnilega fyrir í Istanbul.
Tyrkir ætla greinilega ekki að láta
sitt eftir liggja í þessari Evrópu-
keppni og verður gaman að fylgjast
með þeim í leikjunum sem eftir eru
og er víst að þeir eiga nóg eftir.
Króatar hins vegar ollu miklum
vonbrigðum með lélegum leik, bit-
lausum sóknum og lykilmennirnir,
Davor Suker, Zvonimir Boban og
Alen Boksic, náðu sér aldrei á strik
og verða Króatar að teljast heppnir
að hafa unnið þennan leik því þeir
réðu í rauninni aldrei ferðinni. Ein-
földustu hlutir voru að klikka hjá
Skotar halda
sér á jörðinni
Þjálfari Skota, Craig Brown, vili
ekki leyfa sér miklar vonir þrátt
fyrir prýðisgóðan leik hjá sínum
mönnum á þriðjudaginn var þegar
þeir náðu markalausu jafntefli
gegn Hollendingum.
Þrátt fyrir að vera ánægður með
stigið úr viðureigninni þá sagði
hann að það væri margt hægt að
laga hjá skoska liðinu. „Við ætlum
ekki að missa einbeitinguna þrátt
fyrir jafnteflið því við eigum tvo
mikilvæga leiki eftir og ég veit að
viö getum spilað betur,“ sagði
Brown. „Samt held ég að önnur lið
fari að hugsa um okkur sem lið
sem eigi smámöguleika," bætti
þjálfarinn við.
Liðsandinn er mjög góður hjá
Skotum eftir leikinn og eru menn
spenntir fyrir leikinn gegn Eng-
lendingum og er þetta í fyrsta sinn
sem liðin mætast síðan þau mætt-
ust á Wembley 1989. Brown hefur
ekki miklar áhyggjur af því þó að
hin liðin í riðlinum séu talin sig-
urstranglegri, „Ég er mjög ánægð-
ur ef fólk heldur það.“
-JGG
þessu liði sem hefur marga sterka
leikmenn innanborðs og enduðu gíf-
urlega margar sendingar þeirra
annaðhvort út af eða hjá Tyrkjum.
Það var ekki fyrr en á síðustu tíu
mínútunum að þeir sýndu smálit
með nokkrum fínum færum en það
var ekki fyrr en að Boksic var skipt
út af fyrir Vlaovic að dæmið gekk
upp hjá þeim.
Það er greinilegt að Króatar
verða að sýna sterkari leik á móti
hinum bráðskemmtilegu Dönum og
Portúgölum ef þeir ætla sér áfram í
þessari keppni og eiga þeir erfitt
verkefni fram undan.,
Fyrirliði Króata, Zvonimir Bob-
an, er áhyggjufullur fyrir leikinn
gegn Dönum á sunnudaginn kemur.
„Ég á í erfiðleikum með hnéð á mér
og ég er ekki viss um að ég spili
með gegn Dönum. Þetta var ekki
glæsilegt hjá okkur en við munum
spila betur gegn Dönum,“ sagði
Boban. „Það er ómögulegt að spila
annan leik svona illa, þetta var ljótt
en við unnum og það er það sem
skiptir máli.“
Tyrkir mæta Portúgölum á fóstu-
daginn og eru þeir til alls líklegir og
aldrei að vita nema þeir nái að næla
í nokkur stig. Vanmat annarra liða
er þeirra stærsti kostur eins og sást
í dag og er þetta svipað og gerðist í
leik Hollendinga og Skota þar sem
litla liöið náði að pirra stjörnurnar.
-JGG
Króatía (0) 1
Tyrkland (O) 0
1-0 Goran Vlaovic (86.)
Lið Króatíu: Drazen Ladic-Robert
Jarni, Igor Stimac, Slaven Bilic,
Nikola Jerken-Aljosa Asanovic,
Robert Prosinecki, Zvonomir Boban
(Zvonimir Soldo 57.), Mario Stanic-
Davor Suker (Dubravko Pavlicic 90.),
Alen Boksic (Goran Vlaovic 73.)
Lið Tyrklands: Rustu Rehber,
Vedat Inceefe, Alpay Ozalan, Tugay
Kerimoglu, Ogun Temizkanoglu-
Rahim Zafer, Sergen Yalcin,
Abdullah Ercan, Arif Erdem(Hami
Mandirali 82.)- Tolunay Kafkas
(Saffet Sancakli 89.) Hakam Suker.
Króatía 110 0 1-0 3
Danmörk 10 10 1-1 1
Portúgal 10 10 1-1 1
Tyrkland 10 0 1 0-1 0
Leikir sem eftir eru:
14.6. Portúgal-Tyrkland...15.30
16.6. Króatía-Danmörk ....17.00
19.6. Króatía-Portúgal....15.30
19.6. Tyrkland-Danmörk....15.30
UtFA
BUT096
Steve Howie úr leik
Enska landsliðið varð enn
fyrir áfalli í gær þegar i ljós kom
að Steve Howie getur ekkert
leikið með því í keppninni en
hann meiddist á æfingu á
sunnudag. Þar meö eru bara
tveir miðverðir eftir i hópnum
hjá Terry Venables, Tony Adams
og Gareth Southgate.
Enga sálfræði!
Terry Venables, þjálfari Eng-
lendinga, hafnaði sálfræðiaðstoð
sem honum var boðið fyrir leik-
inn gegn Skotum á laugardaginn
kemur. Sálfræðingurinn Uri
Geller, sem varð frægur fyrir að
beygja hnífapör meö hugarorku
einni saman, sagðist geta bætt
liðsandann hjá Englendingum.
Hann sagði að þeir ættu að
ímynda sér sig vera að skora og
að þeir ættu einnig að snerta
boltann sem var notaður í úr-
slitaleik HM 1966 þegar England
vann. Venables sagði að leik-
mennirnir væru nú þegar vel
stemmdir fyrir leikinn og von-
um við slíkt hið sama.
Cantona hvað?
Christophe Dugarry, marka-
skorari franska landsliðsins, trú-
ir því að lið þeirra hafi sannaö
að þeir muni verða erfiðir viður-
eignar í keppninni og þurfi
hvorki Eric Cantona né David
Ginola. „Við byrjuðum vel og
sýndum það að við þurfum ekk-
ert svona fýlupoka í liðið,“ sagði
Dugarry.
Veðbankarnir
Nú hafa möguleikamir hjá
Skotum og fleiri liðum breyst
eftir úrslit vikunnar.
Möguleikar Skota á að vinna
keppnina eru núna 66-1 í stað
80-1. Líkur Hollendinga
breyttust frá 11-2 í 6-1 og
Frakkar eru núna 5-1 í stað 6-1
og Rúmenía datt i 50-1 úr 25-1.
-JGG
nr.12 KR - Breiðablik
nr.13 Keflavík - Leiftur
nr.14 ÍA-Valur
nr.15 ÍBV - Fylkir
SPILAÐU IV1EÐ ÞINU UDI
■CRAUMALIB
DV
l>ú færð' allar
upplýsingar um
stöðu þfna í leiknum
og stöðu efstu
iiðanna í síma
904 IOI5
Verð 39,90 mínútan
Sami/iniiiilerlirLsiiilsýii
ÍPRÓTTADEILD