Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Side 29
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997
37
DV
Jerzy Maksymiuk stjórnar Sin-
fóníuhljómsveitinni í kvöld.
Bjarkamál og
slagverks-
einleikur
Sinfóníuhljómsveit íslands
verður með tónleika í Háskóla-
bíói í kvöld kl. 20. Á efnisskrá
eru þrjú verk, Bjarkamál eftir
Jón Nordal, Inngangur & allegro
eftir Edward Elgar og Veni, veni
Emmanuel eftir James McMill-
an. Hljómsveitarstjóri er Jerzy
Maksymiuk, sem kemur frá Pól-
landi.
Bjarkamál var samið í tilefni
af komu Friðriks 9. Danakon-
ungs árið 1956. Var það frum-
flutt í Þjóðleikhúsinu á tónleik-
um sem voru konungi til heið-
Tóiúeikar
Evelyn Glennie, sem leikur
einleik í Veni, veni Emmanuel,
er margverðlaunaður einleikari
og hefur komið fram með helstu
hljómsveitum heims. Hún hefur
átt góða samvinnu við tvo ís-
lenska tónlistarmenn, annars
vegar Áskel Másson sem hefur
samið fyrir hana slagverks-
konserta og hins vegar Björk
Guðmundsdóttur.
Karlakórinn Heimir í
Grindavík
Karlakórinn Heimir úr
Skagafirði er nú á ferð um Suð-
ur- og Suðvesturland og eru
fyrstu tónleikarnir í kvöld í
Grindavík og hefjast þeir kl. 20.
Borgarafundur
um umferðarmál
Borgarafundur um umferðar-
mál í Kópavogi verður í íþrótta-
húsinu Smáranum í kvöld kl.
20.30. Fimm framsöguerindi.
Fundarstjóri: Sigurður Geirdal,
bæjarstjóri.
Gjafir hinna látnu
í dag kl. 17.15 flytur franski rit-
höfundurinn og háskólakennar-
inn Daniéle Sallenave fyrirlestur
í stofu 101, Lögbergi. Fyrirlestur-
inn nefnist Le don des morts og
er fluttur á frönsku en ágripi á ís-
lensku verður dreift til fundar-
gesta.
Samkomur
Hjúkrun fólks með
langvinna sjúkdóma
Dr. Helga Jónsdóttir flytur fyr-
irlestur í dag kl. 17 í stofu 101,
Odda sem nefnist Upp úr öldu-
dalnum: Hjúkrun fólks með lang-
vinna sjúkdóma.
Vinnan og heimilið
í kvöld kl. 20.30 verður í Breið-
holtskirkju í Mjódd þriðji fræðslu-
fyrirlesturinn um heimilið og fjöl-
skylduna. Sr. Irma Sjöfit Óskars-
dóttir, prestur við Seljakirkju,
flytur fyrirlestur sem hún nefnir:
Vinnan og heimilið.
Upplestur
í Gerðarsafni
f dag kl. 17 verða Njörður P.
Njarðvík og Hjörtur Pálsson gest-
ir vikunnar á upplestri Ritlistar-
hóps Kópavogs í Gerðarsafni.
Lesa þeir úr frumsömdum ljóð-
um sínum og ljóðaþýðingum.
Jack Nicholson leikurtvö hlutverk í
myndinni og er annaö þeirra forseti
Bandarikjanna.
Innrásin
frá Mars
Sam-bíóin frumsýndu um síð-
ustu helgi nýjustu kvikmynd
Tims Burtons, Innrásina frá
Mars (Mars Attacks). Um er að
ræða geimsatíru þar sem Burton
gerir mikið grín að gömlum
myndum um sama efni.
Burton hefur safnað um sig
miklum fjölda þekktra og góðra
leikara og má nefna að Jack
Nicholson, sem leikur forseta
Bandaríkjanna, hefur áhyggjur af
því í hvaða fótum hann á að vera
þegar hann býður Marsbúana
velkomna, Glenn Close leikur for-
setafrúna sem ákveðin er í að
hafa enga græna litla menn í sín-
um húsakynnum, Natalie Port-
*
Blús á Sir Oliver
Á fimmtudagskvöldum er boðið upp á lifandi tón-
list á Sir Oliver sem er við Ingólfsstræti, gegnt ís-
lensku óperunni. Það er hinn kunni skemmtikraft-
ur Laddi (Þórhallur Sigurðsson) sem rekur barinn
af miklum myndarskap. í kvöld er það blúsinn sem
er í fyrirrúmi og hver er betri til að túlka fyrir gesti
staðarins spennandi hljóma blúsins en Halldór
Bragason (Dóri) sem mun mæta á staðinn með
hljómsveit sína, Vini Dóra, um tíuleytið og leika þá
tónlist sem þessi hljómsveit hefur haldið uppi
merki fyrir undanfarin ár.
Skemmtanir
The Dubliner
Frá Bandaríkjunum koma alþjóðlegar þjóðlaga-
stjörnur, sem kalla sig Dublin Green, og munu
skemmta á The Dubliner í kvöld.
Músíktilraunir í Tónabæ
Annað Músíktilraunakvöld Tónabæjar og ÍTR
verður í kvöld kl. 20.00 í Tónabæ, tíu hljómsveitir
koma fram. Gestahljómsveit kvöldsins er Quarashi.
Kerlingar-
skarð
þungfært
Fært er um Hellisheiði og
Þrengsli og með ströndinni austur á
flrði og til Egilsstaða. Fært er fyrir
Hvalfjörð og áfram norður í land.
Þungfært er á Kerlingarskarði. All-
Færð á vegum
ar aðalleiðir á Vestfjörðum eru fær-
ar. Verið er að moka allar aðalleið-
ir á Norður- og Norðausturlandi.
Fært er á Mývatns- og Möðrudalsör-
æfum og Vopnafjarðarheiði.
El Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
LokaörSt°ÖU ® Þun6fært ®Fært fiallabIlum
Andrea og Guðni
eignast son
Myndarlegi drengurinn
á myndinni fæddist 3. jan-
úar kl. 8.53. Þegar hann
var vigtaður var hann
Barn dagsins
2.580 grömm að þyngd og
mældist 51 sentímetra
langur. Foreldrar hans
eru Andrea Gerður Dofra-
dótir og Guðni Geir Ein-
arsson og er hann þeirra
fyrsta barn.
Kvikmyndir
man leikur forsetadótturina sem
finnst lítið til Marsbúa koma,
Rod Steiger leikur herskáan hers-
höfðingja sem hefur aldrei tekið
þátt í stríði sem honum hefur
ekki líkað og Pierce Brosnan leik-
ur lækni sem hefur áhuga á
heilabúi Marsbúanna.
Nýjar myndir:
Háskólabíó:Star Trek: Fyrstu kynni
Laugarásbíó: The Crow 2: Borg eng-
lanna
Kringlubíó: Auðuga ekkjan
Saga-bíó: Space Jam
Bíóhöllin: Innrásin frá Mars
Bíóborgin: Bound
Regnboginn: Rómeó og Júlia
Stjörnubíó: Málið gegn Larry Flynt
Krossgátan
r~ ar r- r r- z~
'h i r * fr
ÍÖ
in i'i □ t
15
rr l w.
j1) % J w
Lárétt: 1 undrandi, 7 geislabaugur,
8 tignast, 10 glufum, 12 reiðu, 14
rennsli, 15 varla, 17 nudd, 18 marga,
19 fjölguðum, 20 rödd.
Lóðrétt: 1 heimsku, 2 maðk, 3
söngluðu, 4 mildum, 5 innyfli, 6 bar-
dagi, 9 nirfill, 11 ákafa, 13 endaði, 16
forföður, 18 tón.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 baks, 5 brá, 8 lurka, 9 al,
10 æða, 11 rugl, 12 ós, 13 salur, 15
hæstar, 17 óréttur, 20 fóli, 21 amt.
Lóðrétt: 1 blæ, 2 auðsær, 3 krass, 4
skratti, 5 baul, 6 ragur, 7 áll, 12 óhóf, ■*-
14 rýrt, 16 ata, 18 él, 19 um.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 80
13.03.1997 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 70,900 71,260 70,940
Pund 113,390 113,960 115,430
Kan. dollar 52,000 52,320 51,840
Dönsk kr. 10.9700 11,0280 10,9930
Norsk kr 10,4320 10,4900 10,5210
Sænsk kr. 9,2780 9,3300 9,4570
Fi. mark 14,0210 14,1040 14,0820
Fra. franki 12,4020 12,4720 12,4330
Belg.franki 2,0285 2,0407 2,0338
Sviss. franki 48,7700 49,0400 48,0200
Holl. gyllini 37,1800 37,4000 37,3200
Þýskt mark 41,8700 42,0800 41,9500
it. líra 0,04192 0,04218 0,04206
Aust. sch. 5,9450 5,9820 5,9620
Port. escudo 0,4168 0,4194 0,4177
Spá. peseti 0,4931 0,4961 0,4952
Jap. yen 0,57970 0,58320 0,58860
írskt pund 110,790 111,480 112,210
SDR 97,05000 97,63000 98,26000
ECU 81,1700 81,6600 81,4700
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270