Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Page 7
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997
Fréttir
7
Hjartasjúklingur gerður gjaldþrota fyrir 30 þúsund krónur:
Ég var eyðilagður og
ríkið tapaði stórfé
- lægri fjárhæðir fara almennt ekki í gjaldþrot, segir tollstjóri
„Mér fiimst mjög grátlegt að toll-
stjóraembættið skuli gera menn
gjaldþrota þegar þeir eru að vinna
sig upp úr veikindum. Ég fór í
hjartaskurðaðgerð og var ekki svo
skuldsettur að ég væri með eitthvað
í vanskilum að ráði. Gjaldþrota-
beiðnin kom vegna 85 þúsund króna
skuldar. Ég bauðst til þess að borga
10 þúsund inn, var sagt að ég slyppi
ef ég borgaði 40 þúsund en það gat ég
ekki. Því má segja að ég hafi verið
gerður gjaldþrota fyrir 30 þúsund
krónur,“ segir karlmaður sem finnst
að illa hafi verið staöið að málum
hans hjá Tollstjóranum í Reykjavík.
Maðurinn, sem ekki vill láta
nafiis síns getið vegna fjölskyldu
sinnar, segist hafa gert grein fyrir
því fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
að með því að gera hann gjaldþrota
væri verið að kasta peningum skatt-
borgaranna á glæ. Það kostaði toll-
sfjóra 150 þúsund krónur að gera
hann gjaldþrota og síðan myndi rík-
isbanki tapa einni milljón króna
sem hann hafi haft þar að láni og
ekki verið með í vanskilum.
„Fyrst svona var staðið að málum
missti ég allan áhuga á því að reyna
að greiða skuldir mínar. Búið var að
lýsa mig gjaldþrota og mér finnst allt
vafstrið í kringum málið hafa verið
með ólíkindum. Þetta var alveg til-
gangslaust gjaldþrot, eyöileggur mig
algerlega og skaðar þjóðfélagið þar
sem það tapaði þeim peningum sem
ég skuldaði. Það má vel vera að
stundum sé nauðsynlegt að gera
menn gjaldþrota, ekki síst ef þeir
hafa staðið í svindli og svínaríi. Það
eina sem ég gerði af mér var að verða
alvarlega veikur," segir maðurinn.
Hinn gjaldþrota maður segir að
gjömingur tollstjóra skipti griðar-
lega miklu máli fyrir hvem þann
sem lendir í því að vera gerður
gjaldþrota. Hann segir það hafa
bjargað sér að eiga konu sem hafi
ávísanahefti og greiðslukort.
„Ég var síður en svo skuldum vaf-
inn en um leið og beiðni um gjald-
þrot kom í þessar 85 þúsund krónur
fór skriðan auðvitað af stað og allir
sem ég skuldaði eitthvað lýstu kröf-
um í búið. Þar af vom 173.537 kr. frá
Tollstjóranum í Reykjavík og um 1
milljón í Búnaðarbankanum. Kröf-
umar hljóðuðu upp á tæpar átján
hundmð þúsund krónur,“ sagði
maðurinn í samtali við DV.
„Ég get vitanlega ekki tjáð mig um
einstaka mál en almenna reglan hjá
okkur er sú að fara ekki með lágar
upphæðir alla leið í gjaldþrot. Hugs-
anlegt er að áherslumar haf! verið
aðrar á þessum tíma, um það þori ég
ekki að segja,“ segir Bjöm Her-
mannsson, tollstjórinn í Reykjavík.
Bjöm segir að ekki sé sama hvers
eðlis skuldin sé. í sumum tilvikinn
leitar fólk til Fjármálaráðuneytisins
vegna skulda á staðgreiðslugjöldum,
virðisaukaskatti og slíku og það er
aldrei gefið eftir. Þar er litið svo á að
viðskiptavinurinn hafi þegar greitt
viðkomandi gjöld og þeim hafi átt að
skila til ríkisins.
„Eins og ég segi get ég ekkert tjáð
mig um eitthvert tiltekið mál en al-
menna reglan er sú að fara ekki
með mál í gjaldþrot þegar um lágar
upphæðir er að ræða,“ segir Bjöm
Hermannsson. -sv
Allt hefur snúist um höfnina á Höfn síöustu daga og vikur - mikill afli borist á land - loöna, síld og bolfiskur af mörg-
um stæröum og geröum og mikill útflutningur til ýmissa landa. Netabátar veiddu vel í síöustu viku og fór aflinn upp
í 30 tonn á bát eftir nóttina. Sjómönnum finnst þó aö fiskurinn sé smærri en þeir eiga aö venjast á þessum slóöum
eöa 7-9 kfló. Júlfa Imsland, fréttaritari okkar á Höfn f fjölmörg ár, tók þessa fallegu mynd af Iffæö staöarins í blíðviör-
Inu f síöustu viku. DV-mynd Júlfa
-fáðu þér
góða^5|vu[
O TÆKIFÆRIÐ er ódýr
fjárinognunarleið
á vegum Námsmanna-
þjónustu Sparisjóðsins.
til tolvukaupa
D
41
SPARISJOÐUR
REYKJAVIKUR OG NAGRENNIS
Skólavörðustíg 11 • sími 550 1200 Álfabakka 14 • sími 567 0500
Kringlunni 5 • sími 568 6310 Skeifunni 11 • sími 588 5600
www.spar.is/spron Austurströnd 3 • sími 562 5966 Hátúni 2b • sími 562 2522
fitá/agsmv/ jftT-r
HYGÆA Bostik
Solignum
MMmáUng
Litupiim
er sérverslun með málningarvörur þar sem
þú nýtur persónulegrar þjónustu fagfólks,
sem hugsar aöeins um þarfir þínar.
Ppufudós
á 100 kr. léttir leitina aö rétta litnum!
W77-M7
...rétti liturinn, rétta verðið, rétta fólkið
Sibumúla 15, sími 553 3070
Hringdu og kynntu þér málið hjá Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins