Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
15
Ofbeldi í umferðinni
Umferðarofbeldi er hegðun sem
á sér stað í umferðinni og getur
valdið skaða á heilsu eða manns-
lífum. Umferðarreglur eru settar
til að vernda fólk. Brot á umferð-
arreglum er dæmi um umferðarof-
beldi.
Hugsanlegt er að umferðarof-
beldi hafi ákveðinn tilgang, t.d. að
komast áfram leiðar sinnar. Ungir
ökumenn læra fljótt að mestar lík-
ur eru að jafnaði á að sá sem beit-
ir umferðarofbeldi komist upp
með það en þegar umferðarreglum
er fylgt þá fylgir oft ósigur, t.d.
lengri biðtími eða áhorf á um-
ferðarofbeldi annarra en ekkert
sérstakt gerist hjá þeim.
í einni rannsókn, sem var gerð í
Bandaríkjunum, var kannað
hvaða hegðun leiddi helst til
árekstra ökutækja. Athugun fór
fram á tæplega tveim milljónum
lögregluskýrslna. „Hættulegur
akstursmáti" var tiltekinn af lög-
reglumönnum sem ástæða fyrir
55,7% árekstranna. Hættulegur
keyrslumáti var flokkaður í: að
víkja ekki, að aka of hratt og að
keyra of nálægt næsta bíl en það
leiddi til u.þ.b. helmings árekstra.
Ökumaður, sem ekki var með at-
hygli við aksturinn, kærulaus
akstur og að virða ekki umferðar-
skilti orsökuðu 27% árekstranna.
Umferðarofbeldi
Atferlisfræðingar hafa gert vís-
indatilraunir þar sem þeir hafa
reynt að minnka tíðni brota í um-
ferðinni. Sem dæmi af atferli sem
þeir hafa athugað er: ökuhraði,
notkun sætisbelta, notkun stefiiu-
ljósa, ólögleg notkun bílastæða
fyrir fatlaða o.fl. Niðurstöður til-
rauna hafa sýnt að umferðarhegð-
un sé hægt að breyta með ýmsum
hætti, t.d. með því
að veita viður-
kenningu fyrir að
fylgja reglum,
veita upplýsingar
um að brot hafi
verið framið strax
eftir hrotið, minna
oft á umferðarregl-
una rétt áður en
brot er líklegt,
minna á upphæð
sektarinnar sem
fylgir því að vera
tekinn fyrir að brjóta ákveðna
reglu. Mikilvægasta niðurstaða
hagnýtra tilrauna er að ef fólki er
veitt viðurkenning fyrir að fýlgja
reglum lærist sú hegðun en ef umi
ferðarofbeldi er hegðunin sem
borgar sig að jafhaði þá lærist hún
„Hægt væri einnig að nota myndavélar við ákveðin gatnamót til að verðlauna þá sem fylgja reglum í stað þess
sem nú er ætlunin, þ.e. að sekta ökumenn sem ekki hlýða reglum," segir Gabriela meðal annars í grein sinni.
frekar.
Af niðurstöðum tilrauna í atferl-
isfræði er hægt að draga ályktanir
um hugsanlegar aðgerðir sem
gætu dregið úr umferðarofbeldi.
„Mikilvægasta niðurstaða hag-
nýtra tilrauna er að ef fólki er
veitt viðurkenning fyrir að fylgja
reglum þá lærist sú hegðun en ef
umferðarofbeldi er hegðunin
sem borgar sig að jafnaði þá
lærist hún frekar.“
Lögreglumenn eða ökukennarar
gætu reglulega fylgst með öku-
mönnum um tíma, tekið niður bíl-
númer og sent eigendum bíla „til
hamingju-nótu“ hafi þeir farið eft-
ir reglum umferðarinar meðan
áhorf varaði. Hægt væri einnig að
nota myndavélar við
ákveðin gatnamót til
að verðlauna þá sem
fylgja reglum í stað
þess sem nú er ætlun-
in, þ.e. að sekta öku-
menn sem ekki hlýða
reglum. Eigendur bíla
sem fara eftir reglum
við þessi gatnamót
gætu fengið happ-
drættismiða. Auglýsa
þyrfti vinningshaf-
ann vel.
Rannsóknir í atferl-
isfræði hafa einnig
leitt í ljós að um-
hverfið þar sem at-
ferli fer fram skiptir
máli. Mikilvægt er að
fækka áreitum sem ———
geta kallað á um-
ferðarofbeldi. í hugann kemur
gatnakerfið, t.d. fjöldi ein-
stefnugatna og aðgangur að hrað-
brautum. Of margar hraðahindr-
Kjallarinn
Z.Gabriela
Sigurðardóttir
Ph.D., atferlisfræðingur
anir og umferðarljós,
sem eru sett upp til
að auka öryggi, gætu
hugsanlega aukiö lík-
umar á umferðarof-
beldi því þau fá öku-
menn til að upplifa
tafir sem þeir reyna
að vega upp á móti
með auknum öku-
hraða og broti á um-
ferðarreglum þegar
tækifæri gefst. Mikil-
vægt er að hugsa
alltaf út í mat á ár-
angri aðgerða ef
koma á í veg fyrir
eyðslu í úrræði sem
geta aukið á vandann
eða eru árangurslaus.
■ Nauðsynlegt er að
kanna hvemig
ástandið er áður en reynt er að
breyta þvf svo að viðmiðun fáist
fyrir mat á árangri aðgerða.
Z. Gabriela Sigurðardóttir.
Svikamylla kolkrabbans
Nýja sjávarútvegsfyrirtækið
Samherji hf. er nýjasta dæmið um
eignatilfærslur frá íslensku þjóð-
inni. Nú þegar þetta fyrirtæki fer
á verðbréfamarkað áætla verðbré-
fasalar sölu hlutabréfanna á
hundraðföldu nafnverði. Eignir
fyrirtækisins era taldar um 65
milljónir króna en verða seldar á
verðbréfamörkuðum fýrir um 6-8
milljarða. Sem sagt meira en sex
milljarða hagnað-
ur á einni nóttu!
Ástæðan er fisk-
veiðikvótar sem
ríkisstjómin hefur
fært aðstandend-
mn hins nýja fyr-
irtækis á silfur-
fati. Nú skal kvót-
inn, sem bitlaður
var fáeinum út-
völdum, seldur
þjóðinni í formi
hlutabréfa. Að sjálfsögðu geta að-
eins þeir sem betur standa þessa
stundina meðal almúgans keypt
góssið og er þeim að sjálfsögðu
boðinn skattafsláttur í kaupbæti.
Þeir sem minna hafa umleikis
geta étið það sem úti frýs og er
engin ástæða talin að bitla þeim
arði af auðlindinni.
Símsenda aflann
í stað þess að afla sér og sínum
tekna með heiðarlegum fiskveið-
um gerir kolkrabbinn nú út á
spilamennsku þjóðarinnar í hin-
um nýju spilakössum bankanna.
Enda er það alveg óþarft tilstand
að standa upp fyrir haus árum
saman í slímugum fiskitrollum
þegar með einfaldri svikamyllu er
hægt að renna önglinum í vasa
hins óbreytta íslendings eftir
fimmþúsundköllunum. Aflakónar
landkrabbans eru búnir að upp-
götva hve miklu einfaldara er að
Bubbi foringi heyrir
ekki sultarsönginn
Þó að Bubbi foringi heyri ekki
suitarsöng almúgamannsins á ís-
landi virðist garnagaulið hafa ein-
hvem slagkraft úr því að reglusyst-
ur móður Theresu em mættar til
Reykjavíkur í þeim tilgangi að
hjálpa fátækum. Það
er orðiö allískyggilegt
þegar nunnur yfirgefa
stræti Kalkútta, sem
löngum hefur verið
talin ein fátækasta
borg heimsins, til að
beita kröftum sínum í
hafnarstrætum í
Reykjavik.
Óprúttnir foringjar
hafa löngum náð mikl-
um tökum á fylgi-
sveinum sínum sem
fylgja klíkunni í von
um bitlinga í eigin
þágu á kostnað hinna
sem utan standa.
Fylgifiskar foringj-
anns sjá ekki svika-
mylluna þvi eins og
blindir kettlingar liggja þeir á spen-
anum. Þannig fylgja heldri borgar-
ar íslensku þjóðarinnar Bubba
kóng án þess að spá nokkuð í kvik-
syndi fátæktarinnar sem sífellt
fleiri landar þeirra sökkva í. Að
lokum mun áramótakóróna foringj-
ans ein standa upp úr með yfir-
skriftinni: Sér grefur gröf...
Ástþór Magnússon
„Þó svo að Bubbi foringi heyri ekki
sultarsöng almúgamannsins á ís-
landi virðist garnagaulið hafa ein-
hvern slagkraft úr því að reglu-
systur móður Theresu eru mættar
tll Reykjavíkur í þeim tilgangi að
hjálpa fátækum.u
símsenda aflann úr
landi í gegnum
bankakerfið en að
standa í einhverju
slorugu fiskistandi,
nú þegar Alþingi er
búið að festa kvótann
við skipin og lögleiða
svikamylluna.
Talsmenn kol-
krabbans skilja ekk-
ert í því að rætt sé
um fátækt á íslandi.
Bubbi kóngur lýsti
því sjálfur í áramóta-
ræðu sinni hvemig
tveir fjölmiðlar
landsins hafa hrópað
úlfúr, úlfur þegar ís-
lendingar hafa aldrei
haft það betra.
Kjallarinn
Ástþór Magnússon
stofnandi Friöar 2000
Me5 og
á móti
Á Póstur og sími að ganga
________í VSÍ?_______
Auðveldar
samningsgerð
„Póstur og sími gerðist beinn
aðili að Vinnuveitendasamband-
inu um áramótin og sú aðild tek-
ur til þess hluta rekstrarins sem
sinnt er af öðrum starfsmönnum
en þeim sem
nú eru í Póst-
mannafélaginu
(PFÍ) og Félagi
íslenskra síma-
manna (FÍS)
eða u.þ.b.
fimmtungs
starfsmanna.
Markmiðið
með þessari
aðild er að auð-
velda samn-
ingsgerð í
komandi kiarasaraningum. Þeir
starfsmenn hjá Pósti og síma
sem em utan FÍS og PFÍ eiga í
raun og vem aðild að um 100
stéttarfélögum og því mikiö mál
fyrir Póst og síma aö standa í
samningum við öll þessi félög,
jafnvel þó þau séu innan heildar-
samtaka.
Önnur ástæða fyrir þessari
breytingu er sú að Póstur og sími
er ekki lengur ríkisfyrirtæki.
Við teljum því eðlilegt að fyrir-
tækið sé í því samningsumhverfi
sem nú er á almennum vinnu-
markaði. Áfram verður samið
við PFÍ og FÍS um kjör þeirra
starfsmanna sem nú eru í þeim
stéttarfélögum. Aðildin að VSÍ
Guðmundur Björns-
son, framkvæmda-
stjórl Pösts og
sima hf.
snýr eingöngu að þeim aðilum
sem em ekki innan þessara
tveggja félaga í dag. Vitaskuld
viljum við vinna með starfsfólk-
inu og það væri auðvitað slæmt
ef það myndaðist einhver gjá
milli starfsmannafélaganna og
okkar. En það er hlutur sem við
erum að vinna í að leysa en ekki
að breikka gjána.“
Orð skulu
standa
„Það er grundvallaratriði í
samskiptum aðila sem semja um
eitthvað að þeir komi til samn-
ingaviðræðna af fullri hrein-
skilni. Það hefúr Póstur og sími
ekki gert gagn-
vart PFÍ og
FÍS. Allt frá
fyrstu viðræð-
um ráðuneytis-
ins við þessi
félög í tilefni af
hlutafélaga-
væðingu Pósts
og síma var
því marglýst
af ráð-
herra og öllum sem við áttum í
viðræðum við að ekki yrði geng-
ið 1 VSÍ og það áréttað margoft.
Það kann ekki góðri lukku að
stýra að kúvenda í miðjum
samningaviðræðum og koma þá
með einhverjar hæpnar skýring-
ar. ú' M
Þær skýringar sem við höfum
fengið hafa verið afar óljósar á
allan hátt, svo ekki sé meira
sagt. T.d. aö þeir vilji komast
sem næst því sem gerist á frjálsa
markaðinum! Það er líka ein-
kennileg pólitík að halda að þeir
geti valiö um það hvar fólk er í
stéttarfélögum af því einu að þeir
hafi gengið í raðir VSÍ. Á sama
tíma og fyrirtækið hefur verið að
semja við PFÍ og FÍS hefur það
verið í viðræðmn við VSÍ um
inngöngu án þess að láta neitt
uppi um það við viðsemjendur
sína. Svona vinnubrögð eru eng-
um sæmandi. Ef þeir halda að
þeir fái betri samninga við inn-
gönguna hlýtur það að þýða
verri samninga viö okkar fólk. Ef
þessi vitneskja hefði legið fyrir í
upphafi samningaferilsins hefði
samningaferlið verið með öðrum
hætti en raun varð á. Orð skulu
standa. -ingo