Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Side 23
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
23
ðmajyy.
Beint úr frystinum
Úrval af ostakökum,
tertum og oftlrréttum
Julia Roberts hefur náö sér í nýjan
kærasta og stundar gleðskap fram á
morgun.
Partíljónið
Julia Roberts
Julia Roberts, sem fræg varð fyr-
ir hlutverk sitt í Pretty Woman, hef-
ur breyst í gríðarlegt partíljón. Á
dögunum fór hún á tónleika þar
sem fyrrverandi eiginmaður henn-
ar, Lyle Lovett, spilaði. I för með
stjömunni var nýi kærastinn, Pat
Manocchia, en hann á líkamsrækt-
arstöð í New York. Eftir tónleikana
héldu skötuhjúin út á lífið ásamt
Lyle Lovett og nýju konunni í lífi
hans, Elizabeth Vargas úr þáttun-
um Good Morning America.
Julia var ekki búin að fá nóg svo
hún og Pat fóru inn á skemmtistað
sem heitir Hogs & Heifers og fengu
sér einn fyrir svefninn. Hann er
frægur fyrir að þar hanga mótor-
hjólaklíkur og frægt fólk. Þama
skemmti Julia sér í tætlur og skellti
sér upp á barborðið og dansaði til
fjögur um nóttina ásamt fimm öðr-
um konum. Julia tók jafnvel upp sið
klúbbsins og þreif af sér brjósta-
haldarann og skildi eftir haldara
númer 34B sem minjagrip á bam-
um. Þar fetaði hún í fótspor stjam-
anna Ashley Judd, Drew Barrymore
og Daryl Hannah. Ljósmyndari Post
var staddur á sama stað og Julia og
hann fullyrti að hún hefði kysst bar-
þjóninn, (sem var kvenkyns).
Vændiskonan Divine Brown reyndi
að selja lögreglumanni blíðu sína.
Divine Brown
handtekin aftur
Vændiskonan í Hollywood,
Divine Brown, sem hvað mest var í
fréttum vegna sambands síns við
leikarann Hugh Grant, hefur verið
handtekin á ný fyrir vændi. Brown
var handtekin á sunnudag á Grand
Hotel and Casino í Las Vegas þar
sem hún reyndi að bjóða lögreglu-
mönnum blíðu sína. Hún var ákærð
fyrir tilraun til vændis og mótþróa
við handtöku. Mörgum er í fersku
minni uppþotið sem það vakti þegar
Hugh Grant og Brown sáust í kyn-
mökum í bíl Grants nálægt Sunset
Boulevard í Los Angeles í fyrra. Gr-
ant baðst á sínum tíma afsökunar á
framferði sínu og það tók talsverðan
tíma að gróa um heilt á milli hans
og kærustunnar, Elizabeth Hurley.
STAÐFESTING
Á GÆÐUM!
323 Sedan
Samkvæmt nýlegum skýrslum þýsku skoðunarstofunnar DEKA, sem árlega framkvæmir skoðanir og
mengunarmælingar á um 7 milljónum bíla, eru bílar af MA2DA gerð í besta ástandi allra þriggja til
sjö ára bíla. Þetta er enn ein staðfestingin á góðri endingu og vandaðri smíð MAZDA.
ISO 9001
í Certificate
MA2DA er að auki fyrsti og ennþá eini
japanski bifireiðaframleiðandinn, sem veitt
hefur verið ISO 9001 gæðavottun, en það er
æðsta viðurkenning sem framleiðandi getur hlotið.
Við bjóðum nú 1997 árgerðirnar af MAZDA
með nýjum innréttingum og auknum búnaði
á betra verði en nokkru sinni fyrr!
MAZDA 323 kostar frá
kr. 1.298 þús.
BÍLASALAN OPIN LAUGARDAGA 12-16
323 F
323 Coupé
- Óbilandi traust!
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK SÍMI 561 9550
Netfang:www.hugmot.is/mazda