Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1996, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1996, Blaðsíða 26
50 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 Fólk í fréttum I Jón Helgi Þórarinsson Jón Helgi Þórarinsson, sóknar- prestur á Dalvík, Dalbraut 2, Dal- vík, hefur verið ráðinn sóknarprest- ur í Langholtssókn í Reykjavík. Starfsferill Jón Helgi fæddist á Akureyri 2.9. 1957 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1977, stundaði nám í orgelleik við Tónlistarskóla Akureyrar frá 1966 og lauk 7. stigs prófl í orgelleik þaðan 1978, lauk embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1983, stundaði framhaldsnám í sögu kirkjutónlistar og kirkjusögu og lauk M.Th.-prófi frá Edinborgarhá- skóla 1984. Jón Helgi var aðstoðarprestur við Fríkirkjuna í Hafnarfirði 1983-84 og hefur verið sóknarprestur á Dalvík frá 1984. Jón Helgi var lengi formaður Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar í Hólastifti er starfrækti sumarbúð- irnar við Vestmannsvatn, var for- maður sálmabókanefndar Þjóðkirkj- unnar 1985-91 og er nú fyrir starfs- hópi er undirbýr útgáfu nýrrar sálmabókar, hefur starfaði í ýmsum nefndum á vegum þjóð- kirkjunnar, sat í stjóm Prestafélags Hólastiftis og í varastjóm Prestafé- lags íslands. Þá var hann formaður íþróttavalla- nefndar Dalvíkur. Fjölskylda Jón Helgi kvæntist 21.8. 1982 Margréti Ein- arsdóttur, f. 19.8. 1960. Hún er dóttir Einars Ágústssonar, rafvirkja- meistara í Reykjavík, og Jónu Sig- urðardóttur húsmóður. Synir Jóns Helga og Margrétar eru Hilmar, f. 30.1. 1983; Friðjón, f. 20.3. 1987; Pétur Örn, f. 12.11. 1995. Systkini Jóns Helga eru Anita, f. 8.1. 1949, kennari á Hlíðarenda í Bárðardal, gift Ingvari Vagnssyni frá Hriflu; Pétur, f. 23.6. 1951, prest- ur í Laufási, kvæntur Ingibjörgu S. Siglaugsdóttur hjúkrunarfræðingi; Erna, f. 30.7. 1959, kennari og söngv- ari í Reykjavík, gift Gunnlaugi Briem hljóðfæraleikara. Foreldrar Jóns Helga eru Þórar- Jón Helgi Þórarinsson. inn S. Halldórsson, f. 4.6. 1928, stýrimaður og siðar sláturhússtjóri á Akur- eyri, og Elín Jónsdótir, f. 10.10. 1928, kennari. Ætt Þórarinn er bróðir Jóns, föður Halldórs, fram- kvæmdastjóra FSA og fyrrv. bæjarstjóra á Akur- eyri. Þórarinn er sonur Halldórs, b. í Ásbyrgi i Glerárþorpi, Jónssonar, b. í Krossanesi, Halldórssonar, b. á Geldingsá, Halldórssonar, b. á Geld- ingsá, Halldórssonar. Móðir Hall- dórs í Ásbyrgi var Júlíana Krist- jánsdóttir. Móðir Þórarins er Hrefna Pétursdóttir, b. á Halldórs- stöðum í Eyjafírði, Tómassonar, b. í Borgargerði í Skagafirði, Jónasson- ar húsmanns, Tómassonar, b. á Skriðu i Saurbæjarhreppi, bróður Sigurðar, langafa Guðrúnar, móður Ottós A. Michelsen. Tómas var son- ur Jónasar, b. í Ytra-Dalsgerði, Jónssonar, b. í Syðra-Dalsgerði, Ein- arssonar. Móðir Jónasar í Ytra- Dalsgerði var Helga, systir Jónasar í Hvassafelli, £ifa Jónasar Hallgrims- sonar. Helga var einnig systir Jós- efs, langafa Jóhanns Sigurjónssonar skálds. Þriðji bróðir Helgu var Dav- íð, langafí Káinns og Jóns Magnús- sonar forsætisráðhema. Helga var dóttir Tómasar, ættföður Hvassafell- sættarinnar, Tómassonar. Móðir Hrefnu í Ásbyrgi var Stef- anía, dóttir Sigtryggs, b. á Úlfá, Sig- urðssonar og Friðriku Friðriksdótt- ur frá Baldursheimi. Elín er dóttir Jóns Almars, verka- manns á Akureyri, Eðvaldssonar, verkamanns á Akureyri, Jónssonar. Móðir Elínar var Jakobína, systir Önnu, ömmu þeirra bræðra Krisfj- áns Vals, rektors 1 Skálholti, og Bjöms, skólastjóra á Grenivík, Ing- ólfssona. Bróðir Jakobínu var Ein- ar, faðir Matthíasar, lögreglufull- trúa á Akureyri, föður Pálma, sókn- arprests í Bústaðakirkju. Jakobína var dóttir Guðbjarts, b. í Snælandi á Grenivík, Bjamasonar og Sigríðar Bjarnadóttur. Afmæli Hólmfríður Oddsdóttir I Sr Hólmfriður Oddsdóttir húsfreyja, Lindargötu 61, Reykjavik, er sjötug í dag. Starfsferill Hólmfríður fæddist í Reykjavík en ólst upp á Kjalarnesinu, í Laugar- nesi og í Fagradal í Soga- mýri. Hún stundaði nám við Reykjaskóla og við hússtjórnardeild Kvenna- skólans í Reykjavík. Hólmfríður var lengst af húsfreyja á bammörgu heimili í Reykjavík, á Patreksfirði og á Akra- nesi. Hún varð ekkja 1970 og hóf þá störf sem starfsstúlka á Kleppsspít- alanum í Reykjavík. Fjölskylda Hólmfríður Oddsdóttir. Hólmfríður giftist 24.12. 1946 Guðmundi Kristni Óskarssyni, f. 11.6. 1928, d. 26.5. 1970, kaupmanni og verslunarstjóra í Reykjavík, á Patreksfirði og á Akranesi. Hann var sonur Óskars Þorgils Pálssonar, verkamanns af Pálsætt undan Jökli, og Lovísu Kristjánsdótt- ur sem einnig var ættuð af Snæfellsnesi, m.a. af Hnausa-Bjamaætt. Böm Hólmfríðar og Guðmundar em Lovisa Guðmundsdóttir, f. 6.6. 1946, starfsleiðbeinandi í Kópavogi, og á hún þrjú börn; Oddur Guð- mundsson, f. 16.1. 1949, búsettur í Svíþjóð og á hann sex böm; Óskar Þorgils Guðmundsson, f. 25.8. 1950, blaðamaður i Reykjavík en kona hans er Kristín Ágústa Ólafsdóttir, kennari og stjórnarformaður Sjúkrahúss Reykjavíkur, og eiga þau þrjú böm; Guðmundur Hólmar Guðmundsson, f. 17.10. 1955, búsett- ur í Hafnarfirði og á hann þrjú börn; Brynjar Guðmundsson, f. 27.6. 1959, prentari í Kópavogi, en kona hans er Sigríður Björnsdóttir fram- kvæmdastjóri og eiga þau þrjú böm; Atli Guðmundsson, f. 11.9. 1963; Brynhildur Guðmundsdóttir, f. 14.8. 1968, þroskaþjálfi í Reykjavík, en maður hennar er Jón Ágústsson þroskaþjálfi og eiga þau eitt barn. Systkini Hólmfriðar: Sigurður Þórarinn Oddsson, f. 27.7.1920; Hall- dóra Petrea Oddsdóttir, f. 18.10. 1930; Jón Oddsson, f. 30.9. 1935, d. 23.5. 1994. Foreldrar Hólmfríðar vom Oddur Jónsson, f. 26.6. 1889, d. 28.8. 1981, sjómaður, bóndi og verkamaður, og k.h., Brynhildur Ingimundardóttir, f. 20.5. 1898, d. 27.9. 1973, húsmóðir. Þau bjuggu á Kjalarnesi, í Laugar- nesinu og síðustu áratugina í Fagra- dal í Sogamýri. Oddur var ættaöur frá Króki á Kjalarnesi af Engeyjarættinni, og hins vegar frá Klofa á Landi. Brynhildur átti ættir að rekja annars vegar í Meðallandið og Suð- ursveit en hins vegar til Vest- mannaeyja. í tilefni sjötugsafmælisins tekur Hólmfríður á móti gestum í félags- heimili Karlakórsins Þrasta, Flata- hrauni 21, Hafnarfirði, nk. laugar- dagskvöld, 30.11. Mikael Þorfinnsson Mikael Þorfinnsson, Rauðumýri 9, Akureyri, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Mikael fæddist í Hrísey og ólst þar upp fyrstu átta árin i foreldr- ahúsum en síðan mikið til hjá Stef- áni Stefánssyni útgerðarmanni. Mikael fór fyrst átta ára í róðra með föður sínum en stundaði á unglingsárunum jöfnum höndum almenn sveitastörf og störf tengd útgerðinni hjá Stefáni. Hann var fyrsti bílstjórinn í Hrísey, keypti bíl í félagi við Stefán og notaði hann við útgerðina. Þá stundaði Mikael útgerð í Hrísey með Albert Þórðar- syni og var jafhframt tvær vertíðir í Vestmannaeyjum. Mikael flutti til Akureyrar í lok seinni heimsstyrjaldarinnar og hef- ur búið þar síðan. Hann starfaði hjá Síldarverksmiðjum ríkisins í hálft annað ár og vann síðan við hand- lang í múrverki um árabil. Þá starf- aði hann hjá Gefjun í ellefu ár er hann hætti fyrir aldurs sakir. Fjölskylda Sambýliskona Mikaels var Hall- fríður Gunnarsdóttir, f. 1909, nú lát- in, húsmóðir. Dóttir Hallfríðar og fósturdóttir Mikaels er Sigurlaug Alda Þor- valdsdóttir, húsmóðir og hár- greiðslukona á Akureyri, gift Ólafi Hauki Arnarsyni, húsgagna- og húsasmiði, og eiga þau fjögur böm. Systkini Mikaels voru Þorsteinn, f. 1908, d. 1909; Jóhanna, f. 1909, nú látin, húsmóðir á Dalvík. Foreldrar Mikaels vom Þorfinn- ur Jónsson, sjómaður í Hrísey, og Sigríður Jóhannsdóttir húsmóðir. Fréttir Lítið um rjúpu á Ströndum - talin hafa hrakist undan óveörinu Guðmimdur G. Jónsson, hrepp- stjóri í Munaðamesi á Ströndum, fór til ijúpna mánudaginn 18. nóv- ember og hafði lítið upp úr krafsinu að eigin mati. Þó kom hann með átta stykki heim að kveldi og er búinn að fá eitthvað um 20 stykki í það heila. „Ég fer nú ekki mikið,“ sagði Guð- mundur. „Maður er svona að reyna að halda þessu við.“ Hann segir lítið hafa verið um rjúpu á þessum slóð- um undanfarin ár, þó sé það skárra núna en í fýrra. Ekki vildi Guð- mundur fullyrða neitt um orsakir þess að minna heföi verið um rjúpu undanfarin ár en trúlega réðu óveð- urskaflar sem komið hefðu snemma á haustdögum einhverju um það. Hún hrektist einfaldlega undan veðrinu. Lítið er um óboðna gesti í rjúpna- veiði þama norður frá, enda taldi Guðmundur að enginn nennti að fara svona langt. -HK Til hamingju með afmælið 27. nóvember 90 ára Þórunn Ólafsdóttir, Snorrabraut 58, Reykjavík. 80 ára Hildur Kæmested, Hæðargarði 29, Reykjavík. 70 ára Þóra Guðrún Stefánsdóttir, Laugalæk 46, Reykjavík. Sigurður Stefánsson, Stærra-Árskógi, Árskógshreppi. 60 ára Gyða Sigrún Stefánsdóttir, Steinagerði 6, Reykjavík. Elísabet Þórarinsdóttir, Reynigrund 63, Kópavogi. Engilráð Guðmundsdóttir, Suðurvangi 14, Hafharfirði. Guðríður Jónsdóttir, Hraunbæ 13, Reykjavík. Hulda Vilmundardóttir, Hlíðarvegi 2, Grundarfirði. Eiginmaður hennar er Soffanías Cecilsson. Þau verða að heiman. 50 ára Júlía Magnúsdóttir, yíðivangi 11, Hafharfirði. Ólafía Sigurbergsdóttir, Tjamargötu 30, Keflavík. Sigríður Sveinsdóttir, Strýtuseli 7, Reykjavík. Sigriður Kristjánsdóttir, Nesvegi 53, Reykjavík. Jónatan Sigurjónsson, Suðurgötu 43, Keflavík. Guðrún Elsa Guðlaugsdóttir, Foldahrauni 26, Vestmannaeyjum. 40 ára Rúnar Guðlaugsson, Garðstíg 3, Ólafsfirði. Kolbrún Þorláksdóttir, Núpabakka 13, Reykjavík. Hannes Eðvarð ívarsson, Brekkulæk 6, Reykjavík. Bergfiót Bragadóttir, Asparfelli 4, Reykjavík. Ólöf Ásta Guðmvmdsdóttir, Skólagerði 21, Kópavogi. Sindri Sigfússon, Breið, Lýtingsstaðahreppi. Þorvaldur Jensson, Neðstaleiti 2, Reykjavík. Þorbjörg Halldóra Hannesdóttir, írabakka 30, Reykjavík. Hörður Hjartarson, Hraunbæ 112, Reykjavík. aukaafslátt af smáauglýsingum Smáauglýsingar DV 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.