Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997 iií'V Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir fyienning Við Tjörnina: Landsins bezti matur Björk og STEF Alþýöublaðið segir frá því í gær að Björk Guð- mundsdóttir hafi afráðiö að láta STEF, Samband tónskálda og eig- enda flutningsréttar, sjá um rétt- argæslu varðandi höfundarrétt að tónlist sinni um allan heim. Magnús Kjartansson, formað- ur STEF, segir að þetta þýði að allt það fé sem kemur inn fyrir efni eftir Björk renni gegnum íslenska hagkerfið. „Peningarnir eru greiddir hér og myndast því hér á landi sem verðmæti fyrir tónlistarafurðir.“ Honum fmnst þetta að vonum mikil viðurkenning fyrir STEF og traustsyfirlýsing. Vortónleikar Karlakór Reykjavíkur heldur sina árlegu vor- tónleika dagana 15.- 22. mars. Efnis- skrá verður fjölbreytt að vanda: madrigalar, lög eftir Bítlana og Andrew Lloyd Webber, Brahms, Schubert, Palestrina og Wagner. Auk þess frumflytur kórinn lag Páls P. Pálssonar viö ljóðið Vor borg“ eftir Guðmund Böðvarsson og lag Fjölnis Stef- ánssonar við „í júní“ eftir Þorstein Valdimarsson. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson, und- irleikari er Anna Guðný Guðmundsdóttir en ein- söngvarai' eru Rannveig ** Fríða Bragadóttir altsöng- kona og Ingólfur Sigurðsson tenór. Fyrstu tónleikarnir eru á laugardaginn kl. 16 í Langholtskirkju og kl. 20 á sunnudag í Víðistaða- kirkju. í Vesturheimi Yfirskrift síðustu tónleika Kammersveitar Reykjavíkur í vetur er í Vesturheimi og verða þeir í Listasafni íslands á mánudagskvöldið kl. 20.30. Á efnisskrá eru fimm verk samin í Banda- ríkjunum, þijú eftir bandarísku tónskáldin Aaron Copland, Michael Torke og John Adams, og tvö eftir aðtlutt tónskáld, Rússann Igor Stravinsky og íslendinginn Áma Egilsson. Stjómandi Kammersveitarinnar á tónleikunum er Bemharður Wilkinson. Undur veraldar Annar fyrirlesturinn í fyrirlestraröðinni Undur veraldar á vegum Raunvísindadeilar Háskólans verður á laugardaginn kl. 14 í sal 3 í Háskólabíó. Þar talar Már Björgvinsson efnafræðingur um Knattkol: Demant framtíðarinnar. Árið 1985 upp- götvuðu efnafræðingamir Kroto, Curl og Smalley stöðuga knattlaga kolefhissameind sem tókst að einangra hreina nokkrum ái’um síðar, og þre- menningarnir fengu Nóbelsverðlaunin 1996. í fyr- irlestrinum verður skyggnst inn í þá nýju heima sem opnast hafa við þessa uppgötvun. Fyrirlestiminn er ætlaður almenningi og allir em velkomnir. Munið eftir Dorrit Á laugardaginn kl. 16 ætlar verðlaunahafi árs- ins hjá bókmenntanefnd Norðurlandai'áðs, Dorrit Willumsen, að kynna sig og verk sín í Norræna húsinu. Á undan mun Siri Karlson sendikennari segja frá dönskum bókmenntum frá síðasta ári. Állir velkomnir ókeypis inn. Að vingast við Vetur konung Ný bók frá Vöku-Helgafelli, Linda hittir Vetur konung, kennir ráð við harðind- um - sem ekki veitir af um þess- ar mundir. Linda er dóttir vita- varðarins á lítilli eyju sem er læst í greipum hafissins svo að síðasta skip ársins kemst ekki þangaö með lífsbjörg- ina. Linda ákveður að heim- sækja bara Vetur konung sjálfan og spyrja hann hve- nær þessum ósköpum linni, og það gerir hún. Ekki tekur hann vel á henni, en Linda beitir óvart heimsins ein- faldasta bragði og bræðir íshjarta karlsins. Sagan er eftir Harald Sonesson og Pétur Ást- valdsson þýðir. Stuð hefur verið á Tjöm- inni að undanfórnu, enda Rúnar Marvinsson oft við eldavélina. Sama er, hvar gripið er niður í fiskrétt- unum, allt frá sýnishorn- um hráfiskjar að japönsk- um hætti yfir í hefð- bundna rétti staðarins á borð við eldsteikta tinda- bikkju með capers og pern- od og kryddlegnar gellur eftir kenjum kokksins. Allt kemur þetta munnvatns- kirtlum á fulla ferð strax við lestur matseðils. Matreiðslan hefur stundum slaknað, þegar Rúnar er fjarverandi, sem gerist einkum á sumrin. Þótt aðrir séu góðir i eld- húsinu, býr Rúnar yfir óskólaðri og jarðbundinni eðlishæfhi, sem lyftir mat- reiðslu hans á góðum stundum yfir slípaða lær- dómslist skólagenginna meistara, sem eyða orku i marklítil og leiðigjörn formsatriði á borð við þau, sem verðlaunuð eru á sýn- ingum. Raunar ætti Tjörnin að vera á niðurleið. Gæðalög- málið segir, að veitingahús versni, þegar þau stækki. Tjömin, sem fyrst rúmaði 35 manns, tekur núna rúmlega 90 manns til borðs, auk mikils rýmis í setustofum á þriðju hæð hússins. Nánast er kraftaverk, hvernig þröngt eldhúsið stendur undir út- þenslunni, sem kann varla góðri lukku að stýra til lengdar. Samræmdar og kantaðar ljósakrónur í aðalmatstofunum hafa í seinni tið varpað skugga á ljúflega ósamstætt aðdráttarafl gamalla húsgagna úr ýmsum áttum, ísaum- aðra og heklaðra dúka, blómaveggfóðurs og dúkkulisa. Ennfremur er sem fyrr ofhlaðið fyrirferðarmiklum sófasettum í finlegar setustofur millistríðsáranna. eins vel og aðrir réttir matseðilsins. Um daginn fólst það í dökkri og bragð- mikilli grænmetissúpu og frábærlega hvítlauksrist- uðum kolaflökum með hrísgrjónum og öflugri karrisósu. Fiskréttirnir eru sí- breytilegir. Síðast voru meðal þeirra bakaður salt- fiskur, heilsteiktur sólkoli, pönnusteikt eldislúða, smjörsteikt þorskhrogn og hvítlauksristaður smokk- fiskur. Réttirnir voru ólík- ir innbyrðis, en hver um sig magnaður. Kryddjurtir voru djarft notaðar í hvít- laukssósu, karrísósu, tómatsósu, ostasósu, piparrótarsósu og engi- fersósu. Ljúft var að draga afganginn af sósun- um upp 1 litlu, mjúku brauðkollurnar, sem bak- aðar eru staðnum. Sítrónuleginn hrár fisk- ur hússins er oft á mat- seðlinum, nokkrar tegund- ir, svo sem lúða, rækjur, humar og þorskhrogn. Þau síðastnefndu hafa einnig verið á boðstólum smjör- steikt með rjómahvítlauks- sósu og reyksoðin með pip- arrótarsósu. Fiskisúpa staðarins reyndist vera finleg að venju, ekki of mikið rjómuð og með afar meyru sjávarfangi. Eldhúsið hefur yfirleitt ekki sömu tilfinn- ingu fyrir matreiðslu kjöts og sjávarfangs. Þungsteiktar skarfabringur flutu í gríðar- legu magni af dimmri portvínssósu og þurr- um bláberjum. Hins vegar var stokköndin að þessu sinni meyr og ljúf, borin fram með döðlum og mildri koríandersósu. Matreiðslan á Tjörninni hefur löngum verið hin fjölbreyttasta og frumlegasta á landinu. Um þessar mundir er hún tví- mælalaust einnig hin bezta. Rúnar Marvinsson veitingamaöur Við Tjörnina: Kemur munnvatnskirtlum á fulla Veitingahús Jónas Kristjánsson Tjömin er fremur dýr, en ekki þó í hópi dýrustu veitingahúsa borgarinnar. Meðal- verð þriggja rétta máltíðar með kaffi er um 3.600 krónur fyrir utan vín. í hádeginu er enn hægt að fá súpu og rétt dagsins fyrir 1.000 krónur. Þetta frábæra tilboð bragðast Leiklist Silja Aðalsteinsdóltir í hlutverki töffarans í fyrri þættinum og kúguðu fyr- irvinnunnar í þeim seinni og Helga Dögg Björgvins- dóttir var gustmikil verkamannsdóttir með listræna tendensa. Ari tekur svolítið mið af teiknimyndasögum í stíl, einkum í fyrri þættinum sem býður upp á það. Sviðsmyndin er skemmtilega fáránleg blanda af nýju dóti (tölvu) og hallærislegum húsgögnum sem minntu á leiksýningar ungmennafélaga fyrir tutt- ugu árum. Það er meira að segja franskur gluggi á bakvegg! Leikmunir eru fáir en vel notaðir: snaran var notuð í báðum þáttum (ansi óhugnanlega i þeim fyrri) og sjálfsfróunarstóll kom að óvæntustu notum í þeim seinni. Stúdentaleikhúsið hefur verið merkilegur til- raunavettvangur fyrir unga höfunda síðustu ár en þessir þættir Barkar Gunnarssonar eru það besta sem þar hefur verið sýnt. Jón Ingi Hákonarson í hlutverki Atla sýnir þjökuöum Pórhalli Ágústssyni í hlutverki sonarins samúð sína. Tákn dagrenn- ingar Á morgun kl. 17 verður opn- | uð sýning í anddyri Norræna | hússins á táknum og fyrirboð- um sem sýna mikilvægi norska þjóöardýrlingsins Ólafs helga lífs og liðins. Sýningin var fyrst sett upp á Ólafshátíð i Þránd- heimi 1995, enda var hún gerð í j tilefni af 1000 ára afmælishátíð Þrándheims. Höfundur sýningarinnar er arkitektinn, pýramídafræðing- | urinn og rithöfundurinn Bod- var Schjelderup og heldur hann ' fyrirlestur við opnun sýningar- innar á morgun sem hann nefn- ir Reisen inn mot midten og det evige spráket. Sýningin verður opin dag- | lega frá kl. 9-19 nema sunnu- daga þegar húsið er opnað kl. 12, og stendur hún til 9. apríl. Stúdentaleikhúsið frumsýndi á sunnudags- kvöldið tvo nýstárlega einþáttunga eftir ungan og upprennandi rithöfund, Börk Gunnarsson, undir samheitinu Hangið heima. í þeim fyrri, Sýnd er reynd, gerir hann tilraunir bæði með tímann og kynhlutverkin í vel skrifuðum en býsna óþægi- legum texta. Hilmar er heimavinnandi húsfaðir sem konan kúgar og stelur hugmyndum frá að merkilegum heimspekikenningum. Hann hefnir sín með því að vilja eyða börnum þeirra - ekki í móðurkviði heldur sem unglingum. í seinni þætt- inum, Verkamannablús, er líka kúgaður eigin- maður í sögumiðju. Hann er verkamaður (merkt- ur ísal) og stoltur af að vinna fyrir sinni fógru og ótrúu konu og listrænu dóttur, þó að hvorug þeirra sé sérstaklega stolt af honum. Ari Matthíasson stýrir sýningunni og nær oft góð- um leik út úr misjafnlega vönum leikurum sínum. Þórhallur Ágústsson var mjög fagmannlegur í hlut- verki sonarins sem vill ekki láta eyða sér og Þórunn Ema Clausen sannfærandi sem sakleysið uppmálað í fyrri þættinum. Jón Ingi Hákonarson var jafnfmn Ólafur helgi var vinsæll dýrling- ur á íslandi líka. Þessi mynd er af líkneski úr Kálfafellsstaðar- kirkju frá því um 1700. Ekki fyrir rauðsokka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.