Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Síða 24
32
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997
Sviðsljós
r>v
Banderas í fram-
tíðartrylli
Spænski hjartabaninn Antonio
Banderas hefur verið nefndur
sem væntanlegur aðalleikari í
Spörfuglinum, framtíðartrylli um
jesúitaprest og málvísindamann
sem einn lifir af könnunarferð út
í geiminn. Prestur kemst síðan í
kynni við geimverur. Leikstjóri
myndarinnar verður Geoffrey
Wright.
Shirley fór á
helgarbíó
Shirley MacLaine, sú ástsæla
leikkona, brá sér í bíó um helg-
ina og sá myndina Private Parts
sem fjallar um útvarpsvUlinginn
Howard Stem. Shirley sá mynd-
ina í Washington með góðvini
sínum, sendiherra Ástralíu í
Bandarikjunum. Sendiherrann
segir að þau séu bara gamlir og
góðir vinir en ýmsa grunar að
eitthvað meira búi þar að baki.
Fymim vinkona Jane Fonda um hjónaband hennar og Teds Tumers:
Eins og kaupmáli
við sjálfan djöfulinn
Kvikmyndaleikkonan Jane
Fonda segir að með því að gift-
ast Ted Tumer hafi hún fundið
manninn sem líkist mest föður
hennar, Henry Fonda heitnum.
Þessu lýsti leikkonan yfir í
viðtali við tímaritið Vanity Fair
núna í vikunni en hún hefur ör-
sjaldan veitt viðtöl síðan hún
giftist forstjóra CNN fyrir sex
árum.
Jane tjáði blaðamanni tíma-
ritsins að Ted Tumer væri mjög
líkur föður hennar og tíndi hún
þá bara til góðu hliðarnar. Ted
væri þó ólíkur Henry að því
leyti að hann væri sáttur við
sjálfan sig og ekki hræddur við
að láta þarfir sínar í ljós. Hann
elskaði konur og sæi enga ógn-
un stafa frá þeim.
Blaðamaðurinn getur þess að
með því að giftast Tumer hafi líf
Jane Fonda breyst verulega.
Hún hafi dregið sig í hlé frá
kvikmyndaleik og helgi sig ein-
göngu eiginkonuhlutverkinu.
Blaðamaður hefúr það eftir ein-
um framkvæmdastjóra 'Turners
að Jane þori aldrei að skilja
hann eftir einan.
„Hún hefur reiknað Ted nokk-
uð vel út. Hann gæti aldrei ver-
ið einn, hann myndi ekki þola
það. Hann hafði alltaf ein-
hverja dömu hjá sér, meira að
segja þegar hann var kvæntur.
Jane skilur hann aldrei eftir ein-
an. Þau em alltaf saman. Þetta
er líklega í eina skiptið á ævinni
sem hann hefúr verið með einni
konu,“ segir framkvæmdastjór-
inn.
Fyrrum náin vinkona Jane
Fonda, sem ekki vill láta nafns
síns getið, sagði í viðtali við
Vanity Fair að hjónaband Jane
væri kaupmáli við djöfulinn og
að hún hefði fómað öllu fyrir
eiginmanninn.
Sjálf lýsir Jane Fonda hjóna-
bandinu á þann veg að það sé
eins og vélin sem
faðir hennar hafi
fundið sem sett-
ir voru í steinar
og ef þeir voru
valdir rétt komu
þeir slípaðir og
skínandi út.
„Þegar tvær
manneskjur, og
sérstaklega
þær sem eru
jafn upptekn-
ar af sjálfum
sér og við, eru
komnar á sex-
tugsaldin'inn
þegar þær taka
saman er það á
vissan hátt
eins og þegar
tveir skörð-
óttir
!
settir í þessa vél. Og
ég held að það taki
tvö til þrjú ár að slípa
bá.“
Jane Fonda greindi
einnig frá því í við-
talinu að hún hefði
ættleitt telpu þegar
hún var gift stjórn-
/ málamanninum
Tom Hayden. Stúlk-
an dvaldi í sumar-
búðum sem Jane og
Tom ráku og var
frá heimili þar
sem aðstæður
voru erfiðar.
steinar
em
Ted Turner og Jane Fonda á leik hafnaboltaliösins Atlanta Braves síöastliðið haust.
Simamynd Reuter
Hagstœö kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni
aW miití himfo'
Smáauglýsingar
550 5000
Gullstyttan bræðir hjörtu
stórstjarnanna í Hollywood
Hollywoodstjömur sýndu á sér
auðmjúku og undirgefnu hliðina á
þriðjudag. Alveg makalaust hvaða
áhrif ein litil gullstytta getur haft á
rígfullorðið fólk. Þetta er heldur eng-
in vengjuleg stytta heldur sjálfúr
óskarinn.
Þeir sem tilnefndir hafa verið til
þessara eftirsóttustu verðlauna kvik-
myndaiðnaðarins snæddu saman há-
degisverð vestm- í Hollywood á
þriðjudag. Við það tækifæri létu
margir þau orð falla að það væri nú
ærinn heiður að vera tilnefndur. Það
væri ekkert sérstakt keppikefli að fá
styttuna með sér heim.
Kristin Scott Thomas, breska og
gullfallega leikkonan úr Enska sjúkl-
ingnum, var hins vegar fidlkomlega
hreinskilin í sinn garð og annarra.
„Ég mundi mjög gjaman vilja
vinna. Mér líður eins og sex ára
barni, ég er alveg uppi í skýjunum,“
sagði Kristin við fréttamenn á
Hilton hótelinu í Beverly Hills þar
sem snæddar vora dýrindis krásir.
Barbara Hershey var enginn eftir-
bátur Kristinar í hreinskilninni.
Hún var tilnefnd fyrir leik sinn í
Konumynd.
„í hreinskilni sagt mundi ég
gjaman vilja vinna," sagði Barbara.
Kristin sagði frá því að hún hefði
spurt son sinn hvað honum fyndist
nú um ef hún fengi óskarinn. Stráksi
Kristin Scott Thomas stillir sér upp
fyrir framan risaóskar og vonast
eftir að hreppa þann litla.
gaf eftirfarandi svar: „Mamma, þá
verða allir að segja að þeir elski þig
og að þú sért falleg." Sem er náttúr-
lega alveg dagsatt.
Kristin gat ekki á sér setið og
brosti út í annað.
Meðal keppinauta hennar um ósk-
arsverðlaunin fyrir bestan leik í að-
alhlutverki kvenna er Frances
McDormand sem lék í Fargo. Fran-
Frances McDormand lifir fábreyttu
lífi f New York en sá sér fært aö
sækja glimmermálsverðinn í
Hollywood.
ces fékk sér að borða með öllum hin-
um stjömunum.
„Þetta er alveg rosalegt," sagði
hún. „Ég sem lifi svo fábreyttu lífi í
New York.“ Bætti svo við að hún
þráði nú ekkert heitar en að fá að
leika í leikriti, nokkuð sem hún
hefði ekki gert í þijú og hálft ár.
Fleiri voru mættir og allir brostu
út að eyrum.