Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Page 27
X> V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1996
130 milljóna fjárveiting Bandaríkjamanna til að steypa Saddam fór í vaskinn:
a vegum
Viðleitni Bandaríkjamanna til að
velta Saddam Hussein, forseta
íraks, úr sessi varð fyrir meiri hátt-
ar áfalli í síðustu viku. Yfirvofandi
árás á borgina Arbil neyddi starfs-
menn bandarísku leyniþjónustunn-
ar CLA til að hörfa til Tyrklands
ásamt bandarískum hermönnum.
En það var ekki einsdæmi heldur í
annað sinn sem njósna- og andófs-
starfsemi Bandarikjamanna í írak
verður fyrir áfalli í þessu ári. Þykir
ljóst að langt verði í aðra tilraun til
að velta Saddam en urmull öryggis-
lögreglumanna hans í Norður-írak
gerir andófsmönnum og njósnurum
afar erfitt fyrir.
Bill Clinton Bandaríkjaforsti fyr-
irskipaði snemma á þessu ári að öll
njósna- og andófsstarfsemi í Norð-
ur-írak, sem staðið hafði yfir frá
lokum Persaflóastríðsins, skyldi
efld. Bar CIA að útvega andófshóp-
um vopn, annast herþjálfun, og
koma fyrir njósnatækjum. Á þessu
ári varði CIÁ um 130 milljónum
króna til þessara aðgerða sinna í
írak en þær komu úr leynisjóðum
forsetans. Takmarkið var að koma
Saddam Hussein frá völdum.
frásagna um starfsemi fylkingarinn-
ar og skotnir.
Samkvæmt heimildum innan
bandarísku stjómsýslunnar hafði
Samfylking íraka (Iraqi National
Accord) sem sunnítar sfjóma, verið
svikin af mönnum Saddams sem
gengið höfðu í fylkinguna undir
folsku flaggi. Mun CIA þá þegar
hafa veitt milljónir dollara til starf-
semi fylkingarinnar og annars
hóps, Þjóöþings íraka (Iraqi
National Congress), sem í em aðal-
ega Kúrdar frá norðurhluta íraks
sem hvatt hafa til andófs við
Saddam í fjögur ár. Var von Banda-
ríkjamanna að stuðningur við Þjóð-
þing íraka gætti hjálpað til við sam-
einingu Kúrda í Norður-írak.
En þegcir frá leið varð ófriðurinn
í Kúrdahéruðunum til þess að CIA
beindi peningastreyminu frekcir að
Samfylkingunni, enda voru meðlim-
ir hennar frá ráðandi þjóðarbrotum
í írak.
Flóðu með þyrlu
Áður en kom til stórsóknar Lýð-
ræðisflokks Kúrda og hersveita
Saddams i Norður-írak náði um 10
En í júní byrjaði smám saman að
fjara undan ráðagerð Bandaríkja-
manna. Sprenging í einum af höll-
um Saddams kom öryggislögregl-
unni á sporið um ráðabragg gegn
forsetanum. Naut hún síðan aðstoð-
ar íraskra stuðningsmanna Sadd-
ams búsettra erlendis en þeir gengu
í raðir andófsmanna og hjálpuðu til
við að koma upp um þá.
í kjölfarið handtók öryggislög-
regla Sassams Husseins yfir 100
íraska andófsmenn og yfirmenn í
íraksher. Þeir voru í tengslum við
hóp manna í Jórdaníu sem aftur era
á mála hjá CIA. Er talið að allir hin-
ir handteknu hafi verið teknir af lífi
eftir pyntingar. í blaðafréttum í
Kúveit kemur fram að auk svikara í
röðum andófsmanna hafi vöntun á
áræðni Bandaríkjamanna gert úts-
lagið í klúðrinu.
Skipulagið hrynur
Hinar misheppnuðu tilraunir CIA
til að steypa Saddam komu fyrst
fram í dagsljósið þegar hermenn
Lýðræðisflokks Kúrda og her Sadd-
ams réðust á horgina Arbil í Norð*
ur-írak um síðustu mánaðamót. Þá
hrundi skipulag andófsstarfsemi
CIA í Norður-írak. Komust hersveit-
ir Saddams yfir tölvur og ýmis gögn
um starfsemina. í kjölfarið mátti
hvarvetna sjá menn úr öryggislög-
reglu Saddams á svæðinu. Fór hún
hús úr húsi með lista sem fenginn
var frá svikuram innan fylkingar-
innar. Um 100 samfylkingarmenn
vora síðan handteknir, pyntaðir til
manna sveit á vegum CIA, sem stað-
sett var norðan við borgina Arbil,
að flýja. Var hún flutt til Tyrklands
með þyrlum.
Meðlimum Samfylkingarinnar
var gert viðvart um yfirvofandi árás
og munu hafa haft tíma til að flýja.
Þeir fáu sem sluppu era enn í sjálf-
heldu i fjallahéruðum íraks og kom-
ast hvergi.
En í Washington vilja menn ekki
blanda sér frekar í málið. Og þeir
vilja heldur ekki taka á sig sökina
fyrir aö aðgerðir CIA gegn Saddam
fóra í vaskinn. Haft er eftir háttsett-
um embættismanni i Washington
að ófriðurinn milli fylkinga Kúrda
hefði gert útslagið. Þeir hefðu ekki
getað sæst og sameinast gegn
Saddam.
En Bandaríkjamenn geta ekki
stært sig af sérstökum árangri í bar-
áttu sinni gegn Saddam. I Persaflóa-
stríðinu var látið ógert að elta hann
uppi og ráða hann af dögum. Geor-
ge Bush, þáverandi forseti, sagði að
Bandaríkjamenn yrðu bara að snúa
aftur og ná í kauða innan fimm ára.
Nú era liðin sex ár og Bush horfinn
af sjónarsviði heimsstjómmálanna.
En Saddam Hussein er við hesta-
heilsu. Hryllingur harðstjómar
hans heldur þjóðlífinu í helgreipum.
Blóðið drýpur upp á hvem dag.
Andstæðingar era pyntaðir og þeim
fleygt í sýrubað og augun stungin
úr bömum fanga til þess eins að
þeir játi á sig upplognar sakir.
Bandaríkjamenn skutu 44 eld-
flaugum á írak eftir árásina á Arbil
á dögunum. En eldflaugar Clintons
höfðu engin áhrif. Skaðinn var
óverulegur og írakar hófu endur-
byggingu loftvarnabyrgja sinna.
Öryggislögregla Saddams er við
hvert fótmál í Norður-írak. Kúrdar
sem Saddam styður ráða þar lögum
og lofum. Enginn jarðvegur er fyrir
andófs- né njósnastarfsemi og langt
virðist í land að Saddam verði
steypt af stóli. Reuter o.fl.
SEPTEMBER
18. mið. Grindavík, iþróttahús Grindavikur
20. fös. Þorlókshöfn, íþróttamiðstöðin
21. lau. Akranes, íþróttahúsið
22. sun. Stokkseyri, íþróttahúsið
23. món. Sandgerði, íþróttahúsið
24. þri. Hveragerði, íþróttahúsið
25. mið. Hella, Hellubíó
26. fim. Mosfellsbær, Hlégarður
27. fös. Borgarnes, iþróttahúsið
28. lau. Blönduós, iþróttamiðstöðin
29. sun. Stykkishólmur, iþróttamiðstöðin m
OKTOBER
01. þri. Vestmannaeyjar, íþróttahúsið
03. fim. Sauðórkrókur, iþróttahúsið
04. fös. Húsavik, iþróttahúsið
05. lau. Akureyri
17. fim. Útgáfa, ný plata
24. fim. Hvolsvöllur, iþróttahúsið
25. fös. Vik í Mýrdal, Félagsheimilið Leikskálar
27. sun. Höfn i Hornafirði, iþróttahús Heppuskóla
28. mán. Eskifjörður, íþróttahúsið
29. þri. Neskaupstaður, iþróttahúsið
30. mið. Egilsstaðir, iþróttahúsið
31. fim. Borgarfjörður eystri, Fjarðarborg
NOVEMBER H
01. fös. Vopnaf jörður, íþróttahúsið I
02. lau. Þórshöfn, Þórsver
03. sun. Dalvik, iþróttahúsið
04. mán. Olafsf jörður, iþróttamiðstöðin
05. þri. Laugarbakki, iþróttahúsið
Ekkert aldurstakmark
Tónleikar hefjast kl. 21.00 öll kvöldin
TONLEIKAFERÐALAG
HAUSTIÐ 1996