Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
Fréttir
Músafaraldur í Fljótum:
Leggst á fé
og gerir bíla
ógangfæra
DV, Fljótum:
Mikið hefur borið á músum í
Fljótum það sem af er vetri og má
líkja við faraldur á nokkrum heim-
ilum, minnast menn vart jafnmikils
músagangs og nú. Einnig hefur tals-
vert orðið vart við rottur.
í þessum músagangi gerðist sá
sjaldgæfi atburður að mús tók sér
bólfestu í kind. Ekki var hún þó
búin að særa kindina til skaða þeg-
ar eigandinn uppgötvaði hvers kyns
var. Mörg ár eru síðan mýs hafa
lagst á kindur hér um slóðir en áður
fyrr, á tímum toribygginga, munu
nokkur dæmi hafa verið um slíkt.
Mýsnar hafa valdið tjóni á nokkr-
um heimilum. Þær hafa komist í
bíla og dráttarvélar og nagað sund-
ur áklæði og leiðslur þannig að tæki
hafa orðið ógangfær. í nokkrum til-
fellum hafa mýsnar komist inn í
íbúðarhús en þar vill oft verða erfitt
að koma svo smávöxnum gestum út
aftur. Þá hafa mýs víða komist í
heyrúllur og nagað göt á plastið og
því er líklegt að eitthvað af heyi
skemmist af þeirra völdum.
Eins og jafnan áður reynir fólk
ýmsar veiðiaðferðir í baráttu við
mýsnar. Kisi virðist besta vömin
því á heimilum þar sem köttur er
veröur minna vart við mýs. Einnig
hefur mikið verið eitrað en slíkt
virðist þó í mörgum tilfellum aðeins
slá á músaganginn um tíma en síð-
ar fjölgar dýrunum aftur. Ennfrem-
ur eru spenntir bogar og gildrur en
með misjöfnum árangri.
-öþ
Jóhannes Runólfsson viö bfl slnn sem mýs geröu ógangfæran þegar hann
var ab heiman í nokkra daga.
DV-mynd Örn
Sjómaður í Keflavík um kvótann:
Kolkrabbinn og Sambandið
að skipta þessu á milli sín
DV, Suðurnesjum:
„Það er enginn sáttur við fiskveiði-
stjómunina. Þetta er skrípaleikur og
það skrýtnasta sem hefúr verið fund-
ið upp. Þetta er komiö á tvær hend-
ur. Kolkrabbinn og Sambandið
skipta þessu á milli sín og eru aö
kaupa upp sitt hvert sjávarplássið
eftir þörfum. Eitt er víst að kerfíð á
eftir að hrynja. Þaö getur ekki annað
gerst nema við séum svo miklir
krypplingar aö við látum dansa á
okkur það sem viö eigum eftir ólif-
að,“ sagði Ámi Eðvaldsson, sjómaður
sem gerir út Njörð KE. Báturinn er
fimm tonn aö stærö.
„Það eru sömu aðilamir sem leigja
fiskinn á markaöinum. Það era þeir
sem eiga peninga og láta svo kryppl-
ingana veiöa, þá sem era með lítinn
kvóta. Það era stór skip meö 3-5.000
tonna kvóta sem era að veiða 2 þús-
und tonn fyrir aöra og borga svo köll-
unum 50 krónur fyrir kilóiö."
Ámi hefur tekið bát sinn á land í
Keflavík til að skipta um vél og laga
hann. Hann hefur tæplega 70 tonna
þorskkvóta sem hann dundar við að
veiða út kvótatímabilið.
„Það er um 100 tonn sem ég fiska
yfir tímabiliö ef með era taldar aðrar
tegundir en þorskur. Það er bullandi
þorskur úti um allt og alltof mikið af
honum. Ég veiði þar sem fiskurinn
er og er mikiö fyrir austan."
Hann rær einn á bátnum og veiðir
á línu en er á handfærum á sumrin.
Hann byijaði á sjó þegar hann var 10
ára og hefur nánast verið á sjó síðan
í ein 40 ár. -ÆMK
Árnl vlö bát sinn f smábátahöfninni f Keflavfk.
DV-mynd ÆMK
Guöni viö trukkinn.
DV-mynd ÆMK
55 ára trukkur í Geröahreppi:
Átti að endast í
eitt sumar 1954
en gengur enn
DV, Suðurnesjuin:
„Bíllinn átti bara að endast í
eitt sumar en ég nota hann enn í
dag. Það era 43 ár síðan ég keypti
hann. Þetta er búið að vera
skemmtilegur tími. Það var nóg
að gera hér á áram áður fyrir
mig og bílinn. í dag hefur vinnan
dregist saman sem er allt í lagi.
Ég er það gamall og er ekki eins
snarpur og ég var áður fyrr,“
sagði Guðni Ingimundarson bif-
reiðarstjóri, 73 ára íbúi í Gerða-
hreppi, í samtali við DV.
Guðni á trukknum, eins og
hann er kallaöur, keypti 1954 tólf
ára gamlan, stóran trukk af tog-
arafélagi í Reykjavík fyrir 45 þús-
und krónur. Bíllinn er með spili
og stórri bómu og lyftir rúmum
tveimur tonnum.
„Ég tók að mér vinnu við
vatnsveituna í Gerðahreppi og
þurfti að hífa gijót upp úr skurð-
um. Bíllinn átti einungis að end-
ast meðan á því verki stóð. Þegar
verkið var búið um sumarið var
stanslaust verið að hringja í mig.
Bíllinn var notaður í alla jarð-
vinnu um öll Suðumesin.
Þetta var eina tækið sem gat
lyft og var mikið þarfaþing. Ég
var frá morgni til kvölds og
stundum á nóttinni líka, meðal
annars að hífa grjót upp úr
skurðum og sprengjumottur. Ég
var einnig með loftpressu. Þaö
var óhemjumikið að gera alveg til
1973 þegar kranar og lyftarar
komu til sögunnar á Suðumesja-
svæðið. Frá þeim tíma hef ég
unnið við að hífa litlu bátana upp
á bryggju í Sandgerði og Kefla-
vík. Bíllinn er mjög góður og ég
sé ekki annað en hann eigi eftir
að endast mig,“ sagði Guðni Ingi-
mundarson. Hann er fæddur og
uppalinn í Gerðahreppi. -ÆMK
Loðna og síld:
Rífandi uppgangur
Veiðar á síld og loðnu hafa geng-
ið mjög vel undanfama daga, að
sögn Freysteins Bjamasonar hjá
Síldarvinnslunni í Neskaupstað.
Beitir NK landaði 1100 tonnum af
loðnu í gær og er þegar kominn aft-
ur með hálffermi. Jón Sigurðsson
frá Grindavík hefur verið að fá
850-900 tonn og Börkur NK hefur
þrisvar sinnum landað 200-250 tonn-
um af síld. Freysteinn sagði vera
hug í mönnum, þeir hefðu trú á að
framhald yrði á enda væri mikið
um að vera þessa dagana.
„Það er rífandi uppgangur í veið-
um og vinnslu og mikill hugur í
mönnum," segir Freysteinn.
-ggá
Reykjavík:
Fjórir handteknir
Ejórir menn vora handteknir eft-
ir innbrot í bíla á Klapparstíg í fyrr-
inótt.
Mennimir voru handteknir á
staðnum eftir að sjónarvottur lét
lögreglu vita. Þeir gistu fanga-
geymslur lögreglu.
-RR
Þrettándagleði fór vel fram
Að sögn lögreglu fór þrettánda-
gleði einstaklega vel fram um allt
land.
Engar fréttir bárast af slysum á
fólki þrátt fyrir að víða hafi verið
brennur og flugeldum skotið á loft.
Að sögn Leifs Jónssonar, læknis á
slysadeild, var mjög rólegt þar í
gærkvöld og í nótt og engin umtals-
verö slys á fólki.
-RR