Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997
9
DV
Útlönd
Ásakanir um aö Kínverjar hafi gefið í kosningasjóð demókrata:
Clinton styður ítarlega
rannsókn á málinu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann styddi ítarlega
rannsókn á ásökunum þess efhis að
Kínverjar hefðu gefið umtalsverðar
fjárhæðir í kosningasjóð demókrata
fyrir forsetakosningamar í fyrra.
Stjómmálaflokkunum í Bandaríkj-
imum er óheimilt að taka á móti er-
lendum styrkjum í kosningasjóði
sína. Clinton sagðist ekki vita neitt
um þær ásakanir sem hirtust í dag-
blaðinu The Washington Post en
sagði að þær þyrfti auðsjáanlega að
rannsaka ofan í kjölinn.
„Það er grafalvarlegt mál ef ann-
að ríki reynir að beina fjármagni í
kosningasjóði flokkanna, sama hver
tilgangurinn er,“ sagði Clinton á
blaðamannafundi vegna heimsókn-
ar Benjamins Netanyahus, forsætis-
ráðherra ísraels.
Þessi orð Clintons féllu skömmu
eftir að sérstök nefnd öldungadeild-
ar bandaríska þingsins, sem rann-
saksir möguleg hrot á kosningalög-
unum, hafði gefið út 52 stefnur
vegna öflunar gagna frá demókröt-
um. Demókratar mótmæltu en allar
stefnumar virtust tengjast kosn-
ingabaráttu þeirra í fyrra.
Formaður nefndarinnar fullyrti
að hér væri enn einu sinni um mót-
þróa demókrata að ræða. Hann full-
vissaði alla um að rannsóknin yrði
framkvæmd af mönnum úr báðum
flokkum.
John McCain, þingmaður repú-
blikana, sem berst fyrir endurskoð-
un laga um fjárstuðning við flokk-
ana í kosningabaráttu, krafðist þess
að sérstakur saksóknari yrði settur í
málinu. Hann sagðist hafa leitað til
Jents Reno dómsmálaráðherra í tví-
gang um skipun sérstaks aðila til að
fara ofan í saumana á meintri mis-
notkun kosningasjóðanna en verið
Bill Clinton.
hafnað. Hafi Reno fullyrt að starfs-
fólk ráðuneytisins væri fullfært um
að annast rannsóknimar. McCain
fullyrðir að síðustu fréttir muni fá
Reno til að skipta mn skoðun.
í einni, forsíðufrétt The Washing-
ton Post, er fjallað um að Kínverjar
hafi ítrekað reynt að beina fé í kosn-
ingasjóði demókrata fyrir flokks-
þingið síðastliðiö haust. Einn höf-
unda hennar er Bob Woodward,
annar blaðamannanna sem fletti
ofan af Watergate-hneykslinu sem
leiddi síðar til afsagnar Richards
Nixons. í annarri frétt segir frá
samtölum Harolds Ickes, fyrrum
starfsmannastjóra í Hvíta húsinu,
þar sem hann ræðir 500 þúsund
dollara framlag í kosningasjóði. í
ijósi þessara frétta hafa raddir um
sérstakan saksóknara í málinu orð-
ið æ háværari.
Hjá kínverska sendiráðinu í Was-
hington fúllyrða menn að þeir hafi
ekki gert neitt ólöglegt. Reuter
Dauðadómur
yfir Rushdie
ítrekaður
Múslímar um allan heim
munu ekki unna sér hvíldar fyrr
en þeir hafa ráðið breska rithöf-
undinn Salm-
an Rushdie af
dögum. Þetta
er haft eftir
íranska bylt-
ingarverðin-
irni í dagblað-
inu Jomhuri
Eslami í Te-
heran í íran í
gær. Var yflrlýsingin gefln út í
tilefni þess að átta ár era liðin
síðan Khomeini lýsti Rushdie
réttdræpan vegna meints guð-
lasts í bókinni Söngvar Satans.
Á miðvikudaginn tilkynntu
íslömsk trúarsamtök að meira fé
hefði verið sett til höfuðs
Rushdie.
Rithöfundurinn nýtur lög-
regluverndar allan sólarhring-
inn og hefur veriö í felum und-
anfarin ár. Á síðastliðnu ári
kom hann þó fram opinberlega
oftar en áður. Evrópusambandið
hefur harmað að meira fé skuli
hafa verið sett til höfúðs rithöf-
undinum. Reuter
Leikkonan Elísabet Taylor, sem ver&ur gu&mó&ir sonar Jacksons, er hér me& sjónvarpskonunni Barböru Walters. í
vi&tali vi& Barböru lýsti Taylor því yfir a& hún ætlaði aö vera vi&stödd fæ&ingu sonar Jacksons. Símamynd Reuter
Michael Jackson
hamingjusamur faðir
Söngvarinn Michael Jackson og
eiginkona hans, Debbie Rowe
Jackson, eignuðust son í gær, að því
er sagði í yfirlýsingu frá talsmanni
söngvarans. „Það er ekki hægt að lýsa
með orðum hvernig mér líður,“ var
haft eftir Jackson í tilkynningunni.
Söngvarinn kveðst ætla að vinna
að því að verða eins góður faðir og
hann mögulega getur. Hann vonar
að aðdáendumir virði ósk hans um
að sonurinn fái að alast upp í friði
fyrir athygli umheimsins. „Ég ólst
upp í fiskabúri og ég vil ekki að því
verði þannig háttað með mitt bam.“
í tilkynningunni um fæðingu
bamsins var hvorki greint frá því
klukkan hvað það hefði fæöst né
hversu stórt og þungt bamið var.
Hins vegar var greint frá því að það
hefði fæðst á sjúkrahúsi i Beverly
Hills og að móðir og bam hefðu yfir-
gefið sjúkrahúsið um klukkan 4 síð-
degis í gær.
Éjöldi ljósmyndara og fréttamanna
höfðu beðið fýrir utan sjúkrahúsið
alla nóttina en ekki tókst að ná
mynd af mæðginunum.
Elísabet Taylor kvikmyndaleik-
kona verður guðmóðir litla drengs-
ins. Hún lýsti því yfir í viðtali við
Barböra Walters, sem sjónvarpað
verður í kvöld en tekið var upp fyrr
í vikunni, að hún ætlaði að vera við-
stödd fæðingu sonar Jacksons. Ekki
er ljóst hvort sú hafi verið raunin.
Taylor lýsir því jafnframt yfir í við-
talinu að hún sé búin að fá nóg af
hjónaböndum. Reuter
HERRAR
munið valentínusardaginn,
14. febrúar.
Þú færð undirfötin hennar
hjá okkur.
K ii oíí ífú
Laugavegi 66
sími 551 2211
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. febrúar 1997 hefst innlausn á
útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 25. útdráttur
1. flokki 1990 - 22. útdráttur
2. flokki 1990 - 21. útdráttur
2. flokki 1991 - 19. útdráttur
3. flokki 1992 - 14. útdráttur
2. flokki 1993 - 10. útdráttur
2. flokki 1994 - 7. útdráttur
3. flokki 1994 - 6. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
föstudaginn 14. febrúar.
Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi
í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
E&h HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 6900