Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 6
6
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 JjV
útlönd
I stuttar fréttir
1
Báðum að kenna
Akbar Hashemi Rafsanjani
íransforseti sagöi í gær að
spennan í samskiptum íraks
og Bandaríkjanna væri báðum
aðilum að kenna.
Fergie blaðamaður
Prinsessan
af Jórvík,
betur þekkt
sem Fergie,
hefur nú
gengið til liðs
við franska
tímaritið
Paris Match
og ætlar að gerast blaðamaður.
Þess má geta að Fergie fór einu
sinni í mál við blaðið fyrir að
birta myndir af henni ber-
brjósta.
Frakkar fullgildir
Þess verður ekki langt að
bíða að Frakkar gerist fullgild-
ir aðilar að hernaðarsamstarfi
NATO, að sögn Juppés forsæt-
isráðherra.
Dimitra erfir alit
Dimitra Liani, ljóshærð
ekkja Papandreousar, fyrrum
forsætisráðherra Grikklands,
erfir allar eigur hans, að því er
fram kemur í erfðaskránni.
Treystu nasistum
Forráðamenn svissneska
þjóðarbankans sögðu að stjórn-
endur þar á bæ hefðu verið
heldur trúgjarnir þegar þeir
keyptu gull af þýskum nasist-
um á stríðsárunum, gull sem
var hugsanlega illa fengið.
Aukin lögguvöld
Yfirmaður dómsmála Evr-
ópusambandsins hvatti aðild-
arríkin til að staðfesta samn-
ing sem gefur Evrópulöggunni
aukin völd til að berjast gegn
kynþrælkun bama.
Einn fórst
Einn maður lét lífið og eigin-
kona hans særðist illa þegar
sprengja sprakk í lyftu í fjöl-
býlishúsi í Moskvu.
Biðjast afsökunar
Biljana
Plavsic,
starfandi for-
seti Bosníu-
Serba, kom
fram í sjón-
varpi í gær-
kvöld og
baðst afsök-
unar á því að
landar hennar hefðu haft uppi
áróður fyrir sameiningu við
Serbíu í baráttunni fyrir kosn-
ingarnar i dag.
Landvinningar
Stjórnvöld í Afganistan hafa
staðfest að Laghman-héraö í
austurhluta landsins sé fallið í
hendur Talaban skæruliða sem
segjast einnig hafa náð ná-
grannahéraðinu Kunar.
Reuter
Olía á heimsmarkaöi:
Ekki hærri síðan
í Flóabardaga
Hráolíutunnan á heimsmarkaði
fór í rúma 24 dollara á fimmtudaginn
og hefur verðið ekki verið hærra síð-
an í Flóabardaganum i janúar 1991.
Hækkunin nú er til komin vegna
óróans milli iraka og Bandaríkja-
manna og yfirvofandi endurtekningu
á Flóabardaga. Bensínverð hefur
sömuleiðis hækkað, það mikið að
undanförnu að olíufélögin hér heima
sáu ástæðu til að hækka í vikunni.
Hlutabréfaverð i helstu kauphöll-
um heims hækkaði verulega í vik-
unni. Þannig var sett sögulegt met í
London á fimmtudaginn og Dow Jo-
nes í New York fór yfir sögulegt met
um miðjan daginn en þegar viðskipt-
um lauk á fimmtudagskvöld endaði
vísitalan örfáum stigum fyrir neðan
metið frá í maí sl. Reuter
Aöskilnaöarsinnar á Ítalíu ganga til Feneyja:
Stofna sjálfstætt
lýðveldi á morgun
— klámstjörnur berhátta sig fyrir sameinaöa Ítalíu
Umberto Bossi, leiðtogi ítalskra
aðskilnaðarsinna, lagði upp í
mikla göngu með fram ánni Pó í
gær og lýkur henni með því að
lýst verður yfir sjálfstæði nýs lýð-
veldis á norðurhluta Ítalíu.
Leiðtogi Bandalags norðan-
manna fyllti flösku úr Feneyjagleri
með vatni úr Pó, lengsta fljóti ítal-
íu, við upptök hennar í fjöllunum
við Pian del Re. Síðan hóf hann
„Gönguna til sjávar" sem mun
standa í þrjá daga. Bossi gerir sér
vonir um að ein milljón manna að
minnsta kosti muni slást í hópinn
og lýsa yfir stuðningi sínum við
áform hans um aðskilnað norður-
og suðurhluta Ítalíu.
Mótmælaaðgerðum Bossis og
félaga lýkur á sunnudag í Feneyj-
um þegar lýst verður yfir sjálf-
stæði sambandslýðveldisins
Padaníu.
„Vatn er uppspretta alls, lífsins
og Padaníu," sagði Bossi, með
bleikan borða nældan í peysuna,
ekkert ósvipað borðunum sem
ítalir setja á útihurðina hjá sér til
að fagna barnsfæðingum.
„Þetta er táknræn aðgerð. Þetta
vatn úr Pó, frá Padaníu, verður á
sviðinu þegar lýst verður yfir
sjálfstæði Padaníu á sunnudag,"
sagði Bossi við mikinn fögnuð
stuðningsmanna sinna.
Ekki eru þó allir jafn hrifnir af
aðskilnaðaráformum Bossis og fé-
laga. Þannig tóku þrjár klám-
stjömur sig til í Róm og fækkuðu
klæðum misjafnlega mikið til að
lýsa yfir stuðningi sínum við sam-
einaða Ítalíu. Búist er við ffekari
mótmælaaðgerðum þeirra sem
vilja áfram sameinaða Ítalíu um
helgina. Reuter
Umberto Bossi, leiötogi aöskilnaöarsinna á noröurhluta Ítalíu, heldur á lofti
flösku meö vatni úr ánni Pó viö upphaf sjálfstæðisgöngunnar miklu.
Símamynd Reuter
Bandaríkjamenn halda áfram að vígbúast viö Persaflóa:
Hundruð Kúrda bíða eftir
að verða fluttir frá írak
Hundruð Kúrda, sem störfuðu
fyrir bandaríska aðila í norðurhluta
íraks, voru í felum í gær og bjuggu
sig undir aö veröa fluttir burt.
Brottför þeirra markar endalok
áhrifa Bandaríkjamanna meðal upp-
reisnarmanna í Norður-írak.
„Bandaríkjamennirnir í Silopi
gáfu leyfi fyrir brottflutningnum á
miðnætti síðastliðnu," sagði Kúrdi
einn, sem starfaði á vegum hjálpar-
stofnunar bandarískra stjórnvalda,
í gær.
Starfsfólk í miðstöð hersveita sem
höfðu það hlutverk að vernda
Kúrda fyrir árásum heija Saddams
Husseins íraksforseta flutti sig til
tyrkneska landamærabæjarins
Silopi þegar kúrdiskar skæruliöa-
sveitir, sem njóta stuðnings Sadd-
ams, hófu áhlaup á andstæðinga
sína í ágústlok til að ná héraðinu
öllu á sitt vald.
Bandarískar hersveitir skutu úr
stórskotaliðsbyssum sínum á
ímyndaða óvini úti í eyðimörkinni í
Kúveit í gær, svona rétt til að benda
íröskum stjórnvöldum á að þær
væru staðráðnar í að verja olíurík-
in við Persaflóa, bandamenn stjóm-
valda í Washington.
Hermennimir sögðust vera til-
búnir aö skjóta á alvöru skotmörk
ef oröaskakið milli Bandaríkja-
manna og íraka snerist upp í hem-
aðarátök.
Bandarikjamenn hafa mjög aukið
viöbúnað sinn viö Persaflóann en
írösk stjómvöld eru hvergi bangin.
Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra íraks, sagði í viðtali við rúss-
neska sjónvarpsstöð að landar sínir
væru hreint ekki á því að gefast
upp.
Reuter
i
i
I
I
É
I
I
1
C';
I
'■■
Noel Gallagher
nógu klár til
að hætta ekki
Noel
Gallagher,
annar aðal-
maðurinn í
bresku
poppsveitinni
Oasis, er
nógu mikill
skynsemdar-
piltur til að vita að hljómsveitin
má ekki hætta. Svo segir aö
minnsta kosti pabbi þeirra
Gallagherbræðra.
Mildar vangaveltur hafa verið
um að hljómsveitin væri að
leggja upp laupana eftir að bræð-
umir Noel og Liam slógust og
sveitin aflýstri tónleikaferðinni
sem hún var í vestanhafs.
Plötufyrirtæki sveitarinnar
vísaði líka á bug fréttum í gær
um að þessi vinsælasta unglinga-
hljómsveit Breta nú um stundir
heyrði brátt sögunni til.
Sprenging við
nýtt klúbbhús
Vítisengla
DV, Kaupmannahöín.
Mjög öflug bilsprengja sprakk
fyrir utan hið nýja klúbbhús Vit-
isengla í Hróarskeldu í vikunni.
Sprengingin var svo öflug að ein
hliðarbygging jafnaðist við jörðu
en eldar, sem kviknuðu, náðu
ekki i sjálft klúbbhúsið. Fjöldi
meðlima Vítisengla og Heathens,
stuðningshóps þeirra, var í hús-
inu. Engin meiðsl urðu á fólki.
Lögreglan upplýsti að allir
bæjarbúar hefðu fundið fyrir
sprengingunni. Fullvíst er talið
að Bandidos, erkifjendur Vít-
isengla, hafi staðið að tilræðinu.
-PJ
Fegurðar-
drottning 1
formi þrátt fyr-
ir aukakíló
Alheimsfegurðardrottningin
Alicia Machado frá Venesúela
segist vera nægilega vel á sig
komin til að halda titlinum enda
þótt hún hafi bætt á sig nokkrum
kílóum frá því hún var kjörin
fegurst fljóða. Nánar tiltekið eru
það fimm kíló.
„Ég viðurkenndi að ég hef
bætt á mig. En ég get fullvel
komið fram fyrir hönd þjóðar
minnar með eða án aukakíló-
anna fimm,“ sagði Machado í
sjónvarpsviðtali.
Stúlkan er 19 ára gömul og
gerir sér vonir um að verða kvik-
myndastjama þegar hún afsalar
sér titlinum í maí á næsta ári.
Fýrsta flokks
j læknar ráðgjaf-
ar Kremlverja
Rússnesk
stjómvöld
Iætla að fá tvo
þýska hjarta-
sérfræðinga
til að gefa
þarlendum
læknum holl
ráö fyrir
hjartaaðgerð-
ina á Borís Jeltsín forseta, auk
þess sem búist er við að einn
frægasti hjartaskurðlæknir
Bandaríkjanna muni slást í
hópinn.
Sérfræöingarnir munu taka
um það ákvörðun í kringum 28.
september hvenær aðgerðin
veröur gerð á Jeltsín en lækn-
arnir þurfa að setja nýjar æðar
í stað stíflaðra. Að sögn rúss-
neskra lækna er þetta fremur
I einfóld aðgerð.
Jeltsín, sem er 65 ára, fékk
| tvö hjartaáföll í fyrra. Hann hef-
ur lítið verið við frá því hann
: náði endurkjöri í júlí. Reuter