Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 5. OKTOBER 1996
skák
, Ólympíuskákmótið í Erevan:
Islendingar vnru nálægt verðlaunasæti
- Þröstur útnefndur stórmeistari á þingi FIDE
.. ■ ■ * •
j^BÉUnnpnBj
Islenska skáksveitin komst vel
frá ólympíuskákmótinu í Erevan
eftir brösótta byrjun og trúlega hef-
ur hún ekki í annan tíma átt svo
góða möguleika á verðlaunasæti á
ólympíumóti. Fyrir síðustu umferð
deildu íslendingar þriðja sæti ásamt
fleiri sveitum. Mótherjar síðustu
umferðar voru hins vegar ekki þeir
auðveldustu - Rússar, sem löngum
hafa borið höfuð og herðar yfir aðr-
ar skákþjóðir. Taflinu lauk með
naumum sigri Rússa, 2,5-1,5, sem
tryggðu sér öruggt ólympíugull en
Islendingar féllu niður í 8.-12. sæti.
Hálfur vinningur meira hefði þýtt
5.-8. sæti og ef dæmið hefði snúist
við - íslendingar lagt Rússa með
minnsta mun - hefði niðurstaðan
orðið 3.-5. sæti.
Er á leið mótið sóttu íslendingar
mjög í sig veðrið en í upphafi virtist
sveitin ekki nægilega samstillt.
E.t.v. má að einhverju leyti um
kenna framandi aðstæðum, enda
þótt skákstaðurinn hefði komið
skemmtilega á óvart. Vistarverur
íslendinga munu hafa verið helst til
þröngar og kostur slíkur að margir
sveitarmenn hrjáðust af viðvarandi
steinsmugu. Hins vegar var eins og
sveitin hefði vaknað upp við vond-
an draum eftir óverðskuldaða út-
reið af hálfú Bandaríkjamanna í 6.
umferð. Eftir það lá leiðin upp í
móti og sveitin vann góða sigra á
sterkum skákþjóðum, eins og Þjóð-
verjum og Kínverjum.
Talið hinum megin frá er árang-
urinn auðvitað frábær, því aö meira
en hundrað keppnissveitir urðu fyr-
ir neðan íslensku skáksveitina.
Bandarísku meyjareyjar eignuðu
sér 114. og neðsta sætið með 9 vinn-
inga samtals. Af frændum vorum á
Norðurlöndum er það að segja að
Svíar fengu 33 v. eins og íslending-
ar; Danir urðu í 38. sæti með 30,5 v.;
Norðmenn í 40. sæti með 30 v., Finn-
ar í 46. sæti með 29,5 v. og Færey-
ingar í 89. sæti með 25 v.
Röð efstu sveita varð þessi:
1. Rússland 38,5 vinningar.
2. Úkraína 35 v.
3. ^. Bandaríkin og England 34 v.
5.-7. Spánn, Armenía
og Bosnía 33,5 v.
8.-12. Georgía, Búlgaría,
Þýskaland, Svíþjóð og ísland 33 v.
13.-15. Kína, Holland
og Argentína 32,5 v.
16.-20. Króatía, ísrael,
Ungverjaland, Úsbekistan,
Lettland 32 v.
•21.-24. Kúba, Slóvenía,
Júgóslavía og Grikkland 31,5 v.
25.-29. Frakkland, Filippseyjar,
Víetnam, Ástralía og Kanada 31 v.
Margeir hlaut 5 vinninga úr tíu
skákum á 1. borði, eða 50% vinn-
ingshlutfall. Hann tefldi helst til
varfæmislega og lauk átta skákum
hans með jafntefli. Hann vann eina
og tapaði einni, fyrir stórmeistaran-
um Jaan Ehlvest frá Eistlandi. Mar-
geir átti í höggi við erfiðustu
mótherjana á 1. borði og segja má
að hann hafi rækt það hlutverk sitt
með prýði að draga úr þeim víg-
tennumar.
Jóhann bætti nú verulega ráð sitt
frá Moskvu fyrir tveimur árum og
hlaut 7 vinninga af 11 á 2. borði
(63,6% vinningshlutfall). Hannes
Hlífar náði einnig mjög góðum ár-
angri á 3. borði, 8 v. úr 12 skákum
(66,7%). Hins vegar gekk Helga
Ólafssyni lakar á 4. borði, hlaut 3 v.
úr 7 skákum (42,9%). Helgi átti
slæman kafla um miðbik mótsins
en fékk varla tækifæri til að bæta
ráð sitt, því að í sex síðustu umferð-
unum tefldi hann einungis tvær
skákir og lauk báðum með jafntefli.
„Varamenn" sveitarinnar, Þröst-
ur Þórhallsson og Helgi Áss Grét-
arsson, reyndust frábærir liðsmenn.
Helgi Áss tefldi ákaflega skemmti-
lega og frísklega og var drjúgur á
endasprettinum, þrátt fyrir tap fyr-
ir Rússanum Rublevskí í lokaum-
ferðinni sem setti strik í reikning-
inn. Árangur Helga Áss var 4,5 v. af
8 mögulegum (56,3% vinningshlut-
fall). Þröstur hlaut langþráða út-
nefningu sem níundi stórmeistari
Islendinga á þingi FIDE. Hann var
sá eini í íslensku sveitinni sem
slapp taplaus frá keppninni, þótt oft
væri hann hætt kominn. Þröstur
fékk 5,5 v. úr 8 skákum (68,8% vinn-
ingshlutfall).
Ágúst Sindri Karlsson háði nú
frumraun sína sem liðsstjóri ís-
lensku sveitarinnar en í því felst
m.a. að stilla upp liðssveit hverrar
umferðar. Þetta er vandasamt hlut-
verk, enda að mörgu að hyggja. Séð
úr fjarlægð (og eftir á) má helst
finna að uppstillingu sveitarinnar í
10. umferð gegn Georgíu. Þá tefldi
Hannes Hlífar sína sjöttu skák í
jafnmörgum umferðum og Jóhann
hafði teflt hundrað leikja skák dag-
inn áður. Ágúst sá hins vegar ekki
ástæðu til að breyta vinningsliðinu
sem hafði lagt Kólumbíumenn á öll-
um borðum í níundu umferð. . ..
Gunnar Eyjólfsson leikari sá um
þjálfun sveitarinnar í sumcu- og var
andlegur leiðtogi hennar í Armeníu.
Fararstjóri var Andri Hrólfsson.
Skák
Jón L. Árnason
Næsta ólympíuskákmót er fyrir-
hugað haustið 1998 i Kalmikíu,
heimalandi Kirsans Iljumsínovs.
Hann var endurkjörinn forseti FIDE
eftir að mótstaða Vesturlanda koðn-
aði niður, enda við ramman reip að
draga. Samkvæmt fregnum frá þing-
inu beitti Iljumsínov ýmsum belli-
brögðum til að tryggja kosningu
sína og lét samkomulag við and-
stæðingana um skert völd sér til
handa sem vind um eyru þjóta. Á
þinginu gerðust jafnframt þau tið-
indi að Florencio Campomanes, sem
hefur verið sakaður um að hafa
dregið sér stórfellt fé úr sjóðum
FIDE, var kjörinn heiðursforseti
sambandsins fyrir lífstíð. Hætt er
þvi við að þing FIDE hafi algjörlega
misheppnast hvað það snertir að
koma á sáttum milli aðildarsam-
banda.
Skoðum tvær skákir Islending-
anna frá mótinu - fyrst snaggaraleg-
an sigur Hannesar í 12. umferð gegn
Indónesiu og síðan vel útfærða skák
Helga Áss móti Georgíu í 10. um-
■ferð.
Hvltt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: N. Situru (Indóneslu)
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
RfB 5. Rc3 d6 6. f4 Rc6 7. Be2 Be7 8.
Be3
0-0 9. 0-0 a6 10. Khl Dc7 11. a4 He8
12. Bf3 Hb8 13. Rb3 Ra5 14. Rxa5
Dxa5
15. Dd2 Dc7 16. a5 e5? 17. f5 Bd7 18.
g4 h6 19. Dg2 Bc6 20. g5 hxg5 21.
Bxg5 Kf8
22. Hgl Hec8 23. Be3! Re8 24. Bb6
Dd7
25. f6!
- Og svartur gafst upp. Ef 25. -
Bxf8 26. Bg4 De7 27. Dh3! og vegna
máthótunarinnar á h8, fellur heill
hrókur fyrir borð.
Hvftt: K. Supatashvili (Georgíu)
Svart: Helgi Áss Grétarsson
1. d4 d5 2. c4 c6 3. e3 Bf5 4. Rc3 e6
5. Rf3 Rf6 6. Rh4 Bg6 7. Rxg6 hxg6 8.
g3
Rbd7 9. Dd3 Bb4 10. Bg2 Bxc3+ 11.
bxc3 Rb6 12. c5 Rc4 13. e4 Rd7 14. 0-
0 0-0
15. e5 b6 16. cxb6 axb6 17. h4 b5 18.
Bg5 Db6 19. Hfbl Ha4 20. g4 Hfa8 21.
h5
Hxa2 22. Hxa2 Hxa2 23. hxg6
A PUSTÞJONUSTA
Skeifunni 5
opið 7m - 18m
TÞJONUSTAN
Sími: 581 2120
Bílaþjónusta
23. - Rcxe5 24. gxf7+ Rxf7 25. Be3
Dd8 26. g5 RfB 27. f4
Rd6 28. Hel Da5 29. Bcl Da4 30.
Bh3 Dc2 31. Dxc2 Hxc2 32. Ba3 Re4
33. Bb4 Rxc3
34. Bg4 Re4 35. Hal Hb2 36. Be7
Rg6 37. Bxe6+ Kh7 38. Bf5 Rg3 39.
Bd3 Hd2
- Og hvítur gafst upp.
Andri Áss meistari
Andri Áss Grétarsson sigraði á
meistaramóti Hellis, sem lauk í vik-
unni. Andri Áss hlaut 7,5 v. af 9
mögulegum, Bragi Þorfinnsson varð
í 2. sæti með 6,5 v. en síðan komu
Kristján Eövarðsson og Bjöm Þor-
fmnsson með 6 v.
L
jrv
11
Ötrúlegt úrval
f/ðkr.
21‘90q
Ulpur
- kápur
- ullarjakkar
- gervipelsar
og hattar
msÐ
Mörkin 6, S. 588 5518 (við hliðinaáTeppalandi)
Bílastæöi v/búðarvegginn
Sendum í póstkröfu
Opið laugard. 10-16
HaustlaukatilboÖ
75 túlípanar, 890 kr.
blandaðir litir
40 krókusar, 440 kr.
75 krókusar, lágir 440 kr.
25 páskaliljur, 390 kr.
Pottaplöntutilboðinu lýkur
eftir helgi
Qarðshom
v/FossvogskirkjugarÖ,
sími 55 40 500.
25 túlípanar, 340 kr., ýmsir litir Opið alla daga 10-22
Erica-Haustlyng,
kr. 440.
Tilvalið úti og inni.
STÓRA SKRIÐDÝRASÝNINGIN
Tropical Zoo í heimsókn
JL-Húsið v/Hringbraut
2. hæð, lOOO m2 sýningarsalur
5. okt. - 27. okt.
Opið virka daga kl. 12-20;
laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-19
Upplýsingar gefur Gula linan - sími 562-6262
Lifandi
hitabeltisdýr
Risasnákar
Eitursnákar
Eðlur
Skjaldbökur
Sporðdrekar - kóngulær
o.s.frv.
Hitabeltisfiðrildi
í hundraðatali
Fjölbreytt safn af
óvenjulegum, lifandi
dýrum úr öll-
um heims-
hornum