Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 4
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 13 "V
fréttir
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur komið sér upp fyrirtækjasamsteypu í Bandaríkjunum:
Fyrirtæki með um
17 milljarða ársveltu
- öll á sviði tölvuhugbúnaðar með 5-15 prósenta hlut Ólafs
Ólafur Jóhann Ólafsson í faðmi fjölskyldunnar áður en hún fór til vetrarsetu í heimkynnum sínum í New York í vik-
unni. Kona Ólafs, Anna Ólafsdóttir, stendur viö hlið Ólafs Jóhanns yngri, sem er 3 ára, og Ólafur eldri heldur á Árna
Jóhanni sem er V/2 árs. DV-mynd GVA
Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöf-
undur og fyrrum stjórnarmaður
Sony í Bandaríkjunum, er aldeilis
ekki hættur afskiptum af fyrir-
tækjarekstri vestanhafs því hann
hefur ásamt nokkrum stórum fyrir-
tækjum og fjárfestum komið sér upp
samsteypu íjögurra fyrirtækja í
Bandaríkjunum sem tengjast tölvu-
hugbúnaði á einn eða annan hátt.
Eignarhaldsfyrirtækið Mermaid,
sem Ólafur á alfarið, á 5-15% hlut í
þessum fyrirtækjum. Samanlögð
ársvelta þeirra er í kringum 17
milljarðar íslenskra króna og mark-
aðsvirði er um 13 milljarðar. Ólafur
er í stjórnum þessara fjögurra fyrir-
tækja, þar af formaður í tveimur
þeirra og varaformaður í einu.
Hann tekur þó ekki þátt í daglegri
stjómun.
í samtali við DV í gær, en sam-
steypan hefur verið að fæðast á síð-
ustu dögum, sagðist Ólafur Jóhann
ekki viija gefa upp hver hlutur hans
í peningum talið væri í þessu. Hans
framlag væri fyrst og fremst tími og
þekking. En miðað við mark-
aðsvirði og veltu fyrirtækjanna er
ljóst að Ólafur leggur til hundruð
milljóna króna. Ólafur hefur því
ótvirætt skipað sér í hóp auðugustu
íslendinga og valdamestu manna í
viðskiptaheiminum vestanhafs á
sviði margmiðlunar.
Nýjar aðferðir með nýrri
tækni
„Hugmyndin að samsteypunni er
að koma inn á sem flest svið sem
tengjast gagnvirkri margmiðlun en
hún er farin að hafa áhrif á ýmsa
þætti þjóðfélagsins.
Það sem ég hef verið að gera í
samvinnu við aðra er að tengja sam-
an fyrirtæki sem grundvallast á nýj-
um aðferðum með hjálp nýrrar
tækni. Fyrirtækin munu breyta
ýmsu, vonandi til hins betra, sem
snýr að daglegu lífi fólks og fyrir-
tækja,“ sagði Ölafur.
Single Track með Sony og
Microsoft
Fyrst skal nefna fyrirtækið Single
Track Entertainment Technologies,
sem risafyrirtækin Sony og
Microsoft taka þátt í með meiri-
hlutaeign ásamt Ólafi. Single Track
sérhæfir sig í framleiöslu á þrívídd-
arhugbúnaði í fræðslu- og skemmti-
efni fyrir sjónvarp og tölvur. Þetta
er fyrsta og eina fjárfesting Micros-
oft í fyrirtæki af þessu tagi og munu
Sony og Microsoft dreifa efni Single
Track um allan heim.
Fyrirtækið var stofnað fyrir
tveimur árum, fjármagnað af Sony
Interactive Entertainment, sem
Ólafur Jóhann var á þeim tíma í for-
svari fyrir, til að vinna að Sony
Playstation leikjatölvunni.
AIS fyrir Internetið
Annað fyrirtækið er American In-
formation System, AIS, sem sérhæf-
ir sig í hugbúnaði fyrir Intemetið.
Viðskiptavinir eru fyrirtæki og
stofnanir sem fá AIS til að koma
m.a. upp hjá sér Intemeti og öllu
sem því tengist. Meðal viðskipta-
vina má nefna US Robotics og síma-
fyrirtækið Ameritech.
AIS var stofnað fyrir þremur
árum en Ólafur Jóhann ásamt
sænska fjármálafyrirtækinu
Proventus og einu stærsta kortafyr-
irtæki Bandaríkjanna hafa keypt
meirihluta í fyrirtækinu. Ólafur
hefur ráðið einn helsta samstarfs-
mann sinn hjá Sony til að stjórna
daglegum rekstri en verður sjálfúr
stjómarformaður.
Cyber-Smith tæknisafn á 8
stöðum
Þriðja fyrirtækið er Cyber-
Smith, stofnað fyrir tveimur árum.
Ólafur er hluthafí ásamt General
Cinema Corporation og fleiri fjár-
festum. Hann er stjórnarformaður
en hefur ráðið Tony Cox til að
stjóma fyrirtækinu en Tony var
áður forstjóri Showtime sjónvarps-
stöðvarinnar.
Cyber-Smith er með starfsemi
víða um Bandaríkin og rekur mið-
stöðvar þar sem allt það nýjasta á
sviði gagnvirkrar tækni stendur
fólki til boða ásamt veitingum.
Starfseminni svipar til svokallaðra
netkafllhúsa nema hvað fjölbreytn-
in er miklu meiri. Cyper-Smith mið-
stöðvar era komnar upp á 8 stöðum
í Bandaríkjunum en stefht er að því
að þær verði um 80 innan tveggja
ára.
„Hugmyndin með Cyber-Smith er
að leyfa almenningi að njóta allrar
þeirrar tækni sem fram er komin.
Þarna getur fólk fengið fræðslu af
ýmsu tagi ásamt því að njóta veit-
inga og annarra þæginda. Þetta er
nokkurs konar tæknisafn,“ sagði
Ólafúr.
Samstarf meö kortafyrirtæki
Fjórða fyrirtækið sem Ólafur hef-
ur fjárfest í er systurfyrirtæki eins
stærsta kortafyrirtækis Bandaríkj-
anna. Ólafur vildi að svo stöddu
ekki upplýsa hvaða fyrirtæki þetta
væri þar sem samningar væra ekki
endanlega frágengnir.
Hér er um glænýtt fyrirtæki að
ræða sem mun byggja upp gagn-
virka fjármálaumsýslu með hjálp
nýtækni. Ólafur er varaformaður í
stjóm fyrirtækisins og hluthafl en
kortafyrirtækið fjármagnar dæmið
að öðru leyti.
Ólafur Jóhann sagðist ætla að
sinna ritstörfum áfram þrátt fyrir
samsteypuna enda tæki hann ekki
þátt í daglegum rekstri hennar.
Helmingur vinnutímans færi í
skriftir. „Eigum við ekki að kalla
þetta vikulega stjómun fyrirtækj-
anna. Stjómarseta og stjómarfor-
mennska fer fram með öðruvísi
hætti í Bandaríkjunum en t.d. á ís-
landi.“
Fleiri tilboö í gangi
Auk alls þessa þá er Ólafur Jó-
hann að kanna tilboð frá öðrum fyr-
irtækjum í Evrópu og Bandaríkj-
unum um að koma inn með fjár-
magn og þekkingu á sviði nýtækni
og margmiðlunar.
Meðal þeirra er breskt fyrirtæki
að verðmæti um 1 milljarður króna.
Þá er Ólafur enn í samstarfi við
Sony vegna annarra tilboða þannig
að fyrirtækjasamsteypa Ólafs gæti
átt eftir að stækka á næstu mánuð-
um. -bjb
Vestfjaröagöngin formlega opnuö:
Eru meö lengstu jarð-
göngum í Evrópu
- fóru rúm 16% fram úr kostnaðaráætlun
Jarðgöngin undir Breiðadalsheiði
og Botnsheiði verða formlega opnuð
fyrir umferð seinni partinn i dag
viö hátíðlega athöfn við munnann í
Tungudal. Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra mun flytja ávarp
ásamt Páli Sigurjónssyni, forstjóra
ístaks, Helga Hallgrímssyni vega-
málastjóra og fulltrúa frá ísafjarðar-
bæ. Móttaka verður síðan fyrir
boösgesti á Hótel ísafirði.
Göngin voru opnuð fyrir almenna
umferð í desember í fyrra þótt þau
væra ekki fullbúin en þeim síöan
lokað aftur í maí á meðan unnið var
að lokafrágangi. Göngin eru því full-
húin til umferðar nú en eftir er þó
að ljúka endanlega við stýrikerfi
rafbúnaðar sem væntanlega veröur
gert fyrir árslok.
Heildarlengd ganganna er 9120
metrar og era þau næstlengstu veg-
göng á Norðurlöndum og meðal
þeirra lengri í Evrópu. Þau eru
langlengstu veggöng á íslandi 'en til
samanburðar eru Múlagöng 3400
metrar, Strákagöng 800 metrar og
Oddsskarðsgöng 640 metrar. Kostn-
aðaráætlun þeirra frá 1991 hljóðaði
upp á 3,7 mifljarða en heildarkostn-
aður verður um 4,3 milljarðar.
Verkið hefur því farið rúm 16%
fram úr upphaflegri áætlun en
óvænt og mikið vatnsrennsli í göng-
unum olli töfum og jók kostnað.
-ingo
Þjóðhagsstofnun:
Tap á fiskvinnslunni en
hagnaður af veiðunum
í frétt frá Þjóðhagsstofnun segir
að um þessar mundir sé 8,5 pró-
senta tap á rekstri frystingar og
söltunar en allt árið 1995 var tap-
ið 2,7 prósent af tekjum. Aftur á
móti er hagnaöur af botnfiskveið-
um báta og togara í ágúst 3,5 pró-
sent en frystitogaranna 6,4 pró-
sent.
Árið 1995 var 13,2 prósenta
hagnaður af rækjuveiöum og
vinnslu og loðnuveiöum og
bræðslu 9,6 prósent. í ágúst í ár
voru rækjuveiðar og vinnsla rek-
in með 3,1 prósents tapi en loðnu-
veiðar og bræðsla með 15 pró-
senta hagnaði.
í fréttabréfi Þjóðhagsstofnunar
segir aö í úrtaki stofnunarinnar
hafi verið 277 sjávarútvegsfyrir-
tæki. Af þeim vora 30 þeirra rek-
in með 10 prósenta tapi, 56 þeirra
voru rekin með meira en 15 pró-
senta hagnaði en 191 var rekið
með hagnaði.
-S.dór