Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 43
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996 51 4 UÆuy Helgarferðir á landsbyggðina: á Hertoganum, labbitúr á volgu hraunmu, sundsprett í saltri laug, skoðun á fiskasafni, veiðiferð, sprang og verslun. Auk þess er boð- ið upp á sjávarréttaveislu að hætti Vestmannaeyinga. humarhátíð að homfiskum hætti og hlaðborð við rætur Hvannadals- hnjúks. Akureyri Höfúðstaður Norðurlands býður í fyrra hófu Flugleiðir sölu á helg- arpökkum innanlands til Reykjavik- ur fyrir landsbyggðarfólk undir nafninu Gjugg i borg. Þær ferðir nutu mikilla vinsælda og hefur ver- ið ákveðið að halda áfram með þær í ár. En nú hefur dæminu verið snúið við þar sem farið er að bjóða upp á helgarferðir til nokkurra staða á landsbyggðinni. Hér er um að ræða samstarfsverkefni Flugleiða við sex bæjarfélög þar sem íbúum höfuð- borgarsvæðisins er gefinn kostm- á að kynnast því besta sem þessir bæir hafa upp á að bjóða að hausti og vetri til á sviði menningar, lista, skemmtunar og útivistar. Flugleiðir halda utan um markaðssetningu verkefnisins en bæjarfélögin sex hafa veg og vanda af undirbúningn- um. Gjuggbæimir em ísafjörður, Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir, Höfn og Vestmannaeyjar. Gjuggpakkarnir kosta frá 10.930 og upp í 14.930 og fela þeir í sér flug og gistingu í tvær nætur ásamt morgunverði auk þess sem flugvall- EU'skattm' og afsláttarhefti er inni- falið. Lítum nánar á hvað bæirnir sex hyggjast bjóða gestum sínum upp á. Vestmannaeyjar Vestmannaeyjar em tilvalinn staður fyrir þá sem vilja skreppa „út fyrir landsteinana“ en halda sig samt á íslandi. Gestum er m.a. boð- ið upp á náttúraskoöun, golf, útsýn- isferð um eyjamar, suöræna sveiflu Höfn í Hornafiröi býöur gesti velkomna í haust og vetur. landsmenn velkomna og minnir sér- staklega á kántríhátíð sem haldin verður 18.-20. október með öllu til- heyrandi. Sömuleiðis bjóða norðan- menn upp á skíðaiðkun i Hlíð- arfjalli, Listagilið, næturlíf með leikhúsum, myndlist og krám, veiði á lági og legi, djass, verslanir, veislumat, Lystigarðinn og Kjarna- skóg. í Sjallanttm veröur svo endur- vakin stemning gullaldarára í minningu Ingimars Eydal. Húsavík Byggð er ævaforn á Húsavík enda yfirgaf leysinginn Náttfari skip Garðars Svavarssonar á smábáti að næturlagi og tók sér búsetu á Húsa- vík. Húsvíkingar bjóða gestum upp á hvalaskoðun, svartfuglsveiði, sjóstangaveiði, fjöruferö á hestum og menningarrölt um Safnahús og kirkju. Þegar fer að vetra verður boðið upp á gönguskíðaferðir fyrir alla fjölskylduna, vélsleðaferðir og jeppasport, sleðabrautir fyrir bíl- slöngur auk margs annars. ísafjörður Á ísafirði má njóta náttúrunnar í sinni hreinustu mynd auk þess sem rammíslensk saga er þar við hvert fótmál. Á ísafirði er mælt með skoð- unarferð um Neðstakaupstað, könn- un álfabyggða og náttúmskoðun, skíðaferð og siglingiun, heimsókn í Vigur, berjatínslu og skaki í Djúp- inu og að sjálfsögðu vestfirsku þorrablóti í febrúar. -ggá Þaö er margt aö sjá í höfuöstaö Noröurlans, m.a. Nonnahús. Fyrir þá sem vilja „skreppa út fyrir landssteinana" eu Vestmannaeyjar góöur kostur. Egilsstaðir Það er alkunna að veðurfar er einstaklega blítt fyrir austan auk þess sem hver fornmaðurinn á fæt- ur öðrum kemur þar upp úr jörð- inni. Á Egilsstöðum býðst ferða- mönnum hestaferð um Hallorms- staðarskóg, sigling á báti frá Atla- vík, heilnæm hressing í Hússtjóm- arskólanum, jeppaferð í Sænautasel og Hafrahvammagljúfur, hreindýra- og refaskoðun, ganga á bak við Far- dagafoss og heimsókn í handverk- smiðuna að Miðhúsum. Hótelgestir fá frítt inn á skíöasvæðið í Odds- skarði. Höfn Homafjörður kúrir í skjóli hæsta fjalls landsins og mikilúðlegasta jökuls Evrópu. í haust og vetur beinir Höfn athyglinni að jöklaferð- um á vélsleðum, jeppasafaríi, báts- ferðum um Jökulsárlón, bátsferðum út í Hornarfjarðarós, hestaferðum um nágrennið, fugla- og hvalaskoð- un og sjóstangaveiði út af Homa- firði. Fyrir matgæðinga er að finna V htimur FYRIR ALLA kr.* á mann í tvíbýli 7. des. í 2 vikur á Jardin E1 Atlantico Takmarkað sætaframboð! * Með flugvallarsköttum og 3% afslætti ef greitt er með reiðufé minnst 4 vikum fyrir brottför eða VISA/Euro greiðslukorti minnst 6 vikum fyrir brottför. Nanari upplýsingar fást á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum eða í söludeild í síma 50 50 100, virka daga. FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferdafélagi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.