Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Qupperneq 26
28 LAUG^JRDfifiBBÆGCR'BÓBEH 1996 1 IV Ég er ekki morgunhress kona - minn tími er á nóttunni. Ég hafði einmitt setið við tölvuna mína fram á nótt að semja ávarp og vaknaði því með harmkvælum, venju samkvæmt, kl. hálfátta þennan mánudagsmorgun en var lengi að koma mér á fætur. Ég varð þvi að hafa hraðan á við morgunverkin sem ekki voru ýkja margbrotin enda Hjörleifur búinn að koma strákunum á fætur - líka venju samkvæmt - elda handa þeim dýrindis hafragraut, smyrja fyrir þá nesti og þeir voru um það bil að koma sér í skólann. Ég gat þó kvatt þá áður en ég skellti mér í sturtu og borðaði hafragrautinn. Ég var komin niður í Ráðhús kl. hálfníu til fundar við borgarritara og nýkjörinn formann heilbrigðis- nefndar, Huldu Ólafsdóttur, en við fórum sameiginlega yfir mál sem nefndin er að fást við. Að loknum fundi hringdi ég nokkur símtöl og fór yfir verkefni dagsins en klukk- an tíu kom nýskipaður sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, Day Olin Ingibjörg Sólrún hefur greinilega nóg að gera. taka 33 rými í notkun 1. apríl á næsta ári og 16 rými þann 1. júlí en svo virðist sem þeir ijármunir sem nú eru áætlaðir í verkefnið á fjárlögum næsta árs nægi ekki til rekstursins. Eftir fundinn skrapp ég niður í Ráðhús til að ganga frá nokkrum málúm en klukkan fimm átti ég að vera mætt hjá tannlækni. Einhver misskilningur var greinilega milli mín og tannlæknisins þvi ég kom að læstum dyrum. Ég græddi því hálftíma sem ég notaði til að skreppa heim áður en við Hjörleif- ur fórum í móttöku í kínverska sendiráðið í tilefni af þjóðhátíðar- degi Kínverja, 1. október. Þegar við komum heim úr móttökunni voru synimir komnir heim, svang- ir, og kötturinn líka. í snarhasti var elduð ýsa og nýjar íslenskar kartöflur frá séra Þóri og mátti ekki á milli sjá hver tók best til matar sín, strákamir eða köttur- inn. Um kvöldið fór ég aftur niður í Ráðhús til að fara yfir brýn mál Dagur í lífi borgarstjóra: Minn tími er á Mount, í kynningarheimsókn. Átt- um við mjög áhugavert spjall og sannaðist þar hið fornkveðna að glöggt er gestsaugað. Eftir þessi stuttu kynni leist mér afskaplega vel á þennan nýja fulltrúa Banda- ríkjastjórnar hér á landi. Klukkan hálfellefu átti ég að vera mætt á sameiginlegan fund atvinnumála- nefndar og Aflvaka en ég syndgaði upp á náðina og mætti of seint. Á fundinum var farið yfir þau verk- efni sem Atvinnu- og ferðamála- stofa og Aflvaki vinna að og sem hafa það að markmiði að skjóta styrkari stoðum undir atvinnuupp- byggingu í borginni og vinna gegn því kerfislæga atvinnuleysi sem hér virðist vera að festa rætur. í hádeginu fékk ég mér samloku með borgarhagfræðingi og viö fór- um yfir ýmis mál sem tengjast gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Ljóst er að það verður ekki auð- velt verk að koma saman fjárhags- áætlun nú fremur en endranær enda borginni þröngur stakkur skorinn bæði hvað varðar tekjur og rekstrarútgjöld. Að þessum fundi loknum fór ég með skrif- stofustjóra borgarstjómar yfir drög að nýjum samþykktum fyrir sameinaöa atvinnu- og ferðamála- nefnd annars vegar og skipulags- og umferðamefnd hins vegar en með þessum samþykktum fækkar nefndum borgarinnar um tvær. Á síðustu stundu rauk ég af staö upp í Hamraskóla en þar átti ég að vera mætt kl. tvö og taka formlega í notkun nýja viðbyggingu við skólann sem byrjað var á fyrir ári. Skólinn nær nú því langþráða tak- marki að verða einsetinn. Klukkan þrjú fór ég á fund hjá heilbrigðis- ráðherra en erindið var að fara yfir fjárþörf Skógarbæjar á næsta ári en það er hjúkrunarheimili sem Reykjavíkurborg, Reykjavík- urdeild Rauða kross íslands og fleiri era nú að reisa í sameiningu inni í Mjódd. Hugmyndin er að sem ekki þoldu bið. Það tók lengri tíma en ég ætlaði og heim kom ég ekki fyrr en um miðnætti. Og af því að ég er næturhrafn settumst við Hjörleifur við eldhúsborðið og gleymdum okkur yfir spjalli þar til klukkan var orðin hálftvö. Þá var langur og annasamur dagur loks á enda og ég sofnaði um leið og ég lagðist á koddann, vitandi það að nýr og syfjaður morgun myndi renna upp innan skamms. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Finnur þú fimm breytingar? 379 Hvers vegna hefurðu látiö loka þig inni ef þú ert svona klár? Nafn: _ Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sjötugustu og sjöundu getraun reyndust vera: Hanna B. Jóhannsdóttir Suðurgarði 900 Vestmannaeyjar Grettir Ásmundsson Víkurtúni 14 510 Hólmavík Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur i Ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni tii hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi, að verðmæti kr. 4.900, frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1.790. Annars vegar James Bond- bók- in Gullauga eða Goldeneye eftir John Gardner og hins vegar bók Luzanne North, Fín og rík og liðin lík. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið meö lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 379 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.