Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 20
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
20
★ *
mtal
„Mér fannst nyög gaman að leika Badda í
Djöflaeyjunni því ég skildi hann mjög vel.
Það eru sjálfsagt einhverjir líkir pólar hjá
okkur,“ segir Baltasar Kormákur, leikari og
leikstjóri, í samtali við DV. Baltasar leikur
aðalhlutverkið í kvikmyndinni Djöflaeyjunni
eftir Friðrik Þór Friðriksson sem frumsýnd
var á fimmtudag. Myndin er unnin upp úr
sögum Einars Kárasonar um lífið í Thule-
kampi sem Mál og Menning gaf út á síðasta
áratug. Framleiðsla myndarinnar hefur stað-
ið yfir í þrjú ár og hefur kostað eitt hundrað
og sjötíu milljónir króna. Upptökur Djöflaeyj-
unnar fóru fram síðastliöinn vetur og vor í
braggahverfi sem byggt var fyrir myndina
vestast á Seltjarnarnesi.
„Þaö eru til svo margar hliðar á hverjum
manni og það er alltaf spurning um hvernig
þær þroskast. Ég er ekki eins veiklundaður
og Baddi en get þó vel skilið hans veiku hlið-
ar. Mér fmnst stemningin minnisstæðust frá
tökum á Djöflaeyjunni þar sem ég man eftir
að hafa heimsótt fólk sem bjó í bröggunum.
Kuldinn er einnig mjög minnisstæður þar
sem ég var í eintómum gerviefnum við tök-
urnar eins og fólk klæddist á þeim tíma,“
segir Baltasar Kormákur.
Hveitibrauðsdögunum
ekki lokið
Baltasar Kormákur er þrítugur að aldri og
hefur þegar getið sér mjög gott orð sem leik-
ari, bæði á sviði og í kvikmyndum. Einnig
hefur hann starfað við leikstjórn og mun i
vetur leikstýra verkinu Leitt að hún skyldi
vera skækja, sem frumsýnt verður í Þjóöleik-
húsinu í næstu viku, og leikritinu í beinni
útsendingu í Loftkastalanum. Hann leikur
einnig í leikritinu Köttur á heitu blikkþaki
sem frumsýnt verður á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins í vetur og í Listaverkinu. Baltasar á
hluta í leikhúsinu Loftkastalanum og Kaffi-
Baltasar Kormákur
gaf sér tíma til þess
aö setjast niöur með
blaöamanni á Kaffi-
barnum í vikunni.
allra en er veikgeðja og kemur illa fram við
þá sem þykir vænt um hann,“ segir Baltasar.
Kynnist köagum
og töffarasKap
„Baddi fór til Ameríku og kynntist flottum
bílum og tónlist Elvis Presley. Eftir það var
ekki aftur snúið fyrir hann. Hann varð rót-
laus og fann sig ekki í þessum molbúahætti á
íslandi.
Baddi kom frá Ameríku með flottan amer-
ískan bíl og varð aðalgæinn í bænum. Það er
alltaf hægt að finna einhverja samsömun
með þeim persónum sem maður leikur. Ég
leita yfirleitt að einhverju svipuðu í mér og
þeim karakter sem ég leik og reyni að draga
það fram," segir Baltasar.
Færustu
kvikmyndagerðarmenn
„Það er sérstaklega gott að starfa með Frið-
riki Þór og Ara Kristinssyni kvikmyndatöku-
manni. Þeir vita hvað þeir vilja og menn
þurfa ekki að velkjast í vafa um það. Friðrik
Þór leikstýrir leikurunum aldrei að óþörfu.
Það var sveitalega afslappandi að vinna
Djöflaeyjuna og Skagfirsk stemning yfir öllu
saman. Maður fann ekki fyrir þessum látum
sem oft eru I kringum kvikmyndatökur þeg-
ar menn halda að þeir séu með stórmyndir í
höndunum," segir Baltasar.
Baltasar hlakkar til frumsýningarinnar og
þykir fáránlegt að kvíða fyrir einhverju sem
ekki er hægt að breyta. „Ef þetta er lélegt þá
er það bara lélegt en ef þetta er gott þá er það
ofsalega gaman," segir Baltasar.
Dökkur töffari
Blaðamanni hefur þótt algengt að Baltasar
Baltasar Kormákur hefur sýnt á sér mörg andlit, nú síðast í hlutverki Badda í Djöflaeyjunni:
barnum þannig að í mörgu er að
snúast hjá honum. Hann er fastráð-
inn hjá Þjóðleikhúsinu en hefur ver-
ið í launalausu leyfi um tíma til þess
að sinna öðrum störfum.
Baltasar kvæntist í sumar Lilju
Pálmadóttur, dóttur Pálma í Hag-
kaupi. Hveitibrauðsdagamir standa
ennþá yfir, aö sögn Baltasar, þó mik-
ið sé að gera hjá leikaranum, leik-
stjóranum og fyrirtækiseigandan-
um. Hjónakornin brugðu sér til
Frakklands í viku eftir brúðkaupið.
Þau hafa ekki viljað ræða við fjöl-
miöla um brúökaupið og sambandið
þar sem Lilju þykir nóg fjölmiðlafár
umlykja Baltasar.
Veikgeðja
aðalpersóna
„Baddi er mjög óvenjuleg aðalper-
sóna þar sem algengast er að persón-
an í aðalhlutverki sé „sympatísk".
Baddi er aftur á móti drykkfelldur
og ofdekraður töffari sem lemur
ömmu sína. Hann er augasteinn
Baltasar Kormákur f hlutverki Badda f Djöflaeyjunni.
leiki töffaratýpur. Það segir hann
ekki rétt en aftur á móti hafi hann
oft leikið dökkar persónur, eins og
hann kallar það. Það sé fyrst og
fremst vegna suðræns útlits hans.
Sitt sýnist hverjum um skilgrein-
ingu á töffara en að hans mati er
Baddi fyrsti töffarinn sem hann leik-
ur.
„Sumum þykir augljóst að ég leiki
töffara vegna þeirrar ímyndar sem
ég hef í þjóðfélaginu," segir Baltasar.
Baltasar bendir á hlutverk eins og
Rómeó í Rómeó og Júlíu og Kon-
stantín i Mávinum sem dæmi um
mjúkar persónur sem hann hefur
túlkað. Rómeó er mýksti karlmaður
bókmenntasögunnar.
„Strákurinn í Veggfóðri var bæj-
arrotta og myndlistarmaður og að
mínu mati frekar væminn. í
Draumadisum leik ég hálfgerða
bleyðu. Ég hef fremur leikið harða
og illgjama nagla eins og í Kæru Jel-
enu og Agnesi. Rokosin í Fávitanum
er reyndar mjög dökk persóna. Þetta
er í fyrsta skipti sem ég leik í leður-
jakka. Ástæðan fyrir því að ég leik