Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Page 14
14
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
DV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoóarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösia, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Kaupmaðurinn í snörunni
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna er efnislega
úr sögunni. Hún getur ekki framar ályktað um mann-
réttindabrot, þar sem hún féll á Kínaprófinu. Engir harð-
stjórar þriðja heimsins þurfa að taka mark á stofnun,
sem engar viðmiðunarreglur notar í ályktunum sínum.
Hlutverk mannréttindanefndar á að felast í að fylgjast
með, hvort ríkisstjómir fari eftir undirrituðum mann-
réttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Engum blöðum
er um það að fletta, að Kínastjórn hefur brotið sáttmál-
ann kruss og þvers og hyggst áfram brjóta hann.
Kínastjórn hefur löngum beitt viðskiptalegum hótun-
um og gylliboðum til að hafa sitt fram á alþjóðlegum
stjómmálavettvangi. íslenzka valdastéttin hefur ekki
farið varhluta af þessum óviðurkvæmilegu vinnubrögð-
um. Hún hefur látið múta sér með glæstum ferðalögum.
Frönsk og þýzk stjórnvöld og mörg önnur evrópsk
stjómvöld fylltu ömurlegan flokk þeirra, sem töldu ekki
taka því að álykta um mannréttindabrot kínverskra
stjómvalda. Sú stefna stafar af þrýstingi fyrirtækja, sem
telja sig geta makað krókinn á viðskiptum við Kína.
Hlutskipti þessara stjómvalda er hið sama og kaup-
mannsins, er selur snöruna, sem á að hengja hann í.
Kínastjórn fyrirlítur Vesturlönd samkvæmt aldagamalli
hefð og lætur ófriðlega við nánast öll nágrannaríki sín,
þar á meðal Víetnam, Japan og Filippseyjar.
Markmið Kínastjórnar er að taka við af Sovétríkjun-
um sem annað heimsveldið andspænis Bandaríkjunum.
Hún vill sveigja stjórnvöld um allan heim til hlýðni við
hagsmuni sína. Hún beitir skipulega viðskiptalegum og
efnahagslegum þrýstingi og freistingum í því skyni.
Kínastjóm er núna að reyna að hefna sín á dönskum
stjómvöldum fyrir að hafa frumkvæði að tillögunni, sem
ekki náði fram að ganga í mannréttindanefnd Samein-
uðu þjóðanna. Meðal annars hefur hún ákveðið að fresta
öllum samskiptum við Danmörk um óákveðinn tíma.
Mikilvægt er, að þau ríki, sem stóðu með Danmörku
að tillögunni, láti núna eitt yfir alla ganga. Þeim ber að
svara með að fresta sínum samskiptum við Kína. í þess-
um hópi eru íslenzk stjórnvöld, sem hingað til hafa slef-
að af hamingju yfir ferðamolum af borði Kínastjórnar.
Hér í blaðinu hefur oft verið varað við óhóflegum
Kínaferðum stjómmálamanna og ekki síður við tilraun-
um íslenzkra aðila til að græða á viðskiptum við Kína.
Reynslan sýnir, að í Kína eru útlend fyrirtæki arðrænd
að geðþótta stjórnvalda, sem fara ekki að neinum lögum.
Lakkrísverksmiðja vina Halldórs Blöndal fór auðvitað
á hausinn og þannig mun fara fyrir fleirum. Aðrir munu
halda sjó með því að gerast flutningsmenn sjónarmiða
kínverskra stjómvalda gagnvart íslenzkum stjórnvöld-
um, svo sem við sjáum af dæmum frá öðmm löndum.
Ýmis bandarísk fyrirtæki em í svo erfiðum málum í
Kína og eiga svo mikilla hagsmuna að gæta, að Banda-
ríkjastjóm er undir stöðugum þrýstingi að hætta að am-
ast við brotum Kínastjórnar á fjölþjóðlegum samning-
um, svo sem umræddum mannréttindasáttmála.
Með því að stunda viðskipti við stjómina eða aðra að-
ila í Kína em menn að leggja sitt lóð á vogarskál auk-
inna vandræða í heiminum í kjölfar aukinnar uppi-
vöðslusemi kínverskra stjórnvalda; á vogarskál aukins
vígbúnaðar til að hafa hemil á þessum stjómvöldum.
Hrakfarir Vesturlanda í mannréttindanefndinni sýna
vestræn stjómvöld í hlutverki skammsýna kaupmanns-
ins, er verður hengdur í snörunni, sem hann seldi.
Jónas Kristjánsson
„Leggjum ofurkapp á að efla lestrarkunnátfu og lesskilning þeirra. Lesum fyrir þau, lesum með þeim ...“
Lestur og
reikningur
brotna og brotna nið-
ur, henda (í merk-
ingunni kasta) og
henda (í merking-
unni fleygja í ruslið
eða úti á víðavangi).
Börn sem svara
spurningunni rétt
eru býsna sleip í
móðurmáli en það er
óheimilt að draga
ályktun um kunn-
áttuleysi hinna í eðl-
isfræði!
Lesturinn er lyk-
ill fræða
Þrátt fyrir alla
tæknivæðingu (og
reyndar súmpart
Kjallarinn
Heimir Pálsson
deildarstjóri
„Menn hafa jafnvel látiö eins og
reikningslist sé eitthvaö alveg út
af fyrír sig, náttúruvísindi annaö
og lestur og læsi þá væntanlega
hið þriöja.“
í öllu talinu um reikning og
náttúruvísindi í vetur hefur
fjarska fátt verið skrifað og skraf-
að um samband lestrarkunnáttu
og reikningskunnáttu. Menn hafa
jafnvel látið eins og reikningslist
sé eitthvað alveg út af fyrir sig,
náttúruvísindi annað og lestur og
læsi þá væntanlega hið þriðja.
Auðvitað hugsa menn ekki
svona. Þeir hugsa bara ekki út í
allt sem þeir segja og þá hljómar
það svona. Þvi undirniðri vita
náttúrlega allir að engin sála lær-
ir reikning eða eðlisfræði á vorum
dögum nema hún kunni fyrst að
lesa. Þannig er nú einu sinni miðl-
un fræðanna háttað.
Brotna og brotna niður
Ég fór sér á parti að husga um
þetta þegar mér var sagt frá einu
eðlisfræðiverkefninu á prófinu
mikla sem kallað er TIMMS (af því
það er svo þægileg skammstöfun
og skiljanleg). Þetta verkefni var
spuming sem hljóðaði svona (að
sögn):
Hver eftirtalinna hluta brotnar
fyrst niður ef honum er hent:
plastflaska
glerflaska
áldós
eplakjarni?
Mig setti eiginlega hljóðan.
Hvað var verið að prófa hér? Var
verið að smiða orðaleiki sérstak-
lega til þess að klekkja á börnum
og gera lítið úr þeim? Því það
fyrsta sem prófast með þessu verk-
efni er ekki kunnátta í eðlisfræði
heldur kunnátta í móðurmáli:
þetta að geta gert greinarmun á
vegna hennar) stöndum við á því
þroskastigi að við kunnum fáar
eða engar aðferðir til að miðla
þekkingu nema setja hana I orð og
síðan tákn á blaði eða tölvuskjá
(stærðfræðitáknin eru náttúrlega
einkum aðferð til að skammstafa
það sem líka væri hægt að segja í
orðum).
Þetta merkir það að sú lítil sála
sem ekki er hraðlæs á texta af öllu
tagi, henni er lokuð leiðin að öllu
upplýsingaflóðinu sem að okkur
streymir. Og henni er náttúrlega
þar með óviðráðanlegt
verkefni að velja úr
þeim upplýsingum það
sem að notum mætti
verða. Þar með er hún
úr leik.
Lesum meö börn-
unum
Þetta er náttúrlega
gömul saga en hún fel-
ur í sér meiri alvöru í
dag en í gær. Hin orð-
rænu skilaboð sem öll
framtíðin byggist á
hafa aldrei verið eins
flókin og viðamikil og
núna. Þess vegna er
bara eitt sem gildir ef
við viljum gera börn
okkar og bama-
börn hlutgeng í
samfélagi fram-
tíðarinnar: Leggj-
um ofurkapp á að
efla lestrarkunn-
áttu og lesskiln-
ing þeirra. Lesum
fyrir þau, lesum
með þeim, fylgj-
umst með lestri
þeirra og hjálpum til.
Senn koma sumarfríin. Öll vit-
um við að bömin þurfa að hreyfa
sig og leika sér úti. En gerum líka
okkar til þess að þau hreyfi gráu
heilasellurnar og haldi þeim í
þjálfun. Gleymum ekki að börnin
þurfa bækur og eiga heimtingu á
að við eflum lestur þeirra og
lesskilning eins og nokkur kostur
er. Þá verða þau kannski líka góð
í reikningi og náttúruvísindum
með tímanum.
Heimir Pálsson
Skoðanir annarra
I sæluhúsum pyntingameistara
„Nú fyrirfinnst varla lengur hér í landi sá póli-
tíkus, embættismaður, erindreki eða forkólfur sem
ekki er nýkominn frá Kína ... íslenska sendinefnda-
elítan er orðin sannfærðari en gömlu Maóistarnir
um dýrðina eystra, og hefur haft undarlega hljótt
um þrekvirkin í sæluhúsum pyntingameistara ... Á
dögum kommúnista hér á landi hét þetta „hræðileg
þögn um illvirki" hjá þeim sem nú stanga súrsætt
svín úr tönnunum."
Stefán Jón Hafstein 1 Degi- Tímanum 16. apríl.
Fjölmiðlar og Flugleiðir
„Það er ljóst að það er bókstaflega lagaskylda Sam-
keppnisráðs að setja samruna Flugleiða og Flugfé-
lags Norðurlands með stofnun Flugfélags íslands,
ströng skilyrði, og jafnvel hefði stofnunin og ráðið
getað gengið lengra og bókstaflega ógilt samrunann
... í þessu sambandi verður heldur ekki undan því
vikist, að nefna þátt fjölmiðla í málinu, þegar það
kom upp á yfirborðið ... Hvar eru krossfarar heiðar-
legrar og óspilltrar fjölmiðlunar, þegar svona hags-
munaárekstrar verða? ... Getur verið að samtrygging
í fjölmiðlaheiminum sé svo mikil, að svona nokkuð
hafi átt að þegja í hel?“
Guðmundur Ámi Stefánsson í Alþbl. 16. apríl.
Lífeyrisfrumvarpiö
„Fyrir skömmu lagði fjármálaráðherra fram á Al-
þingi frumvarp um skyldutryggingu lifeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða. Flestir höfðu búist við því
að það yrði byggt á markmiðum ríkisstjómarinnar
um valfrelsi og samkeppni, eða að minnsta kosti
yrði reynt að þoka málum eitthvað í þá átt. Því er
hins vegar ekki að heilsa. Frumvarpið felur þvert á
móti í sér ákvæði, sem hætt er við að festi núverandi
skylduaðildarfyrirkomulag í sessi... efast má um að
breyting af þessu tagi stæðist ákvæði stjórnarskrár
um friðhelgi einkaréttarins."
Birgir Ármannsson í Mbl. 16. apríl.