Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1997, Qupperneq 20
20
MÁNUDAGUR 24. MARS 1997
Guðmundur Helgason hefur hannað ítarlega upplýsingavefsíðu:
Allir þýskir kafbátar í
seinni heimsstyrjöldinni
íslenskur vefsíðuhönnuður, Guð-
mundur Helgason, hefur vakið
mikla athygli fyrir hönnun sína á
vefsíðum. Nú síðast hefur hann sett
upp alhliða upplýsingavef um þýska
kafbáta sem notaðir voru í seinni
heimsstyrjöldinni en þeir eru 1.157
talsins. Vefur þessi, sem hefur slóð-
ina http://rvik.ismennt.is/~gmnmi-
he/uboats, kallast U-web og er tal-
inn stærsti upplýsingavefur í heimi,
tæpar 1.500 síður með um 20.000
tengingum.
Guðmundur segist hafa gert þetta
fyrst og fremst af áhuga á sögunni
og sjónum. „Þetta er að mestu leyti
samansett úr efni sem ég á sjálfur
og það liggja margra ára rannsókn-
ir að baki þeim upplýsingum sem
eru inni á síðunni."
Síðan hefur fengið u.þ.b. 500 þús-
imd heimsóknir á því eina og hálfa
ári sem hún hefur verið á vefnum.
„Ég fæ að meðaltali um 20 bréf á
dag frá alls konar fólki, t.d. herfor-
ingjum, skipstjórum, sagnfræðing-
um og kennurum. Vefurinn er hins
vegar frekar lítið þekktur hér á
landi. Það eru fyrst og fremst út-
lendingar sem hrífast af honum.“
Síðan hefur einnig fengið viður-
kenningu frá öllum helstu aðilum
sem skoða og dæma vefsíður (sjá
nánar http://rvik.is-
mennt.is/~gummi-
he/uboats/new.htm). Guðmundur
segir að hann hafi meira að segja
fengið tilboð frá Hollywood um að
gera vefsíðu svo að hönnun hans
hefur greinilega spurst víða.
Guðmundur á allan heiðurinn að
uppsetningunni en hefur sér til af-
stoðar Þjóðverja sem sér um að
koma til hans upplýsingum frá
Þýskalandi. Það má segja að þessi
vefur sé enn ein rósin í hnappagat
Guðmundar sem vefsiðuhönnuðar.
Hann hefur nú þegar getið sér gott
orð fyrir vefinn Islandia
(http://www.arctic.is/islandia) þar
sem hann safnar saman öllum hugs-
anlegum upplýsingum um ísland,
sögulegum og vísindalegum.
Hluti af Islandiu fjallar um ísland
í seinni heimsstyrjöldinni þar sem
m.a. eru upplýsingar sem enginn
annar á íslandi hefur um íslensk
skip sem fórust á þeim tíma. Guð-
mundur segist ætla að endurbæta
þann kafla á næstunni. Einnig er
ætlunin að bæta útlit kafbátasíð-
unnar og svo er það að sjálfsögðu
Hollywood. Það verður því fróðlegt
að fylgjast með þessum frábæra vef-
síðuhönnuði í framtíðinni. -HI
Nýtt íslenskt leitarforrit
fyrir Netið
Það sem oft hefur angrað not-
endur Netsins er hve erfítt er að
finna þær upplýsingar sem leitað
er að. Niðurstöður leitar eru mis-
munandi eftir leitarvélum og oft
er lítið gagn í þeim síðum sem vél-
in vísar á. Nýtt íslenskt forrit,
WebViking, er gert til þess að
reyna að ráða bót á þessu vanda-
máli. Er tilgangur þess að gera leit
á Netinu auðveldari og tryggja það
að sem best niðurstaða fáist úr
leitinni.
Það sem gerir þetta nýja forrit
sérstakt er að það þekkir u.þ.b.
sextíu leitarvélar og getur leitað í
þeim öllum í einu ef óskað er. Not-
andinn getur valið um hvaða leit-
arvélum hann vill leita í, slær síð-
an orðið og fær svo niðurstöðurn-
ar fljótlega í vafrarann.
Forritið getur einnig uppfært
sjálft sig einu sinni í viku, bætt
við nýjum leitarvélum og tekið út
þær sem ekki eru lengur við lýði.
Þetta á að tryggja að öruggar nið-
urstöður komi fram í hvert sinn
sem leitað er með þessu forriti.
Hægt er að nálgast forritið
Hönnuðir Vefvíkingsins: Júlíus H. Schopka og ívar S. Helgason.
DV-mynd GVA
ókeypis á http://www.vor- þess. Forritið er einungis til í PC-
tex.is/WebViking og ekki þarf útgáfu enn sem komið er.
heldur að borga neitt fyrir notkun -HI
Bandarískum þingmönnum á Netinu fjölgar
í skoðanakönnun, sem gerð var á
svipuðum tíma og þing- og forseta-
kosningarnar voru i Bandaríkjunum í
fyrra, kom í ljós að meira en fjórðung-
ur kjósenda var nettengdur. Auk þess
sögðust 10% kjósenda nota netið til að
ákveða hvað þeir ættu að kjósa.
Þessar tölur hafa leitt til þess að
þingið og þingmenn þess vekja sífellt
meiri athygli á sér á Netinu. Fyrir ári
voru 222 fulltrúadeildarþingmenn og
85 öldungadeildarþingmenn með
heimasíðu og fleiri eru á leiðinni.
Sumir þingmenn hafa meira að
segja gengið lengra en að setja upp
venjulegar vefsíður. Anna Eshoo, sem
situr í fulltrúadeild fyrir Demókrata,
býður upp á þann möguleika á sinni
siðu að kjósandi getur sent fyrirspum
til hennar. Og ekki nóg með það, hann
getur síðan tekið á móti svarinu á sér-
stökum stað á síðunni sem aðeins fyr-
irspyrjandi hefur aðgang að. Þetta má
sjá nánar á http: //www-eshoo.hou-
se.gov. Einnig má benda á Vermont-
búann Pat Leahy, öldungadeildarþing-
mann Demókrata
(http://www.senate.gov/~leahy).
Hann spjallar reglulega við skólaböm
í gegnum netið. Hann hyggst einnig
stofna fréttahóp sem fjallar sérstak-
lega um málefhi Vermont.
í Hvíta húsinu standa menn sig
einnig ágætlega. Þar er sá háttur hafð-
ur á að þegar forsetinn sendir frétta-
tilkynningu er hún fyrst sett á vefsíðu
forsetaembættisins (http: //www.hou-
se.gov/white) áður en hún er send til
fjölmiðla. Jafnvel kemur það fyrir að
Repúblíkanaflokkurinn í Washington-
ríki nái í fréttatilkynningar af þessum
síðum til að senda til fjölmiðla.
Betur má þó ef duga skal, að
margra mati. Sumir eru t.d. þeirrar
skoðunar að þingið ætti að setja
meira af upplýsingum inn á Netið.
Margir vita enn lítið um hvað fer
fram á þinginu í raun og vera og
mönnum fmnst að þingið ætti að
standa sig betur í að kynna starfsemi
sína. Chris Casey, sem hjálpaði til við
að setja upp heimasíðu Edwards
Kennedy, reiknar með því að þingið
muni ávallt vera mörgum skrefum á
eftir tölvuþróuninni í heiminum. -HI
Páskar á netinu:
íslensk páskasíða
Ýmsar skemmtilegar pá- hvemig gera á páskaegg í
skatengingar er að finna á http: Windows 95.
//rvik.ismennt.is/~salvor/pask-
ar.htm
Páskahérinn
Af hverju kemur páskahérinn
með egg? 10 hugsanlegar ástæður
er hægt að finna á http:
//downtime.stan-
ford.edu/topt-
en/old/listlO.html
Windows95
páskaegg
Á http:
//www.tcp.ca/gsb/
PC/ Win95-Easter~
Egg.html er kennt
Kristnar hugleiðingar
Trúarlega hugleiðingu um
páskana er aö finna á http:
// www.wilsonweb.com/rfwil-
son/archive/easter/god-
die.htm
Páskaföndur
Kennt er hvemig
búa á til alls kyns
páskaföndur á
http:
/www.ok.
bc.ca/TEN
/easter /east-
er. html
Prófgráður til sölu á netinu
Netþjónusta býður upp á falskar
prófgráður til sölu fyrir 70 pund.
Peter Quinn býður frá vefsíðu
sinni „þeim sem aldrei áttu kost á
námi í menntaskóla eða háskóla"
úrval stúdents- og háskólaprófskír-
teina frá hvaða menntastofnun
sem er sem mun veita sömu rétt-
indi og ekta skírteini. Hann segist
bjóða vinsælustu prófgráðurnar
sem fólk sækist eftir.
Mary Holding, starfsmaður há-
skólans í Sheffield, hefur staðfest
að umsækjandi hafi komist inn í
skólann á vottorði frá Quinn. „Sá
nemandi er ekki lengur í skólan-
um. Skírteinin sem ég hef séð eru
mjög raunveruleg. Það er ótrúlegt
hve mikil vinna er lögð í að líkja
eftir þeim,“ sagði hún.
Lögreglan í Merseyside, Durham
og Sheffield rannsakar málið og er
að reyna að hafa upp á Quinn. En
hún er ekki viss um að þessi þjón-
usta sé ólögleg. Starfskona hjá
Merseyside-lögreglunni sagði að
fyrir nokkrum árum hafi þessi
sami maður boðið háskólaprófskír-
teini til sölu í smáauglýsingum.
Þegar lögreglan gekk í málið sagð-
ist hann einungis hafa gert þetta til
gamans og ekki með það í huga að
fremja eitthvað glæpsamlegt. Ekk-
ert slíkt sannaðist heldur á hann
þá. Nú er hann farinn að gera slíkt
hið sama á netinu og það kallar á
lögreglurannsókn. Enn hefur ekki
tekist að finna út hvar Quinn er
niðurkominn.
Lögreglukonan varaði einnig við
að þeir sem létu glepjast til að
kaupa slíka framleiðslu gætu átt
það á hættu að verða sóttir til saka
fyrir að hagnast fjárhagslega á því
að blekkja fólk.
-HI
Verðstríð á leikjatölvum
Nintendo hefur nú lækkað verð á
hinni vinsælu leikjatölvu sinni, Nint-
endo 64, og svaraö þannig sams
konar lækkun hjá Sony. Þeir síðar-
nefndu eru þó enn nokkuð ódýrari.
Talsmaöur Nintendo í Bandaríkjun-
um sagði að þar sem þessi tími væri
yfirleitt hálfgerð gúrkutíð á leikjatölvu-
markaðnum væri jafnvel búist við aö
veröið lækkaði
enn frekar á
næstunni. Sér-
fræðingar telja
þó enn að Sony
hafi forskot á
þessum markaði
og aö Nintendo
verði að gera enn
meira til að slá
þessum keppí-
nautum sínum
viö.
Ný útgáfa af
Internet Gaming Zone
Microsoft hefur opnað nýja og end-
urbætta útgáfa af Internet Gaming
Zone (http://www.zone.com). Leikj-
um hefur verið fjölgaö og nýjum eig-
inleikum veriö bætt við.
Helsta nýjungin er sú aö hægt er að
fara í nokkurs konar móttöku og finna
sér félaga til að leika við. M.a. er
hægt aö leika skák, bridge, golf,
Monopoly, Scrabble og Risk viö ann-
an aðila í gegnum netið. Aðgangur
veröur ókeypis en Microsoft hyggst
fjármagna þessa starfsemi með aug-
lýsingum.
Glæpir upplýstir á Netinu?
Þátturinn Cold Case á CBS-sjónvarps-
stööinni fjallar um óleist morðmál í
Bandarikjunum. Stjórnendur þáttarins
hyggjast nota Netiö grimmt til að leysa
eitthvað af þessum málum.
Á heimsíðu þáttarins,
http://www.coldcase.com, er hægt að
nálgast lögregluskýrslur, krufningar-
skýrslur, myndir af staönum þar sem
glæpurinn var fram-
inn, skýrslur vitna
o.fl.
Tim Johnson, sem
á aö sjá um þáttinn,
vonast til þess að
notendur, sem
kannast við máliö,
muni hringja eða
senda tölvupóst til
lögreglumannanna
og hjálpa þeim að
leysa málin.
Raddprófun til
að auka netöryggi
Belgíska fyrirtækiö Keyware Tec-
hnologies hefur nú hafiö framleiðslu
á búnaöi sem þekkir raddir fólks. í yf-
irlýsingu frá fyrirtækinu segir að bún-
aöurinn sé til þess fallinn að auka ör-
yggi verslunar í gegnum netiö en nokk-
uð hefur veriö um að greiöslukort hafi
verið misnotuö á Netinu. Fyrirtæki
þetta hefur hingaö til sérhæft sig í
framleiöslu búnaðar sem þekkir lík-
amleg einkenni, s.s. fingraför eöa lit-
himnu augans.