Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.1996, Qupperneq 50
« kvikmyndir
Háskólabíó/Sam-bíóin - Stormur: ***
Náttúruhamfarir af stærstu gerð
Það hefur háð flestum stór-
myndum sumarsins hversu inni-
haldslitlar þær hafa verið. Þau
andlausu handrit sem notast hefur
verið við hafa þó ekki náð að
skemma fyrir. Kraftmiklir leik-
stjórar ásamt úrvals tæknimönn-
um, sem hafa verið ósparir á að
sýna undraheim tækninnar, hafa
boðið upp á mikla og góða
skemmtun og er Stormur (Twister)
engin undantekning.
Stormur er enn ein rússíbana-
ferð um ógnvekjandi hættusvæði
og nú eru það sléttur miðvestur-
ríkja Bandaríkjanna sem eru sögusvið, en þar eru fæðingarstaðir
hinna miklu hvirfilbylja sem við íslendingar þekkjum sem betur fer
aðeins af afspurn. Það er greinilegt að leikstjórinn Jan De Bont og lið
hans kemur vel undirbúið til leiks. Áður en tökur hófust var búið að
mynda nokkra alvöru hvirfilbylji og svo var það verk tæknideildar að
magna þá upp og það tekst þeirri deild af mikilli snilld svo úr verður
skemmtileg og hröð kvikmynd sem býður upp á hvirfilbylji sem mun-
ar ekkert um að gjöreyða því svæði sem þeir fara yfir og á loft tekst
allt sem fyrir verður, meðal annars þungir flutningabílar.
Vandamálið er að mjög erfitt að búa til innihaldríka sögu um hvirf-
ilbylji, sögu sem fyrst og fremst á að skemmta fólki en ekki segja frá
þeim hörmungum sem hvirfilbyljir hafa valdið í áranna rás og meira
að segja spennusagnarithöfundurinn Michael Crichton á í erfiðleik-
um, en hann er annar handritshöfunda.
Sagan um hóp vísinda- og ævintýramanna sem reynir hvað hann
getur til að koma nýju tæki inn í miðjan hvirfilbyl, tæki sem á að geta
sagt vísindamönnum eitthvað um þessi dularfullu fyrirbrigði, er alls
ekki svo vitlaus þótt persónurnar séu misvel heppnaðar. Bill Paxton
og Helen Hunt eru þeir leikarar sem komast best frá sínum persónum
enda mest lagt í þær og er leikur þeirra með ágætum. Það sem fer með
sögxma og gerir hana eins og teiknimyndasögu er að bætt er inn
óvinaflokki á flottum svörtum bílum, bara að því er virðist til að
koma vondu köUunum að í myndina. Þetta er algjör óþarfi, hvirfilbylj-
- imir í umsjón tæknideUdarinnar sjá alveg um að halda magnþrung-
inni spennu út aUa myndina og gera Storminn að virkUega góðri
skemmtun.
Lelkstjóri: Jan De Bont. Handrit: Michael Crichton og Anne-Marie Martln. Kvlk-
myndataka: Jack N. Green. Tónlist: Mark Manclna.
Aðalleikarar: Helen Hunt, Bill Paxton, Jaml Gertz og Cary Elwes.
Hilmar Karlsson
Háskólabíó - Jerúsalem: irkiri,
Ýmsar myndir ástarinnar
Danski kvikmyndastjórinn BiUe
August er áreiðanlega fremstur
þeirra leikstjóra sem nú starfa á
Norðurlöndum. Það er því mikiU
fengur að nýjasta kvikmyndin
hans, Jerúsalem, skuli vera frum-
sýnd hér samtímis og annars stað-
ar á Norðurlöndum. Eins og ýmsar
fyrri myndir Augusts er Jerúsalem
umfangsmikil í bæði tíma og rúmi,
og ákaflega löng í þokkabót, en hún
hefur samt yfir sér þetta svipmót
„lítiUa“ mynda þar sem persónum-
ar eru í öndvegi, þótt „stórmynda-
takta“ megi finna hér og hvar.
í Jerúsalem er Bille August að fjaUa um ástina i ýmsum myndum.
Ástina miUi manns og konu, ástina á guði og meinta ást guðs á mönn-
unum, og ást mannsins á landinu sínu og átthögum, hvernig þetta
tvinnast allt saman og hefúr áhrif hvað á annað.
Myndin gerist í litlu samfélagi í norðanverðri Svíþjóð á ofanverðri
19. öld, þar sem hefðbudinni trúarró er fyrst raskað af hópi íbúanna
sem vflja reisa bænahús tfl að boða hina réttu trú og síðar af harð-
línutrúboðanum HeUgum sem boðar mönnum að flytja til landsins
helga tU að vera sem næst guði. Drjúgur hluti byggðarlagsins hlýðir
kallinu og leggur upp í langferð, þar á meðal hin unga og fagra Ger-
trud sem flýr á náðir Jesú vegna þess að maðurinn sem hún elskar
og sem elskar hana ákveður að giftast annarri tU að forða frá því að
ættaróðalið lendi í höndum ókunnugra.
BUle August dregur upp einkar sannfærandi mynd af litia samfé-
laginu og þeirri hörðu lifsbaráttu og innri baráttu sem þar fer fram
og kallar fram á sjónarsviðið mikinn fjölda persóna, hverja með sína
sögu og í mörgum tilfellum djöful að draga. Hann sýnir okkur, svo
ekki verður um viUst, að grasið er ekki aUtaf grænna handan við
hæðina og varar okkur við hvers konar fanatík.
Jerúsalem er afskaplega vönduð mynd í aUa staði. Handrit leik-
stjórans, eftir sögu Selmu Lagerlöf, er vel skrifað og oft á tíðum frá-
bærlega flutt af leikarahópnum og kvikmyndatakan er hrein veisla
fyrir augað. Og þótt myndin sé tæpir þrír tímar, finnur maður varla
fyrir því. Jerúsalem er mynd sem enginn má missa af.
Lelkstjóri: Bllle August. Handrit: Bllle August, eftir skáldsögu Selmu Lagerióf. Kvik-
myndataka: Jörgen Persson.
Lelkendur: Ulf Friberg, Maria Bonnevie, Pernilla August, Max von Sydow, Olympia
Dukakls, Relne Brynolfsson, Sven-Bertil Taube, Jan Mybrand, BJöm Granath.
Guðlaugur Bergmundsson
Jean-Claude Van Damme í hlutverki Chris Dubois í The Quest en hann leikstýrir einnig myndinni.
The Quest í Laugarásbíói:
Van Damme í mikl-
um látum í Tíbet
Jean-Claude Van Damme hefur
verið á uppleið í Hollywood og telst
ekki lengur til b-mynda leikara. Sið-
ustu myndir hans hafa náð
nokkrum vinsældum og nú hefur
hann fært sig upp á skaftið og bæöi
leikur og leikstýrir The Quest, sem
Laugarásbíó frumsýndi í gær. í
myndinni leikur hann Chris Dubo-
is, hugmyndaríkan sakamann, sem
í byrjun myndar er á flótta undan
lögreglunni í New York á þriðja
áratug aldarinnar. Honum er rænt
af byssusmyglurum þegar hann
verður vitni að verknaði þeirra og
færður í skip sem er á leið til
Taílands. Á leiðinni bjarga sjóræn-
ingjar honum úr klóm smyglaranna
en ekki tekur betra við þegar sjó-
ræningjarnir komast að því að
hann kann ýmislegt fyrir sér í
slagsmálum. Hann er seldur sem
boxari og liggur leið hans til Tíbets
þar sem hann á að taka þátt í mik-
illi slagsmálakeppni þar sem verð-
launin eru hinn eftirsótti Gulldreki.
Jean-Claude Van Damme á
einnig hugmyndina að sögunni og
segir að hann sé að láta bemsku-
drauma rætast. „Þegar ég var bam
var ég alveg vitlaus i Tinna sögum-
ar og var mjög hrifinn af ævintýr-
um hans sem leiddu hann út um all-
an heim. The Quest er í anda þess-
ara sagna, enda er ferðast um hálf-
an heiminn í myndinni." Um þá
ákvörðun sína að leikstýra mynd-
inni segir Van Damme: „Það var
annað hvort að gera það núna eða
sleppa því alveg. Síðustu myndir
mínar höfðu gengið ágætlega og
meðan ég er enn ungur finnst mér
sjálfsagt að reyna eitthvað nýtt og
þar sem The Quest er
mjög persónuleg þá var
að hrökkva eða
stökkva.“
Aðalmótleikari Van
Damme er Roger Moore
sem leikur breskan
fyrrverandi liðsforingja
sem hefur gerst sjóræn-
ingi. Hann bjargar
Dubois úr klónum á
smyglurunum en selur
hann svo til baka til
manns sem vill nota
hann í slagsmálakeppn-
ina. Aðrir leikarar eru
James Remar, Janet
Gunn og Jack McGee.
Saga Jean-Claude
Van Damme er ævin-
týri líkust. Hann fædd-
ist í smábæ í Belgíu fyr-
ir 35 árum og var skírð-
ur Jean-Claude Van
Varensberg. Meðan hann var enn
bam höfðu foreldrar hans áhyggjur
af honum vegna þess hversu róleg-
ur hann var og talaði lítið. Auk þess
var hann lítill og grannur, notaði
gleraugu og var að eigin sögn eins
og blýantur í laginu.
Breyting varð á honum þegar
hann komst í kynni við karate.
Hann tók fljótt æfingarnar mjög al-
varlega og grannur skrokkurinn
breyttist í stæltan líkama. Auk þess
að æfa karate stíft stundaði hann
ballett og má segja að það hafi ver-
ið ballettinn sem hjálpaði honum að
ná upp þeirri tækni sem gerði hann
að yfirburðamanni í íþrótt sinni.
Um tíma keppti hann í karate, dans-
aði með ballettflokki og tók þátt í
líkamsræktar-
keppnum.
Draumur Van
Damme var alltaf
að leika í kvik-
myndum og þar var
stórt hugsað því
honum datt ekki í
hug að reyna sig í
kvikmyndabrans-
anum á heimaslóð-
um heldur tók
stefnuna beint á
Hollywood. Tæk-
ifærin létu þó bíða
eftir sér en hann
beið rólegur og tók
að sér alls konar
vinnu, vann meðal
annars sem leigu-
bílstjóri, þjónn og
dyravörður, auk
þess sem hann
kenndi karate.
Sagan segir að eitt skipti hafi
framleiðandinn, Menahem Golan,
sem er þekktur hasarmyndafram-
leiðandi, átt leið í klúbb þar sem
Van Damme var dyravörður og sá
hann tuska til ólátabelgi fyrir utan
staðinn. Golan sá í Van Damme eitt-
hvað sem aðrir höfðu ekki tekið eft-
ir og bauð honum strax aðalhlut-
verkið í myndinni Bloodsport sem
hann var að byrja á. Þá hafði
Varenberg þegar breytt eftimaíhi
sínu í Damme sem honum fannst
hljóma betur.
Bloodsport kostaði ekki mikla
peninga en hún varð aftur á móti
geysivinsæl og hjólin byrjuðu að
snúast Van Damme í vil og þau snú-
ast enn. -HK
Roger Moore leikur fyrrum
breskan liðsforingja sem
orðinn er sjóræningi.