Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
Iþróttir
mmppmm
1. riöill:
Belgía-Tyrkland .... 21-25
Tyrkland-Belgía .... 30-22
Noregur-Rúmenía .... 25-22
Rúmenla-Noregur .... 23-17
Noregur 4 2 11 91-86 5
Tyrkland 4 2 11 96-92 5
Belgía 4 112 86-95 3
Rúmenía 4 112 85-85 3
Lokaleikir: Noregur-Belgla og Tyrk-
land-Rúmenía, heima og heiman. Öll
liðin eiga möguleika á efsta sætinu.
2. riöill:
Litháen-Makedónía . .. . .... 30-20
Makedónía-Litháen . .. . .... 28-31
Úkralna-Ungverjaland . . .... 24-26
Ungverjaland-Úkraina .. .... 23-22
Ungverjal. 4 3 0 1 101-94 6
Litháen 4 3 0 1 109-100 6
Úkraina 4 112 84-81 3
Makedónía 4 0 13 80-99 1
Lokaleikir: Ungverjaland-Litháen
(hreinir úrslitaleikir) og Makedón-
ía-Úkraina, heima og heiman.
3. riöill:
Holland-Hvíta-Rússland . .... 20-33
Hvita-Rússland-Holland . .... 25-22
Israel-Tékkland .... 23-25
Tékkland-ísrael .... 27-19
Tékkland 4 4 0 0 109-80 8
Hv.Rússland 4 3 0 1 118-87 6
ísrael 4103 87-112 2
Holland 4 0 0 4 80-115 0
Lokaleikir: Hvita-Rússland-Tékk-
land (hreinir úrslitaleikir) og ísra-
el-Holland, heima og heiman.
4. riðill:
PóUand-Slóvakía .... 28-26
Slóvakía-PóUand . . . .19-26
Portúgal-Þýskaland .... . . . . 21-19
Þýskaland-Portúgal . ... . . . . 31-28
Þýskaland 4 3 0 1 94-88 6
Portúgal 4 3 0 1 101-88 6
Pólland 4 2 0 2 93-89 4
Slóvakía 4 0 0 4 83-106 0
Lokaleikir: Portúgal-PóUand og
Þýskaland-Slóvakia, heima og heim-
an. Þjóðverjar vinna riðilinn ef þeir
sigra í báðum leUtjunum.
5. riöill:
Danmörk 4 4 0 0 115-74 8
ísland 4 3 10 110-77 7
Grikkland 4 0 13 73-114 1
Eistland 4 0 0 4 78-111 0
Lokaleikir: Ísland-Danmörk og
Grikklahd-Eistland, heima og heim-
an.
6. riöill:
Austurríki-Sviss . . . . 22-21
Sviss-Austurríki . . . . 29-26
Ítalía-Slóvenía . . . . 19-18
Slóvenía-Ítalía . . . . 19-12
Slóvenía 4 2 0 2 81-72 4
Sviss 4 2 0 2 93-91 4
Austurríki 4 2 0 2 89-94 4
Ítalía 4 2 0 2 74-80 4
Lokaleikir: Slóvenia-Sviss og Aust-
urríki-ltalía, heima og heiman. AUt
hreinir úrslitaleikir.
Danir góðir með sig fyrir leikina gegn íslendingum á HM:
„Eina leiðin til
að sigra ísland er
að beita kröftum“
- segir Ulf Schefwert, þjálfara Dana í handknattleik
Eins og marga grunaði
kemur það í hlut íslend-
inga og Dana að berjast
um lausa sætið á HM i
handknattleik í Japan á
næsta ári.
Þjóðirnar léku and-
stæðinga sína grátt um
liðna helgi og úrslitin í
leikjum íslendinga og
Dana segja til um hvor
þjóðin fer beint til Jap-
ans á HM.
Sá möguleiki er til
staðar að báðar þjóðirn-
ar komist til Japans en
liðið með besta árangur-
inn í 2. sæti í riðlunum
fer þangað.
Danir rótburstuðu
Grikki um helgina og
leikur þeirra í Grikk-
landi var ekki jafn og
spennandi eins og leikur
okkar manna þar á dög-
unum.
Og nú eru þaö leikirn-
ir gegn fslendingum sem
halda vöku fyrir Dönum.
Sænskur þjálfari þeirra,
Ulf Schefwert, er strax
farinn að velta fyrir sér
möguleikum sinna
mcuina gegn íslending-
um og hann er bjart-
sýnn.
„Vitum hvaö viö
þurfum aö gera til
aö vinna ísland"
„Möguleikar okkar á
að komast til Japan eru
mjög góðir. íslenska liðið
er þó erfiður andstæð-
ingur, sérstaklega á
heimavelli sínum á ís-
landi. Við vitum ná-
kvæmlega hvað við þurf-
um að gera til að sigra
íslendinga. Það hefur
alltaf verið lykilorðið að
beita kröftum því þeir
leika af miklum kröft-
um. Ég er ekki hræddur
við að fara út i harðan
leik gegn íslendingum.
Ég er með marga stóra
og sterka leikmenn sem
eiga í fullu tré við líkam-
lega sterka leikmenn ís-
lands,“ segir Schefwert
og lesa má milli línanna
að íslendingar séu ekki
mjög góðir handbolta-
menn tæknilega séð og
fari allt á kröftunum ein-
um saman. Samkvæmt
þessum ummælum
Schefwerts á hann von á
hálfgerðum slagsmála-
leikjum.
„Bjart fram undan“
Nikolaj Jacobsen, einn
þekktasti leikmaður
Dana, er bjartsýnin upp-
máluð. „Ég held að fram
undan séu mjög bjartir
tímar í dönskum hand-
knattleik. Við þurfum
bara að sigra íslendinga
og þá þurfum við ekki að
kvíða framtíðinni enda
erum við með mjög
sterkt lið um þessar
mundir," segir Jacobsen.
Leikimir gegn Dönum
fara fram 27. nóvember
og 1. desember.
Oft hafa íslendingar
slegið Dani út af laginu
þegar mikið hefur legið
við og þeim er sáu er
enn minnisstæður stór-
sigur Islands gegn Dön-
um á HM í Sviss 1986,
einhver glæsilegasti sig-
ur íslenska landsliðsins
á stórmóti.
Áhorfendur þurfa að
fjölmenna í Höllina er
Danir mæta til íslands.
Þeir geta hins vegar ekki
reiknað með aö verða
boðið á leikinn, enda lág-
msu'kið að fólk greiði að-
gang að landsleikjum Is-
lendinga og styðji um
leið sérsamband sem
mætt hefur mótbyr og
utanaðkomandi áfollum
en á engu að síður lands-
lið í fremstu röð, ólíkt
öðrum sérsamböndum í
boltaíþróttum. -SK
^ Evrópukeppnin í handknattleik:
Agætir möguleikar á Japansför
þó ísland lendi í öðru sætinu
- þá þarf 2 stig gegn Dönum og Portúgal má ekki vinna Pólland tvisvar
Danmörk og ísland eiga fram
undan einvígi um sæti í lokakeppni
HM í handknattleik sem fram fer í
Japan næsta vor. Eins og fram kem-
ur að ofan gæti annað sætið í riðlin-
um dugað til að komast áfram. Á
því eru ágætir möguleikar en þó
ekkert út af bregða.
ísland þarf 3 stig gegn Dönum til
að vinna riðilinn og tryggja sér Jap-
ansfórina en Dönum dugar hins
vegar að fá 2 stig.
Möguleikar íslands ef niðurstað-
an verður sú að liðin vinna sinn
leikinn hvort, eða gera tvívegis jafh-
tefli felast í því hvemig aðrir riðlar
fara. Eins og sjá má af stöðunum i
þeim hér til hliðar er útlitið með
það nokkuð gott því í flestum riðl-
um hafa liðin reytt stigin hvert af
öðra.
Fjóröi riðill ógnar mest
Mesta ógnin stendur af 4. riðlin-
um en þar gætu Þýskaland og
Portúgal endað með 10 stig hvort og
þá kæmust bæði áfram Til þess
þurfa Þjóðverjar að vinna. Slóvaka
tvivegis, sem ætti ekki að vera
vandamál, og Portúgalir að vinna
Pólverja tvívegis. Portúgalir eru í
mikilli sókn, unnu t.d. fyrri leikinn
við Þjóöverja á dögunum, og gætu
því hæglega náð þessu marki.
Fái ísland hins vegar eitt eða ekk-
ert stig gegn Dönum er nokkuð ljóst
að HM-sætið er úr sögunni.
Sex Evrópuþjóðir eru öruggar
með sæti í Japan. Það eru Frakk-
land, Svíþjóð, Rússland, Spánn,
Júgóslavía og Króatía. Sigurvegar-
amir í riðlunum sex bætast í hóp-
inn, ásamt liðinu sem verður með
besta útkomu í öðru sæti.
-VS
Atlamótið í badminton:
m ■ ■__ ^
Arni Þor var
maður mótsins
- varð þrefaldur sigurvegari á Skaganum
Ámi Þór Hallgrímsson, TBR,
var tvímælalaust maður Atlamóts-
ins í badminton sem fram fór um
liðna helgi á Akranesi.
Mótið var haldið til minningar
um Atla Þór Helgason sem lést af
slysfömm fýrir nokkrum árum.
Ámi Þór vann þrefaldan sigur í
meistaraflokki karla. Hann vann
Chen Guobao, TBR, í einliðaleik,
15^1 og 15-5.
I tvíliðaleik sigmðu Ámi Þór og
Broddi Kristjánsson, TBR, þá Guð-
mund Adolfsson og Chen Guobao,
15-7, 12-15 og 15-4.
Þriðji sigur Árna Þórs leit dags-
ins ljós í tvenndarleik en þar sigr-
aði hann ásamt Guðrúnu Ásgeirs-
dóttur, TBR. Þau léku til úrslita
gegn Brodda Kristjánssyni og
Brynju Pétursdóttur, ÍA og sigr-
uðu 15-1 og 15-11.
Elsa Nielsen, TBR, sigraði í ein-
liðaleik kvenna, vann Guðrúnu
Ásgeirsdóttur í úrslitum, 9-11,
11-3 og 11-1.
Elsa og Guðrún unnu síðan þær
Erlu Hafsteinsdóttur, TBR og
Brynju Pétursdóttur í tvíliöaleik
15-10 og 1S4.
Sonur Atla Þórs heitins, Ólafur
Öm, afhenti verðlaunin ásamt for-
manni Kiwanisklúbbsins Þyrils
sem var styrktaraöili mótsins.
-SK/-DVÓ
Iti) ENGUND
.>-----------------------
Everton og Coventry skildu
jöfn, 1-1 í ensku úrvalsdeildinni
í knattspymu í gærkvöldi.
Graham Stuart kom Everton
yfir með marki úr vítaspyrnu í
fyrri hálfleik sem dæmt var eftir
að vamarmaður Coventry hafði
varið skot nýja leikmannsins hjá
Everton, Nick Barmby, með
hendinni. Barmby lék í framlín-
unni hjá Everton og var klaufi
að skora ekki nokkur mörk því
hann óð í færum.
Glæsimark McAllisters
Það var síðan Gary McAllister
sem jafnaði metin fyrir Coventry
um miðjan seinni hálfleik með
glæsilegu skoti sem hafnaði í
þverlánni og inn.
Everton er í 9. sæti með 16
stig en á leik til góða gegn Liver-
pool síðar í þessum mánuði en
Coventry er í þriðja neðsta sæti
með 9 stig og var þetta 5. jafntefl-
isleikur þeirra í vetur. -GH
NBA á SKY
Forráðamenn NBA-deildarinnar
og sjónvarpsstöðin SKY skrifuðu
um helgina undir samning um
sýningar frá leikjum í NBA-
deildinni á þessu keppnistíma-
bili. Fyrsti leikurinn verður
annað kvöld þegar Phoenix og
Los Angeles Lakers eigast við og
eftir viku verður sýndur leikur
New Jersey og Orlando.
tT»- SPÁNN
Barcelona og Sporting Gijon
gerðu markalaust jafntefli í
spænsku 1. deildinni í knatt-
spymu í gær. Börsungar eru í
efsta sæti með 27 stig og jöfn í
2.-3. sæti eru Real Madrid og
Deportivo Coruna með 25 stig.
Börsungar geta þakkað Vitor
Baia, markverði sinum, fyrir
stigið, en hann varði oft á tíðum
glæsilega. Nadal, hinn sterki
varnarmaður Barcelona, fékk að
líta rauða spjaldiö í fyrri
hálfleik. -GH
Atli búinn að
velja u-21 árs liðið
Atli Eövaldsson, þjálfari íslenska u-21
árs landsliðsins í knattspymu, hefur val-
ið þá 16 leikmenn sem mæta írum í und-
ankeppni Evrópumótsins en leikurinn fer
fram á laugardaginn. Hópurinn er skipað-
ur eftirfarandi leikmönnum: Ámi Gautur
Arason, ÍA, Gunnar Sigurðsson, ÍBV, Sig-
urvin Ólafsson, Stuttgart, Jóhannes Harð-
arson, ÍA, Ólafur Stígsson, St.Mirren,
Guðni R. Helgason, Völsungi, Bjamólfúr
Lárusson, ÍBV, Stefán Þórðarson, ÍA, Sig-
þór Júlíusson, Val, Þorbjörn A. Sveins-
son, Fram, Bjarki Stefánsson, Val, Bjami
Guðjónsson, ÍA, Amar Viðarsson, FH,
Valur Fannar Gíslason, Arsenal, Gunnar
Einarsson, Val, ívar Ingimarsson, Val.
Snóker:
Kristján sigraði
sterkan spilara
íslendingar em úr leik í heimsbikar-
keppninni í snóker sem stendur þessa
dagana yfir í Bangkok. ísland beið lægri
hlut fyrir írum, 2-7, og varð i neðsta sæti
í sínum riðli.
Kristján Helgason gerði sér lítið fyrir
og lagði Ken Docherty, einn stigahæsta
snókerspilara á heimslistamnn. Kristján
stóð sig með mikilli prýði á mótinu og
vann 8 ramma af 12 sem hann spilaði. Síð-
ar í þessum mánuði mun Kristján keppa
á heimsmeistaramóti áhugamanna í
Nýja-Sjálandi ásamt Jóhannesi R. Jó-
hannessyni.
Pallister frá
í fimm vikur
Gary Pallister, varnarmaðurinn sterki
hjá Manchester United, fór í aðgerð fyrir
helgina og verður hann frá keppni í
minnst 5 vikur. Þetta era slæm tíðindi
fyrir United enda hefur vöm liðsins verið
hriplek að undanfömu. Alex Ferguson,
stjóri United, hefur hug á sð styrkja vörn
sína og er enn að rembast við að krækja
í Spánverjann Nadal. Leikmannamarka-
maðurinn á Spáni opnar á ný í næsta
mánuði og þá er líklegt að Ferguson reiði
fram einhveija fúlgu til að fá Nadal.
-GH
New York fór á
kostum gegn
Charlotte
New York vann yfirburðasigur á
Charlotte í fyrrinótt og sýndi þá að liðið
hefur styrk til að gera það gott í vetur.
Staðan var 70-36 I hálfleik. „Við gengum á
öllum í þessum leik, boltinn gekk vel í
sókninni og vömin var frábær. Þetta var
stórkostlegur leikur," sagði Patrick
Ewing. Úrslitin i fyrrinótt:
New York-Charlotte...............113-86
Starks 17, Ewing 16, Houston 14, Wallace 14,
Johnson 12 - Goldwire 17, Delk 14, Curry 12.
San Antonio-Denver................79-88
Elliott 17, Johnson 14, Del Negro 11 - Pierce 15,
McDyess 13, L.Ellis 12, Stigh 12.
LA Lakers-Minnesota...............91-85
Shaq 35, Van Exel 13, Blount 12, Jones 11 -
Gugliotta 26, K.Gamett 12, Robinson 12.
Vancouver-Golden State...........95-105
Peeler 21, Reeves 17, Abdur-Rahim 14 - Mullin
24, Sprewell 20, Owes 14, Price 14, Fuller 12.
Shaquille O’Neal var aftur í banastuði
með Lakers og hirti 19 fráköst. Hann hef-
ur gert 58 stig í tveimur fyrstu leikjunum.
„Ég hitti vel og. það voru félagar mínir
sem sáu um að ég spilaði vel, þeir mötuðu
mig á góðum sendingum,“ sagði Shaq.
Kobe Bryant, nýliði hjá Lakers, kom
inná og varð yngsti leikmaður sögunnar í
NBA-deildinni, aðeins 19 ára gamall.
San Antonio byrjar illa og liðinu tókst
ekki að skora í 11 mínútur í fyrri hálf-
eiknum gegn Denver. Gestimir vom með
ömgga forýstu eftir það og San Antonio
átti aldrei möguleika. -VS
Sagt er frá NBA-leikj-
unum í nótt á bls. 2
4-
ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 1996
23
Iþróttir
Cardaklija i
mark Leifturs
Flest bendir til þess að Hajradin Cardakljija muni verja mark Leifturs-
manna í 1. deildinni í knattspymu á næstu leiktíð. Cardaklija hefúr undan-
farin ár leikið með Breiðabliki og er honum ætlað að taka stöðu Þorvaldar
Jónssonar sem ákvað að leggja hanskana á hilluna í haust.
„Við erum að vinna í því að afla Cardaklija íslenskan ríkisborgararétt og
takist það, sem við erum bjartsýnir á, kemur hann til okkar. Hann hefur búið
hér á landi í fimm ár og ætti því að fylla öll skilyrði til að öðlast ríkisborg-
ararétt,” sagði Þorsteinn Þorvaldsson, formaður knattspymudeildar Leifturs,
í samtali við DV í gærkvöld.
Samkvæmt heimildum DV em Blikar að vinna í því að fá Atla Knútsson frá
Leiftri til að fylla skarð Cardaklija. Atli kom til Leiftursmanna fyrir síðasta
keppnistímabil en varð fyrir því óláni að fótbrotna í sumar og lék því fáa leiki
með Ólafsfjarðarliðinu.
Hlynur ekki til Leifturs
Leiftm-smenn vom á höttunum eftir Hlyni Birgissyni, landsliðsmanni úr
Örebro. Hlynur hafði lýst yflr áhuga á að ganga í raðir Leifturs færi svo að
hann næði ekki nægilega góðum samningi við Örebro. I gær komust Hlynur
og forráðamenn Örebro að samkomulagi og mun hann leika áfram með félag-
inu á næstu leiktíð. -GH
Haukar
Keflavík
(43)88
(41) 81
»Eg er alveg
í skýjunum”
„Ég er alveg í skýjunum með sigurinn
og þetta var frábær leikur. Við spilum frá-
bæran vamarleik. Við töluðum um það að
reyna að stjóma hraðanum og halda
leiknum niðri og það gekk mjög vel. Við
náðum góðu forskoti á mjög mikilvægu
augnabliki og náðum að halda haus í lok-
in,” sagði Reynir Kristjánsson, þjálfari
Hauka, eftir glæsilegan sigur á Keflvíking-
um í hörkuleik tveggja stórgóðra liða.
Haukamir unnu leikinn fyrst og fremst
á hörku varnarleik. Þeir léku þéttings-
fasta vöm og náðu að halda skotmaskín-
unni Kristni Friðrikssyni niðri í leiknum
en hann var í strangri gæslu Sigfúsar Giz-
urarsonar sem var frábær í sókn og vöm.
Þegar líða fór á síðari hálfleikinn náðu
svo Haukamir að stöðva hina skotmaskín-
una, Guðjón Skúlason, og þar með var
Keflavíkurliðið orðið veikburða og með
öguðum sóknarleik náðu Haukamir að
innbyrða sigur á glæsilegan hátt.
Fals Harðarsonar, leikstjómanda Kefl-
víkinga, var illilega saknað af félögunum.
Leikurinn var jafn og spennandi en á 8.
minútu síðari hálfleik náðu Haukamir að
skora 10 stig í röð en á þeim tíma gerðu
leikmenn Keflavíkur sig seka um mörg
slæm mistök. Þennan mun náðu Keflvík-
ingar ekki að vinna upp þrátt fyrir gott
einstaklingsframtak Damon Johnsons.
Sigfús átti stórleik með Haukum,
Shawn Smith var sterkur og þeir bræður
Pétur og Jón Arnar Ingvarssynir voru
drjúgir í sókn sem vörn.
Guðjón Skúlason var góður í fyrri hálf-
leik og í upphafi þess síðari en fékk litla
hjálp frá félögum sínum. Albert Óskars-
son og Damon Johnson áttu ágæta spretti.
„Þegar eitthvert smámótlæti kom hættu
menn að spila og hættu að einbeita sér.
Ástæðuna veit ég ekki,” sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, sem
var hundsvekktur með sína menn.
-ÆMK
3-0, 3-7, 16-12, 16-15, 21-15, 30-29,
30-35, 3641, (4341), 4643, 5049,
54-53, 64-53, 64-59, 77-54, 82-73, 88-81.
Stig Hauka: Sigfús Gizurarson 26,
Shawn Smith 21, Pétur Ingvarsson 15,
Jón A. Ingvarsson 14, Björgvin Jóns-
son 14, Bergur Eðvarðsson 2, Óskar
Pétursson 2, Sigurður Jónsson 2, Þór
Haraldson 2.
Stig Keflavikur: Damon Johnson 26,
Guðjón Skúlason 17, Albert Óskars-
son 13, Kristinn Friðriksson 9, Gunn-
ar Einarsson 7, Elentínus Margeirs-
son 4, Birgir Ö, Birgisson 3, Kristján
Guðlaugsson 2.
Fráköst: Haukar 42, Keflavík 25.
3ja stiga körfur: Haukar 6/15, Kefla-
vik 6/17.
Vítanýting: Haukar 21/23, Keflavik
13/20.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Helgi Bragason, sæmilegir.
Ahorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Sigfús Gizurarson,
Haukum.
URVALSDEILDIN
Torrey John leikmaöur Njarðvík-
ur vann sér inn 10 kassa af Pepsí í
hálfleik á leik Hauka og Keflavíkur.
Torrey var einn þeirra sem var dreg-
inn út og fékk að spreyta sig með
skoti frá miðju. Hann hitti með glæsi-
brag og í annað sinn á skömmum
tíma þurftu Haukamir aö sjá á eftir
10 kössum að Pepsí.
ívar Ásgrímsson leikmaðurinn
sterki hjá Haukum gat ekki leikið
með vegna meiösla frekar en Falur
Harðarson en Falur reiknar með að
verða oröinn klár fyrir næsta leik.
Shawn Smith týndi augnlinsu
sinni í síðari hálfleik. Haukarnir
tóku leikhlé og notuðu það til að leita
að linsunni og að lokum fann Þór
Haraldsson hana og fékk lófaklapp.
Pétur Ingvarsson lék vel fyrir Hauka f
gærkvöld þegar þeir unnu góöan sigur
á meistarakandídötunum úr Keflavfk á
heimavelli sfnum f Strandgötunni.
Njarövík, Haukar og ÍR eru efst og jöfn
f deildinni þar sem allt stefnir f
hörkukeppni f vetur. DV-mynd BG
Logi Ölafsson búinn aö velja landsliðið sem mætir írum:
Ekki pláss fyrir Harald
- Arnar, Bjarki og Arnór fjarri góðu gamni
Ólafur Þóröarson er leikjahæstur í
íslenska liöinu ásamt Guöna
Bergssvni.
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari,
valdi í gær 18 manna landsliðs-
hóp sinn fyrir leikinn gegn Irum í
undankeppni HM í knattspymu
sem fram í Dublin á sunnudaginn.
Logi hefur átt i nokkrum erfið-
leikum með að velja hópinn þar sem
nokkuö er um forföll. Tvíburabræð-
umir Amar og Bjarki Gunnlaugs-
synir geta ekki leikið þar sem þeir
hafa átt í meiðslum og Amór
Guðjohnsen verður ekki með.
Hlynur Birgisson kemur aftur
inn í landsliðshópinn eftir nokkurt
hlé og Eyjamaðurinn efnilegi, Her-
mann Hreiðarsson, er á ný í hópn-
um. Hins vegar er ekkert pláss fyrir
Harald Ingólfsson hjá Aberdeen og
vekur það nokkra furðu því reikna
má með aö Haraldur sé í mun betri
æflngu en margir af landsliðsmönn-
unum auk þess sem hann hefur
staðið sig vel í með Abeerdeen í
þeim tveimur leikjum sem hann
hefúr spilað með liðinu í skosku úr-
valsdeildinni
Óvíst um Guöna og Ágúst
Landsliðsfyrirliðinn Guðni Bergs-
son er í hópnum svo og Ágúst Gylfa-
son en óvíst er á þessari stundu
hvort þeir geta verið með sökum
meiðsla. Hópurinn lítur annars
þannig út:
Birkir Kristinsson, Brann..........47
Kristján Finnbogason, KR...........11
Guðni Bergsson, Bolton.............71
Ólafur Þórðarson, ÍA...............71
Rúnar Kristinsson, Örgryte..........57
Sigurður Jðnsson, örebro............47
Amar Grétarsson, Breiðabliki........34
Eyjólfur Sverrisson, Hertha.........34
Ólafúr Adolfsson, lA................19
Helgi Sigurðsson, Berlin...........11
Hlynur Birgisson, Örebro ...........10
Þórður Guðjónsson, Bochum............9
Lárus O. Sigurðsson, Stoke...........9
Ríkharður Daðason, KR ...............7
Ágúst Gylfason, Brann ...............5
Einar Þór Daníelsson, KR.............5
Heimir Guðjónsson, KR ...............4
Hermann Hreiðarsson, ÍBV.............3
Landsliðið heldur til írlands á
fimtudaginn en leikurinn fer fram á
Landsdowne Road í Dublin klukkan
15 á sunnudaginn. -GH
Aðalsteinn
ráðinn
þjálfari
Sindra
Aðalsteinn Aðalsteinsson
hefur verið ráðinn þjálfari 3.
deildar liðs Sindra á Horna-
firði í knattspyrnu. Hann tekur
við af Ejub Purisevic sem hefur
þjálfað liðið í þrjú ár en leikur
með Þór á Akureyri næsta
sumar.
Aðalsteinn þjálfaði Víkinga í
sumar en hætti áður en tíma-
bilinu lauk. Hann hefur áður
þjálfað Völsung og Leiftur. Að-
alsteinn gat ekkert leikið með
Víkingum í sumar vegna
meiðsla en ekki er ólíklegt að
hann spili með Hornfirðingum
næsta sumar. -VS
Keila á
Lengjunni!
feiki
skemmtileg