Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Side 4
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 JL>V 4 fréttir Þingmenn, ráðherrar og fleiri tala um hófsemi í kröfugerð verkalýðsfélaganna: Þessir menn eru í öðrum heimi og öðrum veruleika - segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar í Eyjafirði DV, Akureyri: „Mér finnst mjög alvarlegt þegar menn sem þegið hafa aðrar eins launahækkanir og þingmenn og fleiri embættismenn hafa gert und- anfarin misseri tala gegn þvi að lág- launafólkið fái einhverja launa- hækkanir. Launahækkanir þing- manna og embættismannanna einar og sér voru hærri en heildarlaun láglaunafólksins, og það er í raun- inni alveg ótrúlegt að þessir menn skuli tala gegn launahækkunum þeirra lægst launuðu, alveg ótrú- legt,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Verkalýðsfélagsins Ein- ingar í Eyjafirði. Bjöm segist ekki eiga við að þing- mennimir hafi ekki verðskuldað Gosið í Vatnajökli: Sextíu Hollend- ingar á leiðinni DV, HoUandi: MikUl áhugi er á meöal HoUend- inga um að koma til íslands vegna eldgossins í Vatnajökli og yfirvof- andi Skeiöarárhlaups. Að sögn starfsmanna á feröaskrifstofunni Askja Reizen, Island Tours og Flug- leiðum í Amsterdam, sem selja ferð- ir til íslands, hefur fjöldi fólks hringt undanfama daga og spurt um ferðir til eldfjallaeyjunnar í norðri. Þannig hefur Askja Reizen þegar undirbúið fyrstu ferðina sem alls 60 manns eru skráðir í. Eftir að ríkis- stjórn íslands lýsti yflr neyðar- ástandi á svæðinu komst eldgosið fyrst í fréttirnar og í gær var greint ítarlega frá því í útvarpi og myndir sýndar í hollenskum sjónvarps- stöðvum. -EE/bjb ^ Eldgosið í Vatnajökli: Útsýnisflugið þykir heldur dýrt - Flugleiðir greina ekki áhuga erlendis DV, Akureyri: „Við höfum ekki fengið neinar fyrirspumir erlendis frá eða pant- anir sem rekja má beint til gossins í Vatnajökli. Þó vitum við um áhuga erlendis, sérstaklega ef gosið færist í aukana og þetta verður allt stærra í sniðum," segir Edda Hannesdóttir í upplýsingadeild Flugleiða um fyr- irspurnir erlendis frá vegna gossins í Vatnajökli. A.m.k. þrjú flugfélög innanlands bjóða ypp á útsýnisflug yfir goss- töðvamar. Hjá íslandsflugi sagði Sveinn Ingvarsson að vart hefði orð- ið við mikinn áhuga. Mörgum finnst hins vegar dýrt að fara í svona flug, það kostar 9.800 krónur enda segir Sveinn að um langt flug sé að ræða en ferðin taki rúmar tvær klukkustundir. „Við erum búnir að fljúga með um 50 manns og eflaust eykst þetta um helgina. Það stendur t.d. til að fara með um 20 varnarliðsmenn og ef Skeiðarár- hlaupið fer af stað eykst almennur áhugi eflaust," sagöi Sveinn. Hjá Flugfélaginu Jórvik í Reykja- vík sagði Rögnvaldur Hilmarsson að mikið væri spurst fyrir um ferð- ir, en þær kosta 9.800 krónur eins og hjá íslandsflugi. „Þetta er 2 tíma flug á tveggja hreyfla vélum og við fljúgum í 10-15 mínútur yfir goss- töðvunum,“ sagði Rögnvaldur. Hjá Flugfélagi Norðurlands sagði Ari Fossdal að ekki hefðu verið sett- ar upp sérstakar ferðir, en þar á bæ væra menn tilbúnir að fljúga með fólk ef fyrir lægi að hægt væri að fylla 9-sæta vélar. Þá myndi farið kosta um 6.700 krónur á mann og yrði flogið í um 30 mínútur yfir gos- stöövunum. -gk launahækkun: „En þeir geta ekki tekið þetta til sín og sagt um leið að aðrir geti ekki fengið hækkanir á sínum launum því þá fari allt yfir um í þjóðfélaginu. Þetta sýnir ekk- ert annaö en að þessir menn era í öðrum heimi og öðrum veruleika. Fólk man hins vegar eftir þeim upp- ákomum sem urðu þegar verið var að skammta þingmönnunum launa- hækkanimar og láglaunafólkið er reitt og sárt yfir því hvernig þessir menn tala núna. Þetta er reyndar ekkert nýtt, það upphefst alltaf sami söngurinn þeg- ar samningar láglaunafólksins eru að renna út, að nú þurfi að stilla kröfum í hóf og fleira þess háttar til að landið sporðreisist ekki. Það er ekki langt síðan forsætisráðherra lýsti því yfir að nú væri lag til að lagfæra launin, en nú á sem sagt að gæta hófsemi. Það er spuming í hverju sú hófsemi felst hjá þeim sem eru meö 50-55 þúsund krónur á mánuði. Ég held aö menn ættu að horfa á krónumar í þessu samhengi en ekki einhverjar prósentur," segir Bjöm Snæbjömsson. Lítiö er um fyrirspurnir erlendis frá vegna gossins ( Vatnajökli. A.m.k. þrjú flugfélög innanlands bjóöa ypp á útsýn- isflug yfir gosstöövarnar. Hjá íslandsflugi sagöi Sveinn Ingvarsson aö vart heföi oröiö viö mikinn áhuga. Mörgum finnst hins vegar dýrt aö fara í svona flug. Hér má sjá mökkinn sem viröist ekki stuöla að auknum ferðamanna- l straumi enn sem komið er. DV-mynd Brynjar Gauti Nefskattur vegna snjóflóðavarna: Sjálfsagt aö ríkiö greiði að fullu - segir Smári Geirsson á Neskaupstað Samherjaskipin: Ekki í Smuguna að svo stöddu DV, Neskaupstað: „Sveitarstjómarmenn, sem búa á snjóflóðahættusvæöum, hafa rætt sín á milli um þessi mál og eftir því sem maður hugsar meira um þá hugmynd að snjóflóðavarnir séu kostaðar af ríkinu að öllu leyti þá verður ljóst að sú leið er sjálfsögð,“ sagði Smári Geirsson, forseti bæjar- stjómar Neskaupstaðar, vegna um- mæla Kristjáns Þór Júlíussonar, bæjarstjóra á ísaflrði, varðandi þátt- töku allra landsmanna í kostnaði vegna snjóflóðavarnarmannvirkja. „Það er staðreynd að margvísleg- um verkefnum, sem snerta öryggi landsmanna allra eða hluta þeirra, er sinnt af ríkisvaldinu og það er í sjálfu sér ekkert eðlilegt að kostnað- ur vegna snjóflóðavama sé borinn í meira mæli af íbúum þeirra sveitar- félaga sem búa við snjóflóðahættu en öörum landsmönnum. Mín niö- urstaða er mjög ótvíræð. Það er eðli- legt að samfélagið í heild sinni eða ríkisvaldið beri allan kostnað við Smári Geirsson Neskaupstaö. uppbyggingu snjóflóðavarnamann- virkja," sagði Smári ennfremur. -SJG DV, Akureyri: „Það er ekkert skip frá okkur í Smugunni og stendur ekki til að senda þangað skip að svo stöddu, a.m.k. ekki á meðan aflabrögð breytast ekki þar,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmda- stjóri útgerðarfyrirtækisins Sam- herja á Akureyri. Samherji sendi tvö skip í Smug- una í haust og vora þau þar í 3-4 vikur en árangur var lítill. Skipin vora því kölluð heim og sem fyrr segir áforma Samherjamenn ekki að senda skip í Smuguna að nýju nema breyting verði á aflabrögðum þar. -gk Leiörétting Rangt var farið með nafn leik- stjóra nýrrar sýningar Kafíileik- . hússins, Spánskra kvölda, í F)ör- I kálfinum i gær. Rétt er að Þórann Sigurðardóttir leikstýrir sýning- unni, en Ása (ekki Ásta) Richards- dóttir er framkvæmdastjóri Kaffi- leikhússins. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.