Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 16
16
sælkerinn
Skúli Hansen, matreiðslumaður á Skólabrú:
Toppönd með lerkisveppum
og girnilegur krækiberjaís
„Nú er haust og kræki-
berin og öndin eru það
hráefni sem er að renna
inn á þessa árstíð. Þetta
hráefni er gott á þessum
tíma,“ segir Skúli Hansen,
matreiðslumaður á veit-
ingastaðnum Skólabrú.
Skúli gefur hér tvær
uppskriftir af villibráðar-
seðlinum á Skólabrú. Ann-
ars vegar er um að ræða
girnilega toppönd með
lerkisveppum og portvíns-
sósu og hins vegar kræki-
berjaís.
Toppönd
1.200 g toppandar-
bringur
150 g lerkisveppir
lœri og innmatur og
skipiö af einni önd
2 stk. laukur
2 stk. gulrætur
2 stiklar sellery
Kiydd
Einiber 6 stk.
lárviöarlauf 3 stk.
negull 2 stk
Blóöberg 1 msk.
Þriðja krydd 1 msk.
salt
pipar
Andarbringurnar eru
kryddaðar með salti og
pipar, brúnaðar á pönnu,
síðan skteiktar í ofni við
180 gr. i 10 mín.
Sósa
Skipið er hoggið í
þrennt, brúnað vel ásamt
lærum og innmat, græn-
meti og kryddi. Sett yfir til
suðu svo fljóti vel yfir,
fleytt af og til ofan af með-
an á suðu stendur, soðið í
1 y2 tíma. Soðið sigtað og
jafnað með smjörbollu, sós-
an bragðbætt með áður-
nefnum kryddum ásamt
títuberjum og portvíni,
lerkisveppirnir kraumaðir
í smjöri og bætt út í sós-
una og látið sjóða í 5 mín.
Krækiberjaís
V2 líter rjómi
6 stk. eggjarauður
6 msk. sykur
250 ml krœki-
berjamauk
1/2 sitróna.
Rjóminn stífþeyttur,
eggjarauðurnar stífþeyttar
ásamt sykrinum. Síðan er
eggjarauðunum og kræki-
berjamaukinu blandað
saman. Rjómanum
blandað varlega út í og
að síðustu
sítrónusafanum, sett á
frysti, gott að laga
deginum áður.
Uppskriftin miðast
við 6 manns.
-GHS
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
Kex og ostur
Kex er alltaf vinsæl og einfold
hressing, sérstaklega ef það er bor-
ið fram meö -ljúffengum osti. Kex
má bera fram á ýmsan hátt og um
að gera að prófa sig áfram, til dæm-
is með ostakökur. Hér koma nokkr-
ar hugmyndir til að byggja á.
Bollur
Bollur er auðvelt og fljótlegt að
gera úr kexi þó ótrúlegt megi virð-
ast og þær eru ákaflega skemmti-
legt meðlæti með kaffinu. í þessa
uppskrift er sérstaklega mælt með
Bixit kexi.
‘I.
B-
1 pk. kex
125 g smjör
75 g flórsykur
1 tsk. vanillusykur
1-2 tsk. kakó
1 msk. appelsínusafi
kökuskraut eða hnetur
skrauts
Kexið er malað í matvinnsluvél
og hrært saman við allt
‘ hitt. Deigið
er látið
f< standa í
ísskáp í
30-40
til
Skúli Hansen gefur uppskrift að
toppönd með lerkisveppum og
portvínssósu og krækiberjaís.
mm. svo
að það verði
aðeins stífara. Búnar eru til kúlur
úr deiginu og þeim er rúllað upp úr
kökuskrauti eða hnetum, súkkulaði
eða rifnu appelsínuhýði.
Bollurnar verður að geyma á
köldum stað.
Marineraðar
rækjor
Rækjur eru vinsælar í
; matargerðina og rækju-
kokkteillinn klassíski er
alltaf jafn vinsæll sem
forréttur. Hér kemur ný
útgáfa af rækjukokkteiln-
um, marineraðar rækjur
á salatsbeði.
200 g rækjur
1 hvítlauksrif
ferskt rósmarín
10-12 fersk basilik-
umblöð
3 msk. ólívuolfa
2 msk. sítrónusafi
| \ tsk. salt
Vi tsk. nýmalaður hvít-
ur pipar
salatblað
sítróna
Hvítlaukurinn er mar-
inn. Rósmarinblöðin eru
skorin smátt og þeim
hrært saman við olíu,
sítrónusafa, hvítlauk, salt
og pipar. Rækjurnar eru
marineraðar í vökvanum
í 30 min.
Rækjurnar eru teknar
upp úr maríneringunni
og látnar á salatblað með
gróft skornu basilikum.
Skreytt með sítrónusneið-
um. Gott er aö bera
franskbrauð fram með
réttinum.
-GHS
matgæðingur vikunnar
l Sniðugt er að nyta afganga af
reýktum laxi í mús' og sprauta
henni á hveiti- eða tekex og myndii
■ margir bera slíkt fram sem léttan
r forrétt eða partímat.
8 stk. hveiti- eða tekex
150 g reyktur lax
50 g smjör
2idcÉidítestragffi,3Tiáttdiaið
hvítur pipar á hnifsoddi
Laxinn er setfur í matvinnsluvél
ásamt smjöri og
estrágoni/bragð-
“• bætt “
piparfj.i.
Mús
jj: spraiiiað'1' á
kex ' • :-r:ög
’ skreytt með
fersku estragoni. g.*
Ostakaka er vinsæll eftirréttur
hjá þeim sem ekki vilja alltof mikla
| sykurleðju eftir aðalréttinn og
mörgum þykir gott að fá sér sneið
af ostaköku með kaffinu. Gott er að
nota gróft en sætt kex í botninn, til
dæmis Kommo kex.
1 pk. kex
150 g smjör
1 msk. ljóst sýróp
1-2 tsk. kanill
Krem
5 blöð matarlím
3 dósir snöfrisk geitaostur
175 ml jógúrt með sítrónubragði
safi af !4 sítrónu
2 msk. ljóst sýróp
1 dl rjómi
ber og ávextir til skreytingar
Kexið er brotið smátt. Smjörið er
brætt og blandaö saman við kex,
sýróp og kanil og sett í 24 cm form.
Matarlímið er bleytt í köldu vatni í
5 mín. og svo brætt í örbylgjuofni
eða á litlum hita.
Ostinum er hrært saman við jóg-
úrt, sítrónusafa og sýróp. Matarlím-
inu er hrært saman við. Rjóminn er
stífþeyttur og bætt saman við kre-
mið. Kreminu er svo jafnað yfir
kökubotninn og ostakakan sett á
kaldan stað til að kremið stifni.
Kakan er skreytt með berjum og
ávöxtum.
1
I
i
I
Júlíana S. Hilmisdóttir, matgæðingur vikunnar:
Sellerý- og gulrótasúpa og
kjúklingur með sveppum og púmi
Júlíana S. Hilmisdóttir gefur uppskrift
að athyglisveröri sellerý- og gulróta-
súpu og ofnbökuðum kjúklingi með
sveppum og púrrulauk.
DV-mynd Sigrún Lovísa
Ofnbakaður kjúklingur
- með sveppum og
púrrulauk
„Súpan er mjög vinsæl
á mínu heimili, ég hef
hana oft í aðalrétt og
hef þá fleiri sortir af
grænmeti í henni
svo sem papriku,
broccoli og matar-
mikið brauð með.
Kjúklingarétturinn er
fljótlegur og ljómandi
góður ög hentar vel
húsmóður á
hraðferð,"
segir Júlí-
ana S.
Hilmis-
dóttir,
matgæð-
ingur
vik-
unnar.
Sellerý og
gulrótasúpa
5 stilkar sellery
3 gulrœtur
peppermix krydd
súputeningar
% lítrar vatn
1 peli rjómi
5 sneiöar óöalsostur
selleryblöó
Grænmetið er saxað
og steikt létt í
smjöri, kryddað
með peppermix,
vatni með kjöt-
krafti hellt yfir
og látið sjóða í
10 mín. Smáveg-
is af ljósum
sósujafnara er
sett út í, áð því
búnu er rjóm-
anum hellt út í
og hitað að suðu.
Hellt í skál og ostasneiðar
og selleryblöð látið fljóta
yfir. Borið fram með
hvítlauksstöngum.
200 g ferskir sveþpir - :
2 stk. púrrulaukur
1 msk. smjör
kjúklingakrydd
2-3 dl rjómi
1 stk. kjúklingur
Penslun: bráöiö smjör, salt og
svartur pipar.
Saxið sveppi og púrru og steikið í
smjörinu. Þekið botninn á smurðu
eldfostu móti með sveppunum og
púrrunni. Kryddið rjómann og hellið
honum yfir. Hlutið kjúklinginn niður
og raðið bitunum ofan í fatið. Penslið
bitana með bræddu smjöri og krydd-
ið með salti, svörtum pipar og kjúkl-
ingakryddi.
Bakið í 250 gráðu heitum ofni í
u.þ.b. 35-40 mín. Meðlæti: volg frönsk
smábrauð, smjör og ferskt grænmet-
issalat.
Júlíana skorar á mágkonu sína,
Guðlaugu Bjarnþórsdóttur.
-GHS
-GHS