Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1996, Blaðsíða 64
~jj Fésam^Mdmr
" 1. WMMmgur
Vertu viðbúín(n) vinningi
Vinningstölur
3.10/96
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 5. OKTOBER 1996
Litla-Hraun:
Fangar
grunaðir um
'■ að smygla
eiturlyfjum
innvortis
Þrir fangar á Litla-Hrauni voru í
fyrradag fluttir í röntgenmyndatöku
á Selfossi, sterklega grunaðir um að
hafa reynt að smygla eiturlyfjum
innvortis inn i fangelsið.
„Það er rökstuddur grunur um að
þessir fangar hafi reynt að flytja
fikniefni þannig inn í fangelsið.
Fangelsisyfirvöld eru í stöðugu
stríði við að stöðva fíkniefnaflutn-
ing inn í fangelsin og beita öllum til-
" 'tækum ráðum til þess,“ segir Har-
aldur Johannessen fangelsimála-
stjóri við DV um málið.
„Helsta smyglleiðin inn í fangels-
in er með heimsóknargestum sem
flytja fíkniefni innvortis og fangar
taka á móti þeim og flytja þau síðan
á sama hátt inn i klefa sína. Ein af
leiðunum til að ganga úr skugga um
hvort fangar eru með fikniefni inn-
vortis er að senda þá í röntgen-
myndatöku og það gerðum við með
þessa þrjá fanga. Ég vil taka það
___ Jram að það er lítill hluti heimsókn-
argesta sem reynir að flytja eitrið
inn og lítill hluti fanga sem reynir
að nota það í fangelsunum. Það eru
að sjálfsögðu agaviðurlög við því ef
menn verða uppvísir að því að
smygla eiturlyfjum inn í fangelsin.
Þessum agaviðurlögum er beitt í öll-
um tilvikum. Ég vil líka taka það
fram að þetta eru allt löglegar að-
gerðir sem við beitum," segir Har-
aldur. -RR
Skeiðarársandur:
Megn brenni-
steinsfýla
ÍóV-Öræfuin
Megna brennisteinslykt tók að
leggja yfir Skeiðarársand upp úr
klukkan þrjú í gær og vöknuðu
strax grunsemdir um að hún stafaði
frá Skeiðará og væri merki um að
hlaup væri í aðsigi.
Vatnamælingamenn á staðnum
töldu hins vegar eftir athugun á fyr-
irbærinu og af sýnum úr ánni að
engar breytingar væru á vatninu og
stafaði lyktin frá gosmekkinum á
Vatnajökli. Hæg norðanátt var þá
komin eftir hávaðarok sem staðið
hafði frá því seint i gærkvöldi.
í gærkvöldi hafði mjög fjölgað i
liði vatnamælingamanna á Skeiðar-
ársandi og sagði Snorri Sophanías-
^ " son að ekki veitti af. „Ef hlaupið vex
eins hratt og menn óttast höfum við
varla hafa við að mæla. -ERS
Fjórir menn ákærðir fyrir fjölda stórinnbrota í sumar:
Gull- og skart-
gripaþjófnaðir
upp á 22 milljónir
- einn ákærður fyrir að berja mann með öxi í höfuðið
Fjórir Reykvíkingar á aldrinum-
33-36 ára hafar verið ákærðir fyr-
ir innbrot og þjófnaði þar sem þeir
stálu á tveggja mánaða tímabili
síðastliðið sumar verðmætum,
mestmegnis guOi, skartgripum og
málverkum, upp á samtals um 22
milljónir króna. Einn sakboming-
anna er einnig ákærður fyrir að
hafa í íbúð við Kleppsveg slegið
mann tvö högg með öxi í höfuðið
þannig að hann féll I gólfið og lát-
ið höggin síðan dynja áfram á
manninum eftir það.
Stærstu sakarefnin vegna inn-
brotanna eru gegn tveimur mann-
anna. Þeir eru ákærðir fyrir að
hafa brotist inn í húsnæði Mod-
elskartgripa við Hverfisgötu að-
faranótt 4. ágúst. Þar var látið til
-skarar skríða og miklu af skart-
gripum stolið - að andvirði tæp-
lega 7,5 milljónir króna.
Samkvæmt sakargiftum létu
fjórmenningarnir einnig greipar
sópa í sumar með þvi að brjótast
inn í einbýlishús, raðhús og önnur
híbýli á Seltjarnamesi, í Mosfells-
bæ, Breiðholti, Fossvogi og Holta-
og Brúnahverfi í Reykjavík. Skart-
gripir voru greinilega það sem
þeir sóttust helst eftir auk annarra
muna eins og til dæmis mynd-
bandstökutækja. Einum mann-
anna er t.a.m. gefið að sök að hafa
farið inn í raðhús við Norðurbrún
og stolið þaðan tíu málverkum og
öðrum verkum fyrir tæpar 3,2
milljónir króna. Síðan hafi hann
brotist inn á vinnustofu Braga Ás-
geirssonar og stolið þaðan teikn-
ingum og öðrum verkum sem met-
ið var á tæpar 1,4 milljónir króna.
Hann og annar em síðan ákærð-
ir fyrir að hafa við annað tækifæri
farið inn á sömu vinnustofu Braga
og þá stolið þaðan 22 málverkum
sem metin voru á 2,1 milljón
króna.
Fjórmenningarnir eru krafðir
um samtals rúmlega tíu milljónir
króna í skaðabætur vegna þess
tjóns sem þeir unnu í innbrotun-
um. Sá sakborninganna sem
ákærður er fyrir hina stórfelldu
líkamsárás með öxina er krafinn
um eina milljón króna í skaðabæt-
ur. Fórnarlambið hlaut höfuð-
kúpubrot.
-Ótt
Maureen Reagan ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra sem fékk hana til að halda fyrirlestur í Ráðhús-
inu um þögla byltingu kvenna. Það fer greinilega vel á með þeim enda kjarnakonur á ferð. DV-mynd Pjetur
L O K I
Veðrið á morgun
og á mánudag:
Breytileg
áttá
landinu
Á morgun og á mánudag verður
breytileg átt á landinu, lengst af
fremur hæg. Þriggja til átta stiga
hiti verður og skúrir á láglendi en
hiti nálægt frostmarki og dálítil él
á miðhálendinu.
Veðrið í dag er á bls. 61
Lögreglan í Keflavík gerði verulegt
magn af bruggi og bruggtæki upp-
tæk. DV-mynd ÆMK
Brugg og
bruggtæki
gerð upptæk
DV, Suðurnesjum:
Lögreglan í Keflavík handtók
mann í fyrradag vegna bruggtækja
sem maðurinn hafði komið upp í
fyrirtækishúsnæði í bænum. Lög-
reglan fann á staðnum 129 lítra af
landa og 170 lítra af gambra og gerði
það allt upptækt auk bruggtækja.
„Maðurinn játaði við yfirheyrslur
aðild að málinu og hefur verið
sleppt. Málið telst nú að fullu upp-
lýst,“ sagði Stefán Thordersen,
rannsóknarlögreglumaður í Kefla-
vik, við DV um málið. -ÆMK
Maureen Reagan:
Faðir minn á góð-
ar minningar
„Þetta var og er ekki spurning
hjá föður mínum um sigur eða tap
heldur skipti það máli að koma ein-
hverju í framkvæmd. Ég tel leið-
togafundinn hafa markað tímamót
og var án efa upphaf að endi kalda
stríðsins," sagði Maureen Reagan,
dóttir Ronalds Reagans, fyrrum
Bandaríkjaforseta, í samtali við DV
en hún kom til landsins í tilefni af
10 ára afmæli leiðtogafundarins í
Höfða.
Maureen sagði að faðir sinn ætti
góðar minningar frá Reykjavíkur-
fundinum. Hann hefði því gjarnan
viljað hafa komist núna en
forsetinn fyrrverandi glímir við
Alzheimers sjúkdóminn. Maureen
sagði að þrátt fyrir allt væri faðir
sinn við góða heilsu. Hann færi dag-
lega á skrifstofu sína og léki golf
nokkrum sinnum í viku.
Maureen hélt fyrirlestur í Ráð-
húsi Reykjavíkur í gær um „þögla
byltingu kvenna“ um allan heim.
„Konur eru um allan heim að
komast til aukinna áhrifa, bæði í
stjómsýslunni og þjóðfélaginu al-
rnennt," sagði Maureen. -bjb
Kvöld- og
helgarþjónusta