Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1996, Síða 32
K
MTTt
tii m!W6«í vintiý
N >
KIN H
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,oháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
Umferðarslys:
Kona mikið
slösuð
Mjög alvarlegt umferöarslys varð
" w á Snorrabraut um klukkan 8 í morg-
un þegar ekið var á miðaldra konu
við umferðarljós. Konan mun hafa
slasast alvarlega og var flutt rakleitt
á slysadeild.
Svo harkalegt var höggið að
framrúða brotnaði í bílnum og
húddið skemmdist töluvert. -RR
Bílþjófar
handteknir
Tveir ungir bílþjófar voru hand-
teknir í gær eftir að hafa stolið bif-
reið i Iðufelli í fyrrakvöld.
Eigandi bílsins hafði brugðið sér
inn í verslun en skildi bílinn eftir í
-•*■* gangi og þegar hann kom aftur út
var bíllinn horfinn. Góð lýsing náð-
ist á tveimur piltum sem framið
höfðu verknaðinn.
Lögreglan sótti þá í einn af skól-
um borgarinnar í gær og viður-
kenndu þeir bílþjófnaðinn. Höfðu
þeir ekið bílnum til Selfoss, fjarlægt
allar græjur úr honum og selt fyrir
austan fjall. -RR
Unglingar sem koma heim frá Norðurlöndum rangt metnir inn í skólakerfið:
Sonur minn starði út í
loftið fyrsta veturinn
- var búinn að lesa námsefnið ytra, segir Rannveig Pálsdóttir
„Svona var þetta með son minn
og ég veit um fleiri svipuð dæmi.
Krakkar sem koma heim eftir að
hafa verið í skólum annars staðar
á Norðurlöndunum eru látnir í
bekk með jafnöldrum símun en
eru þá búnir að fara yflr það
námsefni sem þar er verið að
kenna. Mér liggur við að segja að
sonur minn hafi horft út í loftið
eða nagað á sér neglumar í heilan
vetur án þess að við því væri
brugðist,“ segir Rannveig Páls-
dóttir kennari en hún kom fyrir
þremur árum heim með son sinn
frá Svíþjóð.
Rannveig segir að skólinn sé á
eftir hér heima, þrátt fyrir að á
þeim tíma hafi börn í Svíþjóð byrj-
að ári síðar en íslensk böm. Þetta
segir Rannveig vera innlegg í þá
umræðu um skólamál sem verið
hafi í þjóðfélaginu síðustu misser-
in.
„Mér fannst ég lítið geta gert og
hvatti strákinn bara til þess að
einbeita sér að íslenskunni þegar
hann kvartaði undan því að hann
hefði þegar lesið það sem verið
var að fara í. Hann var enginn af-
burðanemandi og því fannst mér
ekki rétt að reyna að fá hann flutt-
an upp um bekk.“
Rannveig segist hafa búið i inn-
flytjendahverfl í Svíþjóð og þar
hafi bömin þurft mikla aðstoð í
skólunum, í sambandi við sænsk-
una og fleira, og þar hafl yflrleitt
verið tveir kennarar með bekkina,
annar reyndar bara tvo til þrjá
tíma á dag. Um tuttugu nemendur
hafl verið í bekk og aukaherbergi
í hverri stofu til þess að erflðir
eða afburðanemendur hefðu ein-
hverja aðstöðu til þess að það sem
þeir fengju að gera truflaði ekki
allan bekkinn.
„Ég er sjálf kennari og veit
hvað það er að vinna með svo fjöl-
menna bekki eins og tíðkast í okk-
ar skólakerfi. Það er gífurleg
vinna og geysimikið álag að vera
með svona stóran bekk þar sem
bömin em öll misjöfn. Það þarf
ekki nema einn sem á erfitt, getur
ekki setið kym eða eitthvað slíkt
til þess að trufla alla hina. Ef
kennarar væm tveir með bekk
myndi annar geta sinnt þeim sem
eru á undan eða á eftir,“ segir
Rannveig.
Sjá nánar á bls. 4
-sv
Skipstjóranum sleppt
Dómari á írlandi ákvað í gær að
Sigurði Amgrímssyni, skipstjóra á
flutningaskipinu Tia, yrði sleppt
lausum úr gæsluvarðhaldi í gær,
gegn 20 þúsund punda tryggingu.
Dómarinn hafði tekið sér samtals
tvær vikur til að ákveða hvort sKip-
stjórinn fengi lausn áður en réttar-
höld verða í máli hans vegna ákæru
á hendur honum um tilraun til að
smygla flkniefnum. Sigurður var því
búinn að sitja inni í tæpan mánuð.
Ákveðið var í gær að réttarhöld hæf-
ust þann 17. janúar.
Samkvæmt upplýsingum DV í gær
mun Sigurður ætla að selja skipið.
Greiðsla hinnar rúmlega tveggja
milljóna króna tryggingar mun því
felast í söluaandvirði skipsins.
Ekki náðist í Sigurð í gær en Jósa-
fat Amgrímsson, bróðir hans og at-
hafnamaður í Dublin, hefur lagt á
það áherslu í samtölum við DV að
undanfómu að hann telji að ákæran
á hendur Sigurði verði felld niður -
sannanir vanti.
Lögreglan hefur ekkert viljað láta
uppi á hveiju hún byggir ákæm sína
á hendur Sigurði - það sé leyndarmál
fram að réttarhöldum. Talsmenn
hennar hafa sagt að rannsókn muni
halda áfram. Ekkert fannst í skipi
Sigurðar sem benti til að fíkniefni
hefðu komið um borð. -ótt
I/ 3»
Skeiðarársandur opnaður
„Framkvæmdimar hafa gengið
framar öllum vonum þrátt fyrir
kuldatíð og sandfok, enda hafa menn
verið kappsamir og unnið lengi og
vel,“ segir Rögnvaldur Gunnarsson,
deildarstjóri hjá Vegagerðinni, þegar
DV ræddi við hann á Skeiðarársandi
í gærkvöld.
í morgun var Skeiðarársandur
opnaður umferö á ný eftir hamfarim-
ar i jökulhlaupinu fyrir 22 dögum en
miðað við umfang þeirra þykir hafa
gengið ótrúlega vel, miklu betur en
vænst var, að tengja veginn á ný.
- Áfram verður unnið, að sögn Rögn-
valds, á Skeiðarársandi þótt vegar-
sambandið sé kómið á, enda þarf
mikið aö snyrta og snurfúsa vegina,
setja niður fleiri ræsi og byggja upp
ákveðna vamargarða.
„Það verður þó ekki farið út í aö
byggja upp endanleg mannvirki á
sandinum fyrr en eftir áramót, eða á
maður að segja endanleg bráða-
birgðamannvirki, í ljósi reynslunnar
í haust,“ segir Rögnvaldur enn frem-
ur.Vegurinn um Skeiðarársand er
ekki jafn beinn og greiðfarinn og
hann var fyrir hlaup og leiðin liggur
nú af honum og inn á slóða sem
liggja fram hjá þeim eyðum sem
vatnsflaumurinn gróf í veginn. -ERS
Smuguveiöum er lokið í ár. Síöasta skipiö kom til hafnar í gær. Alda Gylfa-
dóttir, eini kvenmaöurinn í áhöfn Sléttanessins, sést hér klippa háriö á Sig-
mundi Sigurbjörnssyni um borö í skipinu í Smugunni. Sigmundur pantaöi
svokallaöa „kiwiklippingu" og heldur á ávextinum í hendinni. DV-mynd R.S
Maður réðst
á 11 ára stúlku
Ráðist var fólskulega á 11 ára
stúlku í gærdag. Stúlkan var á
gangi með yngri systur sinni á
Laugavegi á móts við Nóatún þegar
maður réðst skyndilega á hana og
sparkaði í hana. Að því búnu hljóp
árásarmaðurinn í burtu.
Lögreglumenn komu fljótt á vett-
vang og handtóku manninn þar
skammt frá. Maðurinn, sem er um
þrítugt, hefur áður verið tekinn
vegna líkamsárása.
Stúlkan meiddist á hendi þar sem
höggið kom og var flutt á slysadeild.
Hún var á batavegi í gærkvöldi en
var í töluverðu sjokki eftir árásina.
-RR
Stefnir í
bókastríð
„Menn eru ekki enn famir að
lækka en ég á allt eins von á því.
Við byrjuðum með 50 titla á mánu-
daginn og seljum þær bækur með
15% afslætti. Svo komum við til
með að bjóða eina bók á viku með
35% afslætti fram að jólurn," sagði
Jón Ásgeir Jóhannesson í Bónusi.
Þaö verður því hægt að fá jóla-
bækumar á viðráðanlegu verði í ár
ef leitað er eftir því og allt eins víst
að verslanirnar hefji verðstríð þeg-
ar nær dregur jólum. -ingo
L O K I
Veðrið á morgun:
Slydda og
rigning
Á morgun lítur út fyrir all-
hvassa eða hvassa suðaustan-
og austanátt með slyddu eða
rigningu um mestallt land. Hiti
verður á bilinu 0 til 4 stig víð-
ast hvar.
Veðrið í dag er á bls. 52
Heildverslunln BJarkey
Ingvar Helgason