Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997 Fréttir Hreppsnefndarmenn í Kjós funduðu með aðstoðarforstjóra Columbia í gærkvöld: Hreppsnefnd Kjósarhrepps hélt í gærkvöld lokaðan fund með James F. Hensel, aðstoðarforstjóra Col- umbia Ventures, í Félagsgarði í Kjós þar sem rætt var um fyrirhug- að álver á Grundartanga. íbúar Kjósarhrepps hafa mótmælt mjög staðsetningu álversins og telja það verða mengunarvaldandi. „Bandaríkjamaðurinn óskaði eft- ir fundinum en hann breytir engu gagnvart okkar afstöðu í þessu máli. Það merkilegasta sem gerðist á fundinum var að hann upplýsti okkur um að hann hefði komið hér í fyrra og verið boðið að velja sér eitthvert svæði undir væntanlega verksmiðju. Hann sagðist hafa valið Grundartanga og íslensk stjómvöld að hans sögn ekki haft neitt við það að athuga. Mér finnst það með ólík- indum að stjómvöld hafi ekki haft neina umhverfis- eða stóriðjustefnu í þessu máli heldur var útlend- ingunum bara sagt að velja sér stað. Þetta sýnir vel hve ráðamenn meta landið og náttúmna lítils," segir Sigurbjörn Hjaltason, bóndi á Kiða- felli og hreppsnefndarmaður, við DV eftir fundinn sem stóð í rúma þrjá klukkutíma. Mun rústa allt „Ef álverið rís á Grundartanga rústar það allt það sem hefur verið byggt upp hér í hreppnum. Það Frá loku&um fundi bænda og aðsto&arforstjóra Columbia Ventures f Félagsgaröi í Kjós í gærkvöld. DV-mynd verður barist gegn þessu álveri af öllum mætti og við ætlum að fá þessu breytt. Við ætlum ekki að láta fóma náttúrunni fyrir stóriðju. Það er mikið af lífrænum efnasambönd- um í jarðvegi héma sem mengunar- efni bindast í og það er verið að tala um verulegt magn af eiturefnum. í þessari verksmiðju sem á að reisa er t.d. engin tilraun gerð í mengun- arvömum til að hemja brennistein sem veldur súm regni. Umhverfis- mat hefur sýnt að það væri nær að byggja ál- ver á Reykjanesi. Við erum ekki einir í þessu og höfúm fundið fyrir miklum stuðningi, bæði frá almenningi og hátt settum embættis- mönnum. Það gengur fram af fólki hvemig stjórnvöld hafa vaðið áfram í þessu máli án þess að taka tillit til eins né neins. Hollustuvemd og Náttúruvemdarráð hafa gert stórar athuga- semdir við þessar fram- kvæmd. Við emm búnir að blása til sóknar í mál- inu og sókn fólksins gegn stjórnvöldum er hafin. Þetta er upphafið að byltingu fólksins í þessum efiium en hvort Hilmar Þór þetta er upphafið að Sigurbjörn Hjaltason, bóndi á Ki&a- felli og hreppsnefndarma&ur, me& skýrstu um mat á umhverfisáhrifum sem álver mundi hafa á nágrenni Grundartanga. DV-mynd Hilmar Þór endalokum umhverfis- eða iðnað- arráðherra vil ég ósagt láta,“ segir Sigurbjöm. -RR Ætlum ekki að láta fórna náttúrunni fyrir stóriðju - segir Sigurbjöm Hjaltason, bóndi og hreppsnefndarmaður Stuttar fréttir Framtíð Alþýðublaðsins Framtíö Alþýðublaðsins verður ráðin í mánuðinum og nýráðinn ritstjóri, Sæmundur Guðvinsson, er ráðinn til 1. febrúar, að sögn Alþýöublaðsins. 400 km með mjólkina Mjólkursamlag A-Skaftfellinga hefúr verið úrelt og mjólk bænd- anna er nú flutt 400 km leið í MBF á Selfossi. Dagur-Tíminn segir frá. Silfurtún í nauðasamninga Silfúrtún hf. í Garöabæ hefur fengiö heimild til nauöasamninga og er boðin 20% greiðsla upp í kröfúr. Silfurtún framleiðir m.a. vélar til að endurvinna pappír. Viöskiptablaöiö segir frá. Verðbreytingar búvara Sjömannanefnd vinnur að nýiri verðstefiiu í sambandi við búvömr og að sögn RÚV er ætlun- in að lækka vemdartolla á erlend- ar búvörur og grænmeti. Gagnkvæmar veiðiheimildir Botnfiskveiðiheimildir Færey- inga í íslenskri lögsögu verða áfram 5 þús. tonn en auk þess fá þeir heimild til loðnu- og kolmunnaveiða í lögsögunni, samkvæmt nýjum samningi þjóð- anna. RÚV segir frá. Samherji og Hrönn sameinast Samherji á Akureyri og Hrönn, sem gerir út Guðbjörgu ÍS, sam- einuðust í gær. Ætlunin er að gera Guðbjörgina áfram út frá ísafirði. Eignarhlutfall hlutar Hrannar i Samherja er ekki gefiö upp en samkvæmt heimildum DV er það 6%. -SÁ íbúar í Kjósarhreppi berjast gegn fleiri stóriöjuverum á svæðinu: - engar refsileiðir, segir Jón Gíslason bóndi, nágranni við Járnblendiverksmiðjuna mengun sem af henni hlýst. Þeir hafa mótmælt harðlega væntanlegu álveri á Grundartanga. Jón þekkir vel til þessara mála því hann er næsti nágranni við jámblendiverk- smiðjuna, hinum megin Hvalfjarð- ar, og hefur verksmiðjuna fyrir aug- unum á hverjum degi, eins og hann segir sjálfur. „Það er vel hægt að sjá eitur- mökkinn héma yfir og á sumrin hefur hann stundum skyggt á sól- ina. Það er ekki nóg með að hafa Jámblendið með alla sína mengun því nú á að bæta við álveri. Við munum berjast með öllum krafti gegn því að þetta álver rísi hér. Ég á von á að það veröi sett fram skaðabótakrafa á hendur ríkinu fyr- irfram upp á milljarða króna ef þeir ætla ekki að bakka í þessu máli. Við höfum staðfestingu á því frá Hollustuvemd að verksmiðjur af þessu tagi ráða sér fyrirtæki til að framkvæma umhverfismat. Þessi fyrirtæki eiga að vakta verksmiðju- svæðið á eftir en það hefur engin vakt farið fram á þessu svæði frá því Jámblendiverksmiðjan var byggð. Það er greinilegt að þeir sem standa að baki þessum verksmiöj- um fara sínu fram og valta yfir stjórnvöld og alla aðra. Þegar tapið er orðið óheyrilegt er fólkið í land- inu látið borga það í óhóflegum raf- magnsreikningum." Svæ&inu stefnt í voöa „Það er veriö að stefna svæðinu hér í mikinn voða. Þetta er að verða mikið útivistarsvæði og síðasta sumar má segja að hingað hafi flutt um 5 þúsund manns í sumarbústaði og tjöld. Hingað komu fiölmargir ís- lendingar sem útlendingar í berj- atínslu og til að veiða í Laxá. Áin hefur verið helsta tekjulind hrepps- ins og má segja okkar stóriðja. Gjaldeyristekjur af hverjum veidd- um laxi voru 16 þúsund og að með- altali veiddust hátt í 2 þúsund laxar á hverju meðalsumri. Það er mjög mikið í húfi og mér finnst það alger fásinna ef á að fara fórna hreinni náttúru hér fyrir ál- ver. Þetta svæði, sem á að fara und- ir álverið, er gríðarlega stórt og stærra en öll miöborg Reykjavíkur og vesturbærinn samanlagt. Ég sé líka fyrir mér stórauknar skipaferð- ir um Hvalfiörðinn ef hið nýja álver á að rísa hér. Það væri skelfileg til- hugsun ef eitt slíkt skip mundi stranda hér í firðinum ,“ segir Jón. Hann segir að svo virðist sem engar refsileiðir séu til vegna mengunarslysa. „Þeir hafa tilkynningarskyldu, samkvæmt starfsleyfi, þegar um er að ræða bilun. Þá ber þeim að tala við Hollustuvemd en þar viröist málum ljúka því refsileiðir eru ekki til.“ -RR „Það er búið að vera stórfellt mengunarslys hér út af þessari járnblendiverksmiðju. Mengunar- vamabúnaðurinn hefur verið bil- aður í tvö ár og þeir spúa út eitur- gufúm í skjóli nætur þegar þeir halda að enginn sjái til. Ég heyri í þeim þegar þeir era að skrúfa fyrir eitrið á morgnana," segir Jón Gíslason, bóndi á Hálsi í Kjósar- hreppi. Jón og aðrir búar hreppsins berjast harðri baráttu gegn stór- iðju og þeirri Jón Gíslason, bóndi á Hálsi í Kjósarhreppi, telur þa& algera fásinnu a& fórna hreinni náttúru fyrir álver. DV-mynd Hilmar Þór Spúa út eiturgufum í skjóli nætur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.