Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1997, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997
Neytendur
Korniö í Kópavogi með vikuleg tilboð:
Mikil framleiðni lykillinn
Bakaríið Komið í Kópavogi hef-
ur nú í töluverðan tíma verið með
nýstárleg og neytendavæn tilboð
nokkrum sinnum í viku. Fyrstu
tilboðin hófust fyrir fimm árum
og standa enn. Þau felast í því að
fimmtudagar eru svokallaðir
kökudagar en þá eru langflestar
kökur á 200 kr. en nokkrar teg-
undir á 250 kr. Undirtektir voru
góðar og fyrir tveimur árum
hófust brauðdagar á miðvikudög-
um þar sem öll brauð, eða yfir 30
tegundir, em seld á 100 kr. Komið
hefur einnig komið á sætabrauðs-
dögum á fostudögum en þá er allt
sætabrauð á 50 kr.
Að sögn Rögnvalds Þorkelsson-
ar framkvæmdastjóra hafa komið
fram óskir um fleiri brauðdaga og
í kjölfarið munu tilboðin einnig
verða á þriðjudögum. Rögnvaldur
segist halda verðinu niðri með
meiri sölu og mikilli framleiðni,
enda séu ofnarnir svo fullkomnir
að það taki því ekki að setja i þá
kannski einungis 10 stykki af
hverri brauðtegund þegar hægt sé
að baka 100 stykki.
Nú er Komið með í deiglunni
að hafa nokkurs konar rjómadaga
um helgar en að sögn Rögnvalds á
eftir að útfæra það, enda er rjómi
dýr vara.
-ggá
Rögnvaldur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Kornsins, segir tilboðsdagana svo vinsæla að þeim fari stöðugt fjölg-
andi. Nú eru tilboð á brauði tvisvar í viku en ekki vikulega eins og verið hefur.
DV-mynd ÞÖK
Appelsínur:
Breyttir taxtar hjá Pósti og síma:
Hollar og
Ijúffengar
Appelsínur eru sívinsælar enda
sérlega hollur og næringarríkur
ávöxtur sem gerir öllum gott.
Appelsínur eru kannski sérstak-
lega góðar til neyslu núna í
skammdeginu þegar C-vitamín-
þörf okkar er meiri en ella enda
em fáar matvörar jafh ríkar af
þessu nauðsynlega bætiefni.
Appelsínurnar sem era til sölu
á þessum tíma árs koma margar
hverjar frá Spáni og eru þær á
boðstólum fram í maí eða júni en
á sumrin era þær frá fjarlægari
löndum á borð við S-Afríku, Bras-
ilíu, Argentínu og Chile. Afbrigð-
in era mörg enda breytir ávöxtur-
inn sér eftir árstíðum. T.d. era
þær misstórar, sumar hafa svo-
kallaðan „nafla“ eða eitthvað sem
líkist einni lítill appelsínu innan i
eiginlegu appelsinunni o.s.frv.
Appelsínur eru súrastar þegar
nýtt afbrigði kemur á markaö
með nýju tímabili en verða sætari
þegar á líður og era sætastar
mánuðina áður en næsta tímabil
gengur í garð. Því ættu appelsín-
ur að vera ljúffengar núna enda
eru þær á mjög góðu þroska-
skeiöi.
-ggá
Koma illa við
notendur Internetsins
Póstur og sími hækkaði talsímagjöld sín innanlands ný-
lega og hefur talan 14% oft heyrst i því sambandi. Hækk-
unin fólst í því að skrefið hækkaði ekki en var aftur á móti
stytt úr fjórum mínútum og niður í þrjár.
Gylfl Gunnarsson, rafeindavirki og kennari við Fram-
haldsskóla Vestfjarða, hefur reiknað nákvæmlega út kostn-
að símtala miðað við lengd. Kemur þar í ljós að hækkunin
er mjög misjöfn eftir lengd símtalsins. Gylfl segir Póst og
síma oft miða prósentuhækkunina við þriggja mínútna
símtal sem hann segir vera býsna stutt eða „hálfgert skila-
boðasimtal“ eins og hann orðaði það. Gylfi segir vægi upp-
hafsskrefa símtals vera ofmetið sem geri það að verkum að
hækkunin verði sífellt meiri eftir því sem símtalið lengist.
Þetta komi síðan sérstaklega niður á notendum Intemets-
ins.
Neytendasíðan hafði samband við Hrefnu Ingólfsdóttur,
upplýsingafulltrúa P&S. Hún sagði fyrirtækið aldrei sjálft
hafa gefið upp neina ákveðna prósentuhækkun, eingöngu
krónutölu enda væri hækkunin mjög misjöfn. Hrefna tók
undir að hækkunin næmi um og yfir 30% þegar um löng
símtöl væri að ræða þar sem fýrsta skrefið skiptir engu
máli. En hún bætti við að örstutt símtöl hefðu jafnvel ekki
hækkað neitt. „Miðað við raunveruleikann, engin mara-
þonsímtöl heldur þau sem flestir hringja, er hækkunin í
kringum 14%. Algengasta lengd á simtölum á daginn er 3-5
mínútur,“ sagði Hrefna.
En fyrir notendur Intemetsins er hætt við að það léttist
í buddunni. Þannig er hækkunin á tíu mínútna samtali
23,81% á dagtaxta, tuttugu mínútna samtal hækkar um
27,78%, þrjátíu mínútna samtal hækkar um 29,41% og sam-
kvæmt þessum sömu tölum nemur hækkunin 31,25% sé um
klukkutíma símtengingu að ræða. -ggá
Hækkun Pósts og síma kemur þyngst viö þá sem eru tengdir
lengi í gegnum síma, hvort sem er í samtali eöa vegna Inter-
netsins. Sé um klukkutíma tengingu aö ræöa fer hækkunin um
og yfir 30%.
Heillaráð um
fatakaup
Þegar þú ert í hugleiðingum
um fatakaup, og þá sérstaklega
þegar kaupa á sparifót, er ráðlegt
að hafa eftirfarandi i huga:
- Reyndu að áætla hversu oft
þú munt nota flíkina og deildu
síðan þeim fjölda í kaupverðið til
að finna út kostnaðinn við hvert
skipti sem flíkin er notuö.
- Sértu kona í leit að kjól er
gott ráð að finna einfaldan kjól á
góðu verði og eyða þá frekar i ým-
iss konar aukahluti. Það eykur
líkumar á notagildi kjólsins.
- Athugaðu vel leiðbeininga-
miðann á flíkinni. Hreinsunin ein
og sér gæti orðið þér mun kostn-
aðarsamari en sjálf flíkin.
Húsráð fýrir
heimilið
- Ef þú átt kálmeti í ísskápn-
um, sem er orðið lint og farið að
láta á sjá, er upplagt að blanda 2-3
matskeiðum af ediki út í hálffulla
skál af vatni og láta kálið liggja
þar í hálftíma. Kálið stinnist og
fær fallegri áferð.
- Til að hreinsa fitu- og olíu-
bletti af yfirhöfnum er gott að láta
smávegis uppþvottalög með
þvottaefninu.
- Til að fá meiri gljáa á viðar-
fleti er snjallt að nota nokkra
dropa af ólívuolíu. Gljáinn er fal-
legri og helst lengur.
- Ef þú átt í erfiðleikum með að
opna krukkur er gráupplagt að
setja á sig gúmmihanska og reyna
aftur. Þeir veita rétta viðnámið og
krakkan opnast auðveldlega.
- Það næst mun meiri safi úr
sítrónum ef þeim er fyrst stungið
inn i örbylgjuofn þar til þær era
volgar.
- Hundum dettur ekki í hug að
míga við hliðið hjá þér ef þú
sprautar smávegis sótthreinsun-
arlegi á það.
- Og köthun er meinilla við
garða sem rifnum appelsínuberki
hefur verið stráö í. Svo er hann
góður fyrir jarðveginn.
- Ef þú ert í timaþröng má
losna við mestu krumpumar í
þunnum efnum með þvi að blása
á þær með hárþurrku eitt augna-
blik.
TUNGUMÁLANÁMSKEIÐ
Kennt er í byrjenda-, framhalds- og talæfingaflokkum.
ENSKA - DANSKA- NORSKA - SÆNSKA
FRANSKA - ÍTALSKA - SPÆNSKA -
ÞÝSKA - KATALÓNSKA - ÍSLENSKA fyrir útlendinga
og fjöldi annarra námskeiða.
Innritun í símum:
564-1527, 564-1507 og 554-4391 kl. 17-21