Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Page 61
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1996
^kvikmyndir
Kvikmyndahátíð Háskólabíós og DV:
Sex úrvalsmyndir þekktra leikstjóra
Dead Man er sjötta kvikmynd
Jarmusch á fjórtán árum og sú
fyrsta sem hann gerir frá því hann
gerði myndina um leigubílstjórana,
Night on Earth, árið 1991.
Le Confessional
Le Confessonal er kanadísk
spennumynd gerð til heiðurs Alfred
Hitchcock og kvikmyndar hans, I
Confess, af Robert LePage, sem er
einn þekktasti leikhúsmaður
Kanada. Myndin byrjar í Quebec
árið 1952, Hitchcock er að kvik-
mynda I Confess. Kvikmyndahópur-
Nýjasta kvikmynd Pedro Almodov-
ar, La Flor de Mi Secreto, er ein sex
kvikmynda á Kvikmyndhátíö Há-
skólabíós og DV.
Gong Li ieikur samviskulausa næturklúbbasöngkonu í Shanghai Triad.
Kvikmyndhátíð Háskólabíós og
DV verður daganna 10.-20. sept-
ember. Hefúr bíóið viðað að sér sex
úrvalsmyndum sem ættu að höfða
til allra sem áhuga hafa á framsæk-
inni kvikmyndagerð. Leikstjórar
myndanna eru allt viðurkenndir
listamenn og eiga smnir þeirra
dyggan aðdáendahóp. Leikstjóram-
ir, sem eru Jim Jarmus, Pedro
Almodovar, Zang Jimou, Michael
Lindsay Hogg, Claude Chabrol og
Robert LePage, fara ólíkar leiðir í
list sinni en stefna allir að sama
marki; að sameina list og skemmt-
un.
Shanghai Triad
Shangai Triad er nýjasta kvik-
mynd kínverska snillingsins Zang
Jimou og er hún nokkuð öðruvísi
en fyrri myndir hans sem flestar
hafa verið sýndar í Háskólabíói.
Shanghai Triad er sakamálamynd
sem gerist á fjórða áratugnum í
Shanghai. í aðalhlutverki er Gong
Li sem leikið hefur nánast í öllum
kvikmyndum Jimou og er í dag
skærasta leikstjarna Kínverja.
Jimou byggir mynd sína á skáld-
sögu þar sem fjallað er um maflu-
starfsemi og gerist myndin á átta
dögum. Við fylgjumst með ungum
manni sem er undir vemdarvæng
frænda sms sem er áhrifamikill
mafíósi. Á þessum tima kynnist
hann undirheimum Shanghai og
hrífst eins og aðrir af samvisku-
lausri næturklúbbssöngkonu sem er
örlagavaldur í lífi mafluforingjanna.
Shanghai Triad er sjöunda kvik-
myndin sem þau Zhang Jimou og
Gong Li gera saman og kannski sú
síöasta því þau eru skilin að skipt-
um. Myndin hefur fengið góðar við-
tökur en þykir samt standa að baki
því besta sem Jimou hefur gert.
La Flor de Mi Secreto
La Flor de Mi Secredo eða Blóm
leyndarmáls míns er nýjasta kvik-
mynd hins umdeilda leikstjóra
Pedro Almodovar. Eins og í fræg-
ustu kvikmynd sinni, Kona á barmi
taugaáfalls, fjallar hann um konu
sem hefur fengið taugaáfall. Aðal-
persónan er Leo, sem nánast er í öll-
um atriðum myndarinnar. Hún er
rithöfundur sem hefur skáldanafiiið
Amanda Gris. Hún reynir af mikilli
elju að halda höfðinu upp úr vatn-
inu þegar erfiðleikar í einkalífinu
verða henni ofviða. Hjónbandið er á
síðasta snúningi og tiiraunir hennar
til að láta taka sig alvarlega sem rit-
höfund eru dæmdar til að mis-
takast. Marisa Paredes leikur rithöf-
undinn en í öðrum hlutverkum eru
spánskir leikarar sem hafa fylgt
Almodovar í mörgum mynda hans.
Dead Man
Kvikmyndir Jim Jarmoush vekja
ávallt athygli og er Dead Man engin
undantekning. Dead Man er vestri
sem þó er ekki um kúreka. Aðalper-
sóna myndarinnar er Bill Blake sem
Johnny Depp leikur. Blake er at-
vinnulaus skrifstofublók og þegar
hann kemur í afskekkt knunma-
skuð er það hald manna að hann sé
morðingi og endar hann veru sína
með kúlu í brjóstinu. Honum er
bjargað af indíána sem heitir
Nobody. Sá á ekkert heimili og Bla-
ke veit ekki einu sinni hvar hann er
svo þeir slá í púkk saman og halda
sem leið liggur um auðnir vesturs-
ins. Auk Johnny Depp leika í mynd-
inni Gary Farmer og Lance Henrik-
sen, Milli Avital, Gabriel Byme og
gamla brýnið Robert Mitchum.
inn tekur yfir kirkju eina þar sem
Rachel vinnur. Hún er aðeins sext-
án ára og verður ólétt. Hún skamm-
ast sín og játar syndir sínar fyrir
ungum presti. Sögusviðið er nú fært
til ársins 1989. Pierre er komin til
Quebec til að verða við jarðarför
föður síns. Þar hittir hann Marc
uppeldisbróður sinn, en hann er
hinn föðurlausi sonur Rachelar.
Marc leitar að uppruna sínum og
fær bróður sinn til að hjálpa sér að
leita uppi föður sinn. Sú leit leiðir
þá aftur til kvikmyndatökuhópsins i
Quebec árið 1952. Mynd þessi hefur
vakið verðskuldaða athygli og henni
hefur verið mikið hælt. Aðalhlut-
verkin leika Lothaire Bluteau, Pat-
rick Goyette og Kristin Scott Thom-
as.
Frankie Starlight
Frankie Starlight er írsk kvik-
mynd og er Michael Lindsay Hogg
leikstjóri hennar. Myndin gerist
áriö 1946. Átján ára franskri stúlku
er smyglað um borð í skip hjá amer-
ískum hermönnum sem er á leið-
inni heim að stríðslokum. Skipstjór-
inn uppgötvar laumufarþegann og
setur hana í land á írlandi. Eftir sjó-
feröina er hún ófrísk. Hún eignast
soninn Frank sem reynist vera
dvergur. írskur maður, Jack Kelly,
tekur hana aö sér og elur upp son
hennar. Jack er áhugamaður um
stjömufræði og kennir unga
drengnum aUt sem hann veit og
Frank fær ást á himingeimnum.
Síðar í lífinu verður Frank frægur
rithöfundur en vegna útlits síns get-
ur hann aðeins dáðst að fegurð
kvenna í fjarlægð. Hann grefur upp
sögu móður sinnar sem er mikið
drama og eykur skilning hans á
upeldi hans. í aðalhlutverkum eru
Gabriel Byme, Anne Parillaud og
Matt Dillon.
La Seremonie
Claude Chabrol hefúr gert margar
frábærar sakamálamyndir sem oftar
en ekki em miklu meira, enda kafar
hann djúpt í persónumar. Chabrol
sækir yfirleitt efnivið sinn í skáld-
sögur þekktra sakamálarithöfunda
og í nýjust mynd sinni leitar hann í
smiðju Ruth Rendell og byggir kvik-
mynd sína í kringum eina af sögum
hennar. En eins og ávallt notast
hann aðeins við kjarnann, persón-
umar verða þegar upp er staðiö
meira sköpunarverk Chabrols en
Rendells. Segir myndin frá Sophie
sem hefur framið morð sem ekki
komst upp. Hún ræður sig til flöl-
skyldu einnar, kynnist þar Janet
sem einnig haföi framið morð án
þess að upp kæmist. Sophie er rekin
þegar hún reynir mútur gagnvart
fjölskyldunni og hyggur á hefndir.
Aðalhlutverkin leika Sandrine
Bonnnaire, Isabella Huppert, Jean-
Pierre Cassell og Jacqueline Bisset.
-HK
Innrásin í Háskólabíói:
Innrás utan úr geimnum
Charlie Sheen leikur áhugamann um líf á öðrum hnöttum í Innrásinni.
Innrásin (The Arrival), sem Há-
skólabíó frumsýndi i gær, er á sömu
nótum og Independence Day þótt
ekki sé hún jafii stór í sniðum, en í
Innrásinni eins og Independence
Day er varpað fram spumingunni
sem hefúr vafist fyrir mannkyninu í
aldir: Erum við ein í öllum himin-
geimnum?
Charlie Sheen leikiu: Zane Ziminski,
sem hefur verið að hlusta eftir skila-
boðum utan úr geimnum í mörg ár.
Þetta er orðið að áráttu og kemst
ekkert annað að í huga hans og er
þessi áhugi hans á öðm lífi að fara
með samband hans og unnustu
hans. Allar nætur situr hann og
hlustar á útvarpsbylgjur í leit að
einhverju sem er öðruvísi. Leit hans
ber árangm nótt eina þegar sterkar,
óeðlilegar bylgjur berast á öldum
ljósvakans frá himingeimnum inn í
tæki hans. Þetta er það sem Zane
hefúr verið að bíða eftir og það sem
jarðarbúar hafa verið að bíða eftir.
Zane fer með upptöku sína í til-
raunastöð NASA þar sem hann hef-
ur unnið og færir yfirmanni sínum
upptökuna. Sá sýnir lítinn áhuga og
segir þetta ekki vera neitt til að
gera veður út af. Zane fær því grun-
semdir um að hann hafi heyrt eitt-
hvað sem hann átti ekki að heyra
og fljótt kemst hann á þá skoðun að
líf hans sé í hættu. Zane telur að
sókn sé besta vömin og heldur til
Mexíkó þar sem móttökudiskar fyr-
ir útvarpsbylgjur utan úr heimi em.
Auk Charlie Sheens leika í mynd-
inni Ron Silver, sem leikur yfir-
mann Zane, Lindsay Crouse er í
hlutverki vísindamanns sem Zane
hefúr samband við, og Teri Polo
leikur unnustu hans. Leikstjóri Inn-
rásarinnar er David Twohy og er
þetta fyrsta myndin sem hann leik-
stýrir en hann hefur leikstýrt einni
sjónvarpsmynd, The Grand Tour:
Disaster in Time. Sú mynd var sett í
kvikmyndahús í Evrópu og var val-
in besta kvikmyndin á Festival du
Film Fantastique í Bmssel. Twohy
er kunnur handritshöfúndur og var
meðal annars meðhandritshöfúndur
að The Fugitive, Alien3 og Wa-
terworld. Þá skrifaði hann handritið
að Terminal Velocity, sem Charlie
Sheen lék einnig aðalhlutverkið í.
-HK