Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1997, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 1997
Neytendur
Mismunandi verð á bílavarahlutum:
Verð í umboðinu
ríflega þrefalt
Það getur svo sannarlega borgað
sig að kanna verðið á bílavarahlut-
unum áður en viðgerðin hefst. Það
sannaðist í tiifelli eiganda Mitsu-
bishi Pajero jeppa af árgerð 1989.
Eigandinn kannaði verð hjá um-
boðinu og síðar í Fjöðrinni. Mun-
urinn var ríflega þrefaldur á þeim
varahlutum sem þurfti til að gera
við bílinn.
Bíllinn hafði rekist utan í með
þeim afleiðingum að hægra bretti,
grill, stefnuljós og svunta eyðilögð-
ust. Þessir varahlutir kosta samtals
57.474 krónur m/vsk. hjá Heklu,
sem hefur umboð fyrir Mitsubishi,
en í Fjöðrinni 17.101 krónu m/vsk.
og 5% afslætti. Verðmunurinn er
rúmar 40 þúsund krónur.
Mörg slík dæmi eru til um verð-
mun á bílavarahlutum og því vert
fyrir neytendur að athuga verðið í
upphafi og einnig hafa eftirlit með
því hvort verkstæðið kaupir á hag-
stæðasta verði. Umboðin segjast yflr-
leitt hafa „ekta“ varahluti til sölu en
oftar en ekki skiptir verðið meira
máli fyrir bíleigandann. -jáhj
Varahlutir í Pajero
Fjöðrin Hekla
m/vsk m/vsk
Bretti 7.875 30.668
Grill 1.074 5.188
Stefnuljós 1.562 6.448
Svunta 7.490 15.170
Yfirvofandi verkfall bankamanna:
Peningarnir
lokast inni
Bankamenn hafa boðað verfall frá
og með miðnætti 4. apríl verði ekki
samið fyrir þann tíma. Ef til þess
kemur lamast allt bankakerfið og
peningar fólks lokast inni.
í dag er staðan sú að greiða á at-
kvæði um sáttatillögu í þessari
viku en félagar hafa verið hvattir
til að hafna henni. Enn eru rúmar
tvær vikur til stefnu og margt get-
ur breyst á þeim tíma. Staðan er
hins vegar önnur í dag en var árið
1980 þegar bankamenn voru í verk-
falli. Núna eru það rafgreiðslumar
sem breyta töluverðu, enda al-
menningur vanur að nota hrað-
bankana frekar en að fara í af-
greiðslustöðvamar og hafa beint
samband við starfsfólkiö.
Engar kortafærslur
Starfsfólk kortafyrirtækjanna er
ekki i Sambandi islenskra banka-
manna og fer þvi ekki i verkfall.
Starfsfólk Reiknistofu bankanna
fer hins vegar í verkfall og því lok-
ast fyrir allar rafgreiðslur, þar
með kreditkort og debetkort. Þeir
sem nota ávísanir geta fleytt sér
áfram á þeim og svo verða auðvit-
að beinharðir peningar í gildi.
Meðan á verkfalli stendur getur
enginn borgað reikningana og því
er betra að ljúka slíku fyrir verk-
fallið. Þótt ótrúlegt megi virðast
mun verkfall bankamanna hafa
áhrif á vöruframboð mjög fljótlega
því allar greiðslur stöðvast og því
líkur á að ekki verði hægt að leysa
út vörur.
Það er ekki hægt að hamstra pen-
inga fyrir verkfall bankamanna
eins og mjólkina en fólki er bent á
að taka út reiðufé í tíma og vonlaust
verður að fleyta sér á greiðslukort-
unum.
Duftmjólk í kaffiö
Þeir sem eru vanir að nota
mjólk í kaffið sitt eða teið eru í
heldur vondum málum í yfirstand-
andi verkfalli. Það er hins vegar
hægt að bregðast við mjólkur-
skortinum hvað varðar kaffi-
sopann með því að kaupa duft-
mjólk eða -rjóma. Nokkrar tegund-
ir eru á markaðnum og i verslun-
um er þessum vörum yfirleitt rað-
að nálægt kaffinu. Tegundirnar
heita Coffee-mate eða Spoon’n’stir
eða Cremora. Einhverjar fleiri teg-
undir kunna að vera fáanlegar.
Enginn dómur er lagður hér á
hvað sé betra en annað, það gerir
allt sama gagn, það er aö gefa
mjólkurbragð af kaffinu en það
Dæmi um tvær tegundir af mjólkur-
dufti í kaffisopann. Báöar tegundir
voru keyptar í Nóatúni á Hlemmi. Sú
stærri kostar 145 krónur og sú
minni 169 krónur.
DV-mynd ÞÖK
kælir það ekki eins og mjólkin
beint úr ísskápnum.
Neytendasíða DV hefur heyrt að
þetta mjólkurduft gefi mjólkur-
bragð í pakkamat sem mjólk er
nauðsynleg í, svo sem súpur, sósur
og kartöflustöppu. Duftinu er
blandað saman við innihald pakk-
ans og vatn notað í stað þess
magns mjólkur sem á að nota sam-
kvæmt leiðbeiningum á pakkan-
um.
-jáhj
DV
Greiðir 6
krónur fyrir
vírherðatré
Nýja efnalaugin, Ármúla 30,
hefur tekið upp á þeirri ný-
breytni að greiða 6 krónur fyrir
hvert vírherðatré upp í hreins-
un. Að sögn ísaks Jóhannssonar,
eins eiganda Nýju efnalaugar-
innar, hefur það verið stefna
þeirra frá upphafi að vera um-
hverfisvæn.
„Viö viljum hvetja fólk til að
vera umhverfisvæn með okkur
með því að láta það skila vír-
herðatrjánum. Þetta hefur virk-
aö mjög hvetjandi á fólk að fá
greitt fyrir vírherðatré í stað
þess að henda þeim í ruslið,”
segir ísak.
Ferskt
páskalamb
Kjötmnboðið býður ferskt
nýslátrað lamb um páskana í
samstarfi við Kaupfélag Króks-
fjarðamess, Kaupfélag V-Hún-
vetninga og KASK. Undanfarin
ár hefur Kjötumboðiö aukið
verulega framboð af fersku
lambi um páskana. Páskalambið
er fyrsta ferska lambið á árinu.
Kjötumboðið stefhir að því að
bjóða ferskt kjöt af nýslátruðu
lambi á borð neytenda í 6 mán-
uði á þessu ári sem er lengra
tímabil en á síðasta ári. Sá tími
er að koma að lambakjöt af
nýslátruðu verði í boði á mark-
aðnum meirihluta ársins, segir í
fréttatilkynningu frá Kjötumboð-
inu.
Hæpnar bíla-
auglýsingar
Hörð samkeppni seljenda bíla
hefur að undanförnu endur-
speglast í mjög hæpnum auglýs-
ingum þeirra, segir í nýút-
komnu Neytendablaði. Þar eru
auglýst fj ármögnun artilboð sem
eru með þeim hætti að ætla má
að bíllinn sé að stórum hluta
gefins. Neytendasamtökin
gerðu athugasemd við auglýs-
ingu Brimborgar um „fislétta
fjármögnun“, en í ljós kom að í
upphaflega auglýsingu vantaði
upplýsingar um útborgun og
lokagreiðslu. Lánið sem veitt
var, og lögð var megináhersla á
í auglýsingunni, var aðeins fyr-
ir litlum hluta kaupverðsins.
Brimborg lagfærði auglýsing-
una, en áfram er lögð áhersla á
litla mánaðarlega afborgxm og
öðnun upplýsingum komið fyr-
ir í smáa letrinu. Neytendur
eru eindregið hvattir tfl að gera
samanburð á lánskjörum ætli
þeir sér að kaupa bíl á afborg-
unum.
-jáhj