Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 20
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996 13 "V
20 3 fréttir
------------------------------------
Aðferðir og mynstur líkamsárása hafa breyst:
Líkamsárásir fálskulegri
og tilgangslausari en áður
- áfengis- og fíkniefnaneysla veldur alvarlegri verknuðum
Líkamsárásir virðast tilgangslausari og fólskulegri en áöur. Ellefu alvarlegar líkamsárásir hafa veriö geröar í Reykja-
vík þaö sem af er árinu. Á myndinni eru lögreglumenn aö færa árásarmann á brott eftir árás sem átti sér staö í ár.
DV-mynd S
beldi hafi ekki aukist til muna held-
ur form þess breyst. Umhverfið sem
við lifum í er opnara fyrir ofbeldi en
áður var. Þar kemur til að áfengis-
neysla hefur aukist og nær til yngra
fólks en áður og til viðbótar hafa of-
beldisskapandi fíkniefni eins og am-
fetamín og kókaín borist hingað í
vaxandi mæli,“ sagði Guðmundur.
Á mörkum eitrunar
í rannsókn á þessum málum, sem
Guðmundur Guöjónsson gerði árið
1992, hafa þessir áhrifaþættir komið
skýrt fram. Auk þess vakti athygli
mjög mikið áfengismagn í blóði
Fréttaljós
Róbert Róbertsson
árásarmanna (yfir 2 prómill) og
margir þeirra höfðu einnig hátt
hlutfall kókaíns og amfetamíns í
blóði sínu sem talið vsir á mörkum
eitrunar. @.mfyr:Alvarlegustu lík-
amsárásirnar
Alvarlegustu árásarmálin i
Reykjavík á þessu ári eru eftirfar-
andi:
í febrúar urðu átök innandyra í
samkvæmi í vesturbænum sem end-
uðu með því að karlmaður var
stunginn með hníf. Málið tengist
fíkniefnaviðskiptum.
í mars réðust tveir ölvaðir menn
að konu á heimili hennar á Skóla-
vörðuholti, tóku hana kverkataki og
köstuðu utan í vegg. Málsaðilar
þekktust.
í maí urðu átök innandyra í aust-
urborginni milli tveggja kvenna.
Önnur konan stakk hina með hníf
og urðu áverkar talsvert miklir.
Málið er talið tengjast fíkniefnum.
í sama mánuði gerðust nokkrir
menn óvelkomnir í heimahúsi í
austurborginni þar sem þeir voru á
Febrúar
Vesturbær: Átök áttu sér staB innandyra í samkvæmi sem endaéi
meB því aB karlmaBur var stunginn meB hnífi. MáliÐ taliB tengjast
eldri fíkniefnaviBskiptum.
Mars
Skólavörduholtlö: Tveir ölvaBir menn réBust aB konu á heimili hennar
og tóku kverkataki og köstuBu utan í vegg. MálsaBilar þekktust.
Maí
Austurborgin: Átök innandyra milli kvenna þar sem önnur hlaut
áverka vegna hnífstungu. MáliB er fíkniefnatengt.
Austurborgln: Nokkrir menn komu övelkomnir I heimahús í kjölfar
vinkonu sinnar og veittu húsráBanda áverka.
JÚIÍ
Austurborgln: Átök áttu sér staB innandyra milli aBila sem þekktust.
KarlmaBur veltti öBrum áverka I andliti.
Brelöholt: RáBist á stúlku I söluturni.
Ágúst
Hlíöahverfl: Unglingar berjast utandyra þar sem einum eru
veittir áverkar meB hnífi.
Mlöbær: RáBist á stöBumælavörB i Rchersundi.
Mlöbær: RáBist á 16 ára stúlku i Hafnarstræti.
September
Mlöbær: RáBist á ungan mann á Ingólfstorgi.
Alvarlegar líkamsárásir virðast
hafa færst í vöxt hér á landi að und-
anfömu. Margar árásimar em al-
gerlega tilgangslausar og mjög
fólskulegar. Spörk em sérstaklega
algeng nú og virðist sem þeim sé
beint að viðkvæmum stöðum, svo
sem höfði.
í Reykjavík hafa átt sér stað ell-
efu meiri háttar líkamsárásir það
sem af er árinu. Á Akureyri hafa
verið framdar fjórar alvarlegar lík-
amsárásir á árinu, þar af var ein
hnífstunguárás og þrjár árásir þar
sem beinbrot hlutust af. í Hafnar-
firði hafa átt sér stað fjórar meiri
háttar líkamsárásir og í tvígang hef-
ur verið um hnífstungu að ræða.
Á Suðumesjum hafa þrjár alvar-
legar líkamsárásir verið gerðar og
jafnmargar hafa verið kærðar í ísa-
fjarðarsýslu. í Vestmannaeyjum
hafa tvær alvarlegar líkamsárásir
verið framdar og ein slík á Þingvöll-
um og sömuleiðis ein í Kópavogi.
Engar tölur um meiri háttar líkams-
árásir fengust uppgefnar á Austur-
landi.
Umhverfi sem eykur
líkur á ofbeldi
Það er ljóst að heimurinn er að
harðna og við íslendingar förum
ekki varhluta af því. Hér hefur
skapast umhverfi sem eykur mjög
líkur á ofbeldisverkum og á aukin
áfengis- og vímuefnaneysla stærst-
an þátt í þvi.
Við skoðun á lögregluskýrslum
kemur skýrt fram að áfengis- og
fíkniefnaneysla er mjög ofbeldis-
hvetjandi og hefur valdið alvarlegri
verknuðum.
Aðferðir og mynstur
afbrota breytt
„Það er ekki hægt að segja að of-
beldi hafi aukist en hins vegar hafa
aðferðir og mynstur breyst síðari
ár. Ofbeldi virðist nú oftar en áður
vera beitt af litlu sem engu tileftii og
oft af hreinni meinfýsi. Það virðist
þó ekki vera um að ræða fjölgun til-
vika, samkvæmt rannsóknum okk-
ar,“ sagði Guðmundur Guðjónsson,
yfirlögregluþjónn í Reykjavík, við
DV um máliö.
„Til að fá
gleggri mynd
af stöðu ofbeld-
isbrota er gott
að skoða upp-
lýsingar frá
slysadeild
Sjúkrahúss
Reykjavíkur
því þangað
leita jafnan
þeir sem fá al-
varlegustu
áverkana. Þar
kemur fram að
hlutfall þeirra
sem leita til
slysadeildar
vegna ofbeldis
hefur ekki
aukist svo
marktækt sé
síðan 1975.
Þessar upplýs-
ingar eru því í
raun staðfest-
ing þess að of-
ferð með vinkonu sinni. Húsráðandi
hugðist hringja á aðstoð lögreglu til
að koma mönnunum út en þeir réð-
ust á hann og veittu honum mikla
áverka.
í júlí áttu sér stað átök í öðru
húsi í austurborginni milli tveggja
karlmanna og veitti annar þeirra
hinum mikla áverka í andliti.
Mennirnir tveir þekktust.
í sama mánuði var ráðist hrotta-
lega á afgreiðslustúlku í sölutumi í
Breiðholti og hún slegin ítrekað í
höfuðið með klaufhamri. Hún hlaut
alvarlega höfuðáverka. Hún þekkti
ekki árásarmanninn.
í ágúst réðst 17 ára piltur af tæ-
lenskum ættum á 21 árs gamlan
mann í Hlíðahverfi og stakk hann
vinstra megin í brjóstið með hníf.
Fórnarlambið var mjög heppið að
komast lifs af því hnífurinn lenti
rétt við hjartað.
í sama mánuði var ráðist fólsku-
lega á 16 ára stúlku sem var á gangi
í Hafnarstræti. Sparkað var í höfuð
hennar svo hún missti meðvitund
og marðist á heila. Hún þekkti ekki
árásarmanninn.
Ráðist var á stöðumælavörð í Fis-
chersundi um hábjartan dag í byij-
un ágúst. Stöðumælavörðurinn var
laminn illa og rifbeins- og handar-
brotnaði í árásinni.
Nú um síðustu helgi var ráðist að
tilefnislausu á ungan mann viö Ing-
ólfstorg og hann skorinn á kjálka
með hníf. Hann hlaut djúpan 9
sentímetra langan skurð á kjálkann.
Ef skurðurinn hefði verið tæpum
tveimm: sentímetrum neðar hefði
hann skorið í sundur slagæð á hálsi
og maðurinn hugsanlega látist.
Fómarlambið þekkti árásarmenn-
ina.
Meiri fjölmiðlaumfjöllun
Á undanfömum áram hefur færst
mjög í vöxt að líkamsmeiðingar em
samstundis tilkynntar til lögreglu
og ekki er að sjá að fleiri hljóti of-
beldisáverka samkvæmt gögnum
slysadeildar. Þetta er athyglisvert
og bendir til þess að fjölgun tilvika
samkvæmt lögregluskýrslum komi
til af því að fólk tilkynni mun frek-
ar slík ofbeldisverk en áður.
Hér kunna að vera ýmsar ástæð-
ur og skýr-
ingar að
baki, svo
sem að fólk
sætti sig
siður við of-
beldi en
áður. Hugs-
anlega má
líka að ein-
hverju leyti
rekja skýr-
inguna til
forvamar-
starfs lög-
reglu og
enn fremur
hefur meiri
fjöl-
miðlaum-
fjöllun um
ofbeldi án
efa hvatt
fólk frekar
til að til-
kynna slík
brot.
MEIRI HÁTTAR LÍKAMSÁRÁSIR
- í Reykjavík frá 1. jan. til 1. sept. 1996 -