Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Síða 29
JjV LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 Jim Cartwright var viðstaddur hátíðarsýningu á Stone Free: Ég geri ekki grín að lág- stéttinni í verkum mínum - segir hið fræga leikskáld og er brugðið við spurninguna mik Hiö þekkta breska leikskáld Jim Cartwright ásamt fjölskyldu sinni viö kom- una til Keflavíkurflugvallar á fimmtudaginn. DV-myndir ÆMK DV, Suðumesjum:_____________________ „Ég skrifa fyrir alla þjóðfélags- hópa og vonast til þess að ná til allra sem koma á sýningamar. Verk mín eru leikin um víða veröld á ólíkum stöðum eins og Japan, Portúgal og íslandi, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Jim Cartwright við fféttaritara DV. Hið þekkta breska leikskáld Jim Cartwright kom hingað til lands á fimmudag ásamt eiginkonu sinni Angel og tveimur bömum, James, 11 ára, og Georgina Luey, fjögurra mánaða. Cartwright er hingað kom- inn í boði Leikfélags íslands og var hann ásamt eiginkonu sinni við- staddur hátíðarsýningu á verki sínu Stone Free í Borgarleikhúsinu á fostudagskvöld. Þegar Cartwright kom til Kefla- víkurflugvallar frá Glasgow veitti hann DV viðtal í Leifsstöð með ánægju og bros á vör. Cartwright er ekki vanur því að fara til annarra landa að sjá verk sín sem em sýnd víöa um heim. Hvers vegna valdi hann að koma til íslands? „Ég er kominn hingað vegna þess að mig langaði til þess og hef hlakk- að lengi til. Ég hef heyrt að landið sé mjög fallegt. Verk mín hafa náð gífurlegum vinsældum á íslandi en það gerði að verkum að mig langaði til þess að koma. Eiginkona mín og sonur hafa einnig hlakkað mikið til,“ segir Jim Cartwright við kom- una til Keflavíkurflugvallar. Vildi verða tónskáld Jim Cartwright er fæddur í Far- mworth, litlum bæ norður af Manchester í Englandi. Hann býr nú í Chorley, öðrum smábæ skammt þar frá. Hann hætti snemma í skóla og hóf störf í verk- smiðju og stundaði einnig margvís- lega vinnu áður en hann gerðist leikari. Cartwright starfrækti lítið leikhús um árabil og vakti athygli fyrir að leika verk í heimahúsum eftir pöntmium við ýmis tækifæri. Hann lét sig dreyma um að verða tónskáld en það var ekki fyrr en hann fór á fund forráðamanna Royal Court leikhússins sem bolt- inn fór að rúlla. Cartwright vinnur nú að leikhúsverki og gerð sjón- varpsmyndar. Hlegið að lágstáttinni Cartwright þykir oft fara heldur harkalegum orðum um persónur í verkum sínum. Málfar persóna Cartwrights er gróft og óheflað en þær þekkir hann af eigin raun, enda er það fólkið sem hann hefur sjálfur umgengist og alist upp með en hann er sjálfur af fátæku fólki kominn. - í mörgum verka þinna er fjallað um lágstéttarfólk. Ert þú ekki hræddur um að það sé hlegið að þessu fólki um víða veröld þar sem aðallega millistéttarfólk sækir leik- húsin? Það mátti sjá á svip Cartwr- ights að þessi spurning kom honum í opna skjöldu og átti hann greini- lega alls ekki von á henni. Undirstaða verka minna „Nei, mér hefur aldrei fundist að lesa mætti úr verkum mínum að ég geri grín að lágstéttarfólki. Ég lít ekki svo á að ég sé að gera lágstétt- arfólkinu óleik með verkum mínum þó svo að þau snúist um það. Lág- stéttarfólkið er undirstaða verka minna. Þessi hópur hefur hingað til ekki orðið fyrir vonbrigðum og hef- ur ekki álitið að ég geri grín að hon- um. Mér hefur aldrei fundist að millistéttin eða aðrir þjóðfélagshóp- ar hlæi að lágstéttarfólki' eftir að hafa séð verk mín. Það kemur fram í leikritunum sem ég hef skrifað að bakgrunnur minn er sá sami og per- sónanna sem ég skrifa um. Ég þekki þetta fólk af eigin raun,“ sagði Cartwright og var greinilega brugð- ið við spurninguna. Honum vafðist tunga um tönn, hann hikaði svolítiö þegar hann svaraði og sökk aðeins dýpra í sófann. Væntumþykja og hlýja „Það sem mér finnst einkenna verk Jims Cartwrights öðru fremur er væntumþykja og hlýja. Þó hann skrifi um lágstéttarfólk sem býr með mikla eymd þá fjallar hann um allar sínar persónur af mikilli hlýju,“ segir Magnús Geir Þórðar- son, leikstjóri Stone Free, sem starf- aði að uppsetningu á leikritinu Sto- ne Free i Englandi fyrir tveimur árum. Jim Cartwright hefur verið í hópi fremstu leikskálda Evrópu síðastlið- in ár, frá því að fyrsta leikrit hans, Road eða Stræti, kom út árið 1986. Leikrit hans Stræti, Barpar og Taktu lagið, Lóa nutu öll gríðar- legra vinsælda á sviðum Þjóðleik- hússins, Leikfélags Akureyrar og Borgarleikhússins og einnig var Stræti sýnt við frábærar undirtekt- ir hjá Leikfélagi Keflavíkur. Nýjasta leikrit Jims Cartwrights, Stone Free, var tilnefnt til hinna virtu TMA-verðlauna síðastliöið haust, þrátt fyrir að vera enn í reynsluupp- færslu, fyrst undir nafni Eight Miles High og síðar Stone Free. Verkið var svo heimsfrumsýnt á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu 12. júlí síðastliðinn og hefur gengið fyr- ir troðfullu húsi síðan. Nú hafa um 15 þúsund manns séð Stone Free sem er þegar orðið vinsælasta leik- rit ársins á íslandi og vinsælasta leikrit Jims Cartwrights sem sýnt hefur verið hérlendis. Verkið var svo frumsýnt í 1500 manna leikhúsi í London nú á haustmánuðum við mikið lof gagnrýnenda. Cartwright mun í ferðinni sjá leiksýninguna Barpar sem sýnd er í Leynibarnum í Borgarleikhúsinu. Þá mun fjölskyldan skoða nokkra fallega staði hér á landi áður en hún hverfur af landi brott á sunnudag. -ÆMK BÍLAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 5 SÍMI 567 4949 Opel Omega ‘95, ek. 13 þús. km, hvítur, 4 d. Verö 2.200.000 Renault Laguna ‘96, ek. 4 þús. km, grænsans., 5 d. Verö 1.870.000 Toyota Carina E ‘95, ek. 51 þús. km, vínrauður, 4 d. Verö 1.650.000 Toyota Corolla special series ‘94, ek. 37 þús. km, grár, 5 d. Verö 1.170.000 Mazda 323 4x4 ‘95, ek. 40 þús. km, grár, 5 d. Verö 1.230.000 Cherokee Laredo ‘89, ek. 119 þús. km, hvítur, 5 d. Verö 1.450.000 Cherokee Laredo grand ‘95, ek. 18 þús. km, grænsans., 5 d. Verö 3.650.000 Toyota Landcruiser turbo intercooler ‘91, hvítur, 5 d. Verö 3.750.000 Cadillac DeVille ‘92, ek. 100 þús. km, vínrauður, 4 d. Verð 2.450.000 Chevrolet Silverado ex-cab, dísil turbo ‘96, grænsanseraður, 2 d. Verð 3.900.000 Ford Escort GLX 1400 ‘95, ek. 20 þús. km, kóngablár, 3 d. Verö 1.090.000 Hyundai Accent ‘96, ek. 6 þús. km, grár, 3 d. Verö 930.000 JR-BILASALA BILDSHOFÐA 3 SÍMI 567 0333 Subaru station 4x4 ‘88, ek. 113 þús. km, hvítur, ssk., 5 d. Verö 590.000 Ford Explorer ‘91, ek. 134 þús. km, rauður/brúnn, ssk., 4 d. Verö 2.100.000 Dodge Ram 2500 Magnum ‘95, ek. 44 þús. km, rauður/svartur, ssk., 2 d. Verö 2.150.000 MMC Lancer 4x4 sta- tion ‘87, ek. 163 þús. km, blásans., 5 g., 5d. Verö 390.000 Nissan Primera ‘91, ek. 158 þús. km, brúnsans., ssk., 4 d. Verö 780.000 Suzuki Sport ‘96, ek. 7 þús. km, blár/grár, 5 g., 5 d. Verö 2.300.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.