Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
27
Fréttir
^ Suðurnes:
Utboðin launalækkun
og atvinnuleysi eykst
- segir Kristján Gunnarsson, formaður verkalýðsfélagsins
DV, Suðurnesjum:
„Hér er töluvert atvinnuleysi -
tölumar eru alltof háar þrátt fyrir
yfirlýsingar sveitarstjórnarmanna
og ráðamanna í þjóðfélaginu um
batnandi hag og betra gengi. En
samt breytast tölur atvinnulausra
lítið - ef eitthvað er sýnist manni
það vera að aukast,“ sagði Kristján
Gimnarsson, formaður Verkalýðsfé-
lags Keflavíkur og nágrennis, við
DV.
Kristján segir fjölda fólks vinna
hlutastörf og vera á atvinnuleysi-
skrá með sáralítilli vinnu.
„Það eru ákveðin fyrirtæki sem
nánast gera út á atvinnuleysitrygg-
ingasjóðinn. Fólkið vinnur kannski
í 30% vinnu og er svo á atvinnuleys-
isbótum á móti. Það er nánast
ógjömingur að finna vinnu fyrir
þetta fólk, það er því miður alltof
margt - og mest konur.“
„Þessar útboðsaðferðir á Kefla-
víkurflugvelli hafa bara haft það í
för með sér að verið er að bjóða út
vinnulaun fólks. Svokallaðir verk-
takar eru látnir bjóða í verkin og
láta reyna á hvað þeir treysta sér til
að lækka launin. í flestum tilvikum
er það bara launaliðurinn sem ver-
ið er að bjóða út af hálfu vamarliðs-
ins sem hefur i för með sér launa-
lækkun fyrir fólk.
Svo heyrir maður að einhver
draugagangur sé í gangi hjá íslensk-
um aðalverktökum á Keflavikur-
flugvelli um frekari uppsagnir; án
þess að ég hafi fengið tilkynningar
til min á borðið. En við fáum aldrei
upplýsingar fyrr en þær eru til-
kynntar starfsmönnum," sagði
Kristján.
-ÆMK
Slökkvilið Reykjavíkur:
Sjúkraflutn-
ingamenn
læra á hjarta-
stuðtæki
í ársskýrslu Slökkviliðs Reykja-
víkur fyrir árið 1995 kemur fram að
merkur áfangi hafi náðst í mennt-
unarmálum sjúkraflutningamanna
þvi 43 útskrifuðust á árinu með rétt-
indi til að nota hálfsjálfvirkt hjarta-
stuðtæki.
Fram að þessu hafa einungis
læknar mátt nota þetta tæki en
stefnt er að því að það verði í öllum
sjúkrabílum liðsins. Það eykur
verulega lífsvonir sjúklings í hjarta-
stoppi að slíkt tæki sé í fyrsta bíl
sem kemur á vettvang og að áhöfn-
in hafi þekkingu til að beita því.
Heilbrigðiseftirlitið hefur viður-
kennt nám sjúkraflutningamanna
frá háskólanum í Pittsburgh í
Bandaríkjunum og hefur komist á
gott samstarf við deild innan skól-
ans, Center for Emergency Med-
icine.
Slökkviliðið í Reykjavík hefur nú
leyfi til þess að útskrifa sjúkraflutn-
ingamenn með svokölluð EMT rétt-
indi og er eini aðilinn utan Banda-
ríkjanna sem hefur slík réttindi. -sv
Bylting í
DV.Vík:
„Með tilkomu nýja hússins kem-
ur starfsemi björgunarsveitarinnar
til með að stóreflast. Nú verður
hægt að koma öllum tækjum henn-
ar fyrir undir sama þaki og dytta að
þeim án þess að vera stöðugt á hrak-
hólum ef eitthvað kemur upp á,“
sagði Grétar Einarsson, formaður
björgunarsveitarinnar Vikverja.
26. október var formlega tekið í
notkun nýtt húsnæði undir starf-
semi björgunarsveitar SVFÍ, Vík-
verja. Þetta 320 m2 hús kemur í stað
annars sem sveitin átti en var að-
eins 100 m2 að stærð. Víkverji er
orðinn tæplega 60 ára. Sveitin var
upphaflega stofnuð vegna tíðra
skipsstranda við hina sendnu
strönd V-Skaftafellssýslu og vegna
hættu sem stafaði af óbrúuðum jök-
ulám.
Grétar segir að það sem upp úr
standi í starfseminni gegnum árin
séu mörg stór útköll til hjálpar-
starfa og leita, vel heppnaðar
samæfingar með nágrannasveitun-
um og nú síðast kaupin á hinu nýja
húsi. Þau eru að mestu fjármögnuð
með vinnu félaga um verslunar-
mannahelgar og við sölu á flugeld-
um og jólakortum, svo eitthvað sé
nefnt. Þá fékkst styrkur frá SVFÍ og
Mýrdalshreppi. í Víkverja eru nú 37
Margrét Þórisdóttir, starfsmaöur Napa, þreif skrokkana af mikilli natni.
Ljósmynd Búi Bjarnason
Vík í Mýrdal:
starfsemi Víkverja
aðalmenn á útkallslista og 12 á vara-
mannalista.
„Sveitin er vel búin. Hér er allt
mögulegt, nema kannski vantar
okkur helst fallhlifarstökkvara. En
við erum útbúnir til að bjarga úr
strandi, til hjálparstarfa vegna
ófærðar, hvort sem er vegna snjóa
og sandbyls, og leitarstarfa á sjó og
landi. Við þurfum að vera viðbúnir
hvers kyns útköllum. Við eigum
mjög gott samstarf við aðrar sveitir.
í björgunaraðgerðum er þeim
stjórnað af svæðisstjóm sem skipuð
er félögum frá öllum björgunar-
sveitum í sýslunni. Það eru haldnar
samæfingar með nágrannasveit-
um,“ sagði Grétar.
- Nú tengja margir Vik við Kötlu-
gos. Eruð þið með tilbúna björgun-
aráætlun í sambandi við Kötlu?
„Það er til nákvæm starfsáætlun
ef til umbrota i Kötlu kemur, þar
hefur hver félagi sitt verkefni." -NH
Grétar formaöur tekur á móti gjöfum viö vígsluna.
DV-mynd NH
Patreksfjörður:
Óvissa með
sláturfélagið
DV, Patreksfirði:
Síðustu lömbunum á þessari slát-
urtíð var slátrað hjá Sláturfélaginu
Napa á Patreksfirði 15. október. Að
sögn Odds Guðmundssonar var
heldur færra fé slátrað nú en í fyrra
en þá var slátrað um 2.700 fjár.
Síðasta vetur starfrækti Napi
kjötvinnslu á Patreksfirði en Oddur
sagði nokkra óvissu með framhald-
ið í vetur. Menn væru að berjast við
að reyna að halda velli eða kannski
öllu heldur að halda húsinu. Ekki er
heldur ljóst hvort eitthvað verður
um stórgripaslátrun á næstunni og
sagði Oddur að menn héldu að sér
höndum á meðan mikið framboð
væri af kjöti á markaðnum. - HKr.
MIÐVIKUDAGAR
Aukablöð
DV hefur um árabil lagt mikla
áherslu á útgáfu aukablaða sem
sinna sérstækum áhugasviðum
lesenda. Allst eru gefin út um 30
aukablöð á ári, blöðin eru mjög
fjölbreytt og skemmtileg og má hér
nefna dæmi um nokkur vinsæl
aukablöð:
Matur og kökur, Gjafahandbækur
DV, Tölvur, Útivist, Garðar og gróður,
Bílar, Bækur, Húsbúnaður o.fl.
Lesendur geyma gjarnan þau blöð
sem fjalla um áhugasvið þeirra.
\i Lífsstíll:
DV fjallar öðru hverju um lífsstíl í
blaðaauka á miðvikudögum. Sem
dæmi um DV lífsstíl má nefna
umfjöllun um skólatísku og fatnað,
vetraríþróttir, vélsleða og jeppa o.
- skemmtilegt
blað fyrir þig