Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
Fréttir
Framfærsluskýrslan:
Verð á þjónustu hefur
hækkað jafnt og þétt
- meðan verð á landbúnaðarvörum og innfluttum neysluvörum lækkar
Hlutfallslegar verðbreytingar neysluvöru 1968 til 1996
Island og Evrópulöndin:
••
86 '90 '96
Bækur, bloð og timarit
160% dýrari hér á landi
verð á veitingastöðum og hótelum er 42 prósentum hærra hér en í Evrópu
Flæmski hatturinn:
Engin rök til
niðurskurðar
Á síöustu 10 árum hefur verð á
þjónustu hækkað jafnt og þétt hér
á landi. í árslok 1996 nam hækk-
unin á þjónustuliðtim 30 prósent-
um umfram meðalhækkun vísitöl-
unnar. Þetta kemur fram í skýrslu
framfærsluneöidarinnar og segjast
skýrsluhöfunar engar skýringar
hafa á þessu.
Verð á landbúnaðarafurðum
hækkaði jafnt og þétt allt fram til
ársins 1990 en eftir það hefur verð
þeirra lækkað. Telja skýrsluhöf-
undar að ástæða þessa séu þjóðar-
sáttarsamningamir sem gerðir
voru 1990.
Verð á innlendum neysluvörum
hækkaði milli áranna 1986 og 1988
en hefur síöan farið heldur lækk-
andi. Þær lækkanir eru þó ekki í
í skýrslu framfærslunefndarinnar
um samanburð á verði vöru og þjón-
ustu hér á landi og í Evrópulöndum
kemur fram að verð á bókum, blöðum
og tímarihnnn er hvorki meira né
minna en 160 prósentum hærra hér á
landi en í Evrópulöndunum. Og ef
samræmi við verðlækkun land-
búnaðarvara. Verð á innlendum
neysluvörum er nú 10 prósentum
yfír sögulegu meðaltali áranna
1968 til 1996.
Hvað verðlagi innfluttra neyslu-
vara viðkemur lækkaði það á
ártmum 1984 til 1988. Þessu olli
hækkim á raungengi krónunnar.
Síðan hefur verð þeirra farið held-
ur hækkandi en hefur þó ekki náð
fyrrnefiidu sögulegu meðaltali.
í framfærsluskýrslunni kemur
fram að aukin samkeppni hafi haft
jákvæð áhrif á þróun framfærslu-
kostnaðar. Einnig er nefiid til sög-
unnar stóraukin markaðshlutdeild
stórverslana þar sem áhersla er
lögð á lágt vöruverð.
-S.dór
bara eru tekin Norðurlöndin er verð-
ið 130 prósentum hærra á íslandi en
annars staðar á Norðurlöndum.
Annað sem stingur í augu við lest-
ur skýrslunnar er verðiag á veitinga-
húsum og hótelum hér á landi. Það er
42 prósentum hærra en í Evrópulönd-
unum. Og ísland trónir á verðtoppi
Norðurlandanna með 16 prósenta
hærra veitinga- og hótelverð en ann-
ars staðar á Norðurlöndum.
Verð á tómstundavörum er hvergi
hærra en hér á landi og er það 40 pró-
sent yfír meðaltali verðlags í Evrópu-
löndunum. ísland kemur vel út í sam-
anburði á kostnaði við lyf og læknis-
hjálp. Þar erum við 5 prósent undir
meðaltali Evrópulandanna. Sömuleið-
is er verðlag á fiarskiptaþjónustu 40
prósentum lægra hér en í nágranna-
löndunum -S.dór
Flæmski hatturinn:
Engin rök til
niðurskurðar
„Að mínu mati eru engin rök
fyrir því að skera svo mjög mikið
niður veiði á Flæmska hattinum
eins og gert er nú með þessari
nýju reglugerð. Við fórum niður
úr 20 þúsund tonnum niður í sjö
þúsund. Svo er þetta spurning með
kvótann og það verður að tryggja
það þjóðhagslega að hann verði
nýttur. Mér finnst menn fara ailt
of geyst með að setja svona reglu-
gerð,“ segir Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Þórshafiiar og formaður út-
hafsveiðinefndar LÍÚ.
-RR
Dagfari
Ráðuneytisstjóri án ráðuneytis
Vegtyllur geta verið vafasamar.
Einkum ef menn eru komnir
langt i vegtyllunum. Þannig hefur
því miður farið fyrir Bimi Frið-
finnssyni, ráðuneytisstjóra í iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneytinu.
Bjöm er að sjálfsögðu hin hæfasti
maður og fékk skjótan frama í
ráðuneytinu á sínum tíma, enda
góður og gegn alþýðuflokksmaður
þegar Alþýðuflokkurinn stjómaði
þessum ráðuneytum og flokkur-
inn þekkir sitt heimafólk og Bjöm
' var orðinn ráðuneytisstjóri áður
en hann vissi af og ekkert nema
gott um það að segja.
Vegur hans jókst enn og aftur
þegar íslendingar gerðust aðilar
að evrópska efhahagssvæðinu og
þegar Ijóst var að ráðuneytunum
er að mestu stýrt að utan og völd-
in orðin lítil sem engin hér heima
var afráðið að senda Bjöm til að
stjóma málum hjá EFTA ef verða
mætti til að íslendingar réðu ein-
hverju um sín eigin mál.
Þessi frami Bjöms mæltist vel
fyrir og hann fékk sérstakt leyfi
hjá viðkomandi og þáverandi ráð-
herra fyrir utanreisu sinni og þar
dvaldi Bjöm í þrjú eða fjögur ár
við góðan orðstír.
En svo fór að lokum að Bjöm
vildi heim og hafði bréf frá ráð-
herra upp á vasann um að hann
væri velkominn til landsins og í
sína gömlu stöðu, ef hann skilaði
sér til foðurlandsins.
Bjöm pakkaði niður, kvaddi
kóng og prest og hélt heim í sitt
gamla ráðuneyti. Eða svo hélt
hann. Eftirmálin era öllum kunn.
Ráðherranum hafði snúist hugur
og ráðuneytisstjórinn kom að lok-
uðum dyram í ráöuneyti sínu.
Jólin liðu milli vonar og ótta með-
an ráðherrann sagðist vera að
hugsa hvað gera ætti við Bjöm
Friðfinnsson, þennan týnda sauð
sem hafði plagað ráðuneytið meö
tilskipunum og reglugerðum frá
Brassel.
Dagfari gerði þessu deilumáli
nokkur skil í síöustu viku og því
er bæði rétt og skylt að geta þeirr-
ar niðurstöðu sem nú liggur fyrir
í máli Bjöms. Sú farsæla lausn
liggur fyrir að Björn ráðuneytis-
stjóri mim þurfa að bíða eitt ár
eftir að geta orðið ráðuneytis-
stjóri á nýjan leik. Samkomulag
hefúr tekist um það milli Bjöms
og þriggja ráðherra í ríkisstjóm-
inni að Bjöm nýtist best sem
ráðuneytisstjóri án ráðuneytis.
Það þýðir að Bjöm mun þiggja
full laun sem ráðuneytisstjóri án
þess að þurfa að mæta í ráðuneyt-
ið. Eftir því sem fréttir herma
mun hann taka að sér einhvers
konar kynningarstörf í stjómar-
ráðinu sem felast þá væntanlega í
því að ráðuneytisstjórinn sem hef-
ur stjómað íslandi frá Brassel
imdanfarin þrjú ár mun kynna
sér og öðrum hvað stendur í þeim
reglugerðum og fyrirmælum sem
hann hefúr áður sent að utan.
Annars er erfitt að henda reið-
ur á því í hverju störf Bjöms era
fólgin, enda hefur iðnaðarráð-
herra ekki talið að það komi
skattborgurum við, enda þótt
hann úthýsi ráðuneytisstjóra á
fúllum launum og feli honum
störf sem öðrum koma ekki við.
Ráðherrann hefur nefnilega
fundið það út eins og aðrir sem
öðlast vegtyllur í þágu skatt-
borgaranna að vegtyllumar veiti
þeim rétt til að gefa skattborgur-
unum langt nef. Einkum þegar
um er að ræða ráðuneytisstjóra
sem hefúr sjálfur fengið vegtyllu
sem ráðherrann kann ekki að
meta. Svo ekki sé talað um ef
hann kann heldm- ekki að meta
ráðuneytistj órann.
En þetta er allt í finu lagi. Al-
veg eins og stjómvöld hafa komið
sér upp sendiherrum án sendi-
ráða höfum við núna ráðuneytis-
stjóra án ráðuneytis. Þær era
ekki til einskis, vegtyllumar.
Dagfari