Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1996, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
43
Fréttir
Úttekt á umhverfismálum á Suðurlandi:
Neysluvatn mengað á
fimmtungi lögbýla
- unniö aö úrbótum, segir heilbrigöisfulltrúi
Undanfarin þrjú ár hefur Heil-
brigðiseftirlit Suðurlands unnið að
ítarlegri úttekt á stöðu neyslu-
vatns- og frárennslismála að beiðni
sveitarfélaganna. Niðurstöður eru
famar að berast og kemur ýmislegt
forvitnilegt í ljós. Úttekt af þessu
tagi hefúr ekki áður verið unnin
hér á landi. Birgir Þórðarson heil-
brigðisfúlltrúi sagði í samtali við
DV að tilgangurinn með úttektinni
væri fyrst og fremst að fá fram úr-
bætur í umhverfismálum.
Alls voru ríflega 800 lögbýli á
Suðurlandi könnuð. Birgir sagði
ástandið vera mjög mismunandi
eftir sveitarfélögum, sums staðar
væra málin nær óaöfinnanleg en
annars staðar væra kannski sjö af
hverjum tíu bæjum með mengað
neysluvatn.
Úttektin leiddi í ljós að á fimmt-
ungi lögbýla væri neysluvatn
meira og minna mengað. Á um 80%
allra bæja á Suðurlandi er ástandið
í lagi. Hvað fráveitumál varðar eru
sjö af hverjum tíu bæjum með allt
sitt á hreinu og úrbóta því þörf á
þriðjungi bæja.
Birgir sagði niðurstöðurnar ekki
hafa komið verulega á óvart. Víða
þyrfti að taka til hendinni og sú
vinna væri þegar hafm. Flösku-
hálsinn væri eftirlitið. Heilbrigðis-
eftirlit Suðurlands væri fámenn
stofnun og svæðið stórt sem það
hefði til umráða.
Aðspurður um kostnað vegna úr-
bóta sagði Birgir hann ekki mikinn
fyrir minni sveitarfélög en vitan-
lega væri þetta rneira mál í þétt-
býli. Sveitarfélög settu þó kostnað
ekki fyrir sig.
Brotalöm í skálum á hálendi
HeObrigðiseftirlit Suðurlands
hefur jafnframt kannað aðstöðu
ferðaþjónustu á hálendi Suður-
lands. Kannaðir vora 94 staðir þar
sem gisting af einhverju tagi stóð
tU boða með alls 1750 gistirýmum.
Um er ræða allt frá litlum fjallakof-
um tU fullkominna gistihúsa.
Könnunin leiddi í Ijós að víða
var umhverfismálum ábótavant og
tilskUin leyfi skorti frá yfirvöldum
skipulagsmála, heUbrigöismála og
umhverfismála. Neysluvatn í mörg-
um skálanna var mengað og frá-
rennslismál víða í ólagi. Sorphirða
hefur þó víðast skánað tU muna.
Alvarlegast er að rotþrær eru
tæmdar í næstu læki eða jafnvel
stöðuvötn. -bjb
Enn dregið úr beingreiðslupotti DV og Stöövar 2:
Sex hrepptu 29" sjónvarpstæki
Þann 15. nóvember síðastlið-
inn voru sex heppnir áskrif-
endur DV og Stöðvar 2 dregnir
upp úr Beingreiðslupottinum
svokaUaða en þangað fara allir
þeir sem greiða áskriftargjöld-
in með bein- eða boðgreiðslum.
í beingreiðslum er áskriftar-
gjaldið mUlifært beint af reikn-
ingi fólks í banka eða spari-
sjóði. AUs verða átján 29" sjón-
varpstæki, að heUdarverðmæti
2.271.600 kr., dregin út tU hepp-
inna áskrifenda DV og Stöðvar
2 fram að jólum.
Þeir sem dregnir voru út að
þessu sinni voru Hreinn Júlí-
usson, Sigluflrði, Guðriður
Einarsdóttir, Hafnarfirði, Sig-
urður Ingason, Vestmannaeyj-
um, Karlotta B. Aðalsteinsdótt-
ir, Kópavogi, HUdur Harðar-
dóttir, Hafnarfirði og Guðbjörn
Guðjónsson, Hafnarfirði. Þess
má geta að Hreinn fékk sjón-
varpstækið eiginlega I afmælis-
gjöf þar sem hann varð 55 ára
daginn sem vinningarnir voru
afhentir. -sv
" ÍJmk
Sjónvarpstækin voru afhent á dögunum og þau sóttu, f.v.: Jón Lárusson (fyrir Karlottu), Ingi B. Vigfússon (fyrir Hrein),
Heiða B. Ingadóttir (fyrir Sigurö Inga), Hildur, með son sinn Hjört Loga Valgarösson, Guðríður, með börn sín Söru Krist-
jánsdóttur og Davíö Bragason, og Guðbjörn Guðjónsson. DV-mynd ÞÖK
562 4300
OJÖRGVIN HAROARSON -INGIGARÐAR FRIORIKSSON
i m.Cí1I Viittvikhí tHnsvxii I
' nm jrmnwarnl
efMATTHIASAR
MIKLATORGI V® PERLUNA
1988 MMC Pajero dísil turbo,
grár, verö 790.000.
1992 Toyota double cab dísil,
rauður, verð 1.350.000.
1986 Toyota double cab dísil,
rauður, verð 690.000.
1990 MMC L-300 dísil turbo,
grár, 8 manna, verð 1.180.000.
1986 Subaru station 4WD,
grænsans, verð 390.000.
1991 MMC L-200 double cab
dísil, hvítur, verð 950.000.
1988 Nissan
grásans, verð 460.000.
Góö kjör
12-36 mán.
Visa Euro raðgreiöslur
Svava Sófusdóttir við nokkur verk þátttakenda. DV-mynd Jóhann
Seyöisfjöröur:
Omissandi samveru-
stundir sjúklinga
Fyrir rúmlega tólf árum var, að
frumkvæði Sigrúnar Ólafsdóttur
hjúkranarfræðings, ákveðið að
bjóða þeim sjúklingmn og vist-
mönnum sem til þess hefðu þrek og
löngum að koma saman vikulega til
þess að fást við hvers konar handa-
vinnu. Boðinu var strax vel tekið og
fljótlega var ákveðið að þessar
stundir yrðu tvisvar á viku.
Umsjónar- og leiðbeinandastarf
hefur Svava Sófusdóttir annast frá
upphafi. Hún segir að þama sé feng-
ist við hvers konar handavinnu -
saumað út, prjónað, málað - og
stundum körfugerð og bastvinnu.
Svava segir að auðvitað sé þetta
ffemur tómstundavinna en lærdóm-
ur en hún veiti þá leiðsögn og að-
stoð sem þörf er á hveiju sinni.
Hún segir einnig að mest hafi það
verið konur sem tekið hafi þátt í
starfinu og hafi þær ávallt verið
þakklátar og elskulegar. Sýnilega
hafi þessar samverastundir oft ver-
ið þeim ánægjuauki og gleðigjafi,
auk þess sem ávallt er nokkurs
virði að taka þátt í skapandi starfi
og kanna hvað maöur getur lagt af
mörkmn. -JJ