Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1997, Side 32
L«TTt
til íniWAs \/||, flö
N »
~> *
Vinningstölur
7.1/97
Í20N) (26) Í30)
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1997
Akureyri:
Drengur
fyrir bíl
Átta ára drengur varð fyrir bíl á
gatnamótum Skarðshlíðar og Litlu-
t^filiðar á Akureyri um kvöldmatarleyt-
ið i gær. Drengurinn fékk höfuðá-
verka og var fluttur á gjörgæsludeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur í Fossvogi
með flugi síðar um kvöldið. Slíkt mun
nánast vera regla þegar um höfuðá-
verka er að ræða. Að sögn sérfræð-
ings á gjörgæsludeOd Sjúkrahúss
Reykavíkur virðist hafa farið betur en
á horfðist og er líðan drengsins góð.
______________________-JHÞ
ísaQörður:
Lífsbjörgin
tekin
„Þetta sannar bara enn einu sinni
íádl^ð með kvótalögunum var lífsbjörgin
tekin frá vinnandi fólki og atvinnuör-
yggi þess og örlög, fjöregg þess, sett á
fárra manna hendur. Þetta fjöregg
geta þeir svo selt hveijum sem er
hvenær sem er,“ sagði Pétur Sigurðs-
son, formaður Verkalýðsfélagsins
Baldurs á ísafirði um söluna á frysti-
togaranum Guðbjörgu ÍS til Sam-
herja á Akureyri.
Hann segir dæmin um þetta mörg
en þetta með Guðbjörgu ÍS sé bara
svo stórt og því sé eftir því tekið.
-S.dór
Marta Bergmann, félagsmálastjóri HafnarQarðar:
Lág laun að eyði-
leggja þjóðfélagið
- það er eins og ráðamenn skilji ekki eða vilji ekki skilja þetta
„Það er eins og ráðamenn skiiji
ekki eða vilji ekki skilja hvað það
vindur upp á sig að halda launum
fólks niðri árum saman, eins og
gert hefur verið og hvað það þýð-
ir í raun fyrir þjóðfélagið. Auðvit-
að þýðir það bara aukna fjarveru
fólks frá heimili og börnum og af-
leiðingamar eru fjölskyldueifið-
leikar. Fólk þolir einfaldlega ekki
endalaust það mikla álag sem fylg-
ir því að vinna botnlausa auka-
vinnu til þess eins að hafa ofan í
sig og á, bara vegna þessarar fá-
ránlegu láglaunastefnu sem ríkir í
þjóðfélaginu. Það er alveg sama
hvort fólk er að þræla í eftirvinnu
eða bara að leggja kapal, sem
dæmi munu vera um, þetta kallar
á mikla fjarveru frá fjölskyldunni
og afleiðingamar sjá allir,“ sagði
Marta Bergmann, félagsmálastjóri
í Hafnarfirði, um aukna fátækt í
landinu og erfiðleika fólks þess
vegna.
Hún segir að þetta sé mjög al-
varlegt fyrir þjóðina frá uppeldis-
legu sjónarmiði. Hún segir aga-
leysi blasa hvarvetna við í þjóðfé-
laginu.
„Það er vegna þess að foreldrar
koma heim dauðþreyttir eftir
langan vinnudag og geta því ekki
sinnt bömum sínum sem skyldi.
Þetta leiðir síðan til sífelldrar
morgunþreytu, ergelsis og margs
fleira sem er neikvætt fyrir alla.
Það liggur alveg ljóst fyrir að þjóð-
in þolir þetta ekki lengur. Þessu
verður að breyta," segir Marta.
Hún var spurð hvort þeim hefði
fjölgað fyrir síðustu jól sem leit-
uðu aðstoðar Félagsmálastofnun-
ar Hafharfjarðar:
„Eftir að heldur hafði dregið úr
aðstoðarbeiðnum á árinu fjölgaði
beiðnum rnn aðstoð mjög fyrir jól-
in. Þetta var meira en við áttum
von á. Þetta virðist vera þannig að
róðurinn þyngist hjá þeim ein-
staklingum sem hafa hvað
minnstar tekjur. Langtíma tekju-
leysi veldur því að fólk frestar
mörgu sem þarf að leysa, svo sem
eins og að fara til tannlæknis og
annað þvi um líkt. Svo er allt í
einu ekki hægt að fresta málinu
lengur og þá verður að leita að-
stoðar.
Ég hef tilfinningu fyrir því að
munurinn á þeim sem hafa litlar
tekjur og þeim sem hafa góðar
tekjur fari vaxandi, bOið sé að
breikka. Það eru ákveðnir hópar í
þjóðfélaginu sem hafa litlar tekjur
og róöurinn hjá þeim þyngist sí-
fellt. Samt var það svo með síðasta
ár að það var ekki eins þungt hér
hjá okkur á Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar og árið áður. Það
mætti segja mér að þetta sé vegna
þess að heldur hefur dregið úr at-
vinnuleysinu. Samt fmnur maður
að byrði þeirra fátækari eykst,“
sagði Marta Bergmann.
-S.dór
Lítill drengur sem brenndist í hver:
Nauösynlegt
er aö girða
hverasvæðið
- segir faðir drengsins
~ - „Ég var í vinnunni þegar ég fékk
þessar skelfilegu fréttir, að litli
drengurinn minn hefði fallið ofan í
sjóðheitan hver. Ég hljóp út í bíl og
gaf bensínið í botn. Það fóru ótal
hugsanir um kollinn á mér og ég
verð að viðurkenna að ég bjóst við
hinu versta," segir Bjami Halldórs-
son, faðir þriggja ára drengs sem
brenndist alvarlega í hver á Reyk-
hólum laugardaginn 28. desember
sl.
Drengiuinn hlaut djúp brunasár
á um 20 prósentum líkamans og
brenndist annar handleggurinn sér-
staklega illa. Drengurinn er nú á
batavegi og var úrskrifaður af gjör-
gæsludeild Landspítalans um helg-
(jfcína.
Bjarni og eiginkona hans hafa
verið hjá syni sínum á spítalanum
allan þennan tíma.
Bjami gagnrýnir mjög að
hverasvæðið vestur á Reykhólmn
skuli ekki vera girt af. Þar hafi tvö
slys orðið með þessum hætti á
undanfömum ámm. Þá telur Bjarni
að það taki of langan tíma að senda
allar upplýsingar áður en þyrlan er
send á vettvang.
„Það liðu rúmir fjórir klukkutím-
ar ffá því að slysið átti sér stað og
þar til þyrlan kom með hann á
Landspítalann. Mér fannst of langur
timi líða á þarna á milli. Það er
greinilegt og að það er krafist miklu
meiri upplýsinga og læknaúrskurð-
ar áður en þyrlan er send á vett-
vang en ef um sjúkrabíl væri að
ræða. -RR
Bjarni Halldórsson ásamt þriggja ára syni sínum, Birgi, á deild 13 E á landspítalanum í gær. Birgir litli brenndist al-
varlega þegar hann féll ofan í sjóöheitan hver á Reykhólum. Bjarni segir aö þaö veröi aö giröa hverasvæðið af svo
börn fari sér ekki aö voöa þar. DV-mynd ÞÖK
ÞAÐ HEFUR pk
VERIÐ STÁL í ÁL!
Veöriö á morgun:
Dálítil
él
Á morgun verður norðaustan
stinningskaldi norðvestan til en
austan kaldi í öðrum landshlut-
um. Um landið norðan og austan-
vert verða dálítil él en skýjað með
köflum suðvestan til. Frost verður
á bilinu 0 til 6 stig, mildast á Suð-
ur- og Suðvesturlandi.
Veðrið í dag er á bls. 28
MERKILEGA MERKIVELIN
brother
íslenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgeröir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar i tvær llnur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443