Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 18
18 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 13 "V Mánudagurinn 9. september í mínu lífi hófst með útvarpsfréttum á miðnætti. Fátt nýtt var frekar en venjulega í miðnæturfréttum sem varð til þess að tannburstahljóðið náði yfirhöndinni og ég missti at- hyglina. Það var kominn háttatími og ég rankaði næst við mér þegar útvarpsvekjarinn sagði mér fréttir klukkan sjö og morgunútvarp rás- ar tvö rann af stað. Ég var þó ekki alveg á þvi að kveðja draumaland- ið og velti mér á hina hliðina í eins og 20 mínútur. Þá glumdi hin skelfilega vekjaraklukka sonanna, sem minnir einna helst á klukkna- hljóminn á Pink Floyd plötunni hér í den. Þegar ég stíg á fætur finn ég fyrir smá strengjum eftir helgarsportið en á laugardeginum hafði ég tekið þátt í hinum árlega knattspyrnuleik Sjónvarpsins og KEA sem fram fór norðan heiða. Leikurinn var síðasta embættis- verk mitt fyrir framan Sjónvarpið, í bili að minnsta kosti. Með stýrurnar í augunum eru strákarnir klæddir í rólegheitum og búnir undir átök dagsins. Við tekur hefðbundinn morgunmatur, útvarp, DV, sturta og rakstur, eða þar til Jón Guðni hefur lokið við að segja áttafréttir morgunsins. Þá skýst ég með eldri drenginn í Æf- ingaskólann og kem síðan aftur til baka til að sækja þann yngri og konuna. Leikskólinn og VÍB eru siiffuíns íifiíuf írá ufl Skipuiógö sófnun Kv! kvikjnynöa «wr ! krUtmyrwJarifWi qq q* Knrfor. U&kvwtt\ sht QQ mwM'ii&QtZ k'íikrnyrtóatei KviKmyndisafnió j iarKSlnu oq i kvikmyraís^róatrm' sÓQuieQar ttmarlía um kvtkmy skrlía uíti kvííLmyn ÖMfrn MÓ þ Þorfinnur Omarsson er nýtekinn við starfi framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs Islands. Annríki þar er mikiö og missti Porfinnur því af kvöldverði meö strákunum sínum og komst ekki heim fyrr en um miönætti. DV-mynd Pjetur Dagur í lífi Þorfinns Omarsson, framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs: fyrir eitt og síminn heldtn- áfram að hringja. Til mín kemur Sigrún Valbergsdóttir ásamt fulltrúum Kaþólsku akademíunnar í Ham- borg sem ætla að halda myndar- lega Islenska menningarhátíð á næsta ári þar sem íslenskar barna- myndir verða sýndar. Árangurs- ríkur fundur með þeim stóð i tæpa klukkustund og síðan er sest við tölvuna við að svara ýmsum erind- um, m.a. fyrirspurn frá norsku systo-stofnuninni um fjármögnun og fleira tengt íslenskri kvik- myndagerð. Klukkan þrjú er ég mættur nið- ur í menntamálaráðuneyti á fund með ráðherra og forstöðumönnum menningarstofnana rikisins. Helsta tilefnið er fjárlagagerðin en í tilefni af hallalausum fjárlögum set ég upp þverröndótta, hallalausa bindið mitt. Ég stefni vitaskuld aö því að fá mér bindi með upphækk- andi mynstri á næsta ári. Rétt fyr- ir fimm kem ég afto upp á skrif- stofu og skömmu síðar kemur Huldar Breiðfjörð til að taka við mig viðtal fyrir Stúdentablaðið. Hann er mjög áhugasamur og stundum ekki ljóst hvor er spyrill- inn þannig aö samræður okkar dragast til að verða sjö. Ég hef því misst af kvöldmatnum heima og mikilvægri samverustund með strákunum en hringi í þá og sem um að bæta úr því daginn eftir. Með hallalaust bindi í tilefni af fjárlögum næstu viðkomustaðir og tíu mínút- um síðar er ég kominn á útvarps- stöðina FM í Mjóddinni en ég hafði lofað Axel morgunhana að ræða við hann - og hlustendur - um málefni Kvikmyndasjóðs. Á FM fæ ég eitthvert versta kaffi sem ég man eftir. „Kaffið“ líkist einna helst þunnri naglasúpu og bragð- ast eins og gruggugt vatn. Þetta var fyrsti kaffisopi dagsins en ég var ekki á því að láta hann setja mig út af laginu. Á leiðinni aftur niður í bæ kem ég við á mínum gamla vinnustað, Sjónvarpinu, en hef örskamma viðdvöl. Kveð fyrr- um félaga í Dagsljósi með þeim orðum að ég komi og taki draslið mitt í rólegheitum um kvöldið. Hefði betur sleppt slíkum loforðum Spjallað við öðlinga Klukkan er að ganga tíu þegar ég kemst loks á skrifstofu Kvik- myndasjóðs, þar sem ótal verkefni biða úrlausnar. Jón Hjartarson leikari kemur og biður mig um aö skrifa grein í tímarit leikara og skömmu síðar þjóta 300 slög á mín- útu inn á tölvuna. Reyndar sér síminn til þess að hægja á ferðinni með reglulega millibili en á góðum degi er hringt til okkar aðra hveija mínútu dagsins. Um ellefuleytið kemur góður gestur í heimsókn, Knúto Halls- son, sem hefur með rentu verið nefndur faðir Kvikmyndasjóðs, enda var hann stjómarformaður í áratug. Við spjöllum um sjóðinn í fortíð, nútíð og framtíð og hef ég af því bæði gagn og gaman. Óform- legum fúndi okkar lýkur um há- degið en þá kemur annar öðlingur, Jón Múli Árnason, í leit að kvik- mynd frá togaraútgerð á fjóröa áratugnum þar sem hann sjálfur var einn af persónum og leikend- um. Böðvar Bjarki Pétursson, for- stöðumaður Kvikmyndasafnsins, tekur á móti Múlanum og þeir leggjast yfir myndirnar næsta klukkutímann. Morgunrúntoinn á FM varð til þess að ég sat uppi með fjölskyldu- bílinn en því þurfti að kippa í lag þar sem fundir vora fyrirhugaðir fram eftir degi. Ég bruna því öðru sinni til VÍB og næ „helstinu" í há- degisfréttum Útvarps í bílnum. Ég mun líklega seint vaxa upp úr því að fylgjast með fréttum. Menningarhátíð á næsta ári Ég er kominn aftur í sjóðinn rétt Með það að vopni og síma sem þeg- ir þunnu hljóði halda mér engin bönd. Ég sit sem fastast við ýmis verkefni og jafnvel verkefnavísa frá ráðuneytinu til aö ganga tólf um kvöldið. Þá átta ég mig á því að ég hef alfarið gleymt að borða sem er afar sjaldgæft. Mér er líka ljóst að ekki er hægt að fara í fyrirhugaða tiltekt hjá Sjónvarpinu. Manana. Um miðnætt- ið er því fátt annað að gera en að skunda heim á leið, fá sér snarl fyr- ir svefninn og smyija nesti fyrir strákinn í skólann í leiðinni. Og ég hélt að ég væri að fara í 9-5 vinnu. Finnur þú fimm breytingar? 376 [FTftLÍP ci?2S©BCsQ z (v| u swj Þetta er versta tegund mislinga sem ég hef séö i mörg ár! Nafn:. Heimiii: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og fjórðu getraun reyndust vera: Rósa Eðvaldsdóttir Blómvangi 11 220 Hafnarfjörður Linda Óskarsdóttir Engimýri 10 210 Garðabær Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Aö tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi, að verðmæti kr. 7.100, frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr. 1.7ð0. Annars vegar James Bond-bókin Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzanne North, Fín og rík og liðin lík. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 376 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.