Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1996, Blaðsíða 16
14'
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 41 ~
Iþróttir
íþróttir
Í JSi
I---*— f
■ Anfernee
* Hardaway
Orlando Magic
Fæddur: 18. júlí 1971 í Memp-
his, Tennessee.
Hæð: 2,01 m.
Þyngd: 98 kg.
Staða: Bakvörður.
Númer á treyju: 1.
NBA-leikir: 281 með Orlando,
þar af 36 í úrslitakeppni.
Meðalskor í NBA: 19,6.
Flest stig í leik: 42.
Flest fráköst: 13.
Flestar stoðsendingar: 19.
Ferill: Valinn þriðji í nýliða-
valinu 1993 af Golden State en
fór strax til Orlando í skiptum
fyrir Chris Webber.
Ýmislegt: Valinn í stjömuleik
NBA 1995 og 1996 og í úrvalslið
deildarinnar bæði árin.
Vann Ólympíugull með
draumaliðinu í Atlanta í sumar.
Valinn í úrvalslið nýliða í
NBA 1994 og varð annar í kjör-
inu á nýliða ársins, aðeins 6 at-
kvæðum á eftir Chris Webber.
Eini leikmaður NBA 1995-96
sem náði 20 stigum, 5 stoðsend-
ingum og meira en 50 prósent
skotnýtingu að meðaltali í leik.
Valinn besti leikmaður í
menntaskólum Bandaríkjanna
árið 1990 og fékk fjölda annarra
viðurkenninga í menntaskóla og
háskóla.
Lék í kvikmyndinni „Blue
Chips“ ásamt Shaquille O’Neal.
Oftast kallaður Penny, gælu-
nafni sem amma hans gaf hon-
um.
Eins og sjá má á tölunum hér
að ofan er Penny Hardaway
mjög fjölhæfúr. Hann er af mörg-
um talinn besti bakvörður NBA-
deildarinnar í dag og mun mikið
mæða á honum í vetur.
Leikur Islendinga og Dana i undankeppni HM í handbolta í Laugardalshöll í kvöld:
Mikilvægasti leikur
íslands um árabil
Fyrri leikur íslendinga og Dana í undankeppni heims-
meistaramótsins i handknattleik verður háður í Laugar-
dalshöllinni í kvöld klukkan 20.40. Siðari leikurinn verð-
ur í Álaborg á sunnudaginn kemur. Þessir leikir skera
úr um hvor þjóðin hreppir efsta sætið í riðlinum og um
leið keppnisrétt í næstu úrslitakeppni heimsmeistara-
mótsins sem verður í Japan næsta vor. Annað sætið
gæti einnig gefið rétt til að keppa í Japan en nánar er
fjallað um þann möguleika í annari frétt í opnunni.
Leikirnir viö Dani hreinir úrslitaleikir
Fyrir leikinn í kvöld standa Danir betur að vígi í
riðlinum. Þeir hafa fullt hús stiga úr leikjunum við Eista
og Grikki en íslendingar eru meö sjö stig en liðið náði
aðeins jöfnu við Grikki í Aþenu í síðasta mánuði. Leik-
ir íslendinga og Dana eru því hreinir úrslitaleikir og
Ijóst að margir svitadropar eiga eftir að falla áður en yfir
lýkur. Með sanni er hægt að segja að leikimir við Dani
eru einhveijir þeir mikilvægustu um árabil. Það er
geysilega mikið í húfi að ísland vinni leikinn í Höllinni
í kvöld en ef liðið verður undir em möguleikar liðsins
úti á efsta sætinu í riðlinum.
íslenska landsliðiö kom fyrst saman til æfinga fyrir
leikinn í fyrradag enda stór hluti leikmanna liðsins á
mála hjá erlendum félagsliðum. Þorbjöm Jensson, lands-
liðsþjálfari, sagði við DV í gærkvöld, að æfingar fyrir
leikinn hefðu verið mjög vel nýttar og liðið væri tilbúið
í slaginn. Þorbjöm sagði enn fremur að það væri
gífúrlegur hugur í landsliðsmönnum og ekkert annað en
sigur kæmi til greina. Síðasti undirbúningur liðsins fyr-
ir átökin við Dani var æfingaleikur gegn Fram í gær-
kvöld. Leikmenn snæða saman hádegisverð í dag og
verða síðan saman fram að leik þar sem farið verður yfir
leik Dana á myndbandi.
„Eins og gefur að skilja kemur ekkert annað en sigur
til greina. Við erum búnir að taka fyrir ákveðin atriði
sem við teljum veikleika hjá Dönunum og ætlum að
spila inn á það. Við höfúm haft stuttan tíma til vrndir-
búnings en hann á samt að nægja okkur. Allir leikmenn
em í toppformi og mikill hugur í mannskapnum. Það
gera sér allir grein fyrir mikilvægi þessa leiks. Það er
gleðilegt að Dagur Sigurðsson er miklu sterkari núna en
þegar hann lék síðasta gegn Eistum. Hann hefur náð sér
alveg í hendinni og er 100% klár í leikinn. Við þurfúm á
okkar allra sterkustu mönnum að halda í leiknum í
kvöld,“ sagði Þorbjöm.
Þorbjöm taldi það skipta geysilega miklu máli að fólk
fjölmennti á leikinn og styddi þannig vel við bakið á
strákunum. Hann sagðist ekki hafa trú á öðra en að
Höllinn yrði troðfull af áhorfendum í kvöld.
„Dýrmætt fyrir okkur aö fylla Höllina"
„Það er okkur dýrmætt að fylla Höllina því það gæti
verið eins og okkar áttundi maður. Danskir blaðamenn
hafa spurt mig mikið út í það hvort Höllinn verði full og
er eins og þeir óttist það mikið. Góð stemning í kvöld
fleytir okkur langt áfram. Vöm og markvarsla þarf að
smella saman en þannig myndum við brjóta sóknarleik
þeirra niður. Við það opnaðist möguleiki á
hraðaupphlaupum," sagði Þorbjöm Jensson landsliðs-
þjálfari við DV.
Danska liðið er talið mun sterkara en þegar það lék á
HM hér á landi vorið 1995. Danir hafa yngt liðið með
snjöllum leikmönnum og innan um eru líka eldri og
reyndari menn. í dönskum fjölmiðlum hefur komið fram
að Danir búast við mjög erfiðum leik í Reykjavik.
„Leika af festu og ákveöni frá byrjun"
Þorbjöm Jensson taldi víst að það lið sem yrði heppn-
ara í kvöld færi með sigur af hólmi og munurinn yrði
ekki mikill þegar upp væri staðið.
„Við verðum að spila af festu og ákveðni frá fyrstu
mínútu til þeirra síðustu," sagði Þorbjöm.
-JKS
HBA-DEILDIN
Luc Longley, miðherji Chicago,
verður frá
keppni í 8 vikur
en eins og fram
kom í DV í gær
slasaðist hann á
öxl þegar hann
stakk sér til
sunds í Kyrra-
hafið. Longley er
vanur slíkum
æfmgrnn en hann lenti illa á öxlinni
þegar alda skellti honum á sandrif.
„Þetta var slysalegt og ég var í raun
heppinn að hálsbrotna ekki,“ sagöi
Longley. Chicago er I vandræöum því
miðherjinn Robert Parish er líka
meiddur og Bill Wennington er einn
um stöðuna.
Dennis Scott, himi snjalli bakvörð-
ur Orlando, er úr leik á ný eftir að
hafa aðeins spilað tvo leiki í NBA-
deildinni í vetur. Þetta er mikið áfall
fyrir Orlando sem einnig leikur án
Pennys Hardaways þessa dagana.
Phoenix, sem hefur tapað fyrstu 12
leikjum sínum, er aö reyna að fá ris-
ann Shawn Bradley trá Philadelphia
og vill láta Danny Manning í staöinn.
Jamal Mashbum, hinn öflugi
framheiji Dallas, er kjálkabrotinn og
veröur frá í 3-4 vikur.
Emanuel Davis, nýliði hjá Hou-
ston sem hefur byrjað vel meö liðinu
í stöðu bakvaröar, leikur ekki meira
1 vetur vegna hnjámeiðsla.
Úrslitin í NBA-deild-
inni í nótt eru á bls. 2.
Yfirlýsing frá gjaldkera Ólympíunefndar Islands vegna viðtals í DV:
„Heigulsháttur og sann
leikanum hagrætt"
DV hefur borist eftir-
farandi athugasemd frá
gjaldkera Ólympíu-
nefndar íslands:
„í DV þann 15. nóvem-
ber sl. er óvægin grein
um fjármál og störf
Ólympíunefndar íslands
þar sem í mörgu er vera-
lega hallað réttu máli.
Undirritaður, gjaldkeri
Óí, vill því láta eftirfar-
andi koma fram.
Ólympíunefhd íslands
hefúr átt mikil og góð
samskipti við Flugleiðir
á undanfómum árum.
Flugleiðir hafa reynst
Ólympíunefiidinni af-
burðavel í viðskiptiun
og verið einn besti
stuðningsaðili nefndar-
innar. Fullt samkomulag
er við Flugleiðir um frá-
gang á skuldum Óí sem
era í dag allmikið minni
en um getur í fyrr-
greindri blaðagrein í
DV.
Sögumaður DV segir
skuldir Óí hrikalegar. 1
greininni segir hann að
skuldir Óí hafi verið um
10 millj. króna á síðasta
starfsári. Við síðasta
ársuppgjör var hrein
eign 6,6 milljónir. Pen-
ingalegar eignir námu
11,4 milljónum en heild-
arskuldir 6,7 milljónum.
Hér er þvi um vísvitandi
rógburð að ræða. í
greininni kemur fram
að einu fostu tekjur Óí
séu um 100 þúsund kr. á
mánuði. Velta Óí sl. ár
var 36 milljónir og verð-
ur ekki minni í ár. Aftur
er sannleikanum hag-
rætt í greininni.
Sögumaður DV heldur
áfram: „Óí skuldar
íþróttamönnum enn
peninga", Ólympiunefnd
greiðir ekki fjármuni
beint til íþróttamanna
heldur styrkir sérsam-
böndin vegna verkefna.
Ólympíunefnd á enn
óuppgert við fáein sér-
sambönd en á útistand-
andi hærri upphæðir
hjá öðram sérsambönd-
um.
Ekki er óeðlilegt að
slíkt sé gert upp í lok
starfsárs eins og nú er
verið að vinna að.
Heimildarmaður DV,
„fulltrúi í Ólympíunefnd
íslands“ eins og hann er
kynntur, heldur sig í fel-
um með því að láta ekki
nafns síns getið. Hann
ræðst ódrengilega að
Júlíusi Hafstein, for-
manni Ólympíunefndar
íslands, á ssuna tíma og
formaðurinn er að sinna
skyldustörfúm erlendis
fyrir íþróttahreyfinguna
á aðalfundi Heimssam-
bands Ólympíunefhda.
Slíkur heigulsháttur á
lítt skylt við margróm-
aðan íþróttaanda í
íþróttahreyfingunni.
Torfi Tómasson,
gjaldkeri Ólympíu-
nefiidar íslands
.
ÞOK
Boris Akbachev, aöstoöarmaöur Þorbjörns Jenssonar, leiöbein-
ir þeim Bergsveini Bergsveinssyni og Guömundi Hrafnkelssyni
á æfingu fyrir Danaleikina í gær. DV-mynd í
Goðir moguleikar
í öðru sætinu
- ef ísland fær tvö stig úr Danaleikjunum
Þorbjörn Jensson segir aö danskir blaöamenn
hafi spurt mikiö um þaö hvort áhorfendur myndu
fylla Höllina í kvöld.
DV-mynd ÞÖK
Leikir Dana og íslendinga í dag og á
sunnudag ráða úrslitum um hvor þjóð-
in kemst beint í úrslitakeppni HM í
handknattleik í Japan næsta vor. ís-
land þarf 3 stig, sem sagt sigur og jafn-
tefli, til að vinna riðilinn en Dönum
duga tvö stig.
Sá sem bíður lægri hlut er þó ekki
úrkula vonar. Það lið í Evrópuriðlun-
um sex sem stendur uppi með besta út-
komu í öðra sæti kemst líka til Japans,
en þarf reyndar að sigra Ástralíu til
þess. Það á aö vera formsatriði.
Eins og staðan er í dag era mjög góð-
ar líkur á að það lið sem verður númer
tvö í þessum riðli komist áfram. ísland
er með flest stig í öðra sæti, 7 talsins,
og fari leikar þannig að liðin vinni sinn
leikinn hvort er staðan nokkuð vænleg.
Það sem gæti þá sett strik í reikning-
inn er hvemig leikar fara í 4. riðli Ef
Portúgölum tekst að vinna Pólverja
bæöi heima og heiman og Þjóðverjar
gera slíkt hið sama gegn Slóvökum .
komast Portúgalir áfram með besta út-
komu í 2. sæti. Ef ísland fær hins veg-
ar aðeins eitt stig gegn Dönum er von-
in ákaflega veik og ef báðir tapast er
endanlega ljóst að ísland verður ekki á
meðal þeirra 24 þjóða sem bítast um
heimsmeistaratitilinn í Japan næsta
vor. Málið snýst því um að ná í þessi
tilskildu þijú stig og þurfa ekki að
treysta á aðra. -VS
Dómarastörf á alþjóðavettvangi:
íslenskir dómarar
hafa nóg fýrir stafni
íslenskum dómurum og eftirlits-
mönnum hefúr verið úthlutað verk-
efhi á Evrópumótunum í handknatt-
leik eftir áramótin. íslenskir dómar-
ar fá í æ meira mæli verkefni á er-
lendum vettvangi og hlýtur það að
merkja en þeir hafi verið að standa
sig vel í leikjum fram að þessu.
Rögnvald Erlingsson og Stefán
Arnaldsson dæma leik þýska liðsins
THW Kiel og Winterthur frá Sviss í
meistaradeildinni 19. janúar. Þeir
félagar dæma síðan í Noregi 15.
febrúar viðureign Drammen og
Creitel í borgarkeppni Evrópu.
Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson dæma leik sænska liðsins
Skövde og Kolding frá Danmörku í
borgakeppninni í Svíþjóð 15. febrú-
ar.
Kjartan Steinbach, formaður
dómaranefndar IHF, verður eftir-
litsmaður á fyrri leik Creitel og
Drammen í borgarkeppninni í París
9. febrúar. Gunnar Gunarsson verð-
ur eftirlitsmaður á leik Ikast og
Rapid Búkarest í borgakeppni
kvenna en leikurinn verður í Dan-
mörku 9. febrúar.
-JKS
Yfirlýsing frá Olympíusjóðnum
„í grein í DV fostudaginn 15. nóv-
ember sl. var m.a. fjallað um Ólymp-
íusjóðinn. Blaðamaður hefur eftir
ónafngreindum fúlltrúa í Ólympíu-
nefnd íslands að Júlíus Hafstein, for-
maður Óí, hafi ítrekað gert tilraun til
að taka Ólympíusjóðinn inn í rekstur
Óí til að sýna betri afkomu nefhdar-
innar.
Stjóm Ólympíusjóðsins harmar
slik ummæli sem eru ósmekkleg að-
for að heiðri formanns Óí og eiga við
engin rök að styðjast, aldrei hefúr
komið fram tillaga um yfirtöku sjóðs-
ins.
Ólympíusjóðurinn var stofnaður í
mars 1986, um hann gilda sérstök lög
og úthlutunarreglur sem farið hefur
verið eftir í hvívetna frá stofiiun.
Sjóðurinn hefúr styrkt Ólympíu-
nefiidina fyrir Ólympíuleika, síðast
árið 1995 með kr. 2.000.000,- vegna
Ólympíuleikanna í Atlanta 1996.“
Reykjavík 25. nóvember,
Gunnlaugur Briem
Torfi Tómasson
Ari Bergmann Einarsson.
Vill 20 milljónir fyrir Rúnar
Sænska úrvalsdeildarfé-
lagið AIK i knattspymu
hefur átt í viðræðum við
landsliðsmanniim Rúnar
Kristinsson imdanfama
daga og margt bendir til
þess að Rúnar semji við fé-
lagið á næstu vikum.
Það gæti seinkað samn-
ingum að lið Rúnars, Ör-
gryte, vill fá svimandi upp-
hæð fyrir KR-inginn fyrr-
verandi eöa 20 milljónir ís-
lenskra króna sem er ná-
lægt því að vera 2 milljónir
sænskra króna. Þess má
geta að Örgryte keypti
Rúnar frá KR á um 5 millj-
ónir króna.
Mjög góöir leikmenn
á lægra veröi
í Svíþjóö er kaupverð
mjög góðra leikmanna oft á
bilinu 1-1,2 milljónir
sænskra króna eða 10-12
milljónir íslenskra króna.
Á þessu sést hve kröfur Ör-
gryte era úr takti við raun-
veruleikann.
„Ég hef verið hjá AIK
undanfarið og leist vel á
mig þar. Ég vona að þetta
gangi saman hjá AIK og
Örgryte á næstu vikum og
gengið verði frá málinu
fyrir áramótin," sagöi Rún-
ar Kristinsson í samtali við
DV í gærkvöld.
-SK/-EH
Hermann áfram
- hjá skoska liðinu Aberdeen
Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson verður enn um sinn til reynslu hjá
skoska úrvalsdeildarliðinu Aberdeen.
í gær lét Roy Aitken, framkvæmdasfjóri Aberdeen, Norðmanninn Geirmund
Brendesether fara aftur til Brann, en hann hefúr verið hjá liðinu undanfarið.
Líklegt er að Hermann, sem er hjá liðinu til reynslu ásamt Þjóðveijanum Mik
Lunsmann, leiki með varaliðinu gegn Hibemian á fóstudag. -SK
Guðmundur
vann Ingólf
Guðmundur E. Stephensen
sigraði félaga sinn úr Víkingi,
Ingólf Ingólfsson, í hörkuspenn-
andi úrslitaleik á Pepsi-mótinu í
borðtennis á sunnudaginn. Úr-
slitin réðust í oddaleik sem Guð-
mundur vann, 21-19.
Lilja Rós Jóhannesdóttir , Vík-
ingi, sigraði bæði í meistara-
flokki kvenna og 1. flokki karla.
Hulda Pétursdóttir, Víkingi,
sigraði í 1. flokki kvenna, Gunn-
ar Geirsson, Stjömunni, í 2.
flokki karla, Guðmundur Páls-
son, Víkingi, í byrjendaflokki og
Pétur Ó. Stephensen, Vikingi, i
eldri flokki karla.
Dalvíkingar
fá liðstyrk
DV, Dalvík:
Dalvikingar, sem leika i fyrsta
skipti í 2. deildinni í knatt-
spymu næsta sumar, hafa fengið
til sín tvo nýja leikmenn. Það
eru Vilhjálmur Haraldsson,
vamarmaður úr Breiðabliki,
sem hefur spilað með Kópa-
vogsliðinu í 1. deild undanfarin
ár, og Gunnar S. Magnússon,
varamarkvörður Framara, en
hann á að baki fjölda leikja með
yngri landsliðunum. -HIÁ
Stórleikur
hjá Stöð 3
Stöð 3 býður upp á stórleik í
ensku knattspyrnunni í kvöld.
Til stóð að sýna leik
Middlesborough og Newcastle í
deildarbikarnum en nú hefur
verið hætt við það og leikur
Liverpool og Arsenal verður í
beinni í kvöld í hans stað og
hefst útsending klukkan 19.45.
Þórsarar unnu
Þór á Akureyri sigraði Dalvík
í úrslitaleik á innanhússknatt-
spymumóti á Akureyri um síð-
ustu helgi, eftir framlengingu og
vítaspymukeppni. KS vann b-lið
Þórs í leik um þriðja sætið.
Larvik í úrslit
Krisfján Halldórsson er kom-
inn með lið sitt, Larvik, í bikar-
úrslitin í norska kvennahand-
boltanum. Larvik vann Stabæk
tvívegis í undanúrslitum, 31-21
og 24-14, og mætir Bækkelaget í
úrslitaleik.
Aðalfundur tyá Blikum
Aðalfundur knattspymudeild-
ar Breiðabliks verður haldinn í
Smáranum á fimmtudagskvöldið
klukkan 20.30.
Miðnæturmót HK
Miðnæturmót HK í innan-
hússknattspyrnu fer fram í
Digranesi á fóstudags- og laugar-
dagskvöld og er leikið fram á
nótt. Skráning er hjá Sigvalda
(568-7171) og í 564-2397 (fax).
2. DEILD KARLA
Breiðablik-Fylklr..........27-25
Keflavik-ögri..............34-28
jfý) ENGLAND
Deildarbikar - 4. umferð
Wimbledon-Aston Villa........1-0
Ipswich-Gillingham...........1-0
Oxford-Southampton...........1-1
1. deild
Charlton-Grimsby.............1-3
Reading-Birmingham ..........0-0
Sheflleld United-Swindon ....2-0
t