Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 39
LAUGARDAGUR 5. OKTOBER 1996 útlönd 47 Norðanmenn á Ítalíu beina athyglinni að sívaxandi héraðshyggju: Evrópa farin að gliðna á tímum sameiningarinnar Umberto Bossi og félagar hans í Bandalagi noröanmanna, hreyfmgu aðskilnaðarsinna á norðurhluta Ítalíu, beindu nýlega kastljósinu að nýrri tegund þjóðernishyggju sem sækir fram í Evrópu um þessar mundir, héraðs- hyggjunni. Héruð Evrópu eru farin að hreyfa sig, að- eins nokkrum árum eftir að Tékkóslóvakía rifnaði í tvennt og úr urðu Tékkland og Slóvakía. Hvort sem það er í Skotlandi, Wales, Belg- íu, Baskalandi Spánar eða í Padaníu, lýðveld- inu sem Bossi stofnaði á táknrænan hátt í Feneyjum um síðustu helgi, eru héruð Evrópu farin að hefja upp raustina í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr. Þau höfðu þá legið í gleymsku og dái um árabil, fyrst á nýlendu- tímanum og síðan innan niðurnjörvaðra landamæra kaldastríðsáranna. Vinirnir í Brussel og efld sjálfsvitund „Héruðin hafa skyndilega öðlast rödd sem þau hafa aldrei átt áður. Það er fyrst og fremst fyrir tilstilli Evrópusambandsins og formlegra stofnana þess að þau hafa styrkt sjálfsvitund sína. Framkvæmdastjóm ESB í Brussel hefur, með því að veita þróunaraðstoð til einstakra héraöa, eignast vini sem lita á ESB sem eins konar frelsara, samanborið við þjóðríkin sem hafa oft reynt að halda þeim niðri,“ segir Kirsty Hughes, sem stjómar Evrópudeild Kon- unglegu alþjóðastofnunarinnar í London, í viðtali við danska blaðið Politiken. Hún segir einnig að eftir endalok kalda stríðsins séu menn ekki jafnragir við að ræða Umberto Bossi messar yfir stuöningsmönn- um sinum í Feneyjum þegar hann lýsti yfir stofnun sjálfstæös lýðveldis, Padaníu, á norö- urhluta Ítalíu á dögunum. Bossi er foringi aö- skilnaöarsinna í Bandalagi noröanmanna. landamæri og sjálfsvitund einstakra héraða. Búið sé að ryðja ákveðnu tabúi úr vegi og það geti haft afgerandi áhrif á hvernig Evrópa komi til með að líta út eftir nokkra áratugi. Yfirlýsing Umbertos Bossis um sjálfstæði Padaníu í norðurhéruðum Ítalíu vekur at- hygli á þvi að núverandi landamæri em ekki alltaf i takt við það sem kalla mætti náttúm- leg skil eða mörk. Ný landamæri og aukin sjálfstjórn Margir íbúar hins auðuga norðurhluta ítal- íu finna til meiri skyldleika með Austurríkis- mönnum og Svisslendingum en löndum sín- um í suðurhluta landsins þar sem allt er mun hæggengara og efnahagurinn bágbomari. Á sama hátt telja margir Walesbúar sig nákomn- ari írum en Englendingum vegna skyldleika tungumálanna. í augum margra sérfræöinga endurspeglar héraðshyggjan í Evrópu þá staðreynd að ESB sé langt frá því að vera einsleitt. Stóra Bretland Mótmælendatrúar- menn, sem eru í meirihluta á Norður- Irlandi, vilja vera áfram undir stjórn Breta en kaþólski minnihlutinn vill verða hluti af írska lýöveld- inu. Umræöur um sjálfstæði eöa aukna sjálfstjórn koma upp meö jöfnu millibili t Skotlandi og Wales. Spánn ETA, skæruliðahreyf- ing Baska, hefur barist fyrir sjálfstæöi heimalandsins 135 ár. Baskaland og Katalónia, þar sem aöskilnaöarsinnar hafa einnig látiö á sér kræla, njóta mestrar sjálfstjórnar sautján héraöa Spánar. En þótt ganga Bossis með fram ánni Pó, frá upptökum hennar í Alpa- fjöllunum aila leið til Fen- eyja, hafi ekki laðað að sér þá eina milljón manna og kvenna sem að var stefnt heldur aðeins nokkra tugi þúsunda, breytir það ekki hinu að nú er allt i einu í lagi að ræða skipan landamæra og aukna sjálfstjóm hér- aðanna. Slíkt hafði verið bannyrði í Vestim-Evrópu um áratugaskeið. Nú er svo komið að það em ekki aðeins hryðju- verkahópar á borð við ETA, aðskilnaðarhreyf- ingu Baska á Spáni, og sprengjuglaðir skoðana- bræður þeirra á frönsku Miðjarðarhafseyjunni Korsíku sem heyja barátt- una fyrir auknu sjálf- stæði héraðanna. Aðferð- um lýðræðisins er einnig beitt. Aukið vægi héraðanna í framtíðinni Christopher Hill, pró- fessor og Evrópufræðing- ur við London School of Economics, segir að hér- uðin hafi verið kúguð í áratugi, ef ekki aldir. Markmið ESB um afhám sífellt fleiri landamæra milli aðildarlandanna ____ hafi þá rökréttu afleið- ---------------- ingu að héruðin öðlist meira vægi á kostnað þjóðrikjanna. „Þegar ég reyni að sjá tuttugu til þijátíu ár fram í tímann er ég ekki í vafa um að hémð- in muni gegna miklu stærra hlutverki og að nokkrar þeirra ríkjaheilda sem við þekkjum í dag verða leystar upp,“ segir Hill. Flestar ríkisstjórnir í Evrópu hafa til þessa reynt að halda niðri öllum tilhneigingum til aðskilnaðar í héruðum sínum. Krafan inn aukna sjálfsfjóm var í þeirra augum ekkert annað en ávísun á enn meiri vandræöi sem gætu ógnað valdi og stöðu ríkisins. Christoph- er Hill varar hins vegar við þeirri trú að hér- aðshyggjan sé lausnin á vanda Evrópusam- bandsins og Evrópu allrar. „Stór hluti hugsjóna þessarar framtíðarsýn- ar er rangur. Evrópu héraðanna, á kostnað Evrópu þjóðríkjanna, fylgir ekki endilega gæfa og hamingja. Það er ekki hægt að afmá hlutverk og þýðingu ríkjanna með einhverju nýju og óreyndu án þess að stöðugleika álf- unnar sé stefnt í nokkra hættu. Hvorki hér- aðshreyfingar á borð við skoska þjóðemis- sinna eða Bandalag norðanmanna á Ítalíu hafa til dæmis gert sér hugmyndir um utan- ríkisstefnu ESB,“ segir Hill. Hann heldur því fram að héraðshyggju- menn séu oft þröngsýnir og síngjamir bæði í málflutningi sínum og markmiðum. Byggi maður framtíð Evrópu á stefnumiðum þeirra geti út- koman orðið verri en það sem ------------ maður lagði upp með. Hann segir að markmið Bossis sé fyrst og fremst að veikja og storka ítalska ríkinu, fremur en að hann búi yfir já- kvæðri sýn á Evrópu. Hrifningin mikil vegna eigin ávinnings Það veldur sérfræðingum nokkmm áhyggj- um að hrifning héraðanna á Evrópusamband- inu helgast meira af þeim ávinningi sem þau geta haft af ESB en af því að þau séu svo hrif- Aðskilnaðarsinnar sækja í sig veðrið í Evrópu Belgía Viövarandi deilur eru milli hinna frönsku- mælandi Vallóha og flæmskumælandi . Flæmingja. Tékkland/ Slóvakía Tékkóslóvakíu var skipt í tvennt í janú- ar 1993. Tékkland er í vesturhlutanum en Slóvakfa í austurhlut- anum. Tékkland Frakkland Ungverjaland/ Rúmenía Ungverjaland og Rúm- enfa undirrituöu fyrir skömmu sögulegt samkomulag sem veitir ungverska þjóö- arbrotinu i vestur- hluta Rúmeníu aukin réttindi. í staöinn hef- ur ungverski minni- hlutinn látiö af kröf- um um sjálfstjórn. Spánn Italía Þekktasta aðskilnaö- arhreyfing Italfu er Bandalag noröan- manna, undir forustu Umbertos Bossis, sem lýsti yfir sjátf- stæöu lýöveldi á noröurhluta jtalfu fyr- ír skömmu. I noröur- héraöinu Alto Adige, sem Austurrikismenn kalla Suöur-TýrÖl, sprengdu aöskilnaö- arsinnar sprengjur á sjöunda áratugnum og peim nfunda. Ungverjaland Slóvenía Króatía Rúmenia Bosnía- Hersegóvína Ílalía Júgóslavla Fyrrum Júgóslavía Júgoslavfa var stofn- uö 1945 en fór aö lið- ast f sundur áriö 1991. Þar sem áöur var gamla Júgóslavía eru nú Króatía, Sló- venfa, Bosnfa-Her- segóvína og núver- andi Júgóslavía, sem f eru Serbía og Svart- fjallaland. DV in af einhverri samevrópskri hugsjón. „Við stöndum frammi fyrir furðulegum að- stæðum þar sem Evrópa er að renna saman í eina heild á sama tima og hún er að gliðna í an ESB sem leið til að komast fram hjá stjórn- völdum í London. Andúðin gegn Englending- um er svo mikil í Skotlandi að breski Verka- mannaflokkurinn hefur lofað að koma á fót Fréttaljós á laugardegi Slökkviliösmenn á Korsíku berjast viö eld sem kviknaöi eftir aö þjóöernissinnar sprengdu bíl- sprengju í borginni Bastia í júlí í sumar. skosku þingi með víðtækum völdum í tilraun sinni til að reyna að forða því að konungdæm- ið klofni. Hryðjuverkamenn aðskilnaðarsinna hafa um árabil látið að sér kveða í Baskalandi og Katalóniu á Spáni. Á síðari árum hafa lögleg- ar pólitískar hreyfingar í héruðunum notið æ meira fylgis kjósenda og þeim hefur tekist að þvinga loforð um aukna sjálfstjóm út úr stjórnvöldum í Madríd. í Belgíu er það skipting landsins í tvö mál- svæði, frönskumælandi og flæmskumælandi, sem hefur valdið fjölmörgum stjórnarkrepp- um og ógnað einingu ríkisins. Á Ítalíu er svo mikill rígur milli norður- og suðurhlutans, eins og sjálfstæðisyflrlýsing Bossis fyrir Padaníu ber vitni um. Þýtt og endursagt úr Politiken sundur. Það segir sig sjálft að þetta er mótsagnakennt. Og ég velti því fyrir mér hvort róm- antísk sýn héraðanna á Evr- ópu muni standa þegar til ------------ lengri tíma er litið. Héraðs- hyggjan er þannig séð eins konar þjóðemis- hyggja," segir Kirsty Hughes. Hitasvæðin í Vestur-Evrópu eru nokkur svæði þar sem þessi mál brenna einna heitast á íbúum og stjómvöldum. Bæði Skotland og Wales krefjast aukinnar sjálfstjómar af breskum stjómvöldum. Skotar eru einkum áhugasamir þar sem skoski þjóð- arflokkurinn fær 25 prósent atkvæða í skoð- anakönnunum. Skotar líta á samvinnuna inn-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.