Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
Fréttir
Fjölmiðlakönnun Félagsvísindastofnunar:
Kvikmyndaumfjöllun
DV slær í gegn
Tæplega 75% lesenda DV í ald-
urshópnum 20-24 ára lesa kvik-
myndaumfjöllun í Helgarblaði DV
og sex af hverjum tíu á aldrinum
12-19 ára. Lestur á íþróttaumfjöll-
un DV á mánudögum og Tilver-
unni á þriðjudögum er sömuleiðis
mikill hjá unga fólkinu. Lestur
unga fóiksins á mánudagsblaði DV
hefur aukist. Þetta má meðal ann-
ars sjá í niðurstöðum fjölmiðla-
könnunar Félagsvísindastofnunar
Háskólans sem fram fór vikuna 8.
til 14. október sl. Könnunin var
gerð á notkxm sjónvarps og út-
varps og lestri dagblaða og tíma-
rita. Úrtakið var 1.500 manns á
aldrinum 12-80 ára og svörun var
73%.
Lestur á blaðaukum og sérum-
fjöllun DV var greindur eftir aldri,
kynjum og starfsstétt í könnun Fé-
lagsvísindastofnunar. Þar kemur í
ljós að blaðaukar DV og sérumfjöll-
un eins og kvikmyndaumíjöllun,
Ferðir og Bílar á laugardögum,
íþróttir á mánudögum, Tilveran á
þriðjudögum, blaðauki um dag-
skrár á fimmtudögum og Fjörkálf-
urinn á fostudögum njóta tölu-
verðra vinsælda á meðal unga
fólksins.
Nýlega var aukið við kvik-
myndaumfjöllun DV sem er nú á
fjórum samliggjandi síðum í Helg-
arblaðinu. Þar er m.a. umfjöllun
um leikara og leikstjóra, feril
þeirra og bakgrunn. Jafnframt má
finna ítarlega úttekt um nýjar og
væntanlegar myndir í kvikmynda-
húsunum, ásamt kvikmyndagagn-
rýni og stjörnugjöf. Á kvikmynda-
- fleiri lesa DV á mánudögum í hópi unga fólksins
Nýir efnisþættir
höfða til unga fólksins
- lestur blaöauka og sérumfjöllunar í DV í október '96* -
80% ~—————__
70 ~J
60
50
o 10
g Fimmtudagur
DV
síðum DV er tekið öllu því sem við
kemur heimi kvikmyndanna. Síð-
urnar eru því ómissandi öllum
kvikmyndaáhugamönnum.
Ef við tökum dæmi um lesendur
DV á aldrinum 12-19 ára þá lesa
60% kvikmyndaumfjöllun í Helgar-
blaðinu, 53% lesa íþróttir á mánu-
dögum, 51% lesa blaðaukann um
dagskrár á fimmtudögum og 31%
Bíla á mánudögum.
Tæplega 75% lesenda DV á aldr-
inum 20-24 ára lesa kvikmyndaum-
fjöllunina, 58% lesa íþróttir, 50%
lesa Dagskrá, 44% lesa Ferðir, 43%
lesa Tilveru og 41% lesa Bíla.
Þeir lesendur DV sem eru á aldr-
inum 25-34 ára lesa flestir ferða-
innljöllun DV eða 51%, Bilablaðið
lesa 49%, 48% lesa íþróttir, 46%
lesa Tilveru, 46% lesa Dagskrá og
39% lesa kvikmyndaumfjöllun DV
í þessum aldurshópi.
Ef lestur á smáauglýsingum DV
í Helgarblaði er skoðaður ein-
göngu kemur í ljós að helmingur
lesenda les þær. Hlutfall kynja er
mjög svipað. Mestur er lesturinn í
aldurshópnum 12-19 ára eða 58%,
52% á aldrinum 20-24 ára og 55% á
aldrinum 25-34 ára. í aldurshópn-
um 35-49 ára eru 47% sem lesa
smáauglýsingamar í helgarblað-
inu.
Sé litið á heildarlestur á mánu-
dagsblaði DV hefur unga fólkið
aukið lestur sinn frá síðustu íjöl-
miðlakönnun í mars sl. Lestur
20-24 ára aldurshópsins fór úr 47 í
53% og í hópi 25-34 ára jókst lest-
urinn úr 44 í 46%.
-bjb
Litlu steinbæjunum og steinhúsunum í Reykjavík fækkar óðum:
Mennmgarsöguleg verðmæti
sem mega ekki hverfa
- skemmtilegar smáíbúðir ef þeim er haldið við, segir Guðrún Jónsdóttir
„Ég tel að þessir litlu steinbæir
og steinhús sem byggð voru í lok
síðustu aldar séu menningarsöguleg
verðmæti sem mega ekki hverfa.
Árið 1910 voru 72 steinbæir í Reykja-
vík og 76 litil steinhús. Þegar Al-
þingishúsið var byggt á árunum
1880 til 1881 lærðu menn að vinna
með stein í húsagerð í Reykjavík.
Ýmsir eignuðust verkfæri til að
höggva stein og allt kom þetta til
vegna Alþingishússins. Þessir stein-
bæir voru flestir byggðir á árunum
1890 til 1905. Munurinn á þessum
húsum er einkum sá að steinbæim-
ir hafa gamla torfbæjarlagið,
burstina, og þá voru gaflarnir oft úr
léttara efni, eins og timbri, og báru-
járnsklæddir. í steinhúsunum voru
allir útveggir úr steini og stundum
byggt við þá bíslag," segir Guðrún
Jónsdóttir arkitekt í samtali við DV.
Hún segir að það hafi gjarnan
verið iðnaðarmenn sem byggðu og
bjuggu í þessum steinbæjum og hús-
um. Húsin voru gjarnan byggð á
grunni tómthúsbýlanna i Reykjavík
þegar þau voru rifin og voru þetta
40 til 60 fermetrar að grunnflesti. í
Þingholtunum voru byggðir margir
steinbæir og þá sérstaklega við
Bergstaðastræti þar sem voru
byggðir 17 steinbæir og af þeim eru
4 til 5 eftir.
Guðrún segir að árið 1991 hafi
ekki verið eftir nema 24 hús af
steinbæjum og steinhúsum í
Reykjavík. Hún segist óttast að
þessum húsum, sumum hverjum að
minnsta kosti, sé ekki haldið nógu
vel við og því sé hætta á að þau
skemmist og verði rifin. Hún segir
að ef steinbæjunum sé haldið við sé
hægt búa þar til skemmtilegar smá-
íbúðir og varðveita um leið þessi
menningarsögulegu verðmæti.
„Ég er þeirrar skoðunar að varð-
veisla þessara húsa komi okkur öll-
um við. Þess vegna þurfa menn að
hjálpast að við að halda húsunum
við. Þar á ég við aðstoð frá hinu
opinbera. Ef við tökum dæmi af
frægum steinbæ, Brennu við Berg-
staðastræti, þá er það hús svo illa
farið að eigandinn einn ræður ekki
við gera það upp. Húsið er hins veg-
ar svo þekkt að það væri slys ef
þyrfti að rífa það,“ sagði Guðrún
Jónsdóttir.
-S.dór
Steinbærinn Brenna við Bergstaöastræti er meö kunnustu steinbæjum í
borginni. Húsiö er illa fariö eins og fleiri steinbæir og segir Guörún Jóns-
dóttir arkitekt að hún telji að menningarsöguleg verömæti séu í hættu þar
sem steinbæirnir og litlu steinhúsin eru. DV-mynd BG
Magnús Leopoldsson, sem sakaöur var um aö aö hafa myrt Geirfinn Einars-
son í janúar árið 1976, hefur rofið tveggja áratuga þögn um 105 daga gæslu-
varðhaldsvist sína í nýrri bók sem skrifuö er af Jónasi Jónassyni. í bókinni,
sem ber titilinn Saklaus í klóm réttvísinnar, lýsir Magnús erfiöri einangrun-
arvist sinni og þeim afleiöingum sem þetta haföi á hann og fjölskyldu hans.
Magnús hélt blaöamannafund í Síöumúlafangelsinu í gær og var myndin
tekin í fangaklefanum þar sem hann mátti dúsa alla gæsluvarðhaldsvist
sína. DV-mynd BG