Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1997, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1997
Vandi stöðv-
arinnar
„Helsti vandi stöðvarinnar er
ef til viU að skilaboðin eru ekki
alltaf nægilega skýr. Við sjáum
ekki hvort um grín eða gagnrýni
er að ræða.“
Hjalti Hugason prófessor, um
Enn eina stöðina, í DV.
Skrefin
„Þetta eru tvö skref áfram og
eitt til baka.“
Þórir Einarsson sáttasemjari,
um ganginn í samningamál-
um, í Degi-Tímanum.
Fúlt að fá ekki að
gera neitt
„Það er fúlt að vinna fyrir Tó-
baksvarnanefnd, vera ekki eftir-
litsaðili og geta ekkert gert þó
lögin séu þverbrotin."
Þorgrímur Þráinsson, fram-
kvæmdastjóri Tóbaksvarna-
nefndar, í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Þeir sem horfa á
Strandverði
„Hver sá sem segist horfa á
Strandverði til að fylgjast með
uppeldi Hoby eða lífinu á strönd-
inni er annaðhvort lygari eða
skráður meðlimur í Kvennalist-
anum.“
Guðmundur Albertsson, í les-
endabréfi í DV.
Umbúðir og innihald
„Til þessa hafa viðræður snú-
ist meira um umbúðir en inni-
hald.“
Ögmundur Jónasson, form.
BSRB, í Alþýðublaðinu.
Bólusetning er ekki mikil aðgerð,
samt er það svo að margir kvíða
henni.
Bólusetning
Lengi vel var flótti eina úr-
ræði fólks þegar bólusótt var
væntanleg. Bólusetning af ein-
hverju tagi var þó viðhöfð á Ind-
landi eða í Kína aftur í fomeskju
og var hún í raun fyrsta úrræði
manna til að skapa ónæmi. Upp-
þomað hreistur af bólusóttarkýl-
um var tekið í nefið í ónæmis-
skyni í Austurlöndum fjær 800
áram áður en Englendingurinn
Jenner uppgötvaði kúabóluefnið.
Hin austurlenska aðferð var
óþekkt í Evrópu fram til 1717 en
þá fréttist að lafði Mary Wortley
Montaque, kona breska sendi-
herrans í Konstantínópel, hefði
látið gera þriggja ára son sinn
ónæman.
Blessuð veröldin
Kúabóluefni Janners
14. maí 1796 dró Edward Jenn-
er gröft út úr kúabólu á hendi
ungrar stúlku og setti hann í
handlegg átta ára gamals drengs.
Stúlkan var með kúabólu, mein-
lausan sjúkdóm sem var algeng-
ur í mjaltastúlkum. Tíu dögum
síðar kom bólan út. Hún læknað-
ist eftir skamma hríð. Næst lét
Jenner drenginn liggja í rúmi
hjá bólusóttarsjúklingi til þess
að athuga hvort hann smitaðist
af honum og drengurinn smitað-
ist ekki. Bólusetningin hafði gert
hann ónæman. Jenner kallaði
vökvann vaccine sem dregið er
af latneska orðinu vacca og þýð-
ir kýr.
Þokubakkar og sums
staðar súld
Skammt suðvestan af landinu er
kyrrstæð og víðáttumikil 1034 mb
hæð.
Veðrið í dag
í dag verður hæg vestlæg eða
breytileg átt. Norðan og vestan til á
landinu verða þokubakkar og sums
staðar súld en skýjað með köflum
um landið suðaustanvert. Hiti á bil-
inu 2 til 13 stig, hlýjast á Suðaust-
urlandi yfir daginn en kaldast á
norðausturhominu.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
hæg breytileg átt og þokusúld öðru
hvoru. Hiti 6 til 9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 21.08
Sólarupprás á morgun: 5.45
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.32
Árdegisflóð á morgun: 3.47
Vedrið kl. 6 í morgun
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 7
Akurnes þoka 2
Bergstaöir Bolungarvík skýjaö 7
Egilsstaöir skýjaö 4
Keflavíkurflugv. þoka 6
Kirkjubkl. skýjaö 6
Raufarhöfn rigning 3
Reykjavík rigning og súld 6
Stórhöföi þoka 6
Helsinki skýjaö 2
Kaupmannah. skýjaö 4
Ósló létttskýjaö 2
Stokkhólmur skýjaö 4
Þórshöfn alskýjaö 6
Amsterdam léttskýjaö 2
Barcelona skýjað 14
Chicago alskýjaö 2
Frankfurt úrkoma í grennd 4
Glasgow skýjaö 9
Hamborg léttskýjaö -0
London alskýjaó 9
Lúxemborg hálfskýjaö 3
Malaga skýjaö 17
Mallorca skýjað 10
París léttskýjaö 4
Róm skýjaö 7
New York hálfskýjaö 12
Orlando skýjaö 18
Nuuk skýjaö 3
Vín skýjað 2
Washington léttskýjaö 13
Winnipeg heiöskírt -4
Sigurður Kjartansson byggingafræðingur:
Hafði áhyggjur í fyrstu af
að hafa bent á ranga menn
Sigurður Kjartansson bygginga-
fræðingur og Hallgrímur Magnús-
son læknir voru þeir sem urðu til
þess að lögreglan komst á slóð ræn-
ingjanna þriggja sem rændu pen-
ingasendil á mánudagsmorgun.
Sýndu þeir mikið snarræði þegar
þeir eltu ræningjana og náðu núm-
eri bílsins sem þeir voru á, sem svo
varð til þess að lögreglan komst á
sporið. Sigurður og Hallgrímur
starfa báðir á Suðurlandsbraut 48
þar sem ránið var framið. í stuttu
spjalli var Sigurður fyrst spurður
hvemig honum hefði liðiö meðan á
öllu þessu stóð: „Þetta tók svo
Maður dagsins
snöggt af að það var ekki fyrr en eft-
ir á að ég fór að hugsa um atburð-
inn og hafði þá mestar áhyggjur af
því hvort ég hefði bent á ranga
menn. Kringumstæðurnar voru
samt þannig að erfitt var að ímynda
sér annað en að þetta væm ræningj-
amir.
Sigurður sagði aðspurður að ræn-
ingjamir hefðu aldrei orðið varir
við eftirfórina: „Ég held að þeir hafi
verið alveg grunlausir og sjálfsagt
—
Sigurður Kjartansson.
ekki dottið í hug að þeim væri veitt
efthför. Eftir á að hyggja þá var ég
sjálfúr hissa hvað við Hallgrímur
vorum fljótir að hugsa því þarna
var um sekúndur að ræða. Einnig
er ánægjulegt tO þess að vita hvað
lögreglan stóð sig vel í leitinni að
ræningjunum.
Það að tveir almennir borgarar
fari að taka upp á því að elta ræn-
ingja er nokkuð sem enginn myndi
þora að gera í stórborg: „íslending-
ar eru ekki vanir glæpamennsku af
þessu tagi og því bregðumst við
svona við. Ég var eitt sinn í Kaup-
mannahöfh og var að bíða eftir
strætó. Stutt frá rak einhver náungi
höndina í bílrúðu, braut hana og
tók tösku og aðra persónulega hluti
og labbaði á brott. Þeir sem næstir
stóðu hreyfðu sig ekki, litu aðeins
undan. Þetta held ég gæti aldrei
gerst á íslandi."
Sigurður Kjartansson er bygg-
ingafræðingur og rekur ásamt syni
sínum, Kjartani, stofu sem annast
hönnun, ráðgjöf og byggingareftir-
lit. Þegar hann var spurður um
áhugamál sagðist hann nýverið
hafa ánetjast golfinu: „Ég hef ákaf-
lega gaman af að spila golfið, er
svona að ná áttum í íþróttinni áður
en ég geng í golfklúbb. Það er mjög
margt sem gerir golfið skemmtilegt,
þetta er kjörin fjölskylduíþrótt,
íþrótt sem tekur vel á móti byrjend-
um. Þegar svo farið er í frí til út-
landa er einstaklega gaman að
kynnast nýjum golfvöllum og hitta
skemmtilegt fólk. Þá er það ekki síst
gaman að í golfinu er maður alltaf
að keppa við sjálfan sig.“ Eiginkona
Sigurðar er Eyrún Gunnarsdóttir og
þau eiga þrjú börn.
Kasthjól
Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi.
Rósa Guðný Þórsdóttir, Jóna
Guðrún Jónsdóttir og Steinunn
Ólafsdóttir í hiutverkum sínum.
Vinnukonurnar
í Kafilleikhúsinu í Hlaðvarp-
anum er nú verið að sýna
Vinnukonurnar eftir Jean Genet
og er næsta sýning í kvöld.
Vinnukonumar var frumsýnt í
París árið 1947 og hefur ásamt
öðrum verkum Genet haft mikil
áhrif á hugmyndir manna um
leikhús á síðari hluta tuttugustu
aldar. Fjölmargir leikstjórar
hafa tekist á við verkið og hægt
er að skoða það frá ýmsum sjón-
arhomum. Leikritið hefur einu
sinni áður verið sýnt hér á landi,
hjá Grímu árið 1963.
Leikstjóri í þetta skiptið er
Melkorka Tekla Ólafsdóttir en
meö hlutverkin þrjú fara Rósa
Guðný Þórsdóttir, Steinunn
Ólafsdóttir og Jóna Guðrún
Jónsdóttir. Þýðendur verksins
eru Vigdis Finnbogadóttir og
Melkorka Tekla Ólafsdóttir.
Leikhús
Smáborgarabrúðkaupið
Leikfélag Selfoss hefur hafið
sýningar að nýju eftir páskafrí á
Smáborgarabrúðkaupinu eftir
Bertholt Brecht í leikstjórn Við-
ars Eggertssonar. Er sýning á
leikritinu í kvöld í Kaffileikhús-
inu, Sigtúnum 1, Selfossi. Leik-
ritið verður síðan sýnt á sama
stað á fóstudags- og laugardags-
kvöld. Sýningar heíjast kl. 20.30.
Bridge
Pólverjarnir Roman Kierznowski
og Krzysztof Lukaszewicz (þau eru
erfið þessi pólsku nöfn) vora næsta
öruggir sigurvegarar á Evrópumót-
inu i tvímenningi í marsmánuði síð-
astliðnum með 56,48% skor. Parið í
öðru sæti (Quantin og Abecassis frá
Frakklandi) var með 55,75% skor. í
þessu spili úr mótinu sýnir Bretinn
Paul Hackett (faðir landsliðsspilar-
anna Jason og Justin Hackett) fæmi
sína í úrspilinu. Sagnir gengu
þannig, norður gjafari og n-s á
hættu:
* Á8642
W ÁK8
* D9
* 653
* 9
DG109
* K87542
* KG
4 KD53
•* 7643
* Á6
* Á42
Norður Austur Suður Vestur
1 4 pass 3 Grönd 4 ♦
4 4 p/h
Þriggja granda sögn suðurs lýsti
jafnskiptri hendi með góðum spaða-
stuðningi og vestur ákvað að koma
inn á fjórum tíglum til að benda á
útspil. Samningurinn lítur ekki allt
of vel út og tapslagirnir virðast
óhjákvæmilega vera fjórir. Austur
spilaði út tigli og Hackett drap á ás-
inn, tók þrisvar tromp og vestur
henti tvisvar tígli. Hackett spilaði
sig síðan út á tígli. Vestur drap og
spilaði hjartadrottningu sem
Hackett drap á kóng og spilaði síðan
litlu laufi frá báðum höndum. Vest-
ur átti slaginn og spilaði aftur
hjarta en Hackett drap á kónginn,
spilaði laufás og meira laufi. Austur
átti ekkert eftir nema tígul og lauf
og varð að spila upp í tvöfalda eyðu.
Fimm tíglar er reyndar ágætis fóm,
svo fremi sem fjórir spaðar standa.
Sagnhafi getur sloppið 3 niður (500 í
dobluðum samningi) ef hann gefur
aðeins einn slag á tromp).
ísak Örn Sigurðsson