Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 10
1« heilsa
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 UV
Júlía Baldursdóttir mælir fæðuóþol:
Fæðuóþol er
Fæðuóþol er eitt af því sem marg-
ir þjást af um þessar mundir og hafa
næringarfræðingar hingað til verið
uppteknir við að greina hvað fólk
þolir og þolir ekki. Á Akranesi
stofnaði Júlía Baldursdóttir heilsu-
búð fyrir nokkrum árum og var
helsta ástæða þess hennar eigið
fæðuóþol. Hún hefur tekið upp ný-
stárlega aðferð við að mæla fæðuó-
þol fólks. í þægilegu umhverfi, með
reykelsislykt fyrir vitum, spyr Júlía
hvort blaðamaður þjáist af einhverj-
um einkennum fæðuóþols. Þau eru
algengust meltingarvandamál,
vöðvavandamál, höfuðverkur, liða-
vandamál og útbrot. Einnig er þar
nefstífla og bláir pokar undir aug-
um. Blaðamaður getur ekki neitað
því að einhver þessara einkenna
hrjái hann. Júlía sagði að sam-
kvæmt sinni reynslu þoli blaðamað-
ur ekki mjólkina. Þar fór osturinn,
rjóminn og ísinn en spennandi verð-
ur að vita niðurstöðuna.
„Ef fólk hefur ekki þessi einkenni
sem fæðuóþoi veldur finnst mér
ástæðulaust að gera mælinguna.
Fæðuóþol er ekki orsök allra kvilla
sem fólk þjáist af en margra þeirra,"
segir Júlía þegar hún leggur raf-
rænan staut í hönd blaðamanns og
lætur lítið glas sem inniheldur eina
fæðutegund í tækið. Hún ýtir síðan
tækinu á nálastungupunktana sem
eru í kringum neglurnar á fmgrum
hinnar handarinnar. Við það að ýta
á punktana segir Júlía að likaminn
svari. Það heyrist ógurlegt væl í
tækinu en það á að vera svoleiðis.
Mælir á tækinu sýnir Júlíu hvort
maður þolir fæðuna vel eða illa.
Betra að mæla á tánum
„Það er auðveldara að mæla á
tánum en fólki þykir það óþægi-
legra. Þaö eru líka til fleiri aðferðir
til þess að mæla fæðuóþol. Vöðva-
þrýstiprófun hefur verið notuð með
góðum árangri. Ef maður er ekki
sáttur við lífið eins og það er þá er
ágætt að byrja á því að sortera mat-
inn og athuga hvort kvillarnir sem
eru að hrjá mann stafa af fæðuó-
þoli,“ segir Júlía á meðan hún held-
ur áfram að mæla blaðamann. Hún
tekur sum efnin til hliðar en það er
greinilegt að þau þolir blaðamaður
verr. Nú kámar gamanið og fer að
verða forvitnilegt hvort aukabitarn-
ir muni fjúka út í veður og vind.
„Ýmislegt getur valdið óþægind-
um þó það sé ekki beint óþol. Þeir
sem breyta mataræðinu til hins
betra fara að þekkja líkama sinn
betur og vita nákvæmlega hvað fer
vel í þá og hvað ekki, þó svo óþol
hafi ekki mælst,“ segir Júlía.
Engin sjúkdámsgreining
Sumir vilja halda að við gerum
sjúkdómsgreiningu með þessari
mælingu. Við getum alls ekki gert
það. Ég er ekki lærður næringar-
fræðingur en ég hef lesið mér til um
fæðuóþol í mörg ár. Ég hef verið í
kvilla
sambandi við samtök á írlandi
sem selja náttúrulega unnin bæti-
efni. Þau hafa kennt okkur mjög
mikið og ég er að fara á námskeið
þangað bráðum. Ég var sjálf illa
haldin af fæðuóþoli og þekki vel
þessa kvilla sem fylgja og leiðir út
úr því lika,“ segir Júlía.
Júlía segir að þessi aðferð sem
hún noti sé mjög góð til þess að
koma fólki af stað en sé ekki
hundrað prósent örugg. Hún seg-
ist ekki blanda sér í störf lækna og
ekkert af því sem hún ráðleggi
fólki geti verið skaðlegt. Allir fá
miða yflr þær tegundir sem hún
hefur tekið til hliðar en það eru
tegundir sem vilja valda óþoli.
„Ég held að það sé ekki meira en
20-30% fólks sem fer eftir þessum
ráðleggingum til að byrja með.
Það er allt í lagi því það skilar sér
þó seinna verði. Sumir flnna strax
breytingu á sér en fyrir aðra tek-
ur það lengri tíma.“
Niðurstaða mælingar blaða-
manns var frekar sorgleg. Burt
með sykur, súkkulaði, hvítt
hveiti, ger og allar mjólkurvörur
til að byrja með. Júlía segir að það
borgi sig að byrja á að vera
strangur við sjálfan sig. Eftir
nokkra mánuði er hægt að prófa
eina og eina tegund af þvi for-
boðna í einu til þess að sjá hvern-
ig líkaminn bregst við. Jiilía getur
einnig mælt ástand líkamans út
frá því hvort vítamínskortur hrjá-
ir fólk. -em
orsök margra
Júlia Baldursdóttir mælir fæðuóþol karla og kvenna á Akranesi.
ér!end_bóksiá_
Metsölukiljur
I •••§••••••#••••
Bretland
Skáldsögur:
1. laln Banks:
Whit.
2. Catherine Cookson:
The Obsession.
3 Bernard Cornwell:
The Winter Klng.
4. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
5. Stephen Klng:
Coftey on the Mile.
6. Nick Hornby:
Hlgh Fldelity.
7. Len Deighton:
Hope
8. Patrlcia D. Cornwell:
From Potter's Field.
9. Jostein Gaarder:
Sophle's World.
10. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
Rit almenns eðlis:
1. BEII Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
3. Bill Watterson:
There’s Treasure Everywhere.
4 Danlel Goleman:
Emotlonal Intelllgence.
5. M. Cotterell & A. Gilbert:
The Mayan Prophecles.
6. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are
from Venus.
7. Paul Bruce:
The Nemesls Flle.
8. Margaret Forster:
Hldden Llves: A Famlly Memolr.
9. Susan Jeffers:
Feel the Fear and Do It Anyway.
10. Chris Ryan:
The One That Got Away.
innbundnar skáldsögur:
1. Dlck Francls:
To The Hilt.
2. Meave Blnchy:
Evening Class.
3. Frederlck Forsyth:
lcon.
4. Ben Elton:
Popcorn.
5. Stephen Klng:
Desperatlon.
Innbundln rit almenns eðlis:
1. Dave Sobel:
Longltude.
j 2. R. Andrews & P. Schellenberger:
The Tomb of God.
3. Humphrey Carpenter:
Robert Runcle: The Reluctant
Archblskop.
4. Francls Gay:
The Friendshlp Book 1997.
5. Roy Strong:
The Story of Brltaln.
(Byggt á The Sunday Times)
Tuttugasta skáld-
saga Muriel Spark
Muriel Spark: 78 ára að aldri og
með nýja skáldsögu.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
var rithöfundurinn Graham Greene
sem snerist til kaþólskrar trúar eins
og hún. Hann studdi hana fjárhags-
lega með því skilyrði að hún myndi
hvorki þakka honum fyrir aðstoð-
ina né biðja fyrir honum.
Það rofaði fyrst til fjárhagslega
þegar skáldsagan The Comforters
kom út árið 1957 og hún komst á
græna grein nokkrum árum síðar,
nánar tiltekið 1961, þegar frægasta
saga hennar fyrr og síðar kom
út. Það var The Prime of Miss
Jean Brodie, um skoska
kennslukonu og nemendur
hennar. Sú saga var kvikmynd-
uð með Maggie Smith í aðal-
hlutverkinu.
Þótt Muriel Spark sé afar
bresk í skáldsögunum sínum
hefur hún lengst af búið í öðr-
um löndum. Seint á sjöunda
áratugnum flutti hún til New
York þar sem hún samdi The
Hothouse by the East River.
Nokkrum árum síðar hélt hún
yfir Atlantshafið á ný og settist
að á Ítalíu þar sem hún hefur
búið i um þrjá áratugi ásamt
vinkonu sinni, Penelope Jardi-
ne.
Lifir fyrir að skrifa
Muriel Spark kveðst vera að
vinna að skáldsögu á hverjum ein-
asta degi og muni halda þvi áfram á
meðan hún sé sannfærð um að hún
eigi enn betri skáldsögu hið innra
með sér. Hún undirbýr sögur sínar
vandlega áður en hún fer að skrifa
sjálfan textann.
Hún er líka afar fastheldin á það
vinnulag sem hún tileinkaði sér á
unga aldri. Þannig handskrifar hún
allar sögur sínar í sérstaka tegund
minnisbóka frá fyrirtæki i Edin-
borg. Og hún hendir penna sínum í
ruslið ef einhver annar verður til
þess að snerta hann!
„Ég get ekki ímyndað mér hvem-
ig það efr að vera hætt að skrifa,"
segir hún í áðurnefndu viðtali. „Ég
held ég myndi bara deyja á þeirri
sömu stundu.“
Muriel Spark reynir að láta
aldurinn hafa sem minnst áhrif
á rithöfundarferil sinn. Þótt
hún hafi þurft að gangast undir
nokkra uppskurði að undan-
förnu, og verði nú að styðjast
við staf þegar hún gengur um
gólf, er þessi 78 ára gamla
skáldkona einmitt þessa dagana
að senda frá sér tuttugustu
skáldsöguna. Nafn hennar er
Reality and Dreams.
Spark, sem hefur búið á ítal-
íu mörg undanfarin ár, hélt í
stutta heimsókn til Bretlands í
tilefni af útkomu nýju bókar-
innar og ræddi þá við blaða-
menn. Hér á eftir verður vitnað
í viðtal við hana sem birtist í
bókablaði The Sunday Times.
Hóf ferilinn
í fátækt
En fyrst nokkur orð um langa
ævi skáldkonunnar.
Muriel Sarah Camberg fæddist
árið 1918 í Edinborg. Aðeins nítján
ára að aldri hljópst hún að heiman
ásamt Sidney Oswald Spark, kenn-
ara sem var 13 árum eldri, og hélt
til Ródesíu sem þá var bresk ný-
lenda. Þar gengu þau í hjónaband
sem stóð þó stutt; fljótlega kom í ljós
að eiginmaðurinn var ekki heill á
geðsmunum.
Hún átti því dapurlega daga í Afr-
íku og eins seinna þegar hún stund-
aði ritstörf við mikla fátækt í Lon-
don. „Ég bjó við svelti,“ segir hún í
viðtalinu. „Það var hræðilegt. Ég
hafði ekkert að borða.“
Meðal vina hennar á þessum tíma
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Stephen King:
The Green Mile: Coffey on the
Mlle.
2. V.C. Andrew:
Melody.
3. Sidney Sheldon:
Mornlng, Noon & Night.
4. Stephen King:
The Green Mile: Nlght Journey.
5. Michael Crictonl:
The Lost World.
6. Sue Grafton:
„L“ is for Lawless.
7. Davld Guterson:
Snow Falling on Cedars.
8. Ollvia Goldsmlth:
The Rrst Wives Club.
9. Tami Hoag:
Cry Wolf.
10. Catherine Coulter:
The Heir.
11. Nancy Taylor Rosenberg:
Trial By Flre.
12. Stephen Klng:
The Green Mlle: Two Dead Glrls.
13. Stephen King:
The Green Mlle: The Bad Death of
Eduard Delacrolz.
14. Stephen King:
The Green Mile: Coffey’s Hands.
; 15. Stephen Klng:
The Green Mile: The Mouse on the
Mlle.
Rit almenns eðlis:
I. Mary Pipher:
Reviving Ophella.
; 2. Mary Karr:
The Liar's Club.
3. Thomas Cahlll:
How the Irish Saved Civllization.
4. J. Douglas & M. Olshaker:
Mlndhunter.
5. Jonathan Harr:
A Civil Actlon.
6. Gall Sheehy: .
New Passages.
7. Ellen DeGeneres:
My Point... And I Do Have One.
8. Erma Bombeck:
All I Know About Anlmal Behavior I
Learned In Loehmann’s Dressing
Room.
9. Andrew Weil:
Spontaneous Healing.
* 10. James Carville:
We're Rlght, They're Wrong.
II. Colin L. Powell:
My American Journey.
12. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
13. Thomas Moore:
Care of the Soul.
14. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
15. Isabel Allende:
Paula.
; (Byggt á New York Times Book Revlew)