Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Blaðsíða 15
4
+
14
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
27
Iþróttir
íþróttir
Skvassmót
Um helgina veröur haldið
skvassmót í Veggsporti en það
hefur mikið vægi því eftir úrslit-
um þess verður íslendingum rað-
að inn í Norðurlandamótið sem
verður í Veggsporti í lok febrú-
ar.
Mótið um helgina gefur einnig
punkta til íslandsmóts og verður
leikið í öllum flokkum karla,
kvenna og unglinga. Mótið hefst
á fóstudagskvöldið og því lýkur
með úrslitaleikjum klukkan 13 á
laugardag.
-JKS
Úrvals golfferö
Úrval-Útsýn er aö skipuleggja golf-
ferð í fyrsta sinn fyrir Úrvals-fólk.
Úrvals-fðlk er félagsskapur fólks sem
er 60 ára og eldra og hefur nú um
4.000 félaga. Það er mjög einfalt að
ganga í klúbbinn, einfaldlega aö
koma við á skrifstofu Úrvals-Útsýnar
eða umboði eða bara að hringja og
láta skrá sig.
Þann 9.-19. apríl verða golferðir
fyrir Úrvals-fólk til Algarve í Portú-
gal og Islantilla á Spáni. Fyrstu sex
dagana verður gist á hinu vinsæla
hótel Brisa Sol í Albufeira og aðal-
lega spilað golf á Pinc Cliffs golfvell-
inum. Pinc Clifs er stuttur, glæsileg-
ur 9 holu völlur i 10 mínútna aksturs-
fjarðlægð frá hótelinu. Síðustu fjóra
dagana verðm- fariö til Islantilla en
þangað er klukkustimdar akstur frá
Albufeira. Gist verður á hinu glæsi-
lega 4 stjömu Conforetl Islantilla Hot-
el og spilað golf á Islantilla Golf club.
Islantilla er mjög skemmtilegur 27
holu golfvöllur í hæsta gæðaflokki.
Þessi golfferð er skipulögð meö það
í huga að allir geti veriö með. Byrj-
endur og háforgjafarkylfingar eru
sérstaklega velkomnir jafnt og þeir
sem era lengra komnir. Sigurður Haf-
steinsson, kylfingur úr GR og fyrrum
landsliðsmaöur í golfi, verður farar-
stjóri í ferðinni en hann hefur verið
ráðinn hjá Úrval-Útsýn sem um-
sjónarmaður fyrir Úrvals-kylfinga.
Þessi ferð kostar frá kr. 77.500 á
mann miðaö viö staögreiðslu. Inni-
falið er flug, gisting með morgun-
verðarhlaðborði á Islantilla, 5 golf-
hringir í Algarve og ótakmarkað golf
í Islantilla í fjóra daga, akstur milli
flugvallar og hótela erlendis og skatt-
ar.
Nánari upplýsingar um þessa stór-
skemmtilegu ferð er hjá golfdeild Úr-
vals-Útsýnar í Lágmúla 4, s. 569-9300,
eða hjá Sigurði Hafsteinssyni í Gull-
golfi, s. 587-2221.
-GH
Bikarglíma íslands
haldin að Laugarvatni
Bikarglíma íslands verður
haldin í 25. sinn að Laugarvatni
á laugardaginn kemur. Flugleið-
ir gefa öll verðlaun til mótsins.
Keppendur að þessu sinni veröa
á annað hundrað og hafa aldrei
verið fleiri í sögu bikarglímunn-
ar. Glímd verður jafhaðarglíma
með útsláttarfýrirkomulagi.
Keppt verður í fjórum flokkum
karla og þremur flokkum
kvenna. Mótið hefst stundvíslega
klukkan 14.
-JKS
Um helgina
Frjálsar íþróttir
Meistaramótið innanhúss fer fram
um helgina. Keppt er á morgun í
Baldurshaga kl. 9.30-13 og í
Kaplakrika kl. 15.30-18.30. Á
sunnudag er keppt i Kaplakrika kl.
9.30-10.15 og 1 Baldurshaga kl.
13-15.30.
Körfubolti:
Úrvalsdeildin:
ÍA-TindastóU.............F. 20.00
Njarðvík-KFÍ ............F. 20.00
1. deild kvenna:
ÍR-Breiðablik ...........L. 16.00
KR-Grindavík.............S. 20.00
Handbolti:
1. deild karla:
ÍBV-ÍR ..................L. 16.30
1. deild kvenna:
Fram-FH..................L. 15.00
ÍBA-KR....................L. 16.30
Vikingur-Stjaman.........L. 16.30
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Miami Heat á
góðri siglingu
- Shaquille O’Neal frá í 8-10 vikur
Nú er komið í ljós að Shaquille
O’Neal verður frá keppni í 8-10 vikur
vegna meiðsla á vinstra hné. Meiðslin
reyndust alvarlegri en haldið var í
fyrstu. Lakers lék án Shaqs í nótt gegn
Denver og lék liðið vel og uppskar eftir
því.
Úrslit leikja í NBA í nótt:
Miami-Indiana....................106-90
New York-Philadelphia ...........107-92
Dallas-Golden State .............99-107
Denver-LA Lakers ...............117-132
Utah Jazz-Portland...............110-86
Sacramento-LA Clippers ..........105-98
LA Lakers gekk vel í nótt þrátt fyrir
fjarveru Shaquille O’Neal. Del Harris,
þjálfari Lakers, var líka ánægður og
segir liðið í mikilli uppsveiflu um þess-
ar mundir. Nick Van Exel skoraði 30
stig og Eddie Jones 22. Bryant Stith
skoraði 26 stig fyrir Denver.
Miami fór á kostum í öðrum leikhluta
gegn Indiana og vann hann, 34-10, og
sagði Pat Riley, þjálfari Miami, að þetta
hefði verið það besta sem hann hefði
séð til liðsins í vetur. Þetta var enn-
fremur áttundi sigur liðsins í röð.
Alanzo Mouming skoraði 29 stig og tók
13 fráköst. Reggie Miller skoraði 14 stig
fyrir Indiana.
Aflan Houston skoraði 28 stig fyrir
Houston í nótt og Charles Oakley 21 stig
og þau öll í síðari hálfleik. Latrell
Sprewell skoraði 28 stig fyrir Golden
State.
John Stockton var með 13 stoðsend-
ingar gegn Portland. Hann skoraði 17
stig en Karl Malone var stigahæstur hjá
Utah með 24 stig. Kenny Anderson skor-
aði 15 stig fyrir Portland.
-JKS
Eddie Jones og félagar í Los Angeles Lakers unnu
Denver Nuggets á útivelli í nótt. Jones lék mjög vel
f leiknum og skoraöi 22 stig.
Hreinn
með 2
fyrir Ayr
Hreinn Hringsson,
knattspymumaður úr
Þór á Akureyri, skoraði
tvö mörk fyrir skoska 2.
deildar liðið Ayr United
þegar það sigraði Queen
of the South, sem leikur í
sömu deild, 5-3, í æflnga-
leik í gær. Hann átti að
auki þátt í einu af hinum
mörkunum.
Leikurinn var settur
upp fyrir Hrein, sem hef-
ur æft með Ayr að undan-
fómu. Um daginn skoraði
hann tvö mörk í æfmga-
leik með öðm 2. defldar
liði, Dumbarton.
Ekki er ólíklegt að
Hreini verði boðinn
samningur hjá Ayr til
vorsins en að öllu
óbreyttu spilar hann með
Þórsurum í 2. deildinni í
sumar. -VS
Ríkharður Daðason
Mjög
ánægður
í Grikk-
landi
„Ég er mjög ánægður með
veru mína hér í Grikklandi. Ég
er aflur að koma til, hef æft mjög
vel við bestu aðstæður og finn að
formið er að koma. Þá kann ég
mjög vel við þjálfarann og mann-
skapinn hjá liðinu,“ sagði Ríkharður Daðason, markakóng-
ur úr KR, við DV í gær en eins og fram hefur komið í DV
gerði Rikharður samning við gríska 1. deildar liðið
Kalamata fram tfl vorsins.
Ríkharður lék í fyrrakvöld með varaliði félagsins sem
vann 3-0 sigur á 3. deildar liði. Ríkharður lék í 60 mínútur
og skoraði fyrsta markið í leiknum.
„Ég reikna með að vera valinn i 16 manna hópinn sem
leikur stórleikinn gegn toppliðinu Olympiakos á mánudag-
inn og er bjartsýnn á að fá að spreyta mig í leiknum. Það er
mikill áhugi í bænum fyrir þessum leik og búist við troðfufl-
um vefli,“ sagði Ríkharður. -GH
Geir Sveinsson er eftirsóttur:
Wuppertal
líklegast
- 5 þýsk 1. deildar lið sýna Geir áhuga
Okkur skorti grimmdina
- sagði Tómas Holton,
„Það var synd hvemig þessi leik-
ur fór fyrir okkur. Það var eins og
okkur skorti grimmdina í lokin.
Baráttan var góð lengstum og ég er
á margan hátt sáttur með leik okk-
ur þrátt fyrir tapið. Við erum á sigl-
ingu og ég er bjartsýnn á framhald-
ið,“ sagði Tómas Holton, þjálfari
Skaflagríms, eftir tapið gegn KR á
Nesinu í gærkvöld, 78-77.
Leikurinn var hraður og ágæt-
lega leikinn. Hittnin var á köflum
þjálfari Skallagríms
stórgóð og mátti vart á mifli sjá
hvort liðið hefði betur en KR-ingar
reyndust sterkari í lokin.
Jónatan Bow og Roney Eford
voru bestir hjá KR og Hermann
Hauksson átti góða spretti.
Bragi Magnússon átti frábæran
leik fyrir Skallagrím i vöm og sókn.
Grétar Guölaugsson komst vel frá
sínu og Tómas Holton stendur
ávaflt vel fyrir sínu og drífur menn
sína áfram. -JKS
DV, Suðurnesjum:
Pétur fór á kostum
- þegar Grindavík vann ÍR örugglega
ingar sigraðu, 90-74.
Eftir mjög dapran fyrri hálfleik
var áflt annað að sjá til heima-
manna í þeim síðari.
Herman Meyers var bestur
heimamanna auk Péturs sem lék
stórkostlega i vöminni. Marel átti
einnig góða spretti.
Hjá ÍR-ingum, sem léku vel í fyrri
hálfleik, var Eggert Garðarsson
bestur og Eiríkur Önundarson lék
einnigvel. -ÆMK
„Vömin var ekki til staðar hjá
okkur í fyrri hálfleik. Friðrik þjálf-
ari las yfir okkur í hálfleik og þetta
small saman í síðari hálfleik. Með
svona vamarleik vinnur ekkert lið
okkur,” sagði Pétur Guðmundsson,
Grindvíkingur, en hann hélt Tito
Baker, ÍR, í strangri gæslu allan
leikinn og skoraði Baker ekki nema
tvö stig í síðari hálfleik. Grindvík-
Haukar með hangandi hendur
Haukar þurftu ekki að hafa mikið fyrir því aö sigra Þór ffá Akureyri
í ákaflega slökum leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í Hafnarfiröi í
gærkvöld.
Þórsarar höfðu tveggja stiga forskot í leikhléi en í síðari hálfleik tóku
Haukarnir öll völd á vellinum og hreinlega kláraðu leikinn á fyrstu mín-
útum hálfleiksins.
Haukamir komu í leikinn með hangandi hendi og spiluöu langt undir
getu enda greinilega ekki með hugann við leikinn. í síðari hálfleik náðu
þeir að hressa upp á leik sinn og þá var ekki að sökum að spyrja. Shawn
Smith og Pétur Ingvarsson vora bestir Hauka en i mjög slöku Þórsliði
var Fred Williams skástur en hann lenti fljótt í villuvandræöum og fór
af velli þegar 9 mínútur vora eftir. -GH
6-3, 16-5, 25-13, 31-24, 33-29, 35-35,
37-37, (40-37). 42-42, 4048, 57-61, 71-6,
71-70, 70-74, 78-77.
Stig KR: Jónatan Bow 20, Roney
Eford 20, Hermann Hauksson 16, Hin-
rik Gunnarsson 8, Ingvar Ormarsson
7, Birgir Mikaelsson 6.
Stig Skallagr.: Bragi Magnússon
21, Joe Rhett 20, Grétar Guðlaugsson
13, Tómas Holton 12, Ari Gunnarsson
5, Þórður Helgason 4, Gunnar Þor-
steinsson 2.
Fráköst: KR 36, Skallagrimur 35.
3ja stiga körfur: KR 3, Skalla-
grímur 8.
Dómarar: Helgi Bragason og Berg-
ur Steingrímsson, ágætir en nokkuð
smámunasamir.
Áhorfendur: 100.
Maður leiksins: Bragi Magnús-
son, Skallagrimi.
0-3, 7-3, 9-13, 11-18, 19-25, 28-39,
33-46, (38-52), 43-52, 51-53, 66-63,
76-71, 87-71, 90-74.
Stig Grindavíkur: Herman
Meyers 33, Marel Guölaugsson 14,
Pétur Guðmundsson 12, Páll Axel Vil-
bergsson 11, Unndór Sigurösson 9,
Helgi Jónas Guðfinnsson 8, Jón Kr.
Gíslason 3.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 22,
Eggert Garðarsson 22, Tito Baker 13,
Atli Þorbjömsson 9, Guðni Einarsson
6, Atli Sigþórsson 2.
Fráköst: Grindavik 28, ÍR 28.
3ja stiga körfur: Grindavík 7, ÍR
5.
Dómarar: Leifur S. Garöarsson og
Sigmundur M. Herbertsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 180.
Maður leiksins: Pétur Guð-
mundsson, Grindavík.
Nokkur þýsk 1. deildar lið í Þýska-
landi hafa sett sig í samband við Geir
Sveinsson, landsliðsfyrirliða í hand-
knattleik og leikmann Montpellier í
Frakklandi, með það í huga að fá
hann í sínar raðir á næsta keppnis-
tímabili. Þá vill Wuppertal, lið þeirra
Ólafs Stefánssonar, Dags Sigurðsson-
ar og Viggós Sigurðssonar þjálfarara
fá Geir en hann hefur lýst því yfir að
hann ætli ekki að framlengja samn-
ing sinn við Montpellier.
„Jú, það er rétt. Það hafa ein 4-5
úrvalsdeildarlið í Þýskalandi sýnt
mér áhuga en eins og staðan er í dag
er Wuppertal sterkasti kosturinn. Ég
er búinn að líta á aðstæður hjá því og
sjá einn leik og sannast sagna líst mér
mjög vel á liðið og ekki skemmir það
fyrir að geta leikið með Degi og Óla.
,“ sagði Geir í samtali við DV í gær.
Geir sagðist ætla að fara vel yfir
stöðuna áður en hann tæki ákvörðun
og sjá hvað hin félögin, sem hefðu
sýnt honum áhuga, hefðu fram að
færa.
„Ég ætla að vera búinn að ákveða
mig áður en ég kem heim í landsliðs-
undirbúninginn fyrir HMþannig að
málin ættu að vera komin á hreint í
marsmánuði."
Geir og félagar leika síðari leik
sinn gegn spænska liðinu Granollers
í EHF-keppninni á sunnudaginn og
fer leikurinn fram á Spáni. Montpelli-
er vann fyrri leikinn með eins marks
mun og á því á bfattann að sækja.
„Við erum ekkert búnir að afskrifa
þetta dæmi og ég er hóflega bjartsýnn
á að við komumst áfram. Þessi lið
þekkja vel hvort annað. Þau léku tvo
leiki á undirbúningstímanum og hafa
fylgst vel með hvert öðra í deilda-
keppninni. Ég tel að heimavöllurinn
muni ekki skipta svo miklu máli
heldur muni dagsformið ráða miklu
um hvort liðið fer áfram.“ sagði Geir.
-GH
rr.
KEILA
17. umferð í 1. deild karla og
16. umferð í 1. deild kvenna fóra
fram í fyrrakvöld. Hæsta leik
karla átti Halldór Sigurðsson í
Keilugörpum, 246. Halldór átti
einnig hæstu seríu, 650 stig.
Hæsta leik liðs áttu Keilugarpar,
835, og hæstu seríu liðs átti
Keilulandssveitin, 2357.
Hæsta leik kvenna átti Theó-
dóra Sif Pétursdóttir í Tryggða-
tröllum, 223. Theódóra átti
einnig hæstu seríu, 581 stig, og
hæsta leik liðs átti Tryggðatröll,
735 stig. Hæstu seríu liðs áttu
Keilusystur, 2017 stig.
Úrslit í 1. deild 17. umferðar
karla uröu þessi:
Keilulandssveitin-PLS........6-2
Lærlingar-KR-b...............6-2
Stormsveitin-Keflavik-b .....2-6
ET-KR-a .....................0-8
Úlfamir-Keilugarpar..........4-4
Úrslit í 16. umferð 1. deildar kvenna:
Aftimgöngur-Flakkarar .......2-6
Keiluálfar-Tryggðatröll .....0-8
Bombumar-Keilusystur.........0-8
Lærlingar era efstir í 1. deild karla
með 102 stig, Keilulandssveitin 88
stig, PLS 84 stig, Stormsveitin og
Keilugarpar 80 stig. í 1. deild kvenna
era Afturgöngumar efstar með 106
stig, Flakkarar með 98 stig og
Bombumar era í þriðja sæti með 56
stig.
-JKS
Kluivert fer
til AC Milan
Bjarni Guðjónsson:
Newcastle biður
um verð frá ÍA
Skagamenn munu gefa enska knattspymufélaginu Newcastle upp það kaupverð sem félagið
vill fá fyrir Bjarna Guðjónsson um eða eftir helgina. Hins vegar er búist við að Liverpool sendi
ÍA tilboð í Bjarna næsta þriðjudag.
„Við höfum verið í sambandi við bæði félögin í vikunni og óskuðum eftir því við þau bæði
að þau gerðu okkur tilboð i Bjama. Forráðamenn Liverpool vora til í það en Newcastle vildi að
við settum upp það verð sem við vildum fá. Nú þurfúm við að finna hinn gullna meðalveg í þess-
um málum og munum leita ráða hjá hinum nýja þjálfara okkar, Ivan Golac, sem kom í gær-
kvöldi (fyrrakvöld). Hann er þrautreyndur í svona málum,“ sagði Gylfi Þórðarson, formaður
Knattspymufélags ÍA, í samtali við DV í gærkvöldi.
Kapphlaup Newcastle og Liverpool um Bjarna er því hafið fyrir alvöra en hann kom heim í
fyrrakvöld eftir dvöl hjá Newcastle. „Félögin tortryggja hvort annað og við þurfúm að gæta þess
að fara rétt að en munum að sjálfsögðu koma heiöarlega ffam við afla aðila," sagði Gylfi.
„Nú þarf ég bara að bíða þolinmóður og koma mér í stand aftur eftir ökklameiðslin sem ég
varð fyrir hjá Newcastle. Þau era ekki alvarleg,“ sagði Bjami Guðjónsson. -VS/GH
Bjarni Guöjónsson á æfingu hjá Newcastle á dögunum ásamt Terry McDermott
þjálfara og Kenny Dalglish framkvæmdastjóra.
4-1, 8-3, 10-11, 16-27, 27-35, (36-38),
41-38, 56-42, 63-46, 72-52, 81-61, 89-65.
Stig Hauka: Shawn Smith 21, Pét-
ur Ingvarsson 21, ívar Ásgrímsson 10,
Jón Amar Ingvarsson 9, Bergur Eö-
varðsson 7, Þröstur Kristinsson 5,
Daníel Ö. Ámason 5, Sigurður Jóns-
son 5, Björgvin Jónsson 2.
Stig Þórs: Fred Williams 19, Kon-
ráð Óskarsson 13, Hafsteinn Lúðvíks-
son 12, Þórður Steindórsson 7, Böðv-
ar Kristjánsson 4, Bjöm Sveinsson 4,
Högni Friðriksson 4, John Cariglia 2.
3ja stiga körfur: Haukar 4, Þór 2.
Vítanýting: Haukar 18/25, Þór
17/18.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Antonio Ciullo, höfðu góð tök á leikn-
um.
Áhorfendur: Um 100.
Maður leiksins: Shawn Smith,
Haukum.
Einar Einarsson, þjálfari Haúka, tók
þá ákvörðun að hvíla hinn sterka Sig-
fús Gizurarson í leiknum gegn Þór í
gærkvöldi. Sigfús er nýstiginn upp úr
erfiðum meiðslum.
Það var fariö að fara um margan
stuðningsmann Haukanna er Þórsar-
ar náðu dágóðu forskoti i fyrri hálf-
leik. Heimamenn náðu þó að rétta úr
kútnum og vinna öraggan sigur þrátt
fyrir að leika ekki eins og liðið á aö
sér.
Breiðablik (42) 71
Keflavík (53) 111
2-3, 6-10, 10-12, 15-25, 20-34, 27-41,
31-50, (42-53), 45-53, 56-74, 59-88, 67-97,
71-111.
Stig Breiðabliks: Clifton Buch 25, Ein-
ar Hannesson 17, Agnar Olsen 9, Erlingur
S. Erlingsson 8, Óskar Pétursson 7, Pálmi
Sigurgeirsson 5.
Stig Keflavíkur: Falur Harðarson 24,
Kristján Guðlaugsson 19, Guðjón Skúla-
son 19, Kristinn Friðriksson 12, Damon
Johnson 10, Albert Óskarsson 8, Gunnar
Einarsson 8, Halldór Karlsson 5, Elentín-
us Margeirsson 4, Birgir Öm Birgisson 2.
3ja stiga körfur: Breiðablik 2, Keflavík
15.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og
Kristján Möller, ágætir.
Áhorfendur: Um 50.
Maður leiksins: Kristján Guðlaugs-
son, Keflavík.
Blikamir eru faílnir
Lið Breiðabliks er fallið í 1. deild karla
í körfúboltanum. Þó ljóst hafi verið í allan
vetur hver árangur liðsins yröi féll liðið
ekki tölfræðilega fyrr en í gærkvöldi.
Keflvíkingar tóku Blikana í kennslu-
stund á öllum sviðum körfuboltans og er
óþarfi að hafa fleiri orð um leikinn.
-SK
ÚRVALSDEILDIN
Keflavík 18 15 3 1745-1476 30
Grindavík 18 15 3 1722-1580 30
Haukar 18 12 6 1501-1433 24
ÍA 17 11 6 1344-1290 22
Njarðvik 17 10 7 1437-1388 20
KR 18 9 9 1544-1484 18
ÍR 18 8 10 1526-1507 16
Skallagr. 18 8 10 1460-1521 16
Tindastóll 17 7 10 1394-1413 14
KFÍ 17 6 11 1376-1432 12
Þór, A. 18 5 13 1427-1585 10
Breiðablik 18 0 18 1268-1635 0
Barátta Blika gegn Keflavík i Smár-
anum í gærkvöld var aðdáunarverð.
Þrátt fýrir vonlausa stöðu liðsins í
deildinni og engin kynni af sigrum í
vetur börðust leikmenn liðsins vel og
Birgir Guðbjömsson hvatti sina
menn óspart áfram.
Litagleði var ríkjandi á meðal dóm-
aranna i Grindavik i gærkvöld. Leifur
S. Garðarsson mætti til leiks með
bleika flautu og Sigmundur Már Her-
bertsson með fjólubláa.
Jón Kr. Glslason átti frábærar
stoðsendingar á félaga sína gegn ÍR í
Grindavík. Hann skorar að jafhaði
ekki mikið í leikjum en stoðsendingar
hans eru ofl á tíðum hreint konfekt og
jafhast auðvitað á við fallegar körfur.
Ásthildur Helgadóttir á leiö heim frá Þýskalandi:
„Ákvað að fara
áður en ég færi að
borga með mér“
- Praunheim stóö ekki viö samninginn
Asthildur Helgadóttir, knattspymukona
ársins 1996 sem leikið hefúr með þýska lið-
inu Praunheim, hefúr ákveðið að snúa aftur
heim eftir skamma dvöl hjá félaginu. Áætl-
að hafði verið að hún dveldi í Þýskalandi
fram í júní en af þvi verður ekki.
„Þau stóðu ekki við það sem búið var að
lofa mér og ég ákvað að fara áður en ég býrj-
aði að borga með mér. Að öðra leyti fannst
mér ágætt að vera þarna úti og æfmgamar
voru góðar. Samskipti við þjálfarann, Mon-
icu Staab, vora hins vegar ekki eins og þau
ættu að vera. Hún hagar sér eins og einræðisherra inn-
an félagsins. Hún vildi gera við mig tveggja ára samn-
ing, áður en staðið yrði við þau loforð sem
hún lofaði mér áður en ég fór út. Ég hef
fengið skólavist í góðum skóla í Bandaríkj-
unum í haust svo ég var ekki tilbúin að
gera slíkan samning og ákvað að drífa mig
heim,“ sagði Ásthildur Helgadóttir í sam-
tali við DV í gærdag þar sem hún var stödd
í Lúxemborg á leið sinni heim.
Það verður mikill fengur fýrir íslandsmeist-
ara Breiðabliks að fá Ásthfldi aftur í sínar
raðir en fyrirfram var ekki gert ráð fyrir
því að hún myndi spila með liðinu í deilda-
bikamum né fyrstu leikjum íslandsmótsins.
-ih
Hollenski landsliðsmaðurinn
Patrick Kluivert hjá Ajax
hefur ákveðið að gera fjög-
urra ára samning við ítalska
liðið AC Milan. Samningur
þessa 20 ára gamla framheija
við Ajax rennur út í vor og
hafa margir af stóru klúbb-
unum í Evrópu verið á hött-
unum eftir honum, þar á
meðal Inter Mflan,
Barcelona, Real Madrid og
Arsenal. AC Milan þarf ekki
að greiða Ajax neina upphæð
fyrir Kluivert þar sem samn-
ingur hans við Ajax er að
renna út en ljóst er að laun
hans hjá félaginu verða ekk-
ert slor.
Kluivert mun hitta tvo af sín-
um bestu vinum þegar hann
kemur til Milan en Edgar
Davis og Michael Reizinger,
fyrrum félagar Kluiverts hjá
Ajax, gerðu samning við Mil-
an fyrir þetta tímabil. -GH
Svíar unnu
Svíar sigraðu Rúmena, 1-0, á
fjögurra þjóða knattspymumót-
inu í Bangkok í gær og skoraði
Anders Andersson sigurmarkið
á 14. mínútu. Þá lögðu Tælend-
ingar lið Japana, 1-0. Svíar og
Tælendinar leika til úrslita á
mótinu og Japanar og Rúmenar
leika um þriöja sætið. -GH
Ólafur í bann
Aganefnd HSÍ úrskurðaði á
fundi sínum í fyrradag Ólaf Sig-
urjónsson, leikmann úr ÍR, í eins
leiks bann og tekur Ólafur bémn-
ið út á laugardag þegar ÍR sækir
Eyjamenn heim í 1. deildinni.
Jason í ham á
afmælisdaginn
Jason Ólafsson og félagar í
Leutershausen unnu góðan úti-
sigur á Wiesbaden, 26-27, í
þýsku 2. deildinni í handbolta í
fýrrakvöld, eins og fram kom í
DV í gær. Jason, sem varð 25 ára
sama dag, átti stórleik með
Leutershausen, var markahæst-
ur með 6 mörk og fékk mikið
hrós í þýskum blöðum í gær.
Sagt var að mörk hans hefðu öll
verið á mikilvægum augnablik-
um og hann hafi gert útslagið á
lokakaflanum. -VS