Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Qupperneq 17
16 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997 25 íþróttir Iþróttir porbiörn Jensson hefur engin not fyrir krafta Siguröar Bjarnasonar. tel mig eiga heima í hópnum „Hefði viljað fá tækifæri til að sýna Þorbirni Jenssyni að ég er í toppformi,“ segir Sigurður Bjarnason hjá Minden „Ég er mjög svekktur yfir því aö hafa ekki verið valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistarakeppnina í Japan. Ég tel mig eiga heima í þessum hópi enda er ég í mjög góðu formi og er að spila í sterkustu deild I heimi. Ég hefði viljað fá að vita ástæðuna hjá Þorbimi fyrir því að hann valdi mig ekki í hópinn en ég hef ekki fengið mörg tækifæri hjá honum til að sanna mig,“ sagði Sigurður Bjarnason, atvinnumaður hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Minden, í samtali við DV í gær en hann var úti í kuldan- um hjá Þorbimi Jenssyni, landsliðsþjálfara, þegar hann tilkynnti 19 manna landsliðshópinn í handknattleik í fyrradag. Sigurður á að baki tæpa 100 lands- leiki og hefur tekið þátt í tveimur síðustu heimsmeistaramótum, í Sví- þjóð 1993 og á íslandi 1995. Gróusögur í gangiaö ég sé í dópi hérna úti „Það hafa verið í gangi Gróusögur um mig þess efnis að ég sé í dópi héma úti en þetta er auðvitað algjör þvættingur. Ég bý hér úti meö kærustu minni og lifi rólyndislífl með henni. Þessar lygasögur hafa án efa borist til landsliðsþjálfarans og ég veit ekki hvort þetta sé ástæðan fyrir því að hann sá ekki ástæðu til að velja mig. Ég hefði viljað fá tækifæri til að sýna landsliðsþjálfaranum á æfingum að ég er í mjög góðu formi og tilbúinn að takast á við HM verkefnið." Vilja losna viö Sigurö Sigurður gerði í fyrra tveggja ára samning við Minden Fótboltaskór á frábæru tiboðsverði Mikael Laudrup. Skór úr gerfiefni. Nr. 37-43 fyrir möl. Verð 2.990 (áður 3.990) Papin Startey nr. 35-46. Leður á tá og rist. Fyrir möl og gras. Verð 3.490 (áður 5.600) Laudrup Champion Nr. 36-45. Leðurskór. Verð 3.950 (áður 5.990) Papin League Nr. 37-45. Mjúkt kengúruleður fyrir möl og gras. Verð 5.990 (áður 7.990) SPORTVÖRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49 sími 551 2024 Opið laugardaga tilkl. 16 og á því eitt ár eftir þegar timabilinu lýkur eftir nokkrar vikur. En það stefnir í að tímabilið hjá Minden á næsta vetri verði enginn dans á rósum fyrir Sigurð því forráða- menn félagsins hafa geflð það í skyn að þeir vilji losna við hann eftir að þeir gerðu samning við tvo miðjumenn, sænska landsliðsmanninn Magnus Anderson hjá Schutt- erwald og Frank Löhr hjá Gummersbach. „Þeir hafa ekki sagt það opinberlega að þeir vilji losna við mig en þeir hafa gert því skóna að það sé ekkert pláss fyrir mig í liðinu. Ég er samt mjög rólegur yfir þessu. Ég á eitt ár eftir af samningnum og þeir verða að greiða mér upp samninginn eða finna annað lið sem vill fá mig vilji þeir losna við mig.“ Sögusagnir hafa verið í gangi að Stjaman og KA vilji fá þig. Kemur til greina að koma heim og spila? „Það kemur svo sem alveg til greina en ég vil vera áfram hér úti. Handboltinn er miklu sterkari og meiri peningar í boði en heima. Ég hef ekkert heyrt frá neinum félögum að heiman," sagði Sigurðui' að lokum," -GH Sigurður Bjarnason er mjög óhress, segist leika sterkustu deildarkeppni í heiminum, og heföi viljaö fa tækifæri hjá Þorbirni Jenssyni. Liverpool enn skrefi á eftir Liverpool gat náð forystunni í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gærkvöld meö sigri gegn Everton á útivelli. Það tókst hins vegar ekki og Man Utd heldur því enn tveggja stiga forystu á Liverpool og þriggja stiga forskoti gegn Arsenal og á leik inni á bæði lið- in. Everton-Liverpool..........1-X 0-1 Redknapp (25.), 1-1 Ferguson (65.) Newcastle-Chelsea..........3-1 1-0 Shearer (12.), 2-0 Aspilla (30.), 3-0 Shearer (35.), 3-1 Burley (62.) Wimbledon-Leeds ...........2-0 1-0 Holdsworth (19.), 2-0 Castledine (74.) Staða efstu liða: Man.Utd 33 19 9 5 66-38 66 Liverpool 34 18 10 6 57-30 64 Arsenal 34 18 9 7 57-28 63 Newcastle 33 16 9 8 64-39 57 Manchester City vann góðan heimasigur gegn Grimsby í gær kvöld, 3-1, í 1. deildinni. Þýskaland og Spánn Stuttgart sigraði Hamburg undanúrslitum bikarkeppn- inn-ar, 2-1. í spönsku deildinni vann Real Ma- drid lið Sevilla, 4-2, og Valladolid vann sigur á Barcelona, 3-1. -SK/-GH Heðinn með sex í tapleik Héðinn Gilsson og félagar hans í Fredenbeck töpuðu dýrmætum stigum í botnbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær þegar þeir urðu að lúta í lægra haldi fyrir Gummersbach á útivelli, 22-19. Héðinn var marka- hæstur í liði Fredenbeck með 6 mörk en Kóreumaðurinn stóri og stæðilegi, Yoon, var markahæstur að vanda hjá Gummersbach með 9 mörk. „Héðinn lék mjög vel. Hann var með góða skotnýtingu og átti þátt í mörgum mörkum,“ sagði Sigurður Bjarnason, sem fylgdist með leiknum í þýska sjónvarpinu. Þegar tveimur umferðum er ólokið er Schutterwald, lið Róberts Sighvatssonar, neðst með 16 stig, Fredenbeck er með 18, Dormagen 20, Hameln 20 og Minden 22. Tvö neðstu liðin falla í 2. deild en þriðja neðsta liðið þarf að leika aukaleiki um að halda sæti sinu. Jafntefli gegn Luxemborg íslenska U-21 árs landsliðið í knattspymu gerði í gær 1-1 jaln- tefli gegn jafnöldrum smum fra Luxemborg í vinattulandsleik þjóðanna sem fram fór í Luxem- borgígær. , Heimamenn skoruðu i ft™ hálfleik en Guðni Rúnar Helga- son jafnaöi metin fyrir Island í þeim seinni. Gunnar Berg og Arnar eru á förum frá Eyjum Lið Eyjamanna í handknattleik hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku. Arnar Pétursson mun ekki spila með ÍBV á næsta keppnistímabili en áður hefur komið fram að Gunn- ar Berg Viktorsson er á förum frá félaginu. Gunnar Berg ætlar i nám í Reykjavík og eru mörg lið á höttunum eftir honum eins og komið hefur fram í DV. Amar Pétursson staðfesti í samtali við DV að hann ætlar í nám í Reykjavík næsta vetur. „Eg mun ekki spila með IBV næsta vetur. Því mið ur er ekkert háskólanám í boði í Eyjum og því mun ég spila með öðru liði. Ég treysti mér ekki til að vera í ströngu námi og spila einnig með ÍBV. Það gengur ein- faldlega ekki upp,“ sagði Amar. Samkvæmt heimildum DV hefur handknattleiksráðið verið i sambandi við Eyja- mennina Hlyn Jóhannesson, markvörð úr HK, og Jens Gunnarsson, línumann hjá Gróttu. Hafa þær viðræður verið frekar jákvæðar. -ÞoGu Steve Claridge, sem skoraöi sigurmark Leicester, meö bikarinn. Símamynd Reuter Fýrsti titill Leicester síðan 1964 Lið Leicester tryggði sér sigur í deildabikarkeppninni meö því að vinna 1-0 sigur á Middlesbrough í fram- endum leik í gærkvöldi. Steve Claridge, sem tryggði Leicester sæti í úrvalsdeildinni í fyrra, skoraði sigur- markið, með laglegu skoti af markteig á 100. minútu. Þetta var annar stóri titillinn í sögu Leicester en liðið vann sömu keppni árið 1964. Liverpool missti af gullnu tækifæri til að skjótast á topp ensku úrvalsdeildarinnar en þá gerðu nágranna- liðin Everton og Liverpool 1-1 jaíhtefli. Liverpool var betri aðilinn í leiknum og Robbie Fowler átti til að mynda tvö stangarskot. Undir lok leiksins fékk Fowler að líta rauða spjaldið ásamt David Unsworth, varnar- manni Everton, fyrir slagsmál. Alan Shearar sýndi enn og aftur hversu magnaður framherji hann er þegar hann skoraði tvö af mörkum Newcastle gegn þreyttu liði Chelsea. -GH Guömundur Benediktsson hefur átt viö þrálát meiösli aö stríöa en nú eru góöar horfur á því aö hann mæti í slaginn með KR í byrjun júlí. AÐALFUNDUR Knattspyrnufélagsins Þróttar verður haldinn í Þróttheimum fimmtudaginn 24. apríl nk. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. 2. Kynning á teikningum að nýju félagshúsi í Laugardal. Stefnir að því að mæta í byrjun júlí - Guðmundur Benediktsson er bjartsýnn á sumarið eftir Qórða uppskurðinn á hné á sex árum Guðmundur Benedikts- son, knattspymumaðurinn snjalli úr KR, mætir til leiks með Vesturbæjarlið- inu í 1. deildinni í byrjun júlí ef allt fer sem horfir. Guðmundur gekkst und- ir uppskurð á vinstra hné i lok október en hann spilaði seinni hluta síðasta sum- ars með slitið krossband. í kjölfarið varð hann fyrir slæmri sýkingu sem tafði fyrir bata hans í 2-3 mán- uði og á tímabili var óljóst hvort hann gæti haldið áfram að leika knatt- spyrnu. Fjórði uppskurðurinn á sex árum Guðmundur, sem er 22 ára gamall, hefur tekið út sinn skammt af svona meiðslum. Þetta var hans fjórði uppskurður á hné á sex árum og segja má að á hans ferli hafi meiri tími farið í endurhæfingu en knattspymuæfingar. „Þetta var allt í járnum eftir að sýkingin kom upp. Ég er með einar þrjár skrúfur í hnénu síðan ég var skorinn upp fyrir sex árum og hættan var sú að sýkingin blossaði aftur upp í kringum þær. Þá hefði þurft að fjarlægja þær og krossbandið með, og þá hefði ferlinum verið endan- lega lokið," sagði Guð- mundur við DV í gær. Hann hleypur, lyftir og syndir daglega til að koma sér í form íyrir sumarið og sagði að stutt væri i að hann mætti fara að sparka í bolta, án átaka þó. Horfurnar eru mjög góöar „Horfurnar em mjög góðar fyrir sumarið. Það var alltaf talað um að raun- hæft markmið væri að byrja að spila í byrjun júlí og það stendur ennþá. Auð- vitað geri ég mér vonir um að geta byrjað fyrr en það verður að ráðast. Það er líka skynsamlegt fyrir mig að bíða þar til krossbandið er örugglega gróið við beinið. Þá yrði ég betur settur ef sýkingin kæmi aftur upp, því þá þyrfti ekki að fjarlægja bandið. Til Belgíu með KR Hann fer með KR-ingum í æftngaferð til Belgíu í næstu viku. KR-ingar dvelja þá þar í landi í átta daga og spila við 1. deildar- liðin Lommel og Genk. „Það verður tilbreyting að komast til Belgíu og hlaupa þar á grasinu, þó ég geti ekki gert mikið annaö ennþá. Ég er bjartsýnn og bíð spenntur eftir því að byrja að spila á ný,“ sagði Guðmundur Benediktsson, sem var hjá Ekeren í Belg- íu í fiögur ár en gat mest lítið spilað vegna hinna þrálátu meiðsla. -VS Félagar, fjölmennið. Aðalstjórn Sigurður Orn er hættur Sigurður Öm Jónsson leikur ekki með KR-ingum í knatt- spymunni í sumar. Hann hefur ákveðið að hætta vegna atvinnu sinnar. Þetta er áfall fyrir KR- inga því Sigurður Öm hefur ver- ið lykilmaður hjá þeim síðustu tvö árin. Hann er aðeins 23 ára og var valinn i lið ársins í 1. deildinni 1995. -VS Einar kominn heim frá Belgíu Einar Þór Daníelsson er kom- inn til KR-inga eftir að hafa spil- að með belgísku 3. deildarliði seinni part vetrar. Einar hætti þar fyrr en áætlað var vegna nárameiðsla en verður tljótlega kominn í slaginn með KR-ing- um. Þá fá KR-ingar Ríkharð Daða- son til liðs við sig þegar þeir fara í æfingaferð til Belgíu í næstu viku. Hann hefur leikið með Kalamata i Grikklandi undan- famar vikUr. -VS Eiður Smári má byrja að æfa DV, Belgiu: Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaðurinn efnilegi hjá PSV Eindhoven í Hollandi, er að hefja æfingar eftir tæplega árs fjarveru vegna fótbrots. Hann var í skoðun hjá belgíska lækninum Martens á þriðjudag en Martens skar hann upp fyrir skömmu. „Hann sagði að ég mætti byrja að æfa núna strax. Ég byrja með varaliðinu og ætla ekki að flýta mér um of en vona að ég geti far- ið að leika fljótlega í sumar,“ sagði Eiður Smári við DV. Samningur hans við PSV rennur út í lok maí. -KB Arnarlengur hjá Lokeren H Arnari Viðarssyni, knattspyrnumanni úr FH, hefur verið boðið að vera hjá belgíska 1. deildar- liðinu Lokeren í mánuð til viðbótar. Arnar hefur verið hjá félaginu í tvær vikur og staðið sig mjög vel. -KB 3 Keflvíkingar til Tindastóls DV, Suðurnesjum: Þrír fyrrum leikmenn Keflavíkur í knattspymu munu leika með Tindastóli í 4. deildinni í sumar. Þetta eru Sverrir Þór Sverrisson og Jóhann Steinarsson sem báðir léku með Keflavíkurliðinu á síðasta sumri og Steinbjörn Logason sem lék með Víði í fyrra en áður Keflavík. -ÆMK Deildabikarinn Fylkir-Afturelding....1-0 Ólafur Sigurjónsson ÍR-HK ................2-3 Kristófer Ómarsson, Kristján Brooks - Steindór Elíson, Jón Þ. Stefánsson, ívar Jónsson. Selfoss-Reynir........1-1 Sjáifsmark - Róbert Sigurðsson. I kvöld Deildabikarinn í knattspyrnu: KR-FH..............KR-vöUur 18.30 Stjarnan-Þróttur R.....Hafn. 20.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.